Morgunblaðið - 12.04.1986, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986
Einhugur um stofn-
un Utflutningsráðs
Skoðanamunur um skipan stjórnar ráðsins
FJARHAGS- og viðskiptanefnd
efri deildar Alþingis hefur lagt
til, að stjómarfrumvarp um Ut-
flutningsráð íslands verði sam-
þykkt. Einhugur er í nefndinni
um þessa afstöðu, enda þótt
ágreiningur sé um eitt ákvæði
frumvarpsins. Eru þvi sterkar
líkur á, að frumvarpið verði að
lögum.
Ágreiningurinn varðar skipun
stjómar Útflutningsráðsins, einkum
Iðnlánasjóður:
Tryggingar-
deild útflutn-
ingslána
Stjórnarfrumvarp um Iðnlána-
sjóð gerir ráð fyrir nokkrum
breytingum á gildandi lögum um
sjóðinn. Samkvæmt frumvarpinu
er hlutverk sjóðsins gert víð-
tækara en áður, þ.e. „að efla
framleiðslu og framleiðni í iðn-
aði og öðrum atvinnugreinum".
Þá er Iðnlánasjóði gert heimilt
að taka erlend lán, innan ramma
lánsfjárlaga. Loks er gert ráð
fyrir að stofna og starfrækja
sérstaka tryggingadeild útflutn-
ingslána innan sjóðsins.
Ofangreindar breytingar eru að
mestu samhljóða breytingum í
stjómarfrumvarpi til laga um sjóði
atvinnuveganna, sem til meðferðar
er í efri deild.
í greinargerð segir að brýnt sé
að gera þessar breytingar nú til að
búa sjóðinn betur til að sinna hlut-
■^erki sínu.
hveijir skuli tilnefna fulltrúa ríkis-
ins í stjómina. Fulltrúar stjómar-
flokkanna í nefndinni leggja áherslu
á, að ekki verði fjölgað í stjóminni
frá því sem lagt er til í frv. - enda
er þar lagt til að stjómarmenn verði
alls 8 - en þó sé tryggt að sjónarmið
þeirra ráðuneyta, sem sinna út-
flutningsmálum, eigi greiðan að-
gang að stjómarfundum. í sam-
ræmi við þetta leggja þeir til, að
iðnaðarráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra tilnefni varamenn í stjóm
ráðsins fyrir þá aðalmenn sem við-
skiptaráðherra og utanríkisráð-
herra tilnefna í stjómina. Aðrir
nefndarmenn hafa fyrirvara um
afstöðu sína til þessarar tillögu.
Fulltrúi Alþýðubandalagsins
leggur til, að í stað þess að nokkur
stórfyrirtæki tilnefni menn í stjóm
verði stjómarmenn, aðrir en fulltrú-
ar ríkisins, kjömir af Útflutnings-
ráði.
SAMKVÆMT þingsályktunartillögu, sem allsherjamefnd sameinaðs þings mælir með að verði sam-
þykkt, skal meta heimilis- og umönnunarstörf til starfsreynslu, þegar um skyld störf er að ræða. Eitt
af því er væntanlega umsjón barna á dagvistun.
Allsheijamefnd sameinaðs þings:
Heimilis- og umönnunarstörf
metin til starfsreynslu
— þegar um skyld störf á vinnumarkaði er að ræða
ALLSHERJARNEFND samein-
aðs þings hefur sameinast um,
að leggja til að tillaga tíl þings-
ályktunar um að meta heimilis-
störf til starfsreynslu verði
Fmmvarp um innflutningsgjald á
búvöm:
Ekki samþykkt óbreytt
samþykkt með svohljóðandi
orðalagi: „Alþingi ályktar, að
meta skuli tii starfsreynslu heim-
ilis- og umönnunarstörf, sem
unnin eru launalaust, þegar um
skyld störf er að ræða. Jafnframt
felur Alþingi rikisstjórn að láta
athuga með hvaða hætti megi
meta slika starfsreynslu, þegar
um óskyld eða sérhæfð störf er
FULLVÍST er, að frumvarp
landbúnaðarráðherra um sér-
stakt jöfnunargjald á innfluttar
búvörur, allt að 200% á tollverð
hinnar innfluttu vöru, nái ekki
fram að ganga óbreytt.
Frumvarpið spannaði m.a. inn-
flutta garðávexti, grænmeti og
kartöflur. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokks töldu sig hinsvegar ekki hafa
fallizt á slíkt jöfnunargjald á aðra
vöruflokka en innfluttar kartöflur.
Samkomulag hefur nú tekizt um
að fella garðávexti og grænmeti út
úr frumvarpinu.
aðtefla."
í áliti nefndarinnar segir orðrétt:
„Öllum er ljóst, að reynsla af heimil-
isstörfum getur oft nýst á vinnu-
markaði, stundum að fullu. Enginn
dregur væntanlega f efa hæfni
margra barna móður til /þess að
vinna að bamagæslu svo að dæmi
sé nefnt. Fyrir liggur að í gildandi
samningum er tekið tillit til þessar-
ar reynslu þegar um skyld störf er
að ræða, en umdeilanlegt er hvort
slíkt er gert í nægilega ríkum
mæli. Öðru máli gegnir þegar um
óskyld og sérhæfð störf er að ræða.
Næði tillagan fram að ganga
óbreytt gæti t.d. sú staða komið
upp, að kona, sem unnið hefur á
tölvu í ríkisstofnun í 5 til 10 ár,
fengi samstarfskonu sem aldrei
hefði unnin að störfum utan heimil-
is en ætti engu síður rétt á hærri
launum. Starlsmaðurinn með lengri
starfsreynslu, sem kenna ætti nýlið-
anum, væri á lægri launum jafnvel
þótt viðkomandi hefði sinnt heimil-
isstörfum samhliða vinnu utan
heimilis lengur en nýliðinn. í tilviki
sem þessu er líklegt að ráðning
húsmóður til starfans yrði talin
óæskileg, en ella hlyti starfsmaður-
inn, sem fyrir var, að telja sér
verulega misboðið."
