Morgunblaðið - 23.03.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1086
Ustinov
Bresk/ítalski sjónvarpsmyndaflokkurinn, Jesús frá Nasaret,
eftir Ítalann, Franco Zeffirelli, sem hefur göngu sína í
sjónvarpinu í kvöld, var gerður árið 1977. Hann er því
orðinn nokkuð gamall en stendur sjálfsagt fyrir sínu og er
sérlega viðeigandi efni á páskaviku. Myndaflokkurinn er í
fjórum þáttum og ólíkt því sem venjulega tíðkast verða allir
þættirnir sýndír á einni viku, sá síðasti á páskadag.
York
Pleasance
Jesús
fráNasaret
Fjöldi frægra leikara fer meö hlutverk í myndaflokknum
um ævi Jesú, sem sýndur verður í sjónvarpinu um páskana
Sagan sem þættimir rekja er fólki þaulkunn: líf
Jesú Krists frá vöggu til grafar með öllum þeim
persónum og atburðum sem mörkuðu líf hans eins
og Nýja testamentið segir frá því. Sá sem fer með
hlutverk Krists er ástralski leikarinn Robert Powell.
Hann hefur fjölda heimsfrægra leikara sér til
samneytis. Listinn yfir þá gæti allt eins verið gestalisti
á Óskarsverðlaunahátíð. Hann er í aðalatriðum á þessa
leið: Anne Bancroft (María Magdalena), Emest
Borgnine (Hundraðshöfðinginn), James Farentino
(Símon Pétur), James Earl Jones (Baltasar), Stacy
Keach (Barrabas), James Mason (Jósef frá Armitreu),
Ian McShane (Júdas), Laurence Ölivier (Nikódemus),
Donald Pleasence (Melkíor), Anthony Quinn (Kaífas),
Femando Rey (Kaspar), Ralp Richardson (Simeon),
Rod Steiger (Pflatus), Peter Ustinov (Heródes),
Michael York (Jóhannes skírari), Christopher
Plummer, Claudia Cardinale og Ian Holm.
Handritið skrifaði einn fremsti rithöfundur
Breta, Anthony Burgess, Suso Cecchi D’Amico
og leikstjórinn Franco Zeffírelli.
Zeffírelli er fæddur árið 1923 í Flórens á Ítalíu
Hann var sviðsleikari áður en hann gerðist
aðstoðarmaður Luchino Viscontis við kvikmyndagerð.
Árið 1945 gerðist hann sviðs- og búningahönnuður
fyrir óperur og leikhús en síðan snemma á sjötta
áratugnum hefur hann leikstýrt óperum og leikritum
í Mflanó, London, New York og öðmm borgum. Um
miðjan sjöunda áratuginn fór hann að leikstýra
kvikmyndum en sú fyrsta sem hann gerði var La
Bohéme árið 1965. A eftir fylgdu myndir eins og
Skassið tamið (The Taming of the Shrew) og Rómeó
og Júlia. Frægasta mynd hans hin seinni ár er án
efa La Traviata. Hann er að vinna um þessar mundir
að mynd eftir verki Shakespeare, Óþelló, sem
hugsanlegt er að verði frumsýnd í sumar.
Það ganga sífellt sögusagnir um hvað Zeffírelli
hyggst taka sér fyrir hendur þegar hann hefur lokið
hinu eða þessu verkinu. Eftir því sem hann segir
sjálfur langar hann til að gera mynd um Flórens-búa
og næsta stórvirki hans er hvorki meira né minna en
Biblían, sem á að vera myndaflokkur fyrir sjónvarp
og er hugsaður sem framhald af Jesús frá
Nasaret. Biblían er sannkallað stórvirki eins og
Zeffírelli hugsar það. Myndaflokkurinn á að vera
hvorki meira né minna en 42 stunda langur og
Zeffírelli ætlar að aðeins að stjóma einni klukkustund
af honum á ári (í sjö ár) en vera framleiðandi að auki.
— ai.
Powell
Zeffirelli
Mason
Plummer