Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 42
■w
42
jecií H.mílii::!■>irjr=’;,r;-j{!„igi:.! j o;/
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins
á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í
Hafnarstræti 85, Akureyri.
+ Dóttir okkar, HELGA ROBERTS, er látin. Huld Gísladóttir Roberts, Geoffrey Roberts.
+ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA JÓSEPSDÓTTIR, Furugrund 38, Kópavogl, lést í Landspítalanum 12. mars. Sólrún Yngvadóttir, Ásmundur Guðmundsson, Óskar Yngvason, Guörún Hjaltadóttir, Þorgeir Yngvason, Þrúður Pálsdóttir, Eygló Yngvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Eiginmaður minn og faðir, SVEND OVE ANDERSEN, Safamýri 52, andaðist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 13. mars. Hólmfríður Pétursdóttir og börn hlns látna.
+ Móðirokkar, ÁSA ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR, lést á Sólvangi 13. mars. Guðrún Bjarnadóttir Árni Bjarnason, Reynir Bjarnason.
+ STEINVÖR VÉFREYJA KRISTÓFERSDÓTTIR, Langholtsvegi 13, andaöist í Borgarspítalanum 11. mars. Margrót Hannesdóttir, Theódóra Grfmsdóttir, Ágústa Hjálmtýsdóttir.
+ Uppeldissystir mín, ÞÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að morgni 13. mars. Fyrir hönd aöstandenda, Gunnar Árnason.
+ Útför BJARGAR ERLENDSDÓTTUR, Meiðastöðum, Garði, verður í Útskálakirkju laugardaginn 15. mars kl. 14.00. Fyrir hönd aöstandenda, Erlendur Guðlaugsson.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð um
hinn látna. Leyfilegt er að birta
ijóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
-------------—..
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.
ívar B. Þorgeirs-
son — Kveðjuorð
Fæddur 16. október 1976
Dáinn 5. mars 1986
Þóíokkarfeðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað mold
minningamaryfir.
(Bjami Jónss. frá Gröf)
Með þessu fallega versi kveðjum
við í hinsta sinn litla vininn okkar
ívar, sem var jarðsunginn frá Hnífs-
dalskapellu sl. miðvikudag.
Ivar var aðeins níu ára gamall,
sonur hjónanna Kristjönu Jónas-
dóttur og Þorgeirs Jónssonar.
Níu ár er ekki langur tími, en
stundum nógu langur fyrir þá sem
eiga við alvarleg veikindi að stríða.
Þrátt fyrir langa sjúkdómssögu
og mikla fötlun gaf hann okkur sem
önnuðumst hann hér í Bræðratungu
dýrmætar stundir og ómetanlegt
veganesti, sem seint mun gleymast.
Ivar var sólargeisli foreldra sinna
og öllum þeim sem voru svo lánsöm
að kynnast honum.
Það er huggun í harmi að ívar
hleypur núna Mskur og glaður þar
sem sjúkdómar og sorgir þekkjast
ekki.
Langa minningargrein er ekki
hægt að skrifa um ungt barn, en
með þessum fátæklegum orðum
viljum við þakka ívari fyrir sam-
veruna.
Elsku Kiddý, Brói og Sandra litla.
Guð veri með ykkur, gefi ykkur
styrk og sefí sárasta söknuðinn.
Þið getið glaðst yfir minningunum
um góðan dreng.
Starfsfólk Bræðratungu
Fanney Björns-
dóttir - Minning
Fanney Bjömsdóttir lést 28.
febrúar sl. og var kvödd hinstu
kveðju frá Langholtskirkju 6. marz.
Hún fæddist 17. febrúar 1904 í
Göngustaðakoti í Svarfaðardal.
Foreldrar hennar vom Bjöm
Bjömsson ættaður frá Atlastöðum
og Sigríður Jónsdóttir frá Kónsstöð-
um. Þeim varð átta bama auðið og
komust sex þeirra til fullorðinsára.
Fanney var næst elst þeirra. Hún
ólst upp í heimahúsum fram að tví-
tugsaldri, fór því næst að Hóli á
Dalvík og var þar í kaupavinnu í
þrjú ár.
Rúmlega tvítug lærði Fanney
klæðskerasaum á Akureyri. Á síld-
arárunum miklu fer hún til Siglu-
fjarðar, þar kynnist hún Valgarði
Þorkelssyni skipstjóra og gengu
þau í hjónaband árið 1931. Þau
flytjast til Hafnarfjarðar árið 1936
og búa þar í 5 ár áður en þau flytja
til Reykjavíkur, á Bergstaðastræti
14, þar sem þau keyptu sér stóra
og myndarlega íbúð. Þau bjuggu
þar í 20 ár uns leiðir þeirra skildu.
