Morgunblaðið - 12.04.1986, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1986
43
Minning:
GuðmundurL. Þor-
steinsson, Olafsfirði
Guðmundur L. Þorstejnsson, sem
kvaddur er í dag frá Ólafsfjarðar-
kirkju, fæddist 2. janúar 1906 í
Ólafsfirði. Hann andaðist sunnu-
daginn 6. apríl síðastliðinn eftir
stutta legu. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Jónsdóttir og Þor-
steinn Þorkelsson, hreppstjóri frá
Ósbrekku í Ólafsfirði. Guðmundur
ólst upp f stórum systkinahópi.
Þetta voru óvenju tápmiklir og
glaðværir unglingar sem öll lærðu
snemma að taka til hendinni, eins
og títt var í þá daga. Þorsteinn
faðir Guðmundar var forystumaður
í sinni sveit og áhrifamaður á fyrri
hluta þessarar aldar. Þá má segja
að sú kynslóð, sem þá óx upp í
Ólafsfirði og helgaði sveit sinni
krafta sína. hafi lagt grunninn að
því sem Ólafsfjörður er í dag.
Guðmundur L. Þorsteinsson var
einn af þeim.
Hann tók virkan þátt í atvinnu-
og menningarlífi í Ólafsfírði og það
hefur áreiðanlega aldrei hvarflað
að honum að gefast upp, þrátt fyrir
margvíslega erfiðleika og að ytri
skilyrði væru ekki alltaf hagstæð.
Áhugi hans og framkvæmdavilji
hélst alla tíð og hann var jafnan
hvetjandi um áframhaldandi upp-
byggingu atvinnulífs í Ólafsfirði.
Hann trúði á framtíð sinnar heima-
byggðar og hann sá marga sína
drauma rætast. Það eru slíkir menn
sem eru hveiju byggðarlagi nauð-
synlegir.
Ungur hóf hann sjósókn og gekk
til annarra starfa sem til féllu, fór
meðal annars á vetrarvertíðir til
Vestmannaeyja, því ekki var alltaf
mikið um að vera á þessum árum
heima. Hann var skipstjóri ungur
maður og gerði síðar út sinn eigin
bát. Síðar var hann verkstjóri bæði
hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar og
Söltunarfélagi Ólafsfjarðar. Um
tíma ráku þeir feðgar, Sigurður og
Guðmundur, fískverkun og byggðu
þá myndarlegt fiskverkunarhús
undir starfsemina. Síðari hluta
ævinnar starfaði Guðmundur að
verslunarstörfum og rak ásamt
fleirum verslunina Valberg og út-
gerðarfélagið Sæberg f Ólafsfirði.
Guðmundur var óvenju vinnu-
samur maður og má segja að hann
hafí vart unnt sér hvíldar meðan
heilsan leyfði. Hann gerði kröfur
til annarra, en ekki síður til sjálfs
sín. Hann var hagsýnn og gætinn
í öllu sem hann tók sér fyrir hendur.
Árvekni hans og samviskusemi var
öðrum til fyrirmyndar. Hann gat
verið allra manna skemmtilegastur,
sagði vel frá og hafði frá mörgu
að segja. Söngmaður var hann góð-
ur, eins og hann átti kyn til, söng
meðal annars með Kirkjukór Ólafs-
fjarðar og Karlakór Ólafsfjarðar í
áraraðir. Þess má geta að systkinin
stofnuðu sjóð til minningar um
móður sína, til eflingar kirkjusöng
og sönglífi í Ólafsfirði. Á jmgri
árum starfaði Guðmundur mikið að
félagsmálum, tók meðal annars þátt
í leikstarfsemi þeirra ára og var
virkur í íþrótta- og ungmennastarfi,
og var formaður íþróttafélagsins
um tíma, en faðir hans var einn af
frumkvöðlum að stoftiun Ung-
mennafélagsins í Ólafsfirði.
Eftirlifandi eiginkona Guðmund-
ar er Jónína dóttir Snjólaugar Sig-
urðardóttur og Þorsteins Þorsteins-
sonar útgerðarmanns í Ólafsfirði.
Böm þeirra eru: Sigurður verslun-
arstjóri, giftur Bimu Friðgeirsdótt-
ur, búsett í Ólafsfirði; Gunnhildur,
ógift, starfsmaður Pósts og síma,
búsett í Reykjavík; og Guðrún gift
Einari Eiríkssyni, búsett að Mikla-
holtsheili í Hráungerðishreppi.
