Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986
. -^TT'------------->—rr.r.—r-r---rr—r—i
Vor gatna-
málastjóra
Það getur verið ósköp notalegt.
að sitja við viðtækið að kvöld-
lagi og hlusta á útvarpsleikrit, ég
veit jafnvel um fólk sem tekur leik-
ritin ætíð uppá segulband og hlustar
hvað eftir annað á sum þeirra. Sjálf-
ur hef ég einkum gaman af að
hlusta á útvarpsleikrit þegar regn
bylur á rúðum vinnuherbergisins
eða snjódrífan siglir um svart
myrkrið útifyrir. í fyrrakveld þegar
leikrit Natalíu Ginzburg: Auglýs-
ingin, var flutt á rás I var hvorki
því að heilsa að regn byldi á glugga-
num né dreif snjóflygsur um bik-
svart myrkur enda komið fram á
vor eins og segir í auglýsingum
gatnamálastjóra. Samt fannst mér
alls ekki ónotalegt að hlýða á verk
Natalíu, en ég hreifst heldur ekkert
uppfyrir haus. Verkið leið sum sé
ósköp notalega um hálfrökkur
vinnuherbergisins án þess að skilja
eftir djúp för í heilabörkinn. Þó
fann ég þijár misfellur á verki
Natalíu er héldu fyrir mér vöku
stundarkom.
Misfellurnar þrjár:
í fréttatilkynningu Leiklistar-
deildarinnar segir svo um Auglýs-
inguna: Elena, sem er ungur stúd-
ent í heimspekinámi, er að leita að
herbergi þar sem hún getur lesið í
ró og næði. Hún fær herbergi hjá
Theresu, fráskilinni konu, sem hef-
ur lifað í stormasömu hjónabandi.
Elena lendir fljótlega í hlutverki
sálusorgara Theresu, sem ennþá
elskar Lórenzo, fyrrverandi eigin-
mann sinn. Þegar Lorenzo kemur
óvænt í heimsókn eru örlög Elenu
ráðin. í þessu stutta efniságripi má
í rauninni finna hinar _þijár veilur
fimmtudagsleikritsins. I fyrsta lagi
gerist Elena sálusorgari Theresu á
því augnabliki er þær hittast á
þröskuldi leiguherbergisins. Að-
dragandinn er enginn og fannst
mér dálítið ónotalegt að hlýða á
Theresu úthella þannig hjarta sínu
fyrir bláókunnugum leigjandanum.
í öðru lagi þá sjá lesendur að leik-
ritið er ekki mjög efnismikið, snýst
nánast einvörðungu í kringum
kveinstafí Theresu útaf skilnaðin-
um og fannst mér kannski óþarfí
að teygja lopann í tvær klukku-
stundir, þótt þýðing Alberts Aðal-
steinssonar og Sverris Hólmarsson-
ar hafí vissulega verið áheyrileg og
textinn hafí dregið upp all skýra
mynd af sálarflækjum Theresu. Þá
þarf ekki að kvarta yfír því að Inga
Bjamason hafí truflað einræðumar
með áhrifahljóðum. Máski hefír
leikstjórinn viljað hespa þessu af
fyrir tíufréttir. Þá er komið að
þriðju og seinustu aðfínnslunni sem
vísar einnig til fyrrgreinds efnisúr-
dráttar. Þegar Lórenzo kemur
óvænt í heimsókn em örlög Elenu
ráðin. Hér er átt við að auðvitað
verður Lórenzo hrifínn af leigjand-
anum og þá leysir Natalía Ginzburg
málið með því að setja skammbyssu
í lófa Therezu og þarf þá ekki að
spyija að leikslokum. Mér finnst
alltaf svolítið billegt að ljúka drama-
tískum verkum er spanna tilfinn-
ingasvið manneskjunnar með
skammbyssuskoti. Myndin af hinni
ástríðufullu Theresu hefði máski
greypst einhversstaðar í hjartað ef
kúlan hefði setið í byssunni.
Leikaramir
Anna Kristín Amgrímsdóttir er
ástríðumikil leikkona en stillti sig í
hlutverki Theresu, Sigrún Edda var
einsog kiðlingur á sviðinu og Þor-
steinn Gunnarsson í hlutverki Lór-
enzo, lokapúnkts ástarþríhymings-
ins, álíka kunnuglegur og þulir
veðurstofunnar á rás I. Ekki frum-
legt leikaraval það, en vissulega er
áhættuminnst að grípa til þraut-
þjálfaðra leikara. 0 sole mio!
