Morgunblaðið - 23.03.1986, Page 55

Morgunblaðið - 23.03.1986, Page 55
MORGUNBIABIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1986 31 áform Sigríðar, móður Kömmu, fóru út um þúfur, en heim til íslands kom hún með sólargeislann sinn, Kömmu, árið 1925. Kamma ólst því upp við kröpp kjör eins og þorri fólks á þessum árum. Móðir hennar giftist síðar Siguijóni Jónssyni, sem reyndist Kömmu vel. Kömmu gekk mjög vel í skóla og var látin ganga menntaveginn. Hún útskrifaðist úr Verslunarskól- anum árið 1941. Hugurinn stóð til frekara náms en af því gat ekki orðið. Ung giftist hún Sveini Ein- arssyni frá Miðdal og brátt stækk- aði fjölskyldan. Þau voru mjög glæsilegt par og eignuðust fimm böm. Öm, Sigríði, Valgerði, Örlyg og Einar. Bamabömin em þrettán. Kamma og Sveinn slitu samvistum. Síðar giftist Kamma Sigvalda Thordarson, arkitekt, en missti hann eftir skamma sambúð. Þau eignuðust einn son, Sigvalda. Á þessum ámm vann Kamma utan heimilis m.a. hjá Hagtryggingu og síðar í Domus Medica. Kamma var ein af þessum kon- um, sem við íslendingar getum verið stoltir af — þær em drottning- ar hvort sem þær búa í heiðarkotum eða höllum. Það sópaði að henni hvar sem hún fór. Hún var glæsileg kona, glaðleg og vingjarnleg við alla og framkoman með þeirri fágun sem 'éinkennir heimskonuna. Mjög trygglynd og hreinlynd en þung á bámnni ef móti henni var gert. Hún var jafnframt ákaflega létt í lund og skemmtileg. Betri gengdamóður var ekki hægt að hugsa sér. Kamma varð þeirra gæfu aðnjót- andi að kynnast eftirlifandi eigin- manni sínum Jóni Benediktssyni, bónda í Höfnum árið 1971. Næstu árin urðu mikil hamingjuár í lífi þeirra. Þau vom öil sumur fyrir norðan í Höfnum á Skaga. Þar var mikil náttúmfegurð og í Höfnum undu þau sér vel við að nytja jörð- ina. Veiða sel og silung, sinna varpinu og nýta rekavið. Það var mikil upplifun fyrir lítinn ömmustrák, Eggert, að fá að vera þama í sveitinni hjá þeim í Höfnum í þijú sumur. Að fylgjast með dýra- lífinu, sjá selina skjóta upp forvitn- um kollunum, sjá ungana vappa eftir fjömnni á vorin og fyigjast með bústörfum. Þá var amma Kamma óþreytandi að segja litlum snáða frá undmm náttúmnnar. I Höfnum var oft glatt á hjalla á sumrin og þröngt á þingi, því bömin og bamabömin vom mörg auk annarra gesta. Þannig liðu mörg góð ár. Á vetuma vom Kamma og Jón í bænum og þá vann hún í Domus Medica við góðan orðstír. Alltaf var gaman að koma til þeirra hjónanna á Háaleitisbrautina. En lífið er hverfult og enginn má sköpum renna. Fyrir rétt ári síðan, þegar vorið var á næsta leyti, tók að draga ský fyrir sólu. Kamma var orðin veik, banvænn sjúkdómur var sestur að í þessari glæsilegu og lífsglöðu konu. í ein- víginu við þennan vágest birtist okkur sálarþrek og kjarkur Kömmu. Aldrei sýndi hún örvænt- ingu eða uppgjöf þótt sjúkdómurinn tæki hana heljartökum. Jón hjúkr- aði henni heima af mikilli umhyggju þar til eigi var umflúið að hún færi á sjúkrahús og bömin hennar sex og stúpdóttir Jóns reyndu að gera allt til að létta henni lífið. SaVnfelld sjúkrhaúsvist tók við um miðjan desember. Þrek hennar þvarr dag frá degi. Átakanlegt var að horfa upp á hve hart sjúkdómurinn lék Kömmu en reisn sinni hélt hún til hinstu stundar. Nú er Kamma laus úr viðjum þessa þungbæra sjúkdóms. Minn- ingamar streyma fram um allar skemmtilegu samverustundimar á síðastliðnum sautján árum. Eiginmanni hennar, bömum og öðmm ástvinum votta ég innilega samúð. Megi hin eilífa hvíld verða henni góð. Guðrún Eggertsdóttir t Eiginkona mín, SVAVA ERLENDSDÓTTIR, Jöklaseli 3, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. mars kl. 15.00. Hjalti G. Jónathansson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, SIGRÚNAR BJARNADÓTTUR fyrrverandi saumakonu, Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks og annarra á Dvalarheimilinu