Morgunblaðið - 23.03.1986, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 23.03.1986, Qupperneq 53
MORGUflBLAPIP, SUNNUDAGUR^. MABEÁ?fl6, 20 ár framkvæmdastjóri sósíal- demókrataflokksins áður en hann varð utanríkisráðherra í fyrrahaust, er talinn einhver útsmognasti stjómmálarefur Svía og olnboga- rými hans mun aukast nú þegar foringinn er fallinn. Andersson mun ekki hafa verið alls kostar ánægður með afstöðu Palmes í kafbátamál- inu og talið hann of linan. Hann hefur orðið stöðugt ráðríkari á síð- ustu mánuðum og Rússar munu lík- lega komast að raun um að hann verður harðari í hom að taka en Palme. Palme hafði ætlað sér að fara til Sovétríkjanna og sú heimsókn átti að mark upphaf fyrstu „þíðu“ í sambúð Svía og Rússa i þrjú og hálft ár. Ekki er vitað hvort Carls- son eða einhver annar fari í hans stað. Um Feldt segir ISconomist að hann sé talinn ágætur hagfræðing- ur á sænska vísu og hallist að því að kapítalistar verði að vera ánægð- ir, ef takast eigi að „mjólka" þá. Mörgum fannst hann ganga of langt í niðurskurði í síðasta fjár- lagafrumvarpi, en hann hefur lagt hart að sér að útskýra fyrir trúuðum flokksmönnum að viðunandi arður sé forsenda Qárfestinga og aukinn- ar atvinnu, segir blaðið. Kafbátamálið Þegar Carlsson tók við stjómar- taumunum við lát Palmes lagði hann á það áherzlu að þótt hann yrði ávallt reiðubúinn að beijast í mikilvægum málum vonaði hann að það mætti takast án þess að það vekti persónulega úlfúð. Líta mátti á þetta sem óbeina gagmýni á Palme, sem var sakaður um að vera of mikið gefinn fyrir að Ieita uppi mál, sem yllu ágreiningi sósíal- demókrata og mótheija þeirra, þótt hann reyndi vissulega að varðveita einingu í flokki sínum. Þetta varð til þess að ýmsir fengu andúð á honum. Carlsson leggur hins vegar áherzlu á að hann muni reyna að tryggja samstöðu í sem flestum málum og tclur að slík viðleitni sé hvergi nauðsynlegri en í utanríkis- og vamarmálum. Agreiningur stjómarinnar og andstöðuflokka hennar var hvergi meiri en í þessum málafiokkum í valdatíð Palmes. Þótt Ingvar Carlsson forsætis- ráðherra hafi að baki alhliða stjóm- málareynslu og fengizt við flest mál hefur hann lítil afskipti haft af utanríkisstefnunni. Á því sviði má búast við að mest reyni á hann, ekki sízt vegna stöðugs ágangs sovézkra kafbáta við strendur Sví- þjóðar. Palme reyndi að binda enda á þennan yfirgang Rússa með því að tala við þá, en var ekki alltaf sjálf- ' um sér samkvæmur. Nú mun koma í ljós hvort Carlsson nær betri árangri í kafbátamálinu. Economist telur að einhver árangur kunni að hafa náðst með því að tala við Rússa, því að þeir virðist a.m.k. vilja ræða landhelgismál á Eystra- salti. Sænski sjóherinn var óánægður með hvemig Palme hélt á kafbáta- málinu. Verið getur að Carlsson verði jákvæðari í garð sjóhersins, en yfirlýsingar hans um óbreytta stefnu benda til þess að hann muni halda áfram viðræðum við Rússa. Innanlands verður erfiðasta próf- raun Carlssons sambúð sósíaldemó- krata og verkalýðshreyfingarinnar, sem er stirð um þessar mundir. Síðan stjómin felldi gengið fyrir íjórum árum til að bæta samkeppn- isaðstöðu stórfyrirtækja hefur hag- ur þeirra batnað, en stjómin hvetur til hófstillingar í launakröfúm svo að unnt verði að halda verðbólgu í skefjum. Stefha verkalýðsfélaga hefur orðið hófsamari slðan Palme var myrtur, en sýnt þykir að Carls- son þurfí á öllum stjómmálahæfi- leikum sínum að halda til að tryggja að ekki sjóði upp úr. GH 5% Guðrún A. Eiríks- dóttir — Minning Fædd 9. ágúst 1891 Dáin 16. mars 1986 Það fækkar frændum frá Votu- mýri á Skeiðum, bömum Hallberu Bemhöft og Eiríks Magnússonar. Þau áttu 11 böm sem upp kom- ust og em nú aðeins tveir bræður eftir, þeir Magnús á Skúfslæk og Jón í Skeiðháholti, báðir háaldraðir. I dag kveð ég kæra frænku, Guðrúnu Ágústu Eiríksdóttur. Hún fæddist 9. ágúst 1891 og hafði verið við góða heilsu allt til hinsta dags. A þeim tíma er Gústa var að alast upp, um aldamót, var það Góður drengur er fallinn í valinn og skilur eftir tómarúm í hjörtum okkar sem kynntumst honum. Sigurður Halldórsson fæddist í Bartakoti í Selvogi 18. mars 1903 og andaðist í Landspítalanum, eftir örstutta legu, 15. mars síðastliðinn eða aðeins þremur dögum fyrir 83. afmælisdaginn sinn. Sigurður var sonur hjónanna Halldórs Þ. Magnússonar útvegs- algengt að bammargar