Morgunblaðið - 23.03.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. J4AKZ.1986
49
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Halló. Mig langar til að vita
hvort ég hef einhveija hæfí-
leika til að verða leikari og
hvaða persónu ég geymi. Ég
er fædd 2. nóvember 1970 í
Reykjavík, kl. 11.45 (f.h.).
Kærar þakkir. X = X.“
Svar:
Þú hefur Sól, Merkúr, Venus,
Neptúnus og Rísandi í Sporð-
dreka, Tungl í Bogmanni,
Mars, Úranus og Miðhiminn í
Vog. Þú ert því samsett úr
Sporðdreka, Bogmanni og
Vog.
Leiklist
Þú hefur Neptúnus í samstöðu
við Rísanda. Það er algeng
staða hjá leikhúsfólki og lista-
mönnum. Hún táknar að þú
hefur sterkt ímyndunarafl og
hæfíleika til að taka á þig ólík
gervi, m.a. að setja þig í spor
annarra og laga þig að mis-
munandi aðstæðum. Hún tákn-
ar að þú ert næm og viðkvæm.
Þú ættir því að hafa hæfíleika
í leiklist. Það er hins vegar
mín skoðun að hæfíleikar einir
sér dugi skammt. Þú verður
einnig að vera reiðubúin að
leggja á þig mikla vinnu og
þú verður raunverulega að vilja
verða leikkona. Ég býst einnig
við að leikiistarbrautin sé hörð
og því þarf löngunin að rista
djúpt. Þú ættir að horfa djúpt
inn í sjálfa þig og spyija: „Vil
ég raunverulega vinna sem
leikari?" Þú ættir einnig að
tala við leikara og kynna þér
aðstæður og möguleika í ís-
lensku ieikhúsi í dag.
Tilfinningamikil
Þú hefur margar plánetur í
Sporðdreka. Það táknar að þú
ert tilfínningamikil og næm.
Þú ert föst fyrir, ert ákveðin
en frekar dul á sjálfa þig.
Venus í andstöðu við Satúmus
táknar að þú hefur tilhneigingu
til að einangra þig tilfínninga-
lega og mynda vegg milli þín
og annarra. Annars er um vissa
mótsögn að ræða í tilfínninga-
lífi þínu. Þú hefur Tungl í
Bogmanni og ert því hress og
lét í skapi dagsdaglega, ert
einlæg og opinská. Sporðdrek-
inn táknar að þú átt síðan til
að loka á umhverfið og draga
þig í hlé. Sem persóna ert þú
því bæði dul og hlédræg, hress
og opin. Dramatísk hlutverk
sem lýsa tilfinningaólgu og
innri átökum ættu að eiga vel
við þig.
EirÖarlaus
Tungl í Bogmanni táknar að
þú þarft að vera á hreyfíngu í
daglegu lífi. Þú þarft líf og
fjölbreytileika. Að því leyti á
ieikhúsiif ágætlega við þig og
önnur sambærileg störf sem
krefíast sveigjanleika og fjöl-
hæfni.
SjálfstœÖ
Mars í samstöðu við Úranus í
Vog táknar að þú hefur hæfí-
leika til að vinna að félagsleg-
um og listrænum störfum. Þú
þarft hins vegar visst sjálfstæði
og þér er örugglega illa við að
aðrir segi þér fyrir verkum.
Mars í Vog táknar fágaða
orkubeitingu og hæfileika til
að taka tillit til ólíkra sjónar-
miða, bæði félagslegra og
fagurfræðilegra. Uranus og
Bogmaðurinn táknar að líkast
til kemur þú til með að skipta
nokkrum sinnum um starf á
lífsleiðinni. Þér fellur ails ekki
vanabinding og endurtekning-
ar.
Ef við drögum kort þitt saman
má segja að þú sért ekki jarð-
bundinn persónuleiki. Þú
hneigist greinilega inn á list-
ræn og andleg svið. í korti þínu
má greina hjálpsemi og greið-
vikni og líkast til hefur þú
einnig hæfíleika á mannúðar-
og líknarsviðum.
X-9
KoHAN.BfMHD— MR
óv’/pðD/M 8/&4p
£7?4&S*Cr///A/ e>/S
ÓP&e&Agósx//? - D/r/sÆ.
V£HTc/ /t VARÍ>&r#»/ '
/ Sf F/&/F-
'S£/YP/ff'/ó/£*5?
