Morgunblaðið - 23.03.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ1986
Canon
Meira en bara myndavélar
Tölvuvædd vörugeymshi
Myndavélar
946
Tölvur og
skrifstofuvélar
Annað
Aðalstöðvar Canon.
Sala eftir
vöruflokkum
(Milljón U.S. dollarar).
I,'.V
2.502
1980
978
1977
1983-
Framleiðsla Canon spannar afar vítt svið. Þekkt-
ustu vörur Canon eru án efa myndavélar og ljósritunar-
vélar. Færri vita, að Canon er einn stærsti framleiðandi
heims á vélmennum (robottum), íhlutum, hálfleiðurum
og öðrum grunneiningum sem notuð eru í rafeinda-
tæki nútímans. Þá er Canon framarlega í framleiðslu
á ýmis konar lækningatækjum. En langstærsti hluti
framleiðslunnar eru skrifstofuvélar, eða rúmlega 70%
af heildarveltu Canon samsteypunnar. Þar má nefna
tæki eins og ljósritunarvélar, örfilmutæki, telefaxtæki,
rafeindaritvélar, rafeindareiknivélar og tölvur. Tölv-
urnar eru stolt Canon í dag og þar rís hæst A-200, PC-
tölvan sem hefur slegið keppinautunum við, hvað varð-
ar vinnsluhraða, lága bilanatíðni og gott útlit, svo ekki
sé nú minnst á hvað hún er miklu hljóðlátari, en það
hefur mikið að segja, þegar unnið er Við tölvu allan
daginn.
/
Canon leggur mikla áherslu á tengsl við markað-
inn og með nærri 40 útibú og meir en 200 umboðsaðila
tryggir fyrirtækið styttri markaðsaðdrætti og hraðari
vörudreifingu, sem þýðir betri þjónustu og nánari
tengsl við viðskiptavini. Tölvuvæddar vörugeymslur
geyma þúsundir varahluta á lager og þegar pöntun
kemur, hvaðan sem er úr heiminum, er hún afgreidd
strax sjálfvirkt.
Oll framleiðsla Canon er ætluð til almennings nota
og aðalmarkmið Canon er að framleiða betri vörur,
hraðar og ódýrar. Þessu markmiði hyggst Canon ná
með því að koma á sem mestri hagræðingu í fram-
leiðslu og samsetningu, t.d. spöruðust á þessu sviði 103
millj. dollara árið 1983, m.a. með aukinni sjálfvirkni í
framleiðslunni og mikilli notkun á mótuðu plasti, í stað
málma eða glers. Allir þessir þættir þýða stórkostlega
lækkun framleiðslukostnaðar.
Gæði vörunnar tryggir Canon með stöðugri leit að
fullkomleika. Sérhver framleiðsluvara verður að gang-
ast undir margendurteknar prófanir, við ótrúlegustu
skilyrði, áður en hún fer á markað. En grunnurinn
undir öryggi framleiðslunnar er sú persónulega
ábyrgð sem sérhver starfsmaður telur sig bera á gæð-
um vörunnar.
1 æknirisar, á borð við Canon, eiga það á hættu að
staðna og geta ekki brugðist rétt við breyttum aðstæð-
um. Til að koma í veg fyrir slíkt var Canon fyrirtækið
endurskipulagt frá grunni árið 1976. Innan fyrirtækis-
ins eru skapaðar aðstæður sem stuðla að samkeppni,
þannig að rannsóknarhópar geti þróað nýja tækni í
sveigjanlegu og örvandi umhverfi.
Canon mun halda áfram, að þróa nýja tækni til
þess að gera öllum lífið auðveldara og ánægjulegra.
Með fleiri útibúum fjölgar Canon atvinnutækifærum
og flytur tækniþekkingu til landa um allan heim.