Morgunblaðið - 12.04.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL1986
11
Kammertónleikar
_________Tónlist
Jón Ásgeirsson
Síðustu tónleikar Kammermús-
íkklúbbsins á þessu starfsári voru
haldnir á Kjarvalsstöðum sl.
mánudag við óvenju góða aðsókn.
Líklega áttu áheyrendur von á
góðum hljóðfæraleik og tónverkin
á efnisskránni voru eftir Beet-
hoven, Sjostakóvits og Brahms.
Flytjendur voru Halldór Har-
aldsson, Guðný Guðmundsdóttir
og Gunnar Kvaran, góðir lista-
menn, sem nú leika saman í fyrsta
sinn. Fyrsta verkið á efnisskránni
var Ópus eitt, númer eitt, eftir
Beethoven. Fyrstu verkin, sem
Beethoven gaf út, voru þijú tríó
fryir píanó og strengi. Hann fjár-
magnaði sjálfur þessa útgáfu en
prentunina fékk hann unna hjá
virtu útgáfufyrirtæki, Artaria,
seldi síðan sjálfur til áskrifenda,
meðal vina og velgjörðarmanna.
Haydn taldi verkin mjög góð en
var með einhveijar athugasemdir
varðandi síðasta verkið og ráð-
lagði Beethoven að gefa það ekki
út óbreytt. Þetta mun Beethoven
ekki hafa tekið til greina en ein-
mitt þetta síðasta tríó þykir nú
bera með sér þau einkenni, sem
síðar áttu eftir að ráða miklu í
tónsköpun meistarans. Flutningur
verksins var mjög vel útfærður,
sérstaklega í öðrum þætti þess,
Adagio cantabile, sem þó var leik-
ið í það hraðasta. Þá var
„Scherzo" þátturinn glæsilega
leikinn. Annað verkið á efnis-
skránni var tríó, op. 67, eftir
Sjostakóvits.
Verkið samdi hann 1944, í
minningu vinar síns, Ivan Sol-
lerinsky. Verkið hefst á mjög
óvenjulegan máta, með „flautu-
tónum" á selló en stefið er síðan
tekið upp af „dempaðri" fiðlu og
síðan af píanóinu. Þetta gefur
verkinu sérkennilegan blæ, er ber
svip af sorglegri íhugun. í öðrum
þætti nær örvæntingin hápunkti.
Largo þátturinn er eitt af því
besta sem Sjostakóvits ritaði og
var hann sérlega vei leikinn. Þrátt
fyrir nærveru sorgarinnar, bregð-
ur tónskáldið á leik með þjóðlaga-
tónhugmyndum í síðasta kaflan-
um. í heild var flutningur verksins
áhrifamikill og margt mjög fal-
legagert.
Síðasta verkið var fyrsta tríóið
eftir Brahms, sem ber númerið
ópus 8 og er fyrsta kammerverkið
sem hann gaf út. Verkið er samið
á árunum 1853—4, en þijátíu og
sex árum síðar, 1889, endursamdi
Brahms allt verkið, svo að í raun
er „Scherzo“-þátturinn eini hluti
verksins, sem er nær óbreyttur
frá fyrstu gerðinni. Þrátt fyrir að
margt væri fallega gert í verkinu,
var oftlega leikið um of með
hraðann, sérstaklega í fyrsta og
síðasta þættinum. Allegro er hratt
og má eflaust deila um hversu
hratt, en tæplega er ætlast til
þess að hraðanum sé stefnt til
hins ýtrasta. Adagio-þátturinn
var feikna fallega leikinn. Eins
og að framan segir, er hér um
að ræða frábæra listamenn, sem
leika nú saman í fyrsta sinn og
er full ástæða til að óska þess,
að hér sé iagður grunnur að
samstarfí til frambúðar.
Guðný Guðmundsdóttir, Halldór Haraldsson og Gunnar Kvaran.
KRON rekið með 9,5
millj. króna halla
Ingólfur Ólafsson hættir sem
kaupfélagsstjóri um næstu áramót
Um 9,5 miiyón króna halli varð
á rekstri KRON á sl. ári þegar
skattar höfðu verið greiddir og
varð meginhluti hans á fyrri
helmingi ársins, að því er fram
kemur í _ fréttatilkynningu frá
KRON. Á aðalfundinum kom
einnig fram, að Ingólfur Ólafs-
son kaupfélagsstjóri, hefur
ákveðið að láta af störfum um
næstu áramót. Fréttatilkynning-
in fer hér á eftir:
Aðalfundur Kaupfélags Reykja-
víkur og nágrennis var haldinn á
Hótel Sögu laugardaginn 5. apríl.
Fundinn sóttu um eitt hundrað
fulltrúar. Fundarstjórar voru kjörn-
ir Siguijón Pétursson og Hermann
Þorsteinsson. Fundarritarar voru
Helgi Skúli Kjartansson og Sigurð-
ur Guðmundsson.
Þröstur Ólafsson stjómarformað-
ur og Ingólfur Ólafsson kaupfélags-
stjóri fluttu skýrslur um rekstur og
hag félagsins á sl. ári. Kom þar
fram, að heildarvörusala félagsins
að frádregnum söluskatti var 368,6
milljónir. Halli eftir skatta var 9,5
milljónir og varð meginhluti hans á
fyrri helmingi ársins en reksturinn
síðustu mánuðina var hallalaus.
Niðurstaða efnahagsreiknings var
306 millj., þar af eigið fé 61%.
Á fundmum var skýrt frá því að
Ingólfur Ólafsson kaupfélagsstjóri
hafi ákveðið að láta af störfum um
næstu áramót.
Kjörtíma í stjóm höfðu lokið Jón
Þór Jóhannsson, Sigurður Magnús-
son og Gylfí Kristinsson. Vom þeir
endurkjömir. Hrefna Júlíusdóttir
var endurkjörin 1. varmaður í
stjóm. Jörgen Þór Halldórsson var
kjörinn endurskoðandi og Baldvin
Einarsson til vara. Á fundinum vom
kosnir 18 fulltrúar á aðalfund
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
ptttrgstiiMfifeife
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
______Reykjavík
*
fc
^ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals i
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12.
^ Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábending-
^ umoger öllum borgarbúum boðið að notfæra sér við-
^ talstíma þessa.
h Laugardaginn 12. apríl verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðar-
^ dóttir fulltrúi í atvinnumálanefnd, fræðsluráði, umferðar-
J nefnd og framkvæmdanefnd byggingastofnana í þágu
" aldraðra og Guðmundur Hallvarðsson varaformaður í
hafnarstjórn.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STÁL
Stál 37 - 1 K DIN 17100/1652
Fjölbreyttar stæröir og þykktir
sívalt
ferkantað flatt
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður
haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík,
í dag laugardaginn 12. apríl 1986 og hefst kl. 13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa og tillögur um breytingu á
samþykktum vegna nýrra laga um viðskiptabanka
og stofnun veðdeildar.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir á fundarstað.
Ðankaráð Samvinnubanka íslands hf