DYRAGLENS
// "X
7 NELþAp
/ ER. EIOO
ALL-T i
1 LAGll...
'x. i
VI Nl AdÍNU/Vl
HÉRkJA
/IFSÖKUN/
iliHlfHlfM i .uScif a
rrrr ..T 11111 ■ 111, ::::::: ITT LuvQWM r-— -r—.—m i. ....
1!?!!!!!!!lS!!n!?n!!!!?!!!!!!!!!!il!!!!!!S1S!!!!!!!!!!i!l!!?!!!!!!HI?!i*il**il!i!U!
.' " ' : :::::::: : :' .: ' ...
TOMMI OG JENNI
..............:.:: :; :: ■ •
FERDINAND
!;?iiiiil::liii:iiiii!iiil!!!i!i!iii!!i!!iii!i!!ii»l«nii4U;i;nw!
SMAFOLK
DIP YOU ENJOY
YOUR. PINNER?
I P OFFER YOU 50ME
DE55ERT, BUT I CAM'T..
THAT'5 TRUE, BUT WE
LIRE T0 BE ASKEP
Var maturinn góður?
Ég hefði boðið þér eftir- Hundar éta ekki eftirmat Rétt er það, en okkur
mat, enéggetþaðekki... finnst skemmtilegra að
okkur sé boðið
BRIDS
Vestur spilaði út hjartafjarka
gegn fjórum spöðum suðurs og
bjartsýni sagnhafa var við frost-
mark:
Austurgefur; A/Vá hættu
Norður
♦ 952
♦ G98
♦ ÁDG
♦ D854
Suður
♦ ÁDG873
♦ D105
♦ 53
♦ Á2
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 tyarta 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Hjartaopnun austurs lofaði
fímmlit, svo sagnhafí sá fram á
að austur tæki tvo efstu og
gæfi makker sínum stungu. I
eymd sinni reyndi hann þó að
villa um fyrir austri með því að
láta hjartadrottninguna detta
undir hjartakónginn. Og viti
menn, austur skipti fyrir í lauf-
tíu. Taktu við.
Það fyrsta sem manni dettur
í hug er að drepa á laufás og
svína í tíglinum. Svína svo spaða
til baka. Ef báðar svíningamar
ganga má jafnvel vinna fímm.
En hugsum aðeins um sagnir
og spilamennsku austurs. Úr
því hann reynir ekki að gefa'
makker sínum stungu hlýtur
hann að búast við slag á tígul.
Hann á því tígulkónginn. Það
má gefa sér með nokkru öryggi
að austur eigi ekki laufkónginn
eftir að hann skipti yfír í lauf,
svo líklega á hann trompkónginn
til að eiga fyrir skikkanlegri
opnun.
Eftir þessar athuganir er Ijóst
að eini vinningsmöguleikinn er
að trompkóngurinn sé blankur í
austur.
Norður
♦ 952
VG98
Vestur t Austur
♦ 1065 *D854 4K
♦ 42 IIIIH ♦ ÁK762
♦ 10762 ♦ K984
♦ KG63 Suður ♦ 1097
♦ ADG873
♦ D105
♦ 53
♦ Á2
Vinningsleiðin er því sú að
drepa á laufásinn, leggja niður
spaðaás, taka DG þegar kóngur-
inn kemur, og spila loks laufi á
drottningu blinds. Vömin fær
þá aðeins þijá slagi: tvo á hjarta
ogeinnálauf.
SKAK
Á hinu árlega Banco di Roma
móti í febrúar kom þessi staða
upp í skák ungverska stórmeistar-
ans Gyula Sax, sem hafði hvítt
og átti leik, og heimamannsins
Stefano Tatai.
I A
4 * 4 ■ 4
m-mm m * m IlH
f : 1 1. s
&0 t
11« S
18. Rxg6! — hxg6, 19. Hxe6 —
Bxe6, 20. Dxf4 (Hvítur hefur
unnið peð og laskað vamir svarts.
Lokin urðu:) 20. - Hf8, 21. Dd4
- Kg8, 22. Hel - Bf7, 23. Dh4
— e5, 24. Re4 og svartur gafst
upp. Þeir Sax og Andersson urðu
efstir á mótinu með 6 v. hvor af
9 mögulegum. Næstir komu Tatai,
Kirov, Búlgaríu og Farago, Ung-
veijalandi.
Banco di Roma er ekki eini
bankinn sem árlega heldur stór-
mót. Banco di Gottardo i Sviss
og Lloyds Bank í Englandi gang-
ast árlega fyrir stórum opnum
mótum.