Morgunblaðið - 12.04.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 12.04.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986 \T/ ERLENT Rússar aflétta banni við kjarn- orkutilraunum Las Vegas, AP. BANDARÍKJAMENN sprengdu kjarnorkusprengju í til- raunaskyni rétt eftir dögun í Nevada-eyðimörkinni á fimmtudag. Tilraunin gekk að óskum. Veður hafði frestað sprengingunni mn tvo sólarhringa. Sovézka fréttastofan TASS birti harðorð mótmæli sovézkra yfirvalda vegna sprengingar- innar. Sovétmenn sökuðu Bandaríkjamenn um „glæpsam- legt athæfi“, sögðu tilraunina minnka vonir um samkomulag um bann við kjamorkutilraun- um og sýna brostið siðferðis- þrek stjómar Ronalds Reagan. Mótmæli gegn áformum Bandaríkjamanna höfðu farið vaxandi og margt mótmælenda var í grennd við tilraunasvæðið. Sprengjan var af minni gerð- inni, innan við 20 kílótonn og höggið af sprengingunni var slíkt að jafngilti því að sprengd hefðu verið 590 kfló af TNT. í fréttum, sem bárust svo í gær, segir að Sovétmenn hafi aflétt einhliða banni, sem þeir settu í fyrra, við tilraunum með Flóðin í Brasilíu: Yfir 120.000 hafa misst heimili sín Rio de Janeiro, Brazilíu. AP. RUMLEGA 120.000 manns hafa misst heimili sín í gífur- legum rígningum og flóðum í héruðunum Maranhao og Ceara i norðausturhluta Brazilíu, að því er embættis- menn sögðu á f immtudag. „Astandið er hræðilegt," sagði Francisco Albuquerque, embættismaður héraðssijórnar- innar í Maranhao í símaviðtali. Hann sagði, að yfír 80.000 manns hefðu orðið heimilislaus- ir í héraðinu af völdum mikillar rigningatíðar frá því í febrúar, auk þess sem ár hefðu flætt yfir bakka sína og tekið með sér brýr og vegi. Yfír 40.000 manns hafa misst heimili sín í nágrannahéraðinu Ceara. kjamorkuvopn. Sögðust Rússar ekki lengur geta framfylgt eigin banni í ljósi endurtekinna kjam- orkutilrauna Bandarílg'amanna. Hins vegar kváðust þeir reiðu- búnir hvenær sem væri til að setja á gagnkvæmt bann við tilraunum með kjamorkuvopn. Oddvitarnir þrír í vinnudeilunum i Noregi. Pál Kraby, formaður vinnuveitenda, Tor Halvorsen, formað- ur norska alþýðusambandsins og Ame Rettedal, atvinnu- og sveitarstjómarráðherra. Vinnudeilurnar í Noregi: Atvinnurekendur eru að tapa áróðursstríðinu Verður að flytja söngvakeppnina til Svíþjóðar? Osló. Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Morgunblaðsins. VINNUDEILURNAR í Noregi halda áfram og enn virðist engin lausn vera í sjónmáli. Þeim fyrir- tækjum fjölgar stöðugt, sem neyðast til að segja upp starfs- fólki vegna ástandsins og tilraun- ir til að hefja aftur útgáfu tveggja stærstu dagblaðanna hafa ekki borið árangur. Ame Rettedal, atvinnu- og sveit- arstjómarráðherra, segir, að ríkis- stjómin muni ekki visa deilunni til kjaradóms á næstu dögum, það verði ekki gert fyrr en hún fari að hafa alvarleg áhrif á samfélagið. Rettedal hefur árangurslaust reynt að fá deiluaðila til að setjast að samningaborðinu og strandar það enn sem fyrr á ágreiningi um lág- markslaun starfsfólks á hótelum og veitingastöðum. Um styttingu vinnuvikunar úr 40 stundum í 37,5 hefur hins vegar orðið samkomulag. Sumir atvinnurekendur og for- ystumenn launþega hafa gagnrýnt Pál Kraby, formann vinnuveitenda- sambandsins, fyrir að hafa slitið viðræðunum og er hann sakaður um stífni og lítinn samningsvilja. Mörg fyrirtæki eiga nú orðið í miklum erfíðleikum vegna verk- bannsins og við fáum undanþágum hefur verið orðið. Jan P. Syse, þingflokksformaður Hægriflokks- ins, hefur tekið undir gagnrýnina Starfsmenn Aftenposten mótmæla uppsögn vegna vinnudeilunnar. og kveðst vera undrandi á fram- kvæmd verkbannsins og skilja að mörgu leyti reiði launþega. Það hjálpar heldur ekki vinnuveitendum að þeir eru að tapa áróðursstríðinu, geta ekki lengur komið með sín rök fyrir verkbanninu og