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Framjóðandinn (Philippe Léotard) og alþýðustúlkan (Olivia Carlisi).
Miðja heimsins
Miðja heimsins
O Q 25 (Le milieu du
monde),
frönsk-svissnesk bíómynd
frá 1974, er á dagskrá
sjónvarps á laugardags-
kvöld. Ungur og efnilegur
verkfræðingur, Paul Char-
moret, býður sig fram til
þings og stendur í kosn-
ingabaráttu. Á vegi hans
verður ítölsk stúlka sem
vinnur á veitingahúsi. Þó
Paul sé giftur og eigi böm
stofnar hann til ástarsam-
bands við stúlkuna og
stefnir þannig stjómmála-
frama sínum í tvísýnu.
Svarta taskan
— 7.þáttur
■■■■ Svarta taskan
1 rjOO heitir 7. þáttur
1 I — framhaldsleik-
rits Armans Kr. Einarsson-
ar sem er á dagskrá rásar
1 síðdegis í dag.
í 6. þætti sagði frá komu
Kela kalda, forstjórasonar
frá Reykjavík, sem óvænt
birtist í sveitinni á rauðum
sportbfl og reyndi, Áma til
mestu armæðu, að gera
hosur sínar grænar fyrir
Rúnu í Hraunkoti.
Arni
Egilsson,
bassaleikari
Djassspjall
— rættviðArna
Egilsson bassaleikara
^■■1 Djassspjall er á
Ol 00 dagskrá rásar
íá J. — tvö á laugar-
dagskvöld. Þá mun Vem-
harður Linnet ræða við
Árna Egilsson bassaleikara
í Los Angeles. „Árni er einn
af fremstu bassaleikurum
okkar", sagði Vemharður
í samtali við Morgunblaðið.
„Hann fluttist ungur til
Þýskalandis þar sem hann
spilaði í sinfóníuhljómsveit
undir stjóm André Previn,
sem er einn af þekktari
stjómendum klassískum.
En Previn er líka góður
jasspíanisti og þeir Árni
spiluðu oft djass þegar
sinfóníutónleikar vora bún-
ir, - þá djömmuðu þeir og
spiluðu saman í tríói fram
á nótt. En eftir að Previn
hætti þama þá fluttist Ámi
til Los Angeles og komst
inn í þennan harða stúdíó-
bransa. Núna vinnur hann
fyrst og fremst við kvik-
myndatónlist.
UTVARP
LAUGARDAGUR
12. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Baen.
7.15 Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
7.20 Morgunteygjur.
7.30 íslenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem örn Ólafsson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
Óskalög sjúklinga, fram-
hald.
11.00 Á tólfa tímanum. Bland-
aður þáttur úr menningarlíf-
inu i umsjá Þorgeirs Ölafs-
sonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur
ívikulokin.
15.00 Miödegistónleikar
Píanókonsert nr. 1 í C-dúr
op. 15 eftir Ludwig van
Beethoven. Arthuro Bened-
etti og Sinfóníuhjómsveitin
í Vínarborg leika; Carlo
Maria Giulini stjórnar.
15.50 íslenskt mál. Gunnlaug-
ur Ingólfsson flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
18.20 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón. Sigrún Björnsdóttir.
17.00 „Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Árni í Hraun-
koti" eftir Ármann Kr. Ein-
arsson. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson. Sögumaður: Gisli
Alfreðsson. Leikendur:
Hjalti Rögvaldsson, Anna
Kristín Arngrímsdóttir, Val-
gerður Dan, Þórhallur Sig-
urösson, Jón Júliusson,
Valur Gíslason og Bessi
Bjarnason. Sjöundi þáttur:
„Svarta taskan". (Áður út-
varpað 1976).
17.35 Síödegistónleikar
Anneliese Rothenberger
syngur rómantíska söngva
eftir Giacomo Meyerbeer
og Louis Spohr. Gerd
Starke og Norbert Weissen-
born leika með á klarinettu
og píanó.
a. Hjarðljóð eftir Giocomo
Meyerbeer.
b. Sex þýskir söngvar op.
103eftirLouisSpohr.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Sama og þegiö".
Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson,
Sigurður Sigurjónsson og
Örn Árnason.
