Morgunblaðið - 23.03.1986, Blaðsíða 40
.^:^^t^£ÁÐffi!ÍÓÍINUDAGÖI^^A'feáÍ9^
^40
—
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
ST. JÓSEFSSPÍT ALI,
LANDAKOTI
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar
Handlækningadeildir, Lyflækningadeildir,
Svæfingadeild, Vöknun — Dagvinna.
Sjúkraliðar
Lyflækningadeildir, Handlækningadeildir,
Hafnarbúðir, Barnadeild.
Einnig óskast hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar til sumarafleysinga
Boðið er upp á aðlögunarkennslu fyrstu vik-
urnar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma
19600-220-300 frá kl. 08.00-16.00 alla virka
daga.
Aðstoðarræstingastjóri óskast
Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást á
skrifstofu ræstingastjóra Landakoti, alla
virka daga milli kl. 10.00-14.00.
Reykjavík 19.3. 1986.
Atvinna
Starfskraftur óskast til sníðastarfa. Um skap-
andi og fjölbreytta vinnu er að ræða.
Upplýsingar aðeins á staðnum.
Sölumaður
Við leitum að sölumanni sem getur unnið
sjálfstætt og hefur þekkingu á byggingar-
markaðinum.
Starfið felst m.a. í að fylgjast með útboðum,
gerð tilboða, sjá um kynningar fyrir iðnaðar-
menn o.fl.
Góð laun eru í boði, sem byggjast á fastri
upphæð, hlutfalli af veltu og bónus.
Umsóknir er tilgreini menntun, starfsreynslu
og meðmæli sendist til Grétars Leifssonar,
c/o Félag ísl. iðnrekenda, Hallveigarstíg 1,
Box 1407,121 Reykjavík.
FÉLAG ÍSLENSKRA
IÐNREKENDA
Atvinna íboði
Óskum eftir að ráða röskan pilt í helgar- og
kvöldvinnu.
Upplýsingar á staðnum eftir kl. 18.00 á
mánudag.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Læknaritarar
Læknaritarar óskast á lyflækningadeild og
Grensásdeild Borgarspítalans frá 1. maí nk.
Hlutastarf kemur til greina. Góð vélritunar-
kunnátta er nauðsynleg. Umsóknareyðublöð
liggja frammi í anddyri Borgarspítalans.
Nánari uppl. veitir skrifstofustjóri í síma
681200-350.
Fóstru vantar á Skóladagheimili Borgarspít-
alans frá og með 1. júní nk. í 60% starf.
Starfsstúlku vantar á Skóladagheimili Borg-
arspítalans frá og með 1. maí nk. í 100%
starf. Uppl. gefur forstöðumaður í síma
681200-371.
Aðstoðarlæknar
Lausar eru þrjár stöður aðstoðarlækna til
eins árs við geðdeild Borgarspítalans. Ein
frá 1. apríl og tvær frá 1. maí eða eftir
samkomulagi. Uppl. gefur yfirlæknir deildar-
innar í síma 681200.
Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast til
sumarafleysinga á hinar ýmsu deildir Borg-
arspítalans. Uppl. veittar á skrifstofu hjúkr-
unarforstjóra í síma 681200-207.
Hjúkrunarfræðingar.
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á hin-
um ýmsu skurðdeildum spítalans. Einnig eru
lausar stöður á skurðstofum.
Möguleiki er á vöktum frá kl. 7.30-12.30 og
17.00-22.00.
Þeir sem ráða sig á fastar næturvaktir fá
hærri laun.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra í síma 681200-207 alla
virka daga.
Reykjavík, 23. marz 1986.
BORGARSPÍTAUNN
«* 681200
Húsmæður
í Garðabæ
Viljum ráða nú þegar í tvö hlutastörf í verslun
okkar í Garðabæ.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra í síma 42424.
Kaupfélag Hafnfirðinga.
Ritari
Óska eftir heilsdags starfi. Hef mikla reynslu
í toll- og verðútreikningum, vélritun, telexi,
símavörslu og tölvuinnslætti í bókhaldi. Hef
einnig gott vald á viðskiptaensku. Get hafið
störf strax. Upplýsingarísíma 14212.
Eldri dama
Óska eftir að ráða eldri dömu til að gæta 2ja
barna 2svar í viku milli 5-7 á heimili þeirra
ívesturbæ.
Upplýsingar í síma 28074.
Trétæknir
Kjúkiingastaðurinn,
Hjallahrauni 15, Hafnarfirði.
Tölvur
Óska eftir vellaunuðu starfi, sem tengist
tölvumálum. Hef umfangsmikla reynslu og
þekkingu á m.a. flestum þeim tölvutegundum
sem notaðar eru hérlendis. Frekari upplýsing-
ar veittar þeim, sem leggja inn tilboð á
auglýsingad. Mbl. merkt „Tölvur— 1“.
Trétæknir með sveinspróf í skipasmíði óskar
eftir góðri vinnu. Upplýsingar í síma 641656
eftirkl. 19.00.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða starfskraft til skrifstofustarfa.
Reynsla og áhugi á tölvuvinnslu æskileg.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf
hjá stóru fyrirtæki.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Morgun-
blaðsins fyrir 1. apríl nk. merktar: „C-3116"
HRARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Rafeindaverkfræð-
ingur
— tæknifræðingur
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða
rafeindamenntaðan starfsmann til starfa á
rafeindadeild stofnunarinnar.
Starfið er aðallega fólgið í áætlanagerð,
hönnun og verkumsjón með framkvæmdum
og tæknilegum rekstri á fjargæslu- og fjar-
skiptakerfum. Starfið býður upp á fjölbreytt
og áhugaverð verkefni við rafeindabúnað,
tölvur og hugbúnað almennt.
Leitað er að manni með próf í rafeindaverk-
fræði/-tæknifræði eða sambærilega mennt-
un.
Upplýsingar um starfið veitir deildarverk-
fræðingur rafeindadeildar RARIK í síma
91-17400.
Umsóknum er greini menntun og fyrri störf
ber að skila til starfsmannadeildar, Lauga-
vegi 118, Reykjavík, fyrir 10. apríl 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
Sölumaður
Stórt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða
sölumann í heildsöludeild fyrirtækisins sem
fyrst. Um er að ræða sölu á vel þekktum
vörumerkjum í verslanir og söluturna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist augld. Mbl.
merktar: „Sölumaður — 3413“ fyrir 26. mars.
Hjúkrunarfræðingar
— Ijósmæður
Eftirtaldar stöður við heilsugæslustöðvar eru
lausartil umsóknar nú þegar:
Reykjavík, Miðbær, staða hjúkrunarfræð-
ings.
Keflavík, staða hjúkrunarfræðings.
Selfoss, staða hjúkrunarfræðings og staða
Ijósmóður.
Dalvík, hálf staða hjúkrunarfræðings.
Ólafsvík, staða Ijósmóður eða hjúkrunar-
fræðings.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
18. mars 1986.
Ágætis
matvælaf ræð i ng u r
Ágæti leitar að matvælafræðingi til starfa
nú þegar eða í vor.
Starfið erfólgiðí:
1. Skipulagningu og móttöku matjurta.
2. Eftirliti með vörumeðhöndlun.
3. Vöruþróun.
4. Upplýsingamiðlun.
Áhugasamir sendi umsóknir í Ágæti, Síðu-
múla 34, 108 Reykjavík, merktar „Ágætis
matvælaf ræðingur".
Dreifingarmiðstöð matjurta