Ási, Kristjáns Jóhannssonar læknis og starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans. Baldur Magnússon, Jónfna Þorsteinsdóttir, Bjaml Rúnar Baldursson, Þorsteinn Baldursson, Einar Baldursson, Jón Baldur Baldursson. t Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR, Presthúsum, Mýrdal, Sigríður Finnbogadóttir, Guðrún Finnbogadóttir, Vilborg Finnbogadóttir Hauge, Matthildur Finnbogadóttir, Magnús Finnbogason, Þóranna Finnbogadóttir, Þorgerður Finnbogadóttir, Hrefna Finnbogadóttir, Einar Reynir Finnbogason, Kjerulf Hauge, Baldur Sigurðsson, Unnur Erlendsdóttir, Geir T ryggvason, Einar Klemenzson, Kristrún D. Guömundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðjuorð: SvendAage Andersen Fæddur 14. júní 1902 Dáinn 13. mars 1986 Þóíokkarfeðrafold fallialltsemlifír enginn getur mokað mold minningamaryfir. (Bjami Jónsson frá Gröf) Dauðinn gerir sjaldan boð á undan sér. Hversu vel sem við þykjumst undir hann búin kemur hann okkur jafnan í opna skjöldu. Hann er hinn kaldi veruleiki, stað- reynd sem enginn fær um flúið. Þetta er aðeins smákveðja frá afa stelpu til Svend Aage Andersen. Ég ætla ekki að fara út í það að lýsa ævi hans og starfi, það þekkja allir sem honum kynntust, heldur þakka, því hann var mér ekki bara afi heldur líka allra besti vinur og kunni þá aðdáanlegu list flestum betur að vera vinur. Það var ein- staklega notalegt að dvelja í návist hans. Hann þurfti ekki að segja neitt eða gera neitt til að vera góður afi. Það andaði frá honum ljúf- mennskan, enda voru þau ófá böm- in sem kölluðu hann Svend afa. Það er skrítin tilhugsun að eiga aldrei eftir að heimsækja afa aftur og smella kossi á kinn hans og ræða um daginn og veginn. Með þessum línum kveð ég elsku afa minn, sem var mér svo kær. Ég hefði svo gjaman viijað fá að njóta samvista við hann lengur. Að lokum bið ég góðan guð að styrkja Fríðu ömmu í hennar sorg, en eftir eigum við minningu um góðan og heilsteyptan mann. . „Far þú í friði friður guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Briem) Helga María FERMINGARGJÖFIN í ÁR! SKRIFSTOFUVÉLAR h.f. NÝJA 4RA LITA REIKNI FRÁ SILVER SilverReed EB50 boðar upphaf nýrra tíma í gerð skólaritvéla. Hún er full af spennandi nýjungum, ótrúlega fjölhæf og lipur. Fjórir litir, margar leturstærðir, teiknihæfileikar, reiknikunnátta og tenging við heimilistölvu eru aðeins brot af athyglisverðum eiginleikum bessa létta og fallega töfratækis sem alls staöar fær frábærar móttökur meðal skólafólks sem fylgjast vill með nýjum og skemmtilegum tímum. SilverReed EB50 er hönnuð fyrir unga fólkið og framtíðina. ótrúlegt verð: AÐEINS KR. 12.900 mmu ii ui uy reynio sjair snini biiverKeea tB50 Hún á eftir aö gera skólastarfið bráðskemmtíleg y.W \CHP, Hverfisgötu 33 — Sfmi 20560 ■ 4 litir ■ fslenskt leturborð ■ Þijár leturstærðlr ■ Belnt letur/hallandl letur ■ SJálfvlrk undlrstrikun ■ 16 stafa lelðréttingargiuggl ■ Teiknlng á skffurltum. súlurttum og ■ cetur vélrttað upp og nlður. ■ Tenglst vlð helmlllstölvur sem telknarl ■ Relknar og setur upp helstu relknlaðferðlr ■ cengur Jafnt fyrlr rafhlöðum og 220v (straumbreytlr fytglr) ■ Létt og þæglleg að grfpa með sér hvert sem er. Helstu söluaöilar auk Skritstotuvóla hf: Akranes: Bókaversl. Andrósar Nielssonar Akureyri: Bókval Blönduós: Kaupfól. A-Húnvetninga Borgames: Kaupfél. Borgnesinga Egilsstaðir: Fjölritun s/f Grindavlk: Bókabúð Grindavíkur Hafnarfjörður: E. Th. Mathiesen Reykjavlk: Penninn, Hallarmúla Húsavlk: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar Seyöisfjörður: Kaupfél. Hóraðsbúa Isafjörður: Bókaversl. JónasarTómassonar Selfoss: Vöruhús K.Á. Keflavík: Stapafell Siglufjörður: Aðalbúðin Neskaupstaður: Enco h/f Vestmannaeyjar: Kjami h/f Ólafsfjörður: Versl. Valberg J'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.