Morgunblaðið - 23.03.1986, Qupperneq 52
£2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ1986
„ungra gáfumanna", sem hinn
gamalreyndi leiðtogi gerði hand-
gengna sér. Upp frá þessu var talið
líklegt að bæði Palme og Carlsson
yrðu leiðtogar sænskra sósíaldemó-
krata með tímanum. Carlsson fetaði
dyggilega í fótspor Palmes og
stjómmálaferill þeirra er svo keim-
líkur að Carlsson hefur stundum
verið kallaður eftirmynd Palmes.
Carlsson fékk eins árs leyfi frá Karl Gústaf konungur ræðir við hinn nýja forsætisráðherra Svía.
sóknamála. Hann hefur einnig farið
með svokölluð „framtíðarmálefni"
og verið umhverfísráðherra.
Líklega var það vegna ágætra
skipulagshæfíleika Carlssons að
Palme fól honum að koma á fót
svokölluðu „framtíðarráðuneyti" og
stjóma því. Undanfarin þtjú ár
hefur hann einbeitt sér að því að
rannsaka þróun efnahags- og at-
vinnumála í öðmm löndum í því
skyni að kanna á hvem hátt stjóm
sósíaldemókrata geti bezt stjómað
sænsku þjóðinni á komandi ámm.
SVIPMYND Á SUNNUDEGI/lngvar Carlsson
Hvemig- reynist
arftaki Palmes?
Ingvar Carlsson, sem
- var einróma kjörinn
leiðtogi sænskra sósíal-
demókrata þegar Olof
Palme var myrtur og
tekur formlega við
starfi forsætisráðherra
nú um helgina, segist
ætla að fylgja sömu
stefnu og fyrirrennari
sinn, en yfirbragð sæn-
skra stjómmála mun
líklega breytast nokkuð
þegar hann tekur við
stjómartaumunum og
breytingamar geta
orðið varanlegar.
N ýi forsætisráðherrann verður
við völd a.m.k. fram að næstu þing-
kosningum, sem eiga að fara fram
1988, ef hann verður endurkjörinn
leiðtogi sósíaldemókrata á þingi
flokksins á næsta ári. Hann tekur
við völdunum á sorgarstundu í sögu
Svía, en einnig á stundu einstæðrar
þjóðareiningar. Hann nýtur mikillar
velvildar nú í upphafí valdaferils
síns og kannski getur sá velvilji
enzt honum þangað til hann hefur
treyst sig í sessi.
Carlsson hefur viðurkennt að
nauðsynlegt sé að auka öryggiseft-
irlit um hríð vegna morðsins á
fyrirrennara sínum, en er sammála
Palme um að stjómmálamenn megi
ekki einangrast frá almenningi. Það
er því ljóst að á sama hátt og Palme
mun hann ekki óska eftir lögreglu-
vemd þegar hann er ekki að sinna
skyldustörfum.
Síðan Carlsson tók við hinu
vandasama starfi sínu hefur hann
sýnt mikið sjálfstraust og stefnu-
festu og vakið með því aðdáun
samheija jafnt sem mótheija. En
hann hefur verið þjálfaður til að
taka við þessu hlutverki í 19 ár og
hefur gegnt starfí varaforsætisráð-
herra í flögur ár.
Langur undirbúningur
Carlsson hefur lengi verið valda-
mikill að tjaldabaki og átt mikinn
þátt í að móta stefnu sænskra jafn-
aðarmanna. Um hann gegnir sama
máli og alla fyrirennara hans: hann
var valinn leiðtogaefni á unga aldri
og þjálfaður til að taka við forystu-
hlutverkinu, ef nauðsynlegt reynd-
ist. Frammistaða hans á blaða-
mannafundum síðan Palme var
veginn bendir til þess að hann sé
allvel í stakk búinn til að taka það
aðsér.
Verkalýðshreyfingin og flokkur
sósíaldemókrata í Svíþjóð hafa allt-
af viljað að leiðtogar þeirra veljist
ungir til forystu og gegni forystu-
hlutverkinu áratugum saman.
Stofnandi flokksins, Hjalmar
1 Branting, varð leiðtogi sænskra
jafnaðarmanna 29 ára gamall og
gegndi því starfí í 36 ár. Upphafs-
maður flokksins í núverandi mynd,
Per Albin Hansson, var leiðtogi
hans í 21 ár, þar af í 14 ár sem
forsætisráðherra.