þessum mestu vinnudeilum frá árinu 1931. Er ástæðan sú, að tvö stærstu borgara- legu blöðin og stærstu blöðin í Noregi, Aftenposten og Verdens Gang, koma ekki út. Blöðin stöðvuðust vegna verk- banns á 70 starfsmenn, sem eru í Félagi málmiðnaðarmanna og vinna í prentsmiðjunum, en í raun eru það aðeins fíórir þessara manna sem stöðva útgáfuna. Þeir sjá um við- hald og eftirlit með prentvélunum og án þeirra neita prentarar að vinna. Vinnuveitendur hafa raunar af- létt verkbanninu á þessum mönnum en verkalýðsfélagið neitar að viður- kenna það, segir að það sé ólöglegt að beita verkbanninu á þennan hátt, að banna fyrst tilteknum hópi manna að stunda vinnu sína og hætta svo allt í einu við allt saman. f fyrradag var 300 af 400 starfs- mönnum Verdens Gang sagt upp um stundarsakir og 1.300 af 1.600 starfsmönnum Aftenpostens. Hafa uppsagnimar valdið mikilli óánægju og í gærmorgun efndu 125 starfs- menn Verdens Gang til mótmæla fyrir utan skrifstofur blaðsins. Sögðu þeir, að engin ástæða hefði verið til að segja þeim upp strax á þriðja degi vinnudeilnanna og bentu á gífurlegan hagnað blaðsins á undanfömum árum. Aðeins á síð- asta ári var hann 75 milljónir norskra króna, nærri 430 milij. ísl. kr. Margir em nú famir að hafa áhyggjur af því, að vegna vinnu- deilnanna verði ekki hægt að halda söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva, sem fram á að fara í Björg- vin 3. maí nk. Er ástæðan sú, að flestöll hótel í bænum em lokuð. Er því haldið fram, að takist ekki að leysa vinnudeilumar innan 9 daga verði að flytja keppnina yfír til Svíþjóðar. Verður mannkynið rak- ið til einnar formóður? ÚTREIKNINGAR á þeim hæg- fara breytingum, sem orðið hafa á kjamasýrunni DNA í mönnum í rás árþúsundanna, gefa til kynna, að allir þeir, sem nú eru á lífi, kunni að vera afkomendur einnar formóður, sem lifði í Afríku fyrir 140.000—280.000 árum. Kemur þetta fram í skýrslu, sem vis- indamenn við háskólann í Berkeley í Kalifomíu hafa látið frásérfara. Dr. Allan C. Wilson hefur stjómað rannsóknum þeim, sem skýrslan er byggð á. Eiga þær að skjóta stoðum undir þá skoðun, að nútímamaðurinn, homo sapi- ens, hafí upphaflega orðið til í Afríku fyrir um 200.000 ámm og síðan dreifzt út um allan heim. Benda niðurstöðumar til þess, að relga megi allt mannkynið til einnar formóður. Er þetta fyrst og fremst byggt á rannsóknum á kjamasýru (DNA eða deoxyri- bonuecleic acid) úr legköku 147 kvenna í Bandaríkjunum, Evrópu, Afríku, Astralíu og Asíu. Dr. Wilson rannsakaði ásamt aðstoðarmönnum sínum kjama- sýruna DNA (það efni genanna, sem ræður röðinni innan kjama- sýrusameindanna) úr mikilvægum fmmumyndunum, sem nefnast „mitochondria" eða hvatberar og erfast eingöngu í kvenlegg. Breytingar á DNA em afar hægar, en unnt er að gizka á hraða þeirra með því að rannsaka skyldar en þó frábmgðnar teg- undir. DNA í hvatbemnum breyt- ist um 2—4% á hverri milljón ára samkvæmt niðurstöðum þeirra dr. Wilsons og samstarfsmanna hans og á þeim útreikningum byggist sú skoðun, að það kunni að hafa verið fyrir hendi ein sameiginleg formóðir manna í Afríku fyrir meiraen 140.000 ámm. Dr. Douglas Wallace, prófessor í lífefnafræði, sem vinnur að sams konar verkefnum við Emory- háskólann í Atlanta, hefur sagt, að þessar rannsóknir eigi vissu- lega rétt á sér. Hann er þó ekki sömu skoðunar varðandi helztu niðurstöður þeirra. Dr. Wallace heldur því fram, að hans eigin rannsóknir á DNA í hvatbemnum gefí til kynna, að homo sapiens hafí líklega orðið til í Asíu fremur en í Afríku og sennilega hafí það orðið fyrir um 100.000 ámm. Jafnframt heldur hann því fram, að DNA í hvat- berunum bendi ekki endilega til, að DNA í mönnum verði rakið tií eins einstaks manns heldur miklu fremur til fámenns hóps manna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.