Hjónaband Guðmundar og Jónínu
var einkar farsælt og hamingjuríkt
og vora þau samhent og samstiga
í öllu á langri ævi.
Ég á Mumma, eins og hann var
oftast kallaður, margt að þakka.
Áratuga lærdómsríkt samstarf og
samvinna, sem aldrei bar skugga á,
. skilur eftir djúp spor og ber að
þakka að leiðarlokum. Eg sendi
Jónínu, bömunum og öðram ætt-
ingjum bestu kveðjur og bið Guð
að blessa minningu Guðmundar L.
Þorsteinssonar.
Jón Þorvaldsson
Grunnskólinn á ísafirði:
Engin stærðfræði-
kennsla 18. bekk
„Frá 13. feb. sl. hafa nemendur 8. bekkjar Grunnskólans á ísafirði
ekki notið stærðfræðikennslu skv. stundaskrá. Orsök þess er sú að
enginn hefur fengist til að kenna þessa grein í forföllum kennarans.
Mikið hefur verið auglýst og leitað, en án árangurs," segir í frétt
frá Foreldrafélagi Grunnskólans á ísafirði.
„Þetta er nánast óviðunandi
ástand og skapar erfiðleika í áfram-
haldandi námi þessara nemenda,
sem á næsta ári eiga að taka
samræmd próf. Þó að við viljum
ekki gera upp á milli einstakra
námsgreina hljótum við að álykta
að stærðfræði sé ein mikilvægasta
undirstaða í öllu öðra námi.
Af þessu tilefni viljum við beina
því til menntamálaráðuneytisins
hvort ekki sé tímabært og nauðsyn-
legt að taka upp sérstakt stöðugildi
forfallakennara við Grannskólann á
ísafirði."
Æskulýðsfélög
kirjunnar halda
sameiginlegan fund
ÆSKULÝÐSFÉLÖG Fella- og Hólasóknar, Seljasóknar, Bústaðasókn-
ar, Háteigssóknar, Nessóknar, Laugarnessóknar, Garðasóknar og
Ungs fólks með hlutverk, gangast fyrir samveru í safnaðarheimili
Garðasóknar, Kirkjuhvoli, laugardaginn 12. apríl nk.
Dagskráin hefst um kl. 13.00
með bæn, ritningarlestri og ýmsu
sem hristir hópinn saman. Um kl.
14.00 verður fræðsluerindi sem sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir sér um
og tengist yfirskrift samverunnar
sem er „Jesús kenndi og sendi".
Eftir erindið verður síðan unnið
með efnið á ýmsan hátt, s.s. í
samræðuhópum, leiklistarhópum,
myndlistarhópum o.fl. og efnið túlk-
að á mismundandi hátt.
Um kvöldið verður svo efnt til
samkomu sem allir era velkomnir
á í Kirkjuhvoli. Þar verður vikill
söngur, leiklist, bænir, og stutt
predikun unnin í hópvinnu. Hefst '
húnkl. 20.30.
Þessi félög hafa oft áður haft
samverar líka þessari og farið hefur
verið á mót í Skálholti og víðar.
Allt undirbúningsstarf er unnið
í góðri samvinnu við Æskulýðsstarf
þjóðkirlqunnar og munu tveir að-
stoðar-æskulýðsfulltrúar þjóðkirkj-
unnar stjóma samveranni ásamt
leiðtogum félaganna.
(Fréttatilkynning.)
Bjöm Jóhannsson
vélsljóri - Minning
Við lítum á alla hluti sem sjálf-
sagða, tíminn líður og við hlaupum
á eftir öllum gæðum veraldar til
að tryggja okkur sem besta framtíð.
Við fáum víst litlu ráðið um hana
þrátt fyrir allt streðið.
Að sinni hafa leiðir okkar Bjöms
bróður míns skilið, svo skyndilega.
Mér verður hugsað til baka.
Margt sem hann fékkst við heillaði
mig, ég fylgdist með þegar hann
var að læra, fékkst við módelin eða
framkallaði myndir. Þá man ég að
jólakortin sem hann gerði vora
alveg eins og frá jólasveininum. Við
yngstu krakkamir fengum líka að
taka þátt í leikjum stóra strákanna
í götunni, svo sem að rekja upp
kaðla fyrir útgerðina þeirra Ufsa hf.