Qölskyldur létu eitthvað af bömum sínum til fósturs annarstaðar. Sigríður Magnúsdóttir föðursystir Gústu var barnlaus og bjó við góð efni með manni sínum, Guðna Ámasyni, snikkara á Stokkseyri, hún var ljós- móðir. Þau fengu Gústu til fósturs er hún var 5 ára gömul. Einnig tóku þau að sér Sigurð ísólfsson fyrrver- andi organista í Fríkirkjunni, og eru þau því uppeldissystkini. Miklir kærleikar voru með þessu fólki og bjó það lengi saman á Óðinsgötu 8 hér í bæ. Á ég margar góðar minn- ingar þaðan frá því er ég var dreng- ur ungur. Það var gaman að koma Sigurður var mikill fjölskyldu- maður en starfsins vegna var hann oft lengi íjarri sínum nánustu en þegar hann kom í land ríkti hátíðar- stemmning á heimili þeirra. Síðustu árin var Sigurður mest heima við og þá voru það afabömin hans þtjú sem oft styttu honum stundimar og glöddu hjarta hans. Þau verða nú að sjá á eftir ástkæmm afa sín- um. Ég bið Guð að varðveita sálu þessa góða manns: Guðni Kristinsson á Óðinsgötuna þar var gott viðmót og léttur andi. Var þar margur snúðurinn innbyrtur úr Bemhöfts- bakaríi er var í næsta húsi. Gústa fór ung til Danmerkur og var þar um tíma við nám í sauma- skap og síðar fór hún til að kynna sér ýmislegt er varðaði hannyrðir. Hún rak og átti um 30 ára skeið Hannyrðaverslun Reykjavíkur sem var á sinni tíð þekkt hér í borg og vom víst fáar konur sem ekki áttu áteiknaðan púða frá Gústu. Allt sem hún gerði var gert af mikilli ná- kvæmni og ekki látinn frá sér hlutur sem ekki var í lagi. Kynni mín af Gústu frænku hafa verið frá bamæsku en vom þau nánust er faðir minn, Sigtryggur og Gústa byggðu húsið Eskihlíð 5, en þar bjuggu þau foreldrar mínir og hún á sitthvorri hæð saman í nær 40 ár. Sambandið var náið og gott og kærleikur systkinanna eftir- breytniverður, og ótalin sporin milli hæða. Gústa var skarpgreind og fram- kvæmdasöm kona, sem hafði ákveðnar sjálfstæðar skoðanir sem byggðust á heiðarleika og sann- gimi. Gústa eignaðist einn son, Bjam- þór, með Karli Torfasjmi er var lengi borgarbókari. Bjamþór er gjaldkeri á Borgarspítalanum og er giftur Rögnu Wendel hjúkmnar- konu. Þau eiga saman tvö böm, Guðrúnu Ágústu og Karl. Og em bamabamabömin tvö. Að lokum þakka ég og fjölskylda mín Gústu fyrir samfylgdina gegn- um árin. í huga mínum geymist minnig um góða og heilsteypta konu. Vilhjálmur Sigtryggsson Blémmtofa Friðfinns Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. .^^pglýsinga- síminn er 2 24 80 Minning: Sigurður Halldórs- son sjómaður Fæddur 18. mars 1903 Dáinn 15. mars 1986 bónda og Guðrúnar Baldvinsdóttur, en þau bjuggu fyrst í Bartakoti og síðar á KIöpp í Selvogi. Þrettán ára byrjaði Sigurður að stunda sjó- mennsku á opnum bát með föður sínum og lauk starfsferli hans ekki fyrr en hann hafði náð 77 ára aldri. Þá hafði Sigurður stundað sjóinn í 64 ár samfleytt. Um 1930 flutti Sigurður suður, fyrst til Hafnar- fjarðar og síðan til Reykjavíkur. Lengst af starfaði hann hjá bróður sínum Baldvini Halldórssjmi skip- stjóra á Óla Garða og sfðan á Bjama riddara. 64 ár em löng starfsæfi við svo erfitt starf sem sjómennskan er en Sigurður unni starfi sínu mjög. Hann bjó yfir mikilli reynslu sem sjómaður. Hann sigldi öll stríðsárin og lenti þá í mörgum lífs- háskanum en lét aldrei bilbug á sér finna. Aðaleinkenni Sigurðar vom glaðværð oggóðmennska. Hann var dugandi sjómaður og gaf yngri mönnum ekkert eftir enda var hann alla tíð mjög eftirsóttur starfskraft- ur. Á sjómannadaginn 1974 var Sigurður heiðraður af Sjómanna- dagsráði. Síðustu árin starfaði hann á skuttogaranum Snorra Sturlusyni. 8. október 1944 kvæntist Sigurður eftirlifandi eiginkonu sinni Ólafíu Þorvaldsdóttur. Eignuðust þau eina dóttur, Þómnni, en auk þess ól Sigurður upp dóttur Ólafíu, Dag- björtu Þyri. pó eijö Þaö s/<///(j Hvernig væri að breyta til um páskana? Sleppa allri matseld og umstangi og stinga af? Þá er Hótel Borgarnes rétti staðurinn, friðsæll staður í fögru umhverfi. Á hátíðamatseðiinum er fuglakjöt ríkjandi, svo sem kalkún, önd, gæs, rjúpa, svartfugl og lundi, ásamt annarri villibráð. Þið eigið sannarlega skilið að láta einu sinni dekra við ykkur og koma svo hvíld og endurnærð til starfa aftur eftir hátíðar - OG verðið kemur á óvart. VERIÐ VELKOMIN Uppiýsingar í símum 93-7119 og 7219
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.