Morgunblaðið - 23.03.1986, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 23.03.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1986 47 Ein tillaga af mörgum Árið 1977 stofnaði húsameistari ríkisins til starfshóps meðal arkitekta embættisins, sem hafði með höndum úttekt á og tillögng-erð um húsnæðismál Alþingis, miðað við nýtingu á lóðum þess i miðborg- inni. Mynd þessi sýnir eina hugmynd af mörgum, sem settar voru fram. þessi hugmynd gerði ráð fyrir að öll timburhús á lóðunum yrðu rifin og byggt á þeim lóðum sem við það losna. í niðurlagi þess rits eru „undir- strikuð nokkur meginsjónarmið til- lögugerðarinnar": „1 Núverandi Alþingishús verði þungamiðja þinghaldsins, svo sem verið hefur. 2 Flest núverandi hús svæðisins verði gerð upp og notuð fyrir starfsemi Alþingis. 3 Byggðar verði nýbyggingar í skörð milli núverandi húsa á lóðum Alþingis og byggt upp einskonar Alþingishverfi í stað einnar meiriháttar byggingar. 4 Framkvæmdum verði skipt í áfanga með tilliti til þarfa og Ijármögnunargetu..." Framangreindar hugmyndir vóru lítt eða ekki framkvæmdar. Á þinginu 1980-81 er enn sam- þykkt þingsályktun um framtíðar- húsakost Alþingis, svohljóðandi: „í tilefni af hundrað ára afmæli Alþingishússins ályktar Alþingi að fela forsetum þingsins að gangast fyrir samkeppni um gerð og skipu- lag viðbótarbyggingar fyrir starf- semi þingsins á svæði sem takmark- ast af Templarasundi, Kirkjustræti, Tjamargötu og 'Ijöminni. Verði samkeppnin við það miðuð að heim- kynni Alþingis skuli áfram verða í núverandi þinghúsi svo og í bygg- ingum í næsta nágrenni þess. — Forsetum Alþingis er falinn undir- búningur þessarar samkeppni, þar með talin öflun forsendna fyrir gerð útboðsgagna, í samráði við húsa- meistara ríkisins og skipulagsyfir- völd.“ Nýbygg-ing- í tveimur áföngum Forsetar þingsins hafa nú aug- Nýbygging Aiþingis: Samkeppni um gerð og skipulag lýst samkeppni um gerð og skipulag nýbyggingar fyrir starfsemi þings- ins. Keppnin fer fram eftir sam- keppnisreglum Arkitektafélags Is- lands. Skiladagur er 12. maí nk. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti Sameinaðs þings, gerði grein fyrir þessari samkeppni á blaða- mannafundi fyrir skemmstu, en hann er jafnframt formaður dóm- nefndar, sem forsetar þingsins skipa, ásamt forstöðumanni borgar- skipulags og þremur arkitektum. Fyrirhugað er að dómnefnd ljúki störfum í júnímánuði í ár. Ráðgerð er nýbygging í tveimur áföngum. Fyrri áfanga er ætlað að hýsa starfsemi þingnefnda, þing- flokka, skrifstofu Alþingis, bóka- safn þingsins, skjalasafn þess, mötuneyti, ræðuritun, tölvuvinnslu, sjónvarpsupptöku og útgáfu Al- þingistíðinda. Síðari áfangi er ætl- aður fyrir skrifstofur þingmanna, sextíu talsins. Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði tengd hinu aldna þinghúsi með neðanjarðargöngum (sunnan þess og til vesturs). Fyrri áfangi er ráðgerður við Kirkju- stræti; sá síðari við Tjamargötu. Hið aldna þinghús við Austurvöll var teiknað af einum kunnasta húsameistara Dana á þeirri tíð, Ferdinand Meldahl, sem var for- stöðumaður Listaháskólans í Kaup- mannahöfn. Yfirsmiður var kunnur danskur byggingarmeistari, F. Bald. Steinsmiðir vóru frá Borgund- arhólmi og múrarar frá Kaup- mannahöfn. Vel var til byggingar- innar vandað og vel tókst til í alla staði. Flestir