Fjögur þingmannafrumvörp:
Kerfisbundin skrán-
ing um einkahagi
Afnotagjöld útvarps — vaxtafrádráttur til skatts
Frumvörp um kerfisbundna skráningu er varða einkahagi, um
undanþágu elli- og örorkulífeyrisþega frá greiðslu afnotagjalds
af hljóðvarpi, um frádráttarbærni vaxta og verðbóta frá skatti
og um framhaldsskóla vóru lög fram á Alþingi í fyrradag, fimmtu-
dag.
Kerfisbundin skrán-
ing er varðar einka-
málefni
Kristófer Már Kristinsson (Bj)
flytur frumvarp til breytinga á
lögum nr. 39/1985 um kerfls-
bundna skráningu á upplýsingum
er varða einkamálefni. Frum-
varpið gerir ráð fyrir því að skrán-
ingaraðila sé skylt að skýra þeim,
sem upplýsingar fjalla um, frá
efni þeirra og því mati sem skrán-
ingaraðili hefur látið frá sér fara
til annarra varðandi hagi þess er
um ræðir. Skylt skal einnig að
greina hinum skráða frá því hvetj-
ar upplýsingar eru skráðar um
hagi hans, þar með talið mat á
fjárhag hans. Markmið: að
tryggja að ekki gangi kaupum og
sölum upplýsingar um einkahagi
fólks, án þess að það sjálft hafí
hugmynd um áreiðanleika þeirra
eða notkun.
Vaxtagreiðslur og
skattf rádráttur
Jón Sveinsson (F.-Vl.) og Jón
Magnússon (S.-Rvk.) flytja frum-
varp til laga, þess efnis, að
„vaxtagjöld, sem eru umfram
leyfilegt hámark vaxtagjalda, sbr.
121 grein (laga nr. 75/1981), er
heimilt að flytja til næsta árs,
framreiknað samkvæmt ákvæð-
um 26. greinar".
Framhaldsskólar
Ragnar Amalds (Abl.-Nv.) flytur
viðamikið frumvarp til laga um
framhaldsskóla. Mörg atriði fmm-
varpsins em byggð á tiliögum
starfshóps, sem starfaði innan
Alþýðubandalagsins um þessi
mál, segir í greinargerð. „Ein
veigamesta breytingin felst í því
að dregið er mjög úr einhliða
ákvörðunarvaldi menntamála-
ráðuneytisins og að sama skapi
em aukin áhrif fræðslumdæm-
anna um stefnumótun og stjómun
framhaldsmentunar," segir í
greinargerð.
Breyting á út-
varpslögnm
Sex þingmenn úr stjómar- og
stjómarandstöðuflokkum flytja
frumvarp til laga, þess efnis, að
undanþáguákvæði um greiðslu
afnotagjalds af hljóðvarpi, sem
gilti um ákveðinn hóp elli- og
örorkulífeyrisþega fram á ár
1985, fái lagagildi á ný. Fyrsti
flutningsmaður er Jóhanna Sig-
urðardóttir (A.-Rvk.).
Þingsályktunartillaga Bandalags jafnað-
armanna:
Varnir gegn hags-
munaárekstrum
ÞRÍR þingmenn Bandalags jafn-
aðarmanna, Guðmundur Einars-
son, Kolbrún Jónsdóttir og Stef-
án Benediktsson, hafa lagt fram
á Alþingi tillögu til þingsálykt-
unar um varnir gegn hags-
munaárekstrum.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela alls-
heijamefnd sameinaðs Alþingis að
semja fmmvarp til laga um vamir
gegn hagsmunaárekstrum. Fmm-
varpið skal ná til valdþáttanna
þriggja, löggjafar-, framkvæmdar-
og dómsvalds. Frumvarpið skal
miða að því að venda og efla traust
aimennings á stjómkerfinu með
því m.a. að
1 framfylgja undirstöðureglum
um aðskilnað valdþáttanna
2.
3.
4.
þriggja,
kveða skýrt á um ábyrgð ein-
staklings í þjónustu almenn-
ings og koma í veg fyrir að
árekstur verði milli einkahags-
muna hans og hagsmuna hins
opinbera,
setja greinileg fyrirmæli um
vanhæfi þeirra sem með mikil-
vægt úrskurðarvald fara,
skylda alþingismenn, ráð-
herra, dómara, embættismenn
og opinbera starfsmenn til að
gefa í upphafi starfs þær upp-
lýsingar um viðskipti sín og
eignir sínar og fjölskyldna
sinna sem nauðsynlegar em
taldar til að vamir gegn hags-
munaárekstrum verði mögu-
legar."
Skammstafanir í stjórnmálafréttum
f stjórnmálafréttum Morgunblaðsins eru
þessar skammstafanir notaðar.
Fyrir flokka:
A.: Alþýðuflokkur
Abl.: Alþýðubandalag
Bj.: Bandalagjafnaðarmanna
F.: Framsóknarflokkur
Kl.: Kvennalisti
Kf.: Kvennaframboð
S.: Sjálfstæðisflokkur
Fyrir kjördæmi:
Rvk.: Reykjavík
VI.: Vesturland
Vf.: Vestfirðir
Nv.: Norðurland vestra
Ne.: Norðurland eystra
Al.: Austurland
Sl.: Suðurland
Rn.: Reykjanes