Böm Fanneyjar og Valgarðs em
Sigurður, vaktmaður, Óskar Henn-
ing, jámsmiður, kvæntur Kolbrúnu
Karlsdóttur, Anna, gift Theodóri
Ingólfssyni prentara, Valgarður,
skrifstofuvélavirki, kvæntur Þór-
unni Símsen og Fanney, auglýs-
ingateiknarí gift Ólafi Óskarssyni.
Það var árið 1961 sem ég kjmnt-
ist Fanneyju, en þá flutti hún með
tvö yngstu bömin sín á Ránargötu
7 a. Þegar ég raða saman minning-
arbrotunum þá man ég að það setti
að mér kvíða hvaða fólk flytti á
miðhæðina. Svo hagaði til að á efsta
stigapalli rishæðarinnar, þar sem
við hjónin bjuggum með þijú ung
böm, var íbúðin ekki aflokuð frá
stigagangi og þar af leiðandi gat
skapast ónæði fyrir aðra íbúa húss-
ins. Sá ótti var ástæðulaus, Fanney
var einstaklega góð við telpumar
okkar, oft kom hún upp ef hún
heyrði bamsgrát, til að hugga.
Þegar sú fjórða bættist í hópinn,
leit hún oft eftir henni, þegar hún
svaf í vagninum í bakgarðinum og
ég þurfti að skreppa frá.
Eins og áður sagði þá lærði
+
Systir min og fööursystir okkar,
GUÐRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR,
Selfossi,
er lést hinn 6. mars, verður jarðsungin frá Selvogskirkju laugar-
daginn 15. mars kl. 13.30. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni
sama dag kl. 12.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeir sem vildu minnast hennar
láti Selfosskirkju njóta þess.
Bjarni Sigurgeirsson,
Sigurgeir Höskuldsson,
Sigrún Arnbjarnardóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN EINARSDÓTTIR,
Presthúsum, Mýrdal,
er lóst 7. mars á heimili dóttur sinnar Steinum, Eyjafjöllum, verður
jarðsett frá Reyniskirkju laugardaginn 15. mars kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR INGVARSSON,
Kirkjuvegi 28, Vestmannaeyjum,
lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. mars.
larðarförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 15. mars kl.
14.00.
Klara Lambertsen,
Guðbjörg Kristjánsdóttir, Jóhann Guðmundsson,
Guðbjörg Petersen, Steinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
J9B
Fanney klæðskerasaum. Hún vann
við sauma á heimili sínu, fékk send
heim verkefni frá klæðskerum sem
hún vann fyrir. Þar sem samgangur
var á milli heimilanna horfði ég oft
á hana við vinnu sína, allt lék í
höndum hennar og lærði ég margt
handbragðið af henni. Einnig var
hún fús að segja mér til þegar ég
var að sauma á telpumar mínar.
Oft gaf Fanney sér tíma frá sauma-
skapnum til að grípa í hannyrðir
og liggur margt eftir hana í þeim
efnum.
Fanney var bókelsk kona og víð-
lesin. Þær voru ófáar bækumar sem
hún lánaði mér úr bókaskápnum
sínum. Hún átti allar bækur eftir
Laxness sem þá voru komnar út
og hvatti mig til að lesa bækur eftir
hann, Fanneyju þótti ekki nóg að
lesa bækumar, það þurfti að fjalla
um efni þeirra að lestri loknum.
Oft hlógum við saman og vorum
ekki alltaf sammála um meðferð
skáldsins á persónunum. Þetta
skeið var áður en sjónvarpið kom
til sögunnar og minnist ég þess líka
hvað við vorum alltaf spenntar yfir
framhaldsleikritunum í útvarpinu
og ræddum um þau á eftir. Oft
réðum við saman krossgátur og
hlupum á milli íbúða þegar við
vorum búnar að finna lausnir.
Ásamt blöðum og bókum voru
ævinlega krossgátur á náttborði
Fanneyjar.
Eftir að ég flutti frá Ránargöt-
unni 1964 minnkuðu samskipti mín
við Fanneyju en þau rofnuðu aldrei.
Fanney var nett kona, heilsteypt
og viljaföst. Hún var glaðlynd og
vel til vina. Hún flíkaði ekki tilfinn-
ingum sínum, hafði ákveðnar skoð-
anir, eigin skoðanir, var með af-
brigðum heimakær og stundaði lítt
félagslíf. Viðhorf Fanneyjar voru
samofin því lífi sem hún lifði. Síð-
ustu þrjú árin sem hún lifði bjó hún
á heimili dóttur sinnar Önnu og
tengdasonar. Víst er að yngri sonur
þeirra hjóna saknar ömmu sinnar
mikið, samskipti þeirra voru mjög
náin og reyndist hún honum mikil
'stoð í hans veikindum.
Að kveðjustund færi ég Fanneyju
þakkir fyrir vináttu hennar og
hugljúfar samverustundir.
Fari hún í friði, friður Guðs sé
með henni.