Tage Erlander, sem hefur verið
. kallaður faðir sænska velferðarrík-
isins, var flokksleiðtogi í 23 ár og
forsætisráðherra allan þann tíma.
Þegar Olof Palme var skotinn til
bana hafði enginn forsætisráðherra
í Vestur-Evrópu verið eins lengi við
völd og hann.
Þótt furðulegt megi heita hafa
því aðeins Qórir menn verið leið-
togar sænskra sósíaldemókrata í
97, ára sögu flokks þeirra. Eftir
þeirri reynslu að dæma verður
Ingvar Carlsson leiðtogi flokksins
langt fram á næstu öld, nema því
aðeins að pólitísk tilræði færist í
vöxt á næstu áratugum.
Langlífí sænskra jafnaðar-
mannaleiðtoga hefur ýtt undir þá
skoðun að þeir séu fulltrúar jafn-
vægis, öryggis og stöðugleika.
Þetta hefur gert flokknum kleift
að vera við völd í hálfa öld, að
nokkrum árum undanskildum.
Eðlilegt gat talizt að Carlsson
væri valinn arftaki Palmes, þar sem
hann var náinn vinur hans og
bandamaður í þijá áratugi og hægri
hönd hans frá því sósíaldemókratar
komust aftur til valda 1982, en
meira máli skipti að hann gerþekkir
verkalýðshreyfinguna og er talinn
manna hæfastur til að varðveita
einingu hennar.
Hann segist ekki muna eftir því
að hann og Palme hafí nokkum
tíma orðið ósammála í mikilvægu
máli. En óvíst er hvort Carlsson
getur haft eins góða stjóm á sam-
starfsmönnum sínum og Palme og
af þeirri ástæðu kann andrúmsloftið
í sænskum stjómmálum að breytast
nokkuð. Carlsson verður líklega
ekki eins valdamikill og Palme var
og áhrif annarra forystumanna
kunna að aukast.
í skugga Palmes
Carlsson, sem er 51 árs að aldri,
hefur starfað fyrir jafnaðarmanna-
flokkinn í 28 ár, fyrst sem formaður
æskulýðshreyfíngar flokksins, síð-
an sem þingmaður og loks sem
ráðherra. Hann gerði aldrei ráð
fyrir því í alvöm að til þess mundi
koma að hann yrði flokksleiðtogi
og forsætisráðherra, þótt hann
væri ungur valinn til að taka við
æðstu forystustörfum. Hann var
átta áram yngri en Palme og taldi
því að hann yrði lfklega álitinn of
gamall þegar Palme drægi sig í
hlé og yrði því trúlega aldrei eftir-
maður hans.
Um hinn nýja leiðtoga er sagt
að hann sé menntamaður fram í
fíngurgóma, ágætur skipuleggjandi
og rökfastur ræðumaður, að hann
búi yfír kímnigáfu og sé jrfírlætis-
laus og að auðvelt sé að ná tali af
honum.
Ingvar Carlsson er fæddur 9.
nóvember 1934 og er sonur Olofs
og Idu Carlsson frá Boraas í Vest-
ur-Svíþjóð, helztu miðstöð vefnað-
ariðnaðar Svía. Faðir hans var
verkamaður i vefnaðarverksmiðju í
bænum og Ingvar starfaði þar um
tíma, en innritaðist í háskólann í
Lundi, þar sem hann fékk áhuga á
stjómmálum og stefnu jafnaðar-
manna, og lauk prófí í stjómvísind-
um og hagfræði.
Að loknu háskólanámi var hann
valinn aðstoðarmaður Erlanders
forsætisráðherra 1958 og hóf störf
á einkaskrifstofu hans eins og
Palme hafði gert fímm áram áður.
Hann var því einn svokallaðra
Carlsson tekur við. Á blaðamannafundi daginn eftir morðið á Palme.
störfum til að stunda nám við
Northwestem- háskólann í Evans-
ton, Illinois, og kynutist fátækt í
Bandaríkjunum eins og Palme
þegar hann stundaði þar einnig
nám. Hann varð aftur aðstoðarmað-
ur Erlanders 1961 og gegndi starfí
formanns æskulýðshreyfíngar sós-
íaldemókrata til 1967. Hann var
kjörinn á þing í fyrstá sinn 1964
og varð yngsti þingmaðurinn í sögu
Svía. Þremur áram síðar skipaði
Erlander hann aðstoðarráðherra.