íslendingar fagna því að fundir Alþingis verða áfram í þessu aldna, söguríka húsi. íslenzkir arki- tektar og fagmenn á öðrum sviðum byggingarlistar fá nú verðugt en vandasamt verkefni, þar sem tillit þarf að taka til margs, meðal ann- ars hins aldna þinghúss, friðaðra húsa í nágrenni og annars um- hverfis í miðborginni. Vonandi tekst þeim eins vel og hinum dönsku fagmönnum, sem komu við sögu er Alþingishús af íslenzkum steini var reist við Austurvöll fyrir meir en hundrað árum. Alþingi fær oft á baukinn hjá okkur, óbreyttum, þegar íslend- ingseðlið segir mest til sín í bijósti okkar. Engir myndu þó bregðast verr við en við, ádeilendur oftar en ekki, ef sagan frá 1800 endurtæki sig, og Alþingi yrði lagt niður. Við viljum hafa þennan homstein lýð- raeðis og þingræðis. Við viljum eiga „nöldrið okkar". Og við vonum sannarlega að Alþingi fái nýbygg- ingu við hæfi. En við áskiljum okkur allan rétt til að gagnrýna hana, eins og annað sem þinginu tengist! Morgunbladið/Júlíus Verðgæsla almennings Margs ber að gæta við innkaup Verðlagsstofnun og verkalýðs- hreyfingin hafa tekið höndum saman um hert verðlagseftirlit í landinu og hvetja landsmenn alla til að taka þátt í verðgæslunni. Þegar ASÍ og Verðlagsstofnun kynntu sameiginlegt átak fyrir helgina sýndu þeir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, og Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, tvær „innkaupakörfur**: í báðum voru sömu vörutegundir en vöru- merki mismunandi og verð greinilega mjög mismunandi, eins og sést á körfum þeirra Ásmundar og Georgs. Niðurstað- an er sú, að við innkaup ber margs að gæta og rétt að velta hverjum hlut fyrir sér áður en hann fer í körfuna. Það gæti nefnilega verið hagkvæmara fyrir fjölskylduna að leita í næstu hillu. Nýr skóli kominn út 1. TÖLUBLAÐ Nýs skóla, fram- haldsskólablaðs Heimdallar, er komið út. I blaðinu, sem dreift er í alla framhaldsskóla, eru m.a. greinar um Lánasjóð íslenskra námsmanna, frjálst útvarp o.fl. ásamt opnuviðtali við Davíð Odds- son borgarstjóra. Einnig eru fréttapistlar úr framhaldsskólun- um í Reykjavík og aðrir fastir liðir. Ritstjóri Nýs skóla er Steingrímur Sigurgeirsson en ásamt honum eiga sæti í ritnefnd þau Laufey Johannessen, Amór Bjömsson, Ólafur Stephensen og Stefán Jón Friðriksson. Blaðið fæst án endur- gjalds á skrifstofu félagsins að Háaleitisbraut 1. fram hver á fætur öðrum og var sungið undir stjóm Daða Þórs til fyrirmyndar hvað allt gekk vel Einarssonar skólastjóra Tónlistar- og hratt fyrir sig. í byijun var skólans og ýmis atriði fóru fram við undirleik Hafsteins Sigurðsson- ar. Væri freistandi að neftia fleiri nöfn, en það skal ekki gert. Það er gæfa okkar í Stykkishólmi að eiga gott og fómfust kennaralið og hinn góði andi sem mér finnst einkenna skólann er þvf að þakka. Ég hefí undanfarin 35 ár verið í forsvari fyrir bamastúkuna og hefi fengið svo jákvæðan og góðan stuðning kennara að allt hefír gengið vel. Þeir finna það líka að með því að styðja hver annan verður ýmsu þokað áleiðis í rétta átt.Þetta er þakkarefni. Ég hafði líka mikla ánægju að horfa á og fylgjast með árshátíð- inni og var ekki annað að sjá á áheyrendum en það sama væri upp á teningnum hjá þeim. Þetta var vinaleg samkoma. Þökk nemend- um og kennurum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.