Einn nóvemberdag fyrir mörgum
áram vakti Bjöm mig og sagði mér
frá litlu systur okkar. Við voram
oft samtaka, völdum gjafir sem
hann þó borgaði víst oftast, skoðuð-
um í kökukassana hennar mömmu
og ýmislegt annað.
Þegar hann keypti fyrsta bflinn
var ekki laust við stolt í mínum
huga. Hann var líka ótrúlega viljug-
ur að þeytast með mig eitt og
annað.
í sambandi okkar síðustu ár
skiptist á með skini og skúram. Við
höfðum ólíkar skoðanir um ýmis
gæði lífsins. í vetur áttum við
saman ánægjulegar stundir bæði
hér í Kaupmannhöfn og á meðal
fjölskyldunnar um jólin.
Mér þótti vænt um símtölin við
hann í vetur, ég átti von á einu
slíku þegar fregnin barst. Ég
minnist elsku Bjössa sem góðs bróð-
ur og frænda. Elsku systrabömin
okkar hafa síðustu ár notið hlýju
hans ríkulega.
Ég vil þakka honum fyrir árin
sem við áttum saman.
Vibba systir
Minning:
Guðmunda Gísla-
dóttir, Brekku
Fædd 26. nóvember 1900
Dáin 3. apríl 1986
í dag er til moldar borin amma
okkar, Guðmunda Gísladóttir. Hún
fæddist á Seljardal í Kjós 26. nóv-
ember 1900. Að Brekku á Hval-
fjarðarströnd kom hún árið 1937,
og hefur búið þar síðan. Amma
giftist afa, Gísla Magnússyni, 4.
nóvember 1938, og vora þau mjög
samhent alla tíð. Amma naut þess
að vera í góðum félagsskap, enda
var hún kát og félagslynd að eðlis-
fari. Hún var mjög gestrisin og var
oft á tímum margt um manninn á
Brekku. Hún naut þess að veita vel
hveijum þeim er kom í heimsókn.
Amma hafði gaman af sögum og
ljóðum og var sérlega ljóðelsk. Og
við vitum að hún orti talsvert sjálf.
Við systumar ólumst upp á Brekku
til 12 ára aldurs og var oft glatt á
hjalla á þeim áram. Nú þegar amma
er farin frá okkur koma minnin-
gamar upp í hugann og söknuður-
inn er mikill.
Með þessum fátæklegu orðum
þökkum við elsku ömmu okkar allar
þær stundir sem við áttum saman.
Við biðjum Guð að blessa afa
okkar og veita honum styrk í sorg
sinni.
„Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mínverivömínótt.
Æ, virst mig að þér taka,
méryfirláttuvaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.“
(S. Egilsson.)
Helga og Magga
t
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóður og ömmu,
INGUNNAR BJARNADÓTTUR
frá Látrum í Aöalvík,
til heimilis að Stóragerði 10.
Birna Elíasdóttir,
Ingibergur Elfasson,
Þórunn Elfasdóttir,
Gfsli Elfasson,
Bjargey Elfasdóttir,
Bjarni Elíasson,
barnabörn og
Guðjón Böðvar Jónsson,
Edda Bragadóttir,
Ágúst M. Haraldsson,
Ingunn Þorleifsdóttir,
Gfsli Geir Jónsson,
barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sendu minningargjafir og sýndu okkur
hlýhug og vinarþel viö fráfall og útför móöur okkar, tengdamóður
og ömmu,
ÁGÚSTUJÓSEPSDÓTTUR,
Furugrund 36, Kópavogi.
Eygló Yngvadóttir,
Þorgeir Yngvason, Þrúður Pálsdóttir,
Óskar Yngvason, Guðrún Hjaltadóttir,
Sólrún Yngvadóttir, Ásmundur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar,
tengdamóður og ömmu,
PÁLÍNU JÓHANNESDÓTTUR
frá Húsavfk.
Svava Karlsdóttir, Hinrik Þórarinsson,
Áki Karlsson,
Gunnsteinn Karlsson, Erla Eggertsdóttir,
Kristján Karlsson, Elfsabet Jónasdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir útför, t auösýnda samúö og hlýhug við andlát og
ÖLVERS M. WAAGE,
Hamraborg 18,
Kópavogi.
Guðrún E. Waage
og fjölskylda.