Þegar Palme myndaði fýrstu rík-
isstjóm sína 1969 skipaði hann
Carlsson menningar- og mennta-
málaráðherra. Carlsson tók við því
starfi af Palme sjálfum og var
yngsti ráðherra í sögu Svíþjóðar.
Eins og sjá má er samlíkingin við
Palme ekki út í hött: báðir urðu
þeir leiðtogar æskulýðshreyfíngar-
innar á unga aldri, báðir lærðu við
bandaríska háskóla, báðir vora
einkaritarar Erlanders og báðir
hófu þeir ráðherrastörf í mennta-
málaráðuneytinu.
Síðan varð Carlsson húsnæðis-
og skipulagsráðherra 1973 og ein-
beitti sér að orku- og efnahagsmál-
um. Á áranum 1971 til 1974 var
hann formaður Stokkhólmsdeildar
sósíaldemókrataflokksins og síðan
1972 hefur hann átt sæti í fram-
kvæmdastjóm flokksins.
Eftir ósigur sósialdemókrata
fyrir borgaraflokkunum í kosning-
unum 1976 einbeitti Carlsson sér
að því að skipuleggja sigur flokks-
ins í næstu kosningum. Þegar
flokkurinn komst í stjóm 1982 eftir
sex löng ár í stjómarandstöðu varð
hann varaforsætisráðherra og tók
að sér stjóm skipulags- og rann-
Litlaus
Carlsson er einn helzti hugsjóna-
fræðingur og kenningasmiður
sænskra sósíaldemókrata. Þess
vegna hefur hann fengið viðumefn-
in „vitri öldungurinn" og „ræstinga-
konan“ Hann er kvæntur Ingrid,
f. Melander, sem er bókavörður, og
þau eiga tvær dætur á þrítugsaldri.
Hann er mikill göngugarpur og
bregður sér oft á skíði.
Hann er ekki eins svipmikill
stjómmálamaður og Palme var og
er raunar talinn hálflitlaus. Hann
nýtur heldur ekki eins mikillar hylli
almennings í Svíþjóð, en er sagður
góðlátlegur og glettinn í vinahópi.
Gamall samstarfsmaður hans,
Anders Ferm, aðalfulltrúi Svía hjá
Sameinuðu þjóðununm, segir að
hann sé stundum stríðinn og færi
sér í nyt ágæta eftirhermuhæfi-
leika. „Stundum hringdi hann,
breytti um rödd og þóttist kvarta
yfír einhveiju. Við ræddum málið,
en svo gat hann ekki stillt sig um
að hlæja. Ha, ha, ha, sagði hann.
Þettaer Ingvar!"
Palme og Carlsson vora ólíkir um
margt. Palme virtist mikill vinstri-
sinni, e.t.v. vegna þess að honum
var oft mikið niðri fyrir. Samstarfs-
menn Carlssons telja hann hins
vegar dæmigerðan, evrópskan
„miðju-krata". Öfugt við Palme er
hann lítið sem ekkert þekktur er-
lendis, enda era innanlandsmál
honum hugleiknust og hann hefur
einbeitt sér að þeim. Ef að líkum
lætur mun hann einbeita sér að
efnahagsmálum í hinu nýja starfí
sínu og reyna að auka atvinnu og
hagvöxt og draga úr verðbólgu.
Brezká vikuritið The Economist
telur að líklega verði helzta breyt-
ingin þegar hann tekur við sú að
pólitísk völd hans og áhrif verði
minni en Palmes. Persónuleg áhrif
Palmes í ríkisstjóm sósíaldemó-
krata höfðu aukizt jafnt og þétt
þegar hann féll frá og enginn virtist
geta ógnað völdum hann. Nú fá
skeleggir valdamenn á borð við
Sten Andersson utanríkisráðherra
og Kjell-Olof Feldt fjármálaráð-
herra líklega meira svigrúm en áður
að dómi blaðsins.
Palme hafði sérstakan áhuga á
utanríkismálum og mótaði stefnuna
á því sviði. Andersson, sem var í