Morgunblaðið - 23.03.1986, Side 58

Morgunblaðið - 23.03.1986, Side 58
M. MORGPNBLAÐIjD, SUNNUDAGUR23. MARZ1986 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON ísland og alþjóðastofnanir: Gagnsemi og kostnaður — utanferðir á kostnað skattborgara Land okkar er miðsvæðis — í þjóðbraut þverri — milli hins gamla og nýja heims. Samgöngu- og fjölmiðlatækni nútímans hefur nánast eytt fjarlægðum, sem aðskildu lönd og álfur; fært þjóðir heims í túnfót hverrar annarrar. Við getum ferðast til „fjarlægra" heims- horna nánast á örskotsstundu. Við getum séð á sjónvarpsskjá á heimilum okkar atburði hinum megin á hnettinum á sömu stundu og þeir gerast. Það er því um tómt mái að tala, hvort heldur okkur líkar betur eða verr, að hengja hatta okkar á ímyndaða einangrun lands eða þjóðar. Við erum staðsett í þjóðaþröng. Það hefur sína galla. Það hefur einnig sina augljósu kosti. Hugmyndir um einangrun ís- lenzkrar þjóðar eru tímaskekkja. Við höfum margt að sækja til annarra. Einnig sitt hvað að gefa öðrum. Menningarleg, viðskiptaleg og fjölþætt annars konar samskipti og samvinna við umheiminn, þar á meðal um öryggismál okkar, eru hluti af velferð okkar, fullveldi og lífskjörum á líðandi stund. Sókn okkar til betri lífskjara, sem hafin hlýtur að verða senn ef tekst að tryggja stöðugleika og jafnvægi í efiiahagslífi okkar og þjóðarbúskap, kemur til með að byggjast að dijúg- um hluta á samstarfi okkar og annarra þjóða á vettvangi íjármála, tækni, þekkingar og markaðsmála. ísland og alþjóðastofnanir Þrátt fyrir framansagt eigum við að gæta hófs í útgjöldum á sam- skiptavettvangi við aðrar þjóðir. í þeim efnum, sem öðrum, er munur á, hvort vaðið er í ökkla eða eyra, eins og sumum sýnist vera nú. Allavega er komin fram þingsálykt- unartillaga, flutt af tveimur norð- lenzkum þingmönnum Sjálfstæðis- flokks, Halldóri Blöndal og Birni Dagbjartssyni, svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að beita sér fyrir athugun á nauðsyn aðildar íslands að al- þjóðastofnunum og samtökum, sem ísland er nú aðili að, með það fyrir augum að aðild verði sagt upp þar sem unnt þykir og ýtrasta spamað- ar gætt um þátttöku í starfsemi þeirra stofnana sem þjóðinni er tví- mælalaus hagur að áframhaldandi tengslum við.“ I greinargerð er vitnað til íjár- laga yfirstandandi árs. Þar er sér- stakur gjaldaliður, Alþjóðastofnanir (03-401), sem gerir ráð fyrir 70 m.kr. útgjöldum. Auk hans er hér og þar í fjárlögum fjárframlög til alþjóðastofnana og vegna þátttöku Islands í alþjóðasamstarfi. Loks er „ótalið og ómælt það fé sem varið er til utanfara opinberra starfs- manna á vegum ýmissa stofnana ríkisins og ráðuneyta í nafni al- þjóðasamvinnu". Enn segir í greinargerð með til- lögunni: „Aðild okkar að ráðum og nefnd- um, stjómum og stofnunum heims- ins er oft illa skilgreind og án sýni- legs tilgangs og markmiða. Ekki er að sjá að svonefnd alþjóðasam- vinna, sem einhvem tíma hefur verið tekin upp, geti hætt. Endi- mörk vaxtar em ekki fyrirsjáanleg í þessum efnum. Með þessari tillögu er því beint til ríkisstjómarinnar að nú verði staldrað við á