20.00 Leikrit: „Auglýsingin"
eftir Nataliu Ginzburg
Þýðandi: Albert Aðalsteins-
son.
Leikstjóri: Inga Bjarnason.
Leikendur: Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir.Þorsteinn
Gunnarsson og Alda Arnar-
dóttir. (Endurtekiö frá
fimmtudagskvöldi.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 ( hnotskurn — Undir
vestrænum himni. Umsjón:
Valgarður Stefánsson. Les-
ari með honum: Signý Páls-
dóttir. (Frá Akureyri.)
23.00 Harmoníkuþáttur.
Umsjón: Einar Guðmunds-
son og Jóhann Sigurðsson.
(Frá Akureyri.)
23.30 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl
03.00.
LAUGARDAGUR
12. apríl
10.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blön-
dal.
SJÓNVARP
16.00 íþróttir.
16.00 Enska knattspyrnan/
17.00 Stjörnuleikurinn í
bandarískum körfuknattleik/
18.30 Vetrariþróttir. Um-
sjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.25 Búrabyggö.
(Fraggle Rock). Þrettándi
þáttur. Brúöumyndaflokkur
eftir Jim Henson. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 DagbókinhansDadda.
(The Secret Diary of Adrian
Mole Aged 13 3/<). Þriðji
þáttur. Breskur myndaflokk-
LAUGARDAGUR
12. apríl
ur i sjö þáttum, geröur eftir
bók Sue Townsend. Leik-
stjóri Peter Sasdy. Aðal-
hlutverk: Gian Sanmarco,
Julie Walters, Stephen
Moore og Beryl Reid. Þýð-
andi Kristmann Eiösson.
21.00 Spurningakeppni fram-
haldsskólanna — Urslit.
Stjórnendur: Jón Gústafs-
son og Þorgeír Ástvalds-
son.
21.40 Sumarleyfið.
(Summer Holiday). Bresk
söngvamynd frá 1962. Leik-
stjóri Peter Yates. Aðalhlut-
verk: Cliff Richard, Lauri
Peters og Melvyn Hayes.
Fjórir ungir Lundúnabúar fá
lánaðan strætisvagn í sum-
arleyfisferð til meginlands-
ins. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
23.25 Miðja heimsins.
(Le milileu du monde).
Frönsk-svissnesk bíómynd
frá 1974. Leikstjóri Alain
Tanner. Aöalhlutverk: Olivia
Carlisi, Philippe Léotard,
Juliet Berto og Jacques
Denis. Ungur og efnilegur
verkfræðingur i Sviss býður
sig fram til þings. I miðri
kosningabaráttunni hrifst
hann af italskri alþýöustúlku
og teflir með því stjóm-
málaframa sínum i tvísýnu.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
01.25 Dagskrárlok.
12.00 Hlé
14.00 Laugardagurtillukku
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00 Hringboröiö
Erna Arnardóttir stjórnar
umræöuþætti um tónlist.
18.00 Hlé
20.00 Bylgjur
Ásmundur Jónsson og Árni
Daníel Júliusson kynna
framsækna rokktónlist.
21.00 Djassspjall
Vernharður Linnet ræðir við
Árna Egilsson bassaleikara
í Los Angeles.
22.00 Bárujárn
Þáttur um þungarokk i
umsjá Sigurðar Sverrisson-
ar.
23.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Ánæturvakt
með Pétri Steini Guö
mundssyni.
03.00 Dagskráriok.
SYÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavik og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni-
FM 96,5 MHz.
Á tólfta tímanum:
Þáttur um menningarmál
■I Á tólfta tíman-
00 um nefnist
“ klukkustundar-
langur þáttur í umsjá Þor-
geirs Ólafssonar sem er á
dagskrá rásar eitt kl. 11 í
dag. í þáttum þessum er
fjallað um ýmislegt í menn-
ingarlífínu.
I þættinum í dag verður
rætt við Áma Harðarson
stjómanda Háskólakórsins
um endurútgáfu á Sóleyj-
arkvæði Jóhannesar úr
Kötlum við tónlist Péturs
Pálssonar í flutningi Há-
skólakórsins. Þá verður
rætt við Sigrúnu Valbergs-
dóttur framkvæmdastjóra
íslenskra áhugaleikfélaga
um afrakstur vetrarstarfs-
ins og sumarstarfíð fram-
undan. Einnig verður rætt
um tréskurðarlist og kvik-
myndapistill verður á sín-
um stað.