alþjóða- samvinnu-brautinni og athugað hvert hún leiðir okkur, hvort allir þessir 47 liðir, sem taldir em upp í fjárlagalið 03-401 (Alþjóðastofn- anir), em skynsamlegir, nauðsyn- legir eða æskilegir og verðir fjár- veitinga." Dæmisaga af UNESCO Flutningsmenn tillögunnar vitna til þess að bæði Bandaríkjamenn og Bretar hafa sagt sig úr UNES- CO. Þeir segja það umhugsunarefni „að þessar tvær vinaþjóðir okkar skuli ekki telja þessa stofnun verða fjárveitinga og jafnvel verri en ekki til þess að túlka þau menningar- og uppfræðslusjónarmið, sem vest- rænar þjóðir .vilja helzt að aðrir fái að kynnast. Þvert á móti hefur viðgengist í kringum forstjóra stofnunarinnar hin versta spilling og siðleysi fyrir utan ótrúlegt skrif- stofubákn og starfsmannahald", segja þessir þingmenn og em sýni- lega ekki að skafa utan af hlutun- um. Og það er meira blóð í kúnni hjá þeim tvímenningum: „I umræðum um tillögu flutn- ingsmanna þessarar tillögu við afgreiðslu íjárlaga í vetur var reynt að slá á þá strengi að ekki mætti hætta þátttöku í UNESCO vegna þess að íslendingur væri þar framá- maður í einhverri undimefnd. Slík er lítilþægnin, að sé landinn gjald- gengur og nothæfur til vinnu í alþjóðanefndum, nægi það til að afsaka og réttlæta fjárútlát til hinna undarlegustu alþjóðastofnana sem enginn veit hvort ísland hefur hið minnsta gagn af, né geti lagt eitt- hvað af mörkum til gagns." Svo mörgvóm þauorð. Utanferðir á kostnað skattborgara Loks segir í greinargerð þing- mannanna tveggja: „Það hafa oft verið gerðar til- bAÐ ER EKKI AÐ ASTÆÐULAUSU.... • . . . að fagmaðurinn velur AIWA, AIWA eru einfaldlega topp-tæki. Nú bjóðum við AIWA V-800 sam- stæðuna á sérstöku tilboðsverði. Verö áöur kr. 69.000.- nú aöeins kr. 58.900,- Okkar kjör, 25% út, eftirstöðvar á átta mánuðum. NÚ GETUR PÚ EIGNAST AIWA D i» / i i r ixaaiooær nr. 1 1 ím ■‘•'1 5 1 Ar:.i —*— - ■ . m~- • ms - Félag umbótasinna: Óska eftir samstarfi við Vöku og vinstri menn Á AÐALFUNDI Félags umbóta- sinna í Háskóla Islands í fyrra- dag var ákveðið að vísa frá bréfi sem borist hefur frá Félagi vinstri manna um samstarfs- möguleika, en óska þess i stað eftir viðræðum við Vöku, Félag lýðræðissinna og vinstrimenn um samstarf allra fylkinga. Gylfi Ástbjartsson formaður Fé- lags umbótasinna sagði í samtali við Morgunblaðið, að bréf hefðu verið send báðum fylkingunum ásamt greinargerð þar sem fram kemur hvers vegna samstarfs sé óskað. Hann sagði helstu forsend- umar fyrir þessari ákvörðun annars vegar vera staðan í lánamálum og hinsvegar minnkandi álit stúdenta og annarra á störfum Stúdentaráðs. „Við teljum þörf á samstöðu ef frumvarp verður lagt fram um lána- málin sem er okkur óhagstætt, aúk þess teljum við að samstarf fylking- anna sé nauðsynlegt til að auka álit á Stúdentaráði og störfum þess, en margt bendir til þess að það sé með minna móti, kjörsókn hefur t.d. sjaldan verið minni en í síðustu kosningum." Gylfi bjóst við að svars væri að vænta frá Félagi vinstrimanna og Vöku í dag. Ármúla 38 og Garðabæ. Símar 31133 og 651811 VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.