Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 2

Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRlL 1986 Amarfiug: Málið er ekki leyst en komið á góðan rekspöl Störfum Alþingis lokið Þingiausnir voru á Alþingi í gær. Myndin var tekin er Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, þakkaði Guðmundi J. Guðmundssyni, þingmanni Alþýðubandalagsins, samveruna í vetur. Nánari fregnir af viðburðum á Alþingi í gær eru á þingopnu á bls. 44-45. Patreksfjörður: Kaupfélagið hefur selt sláturhúsið KAUPFÉLAG Vestur Barðstrendinga á Patreksfirði hefur selt slát- urhús sitt til Matvælavinnslunnar hf. sem rekur í því rækjuvinnslu. Ekki verður oftar slátrað í húsinu og eru margir bændur í hérað- inu uggandi um sinn hag vegna þessa. Kaupfélagið er beint og óbeint aðaleigandi hins nýja fyrirtækis. Framleiðnisjóður landbúnaðar- ins lagði verulega fjármuni í bygg- ingu hússins og eru Barðstrending- ar nú með vangaveltur um það hvort sjóðurinn geri kröfu í þessa peninga, nú þegar búið er að taka húsið undir aðra starfsemi, og noti peningana til að aðstoða bændur við að koma sér upp nýju sláturhúsi eða annarra þarfa í héraði. Svo virðist þó ekki vera, þar sem styrkir Framleiðnisjóðs hafa verið kvaða- lausir og ekki þinglýst á eignina. Gunnar Guðbjartsson fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs seg- ir að það hljóti að koma til álita hjá landbúnaðarráðherra að krefj- ast endurgreiðslu á þessu fé Fram- leiðnisjóðs. Byggðasjóður og Stofnlánadeild landbúnaðarins hafa að auki lánað verulega pen- inga til byggingar sláturhússins. Sjá þáttinn Af innlendum vett- vangi: „Sjóðir landbúnaðarins lögðu milljónir í húsið“, á blaðsíðu 34. Selveiðifrumvarpið stöðvað með málþófi á síðasta þingdegi FRUMVARP Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, um selveiðar dagaði uppi í efri deild Alþingis i gær vegna málþófs. Var ráðherra brúnaþungur, er úrslit lágu fyrir, en hann hafði lagt þunga áherslu á að málið hlyti afgreiðslu sem lög frá Alþingi. Það hefur tvisvar sinnum áður komið fram á þingi, en ekki hefur tekist að afgreiða það vegna harðrar andstöðu nokkurra þing- manna. — segir Helgi Jóhannsson framkvæmda- stjóri Samvinnuferða—Landsýnar ALLAR líkur benda nú til þess að tilboð hins svokallaða niu manna hóps, sem sýnt hefur áhuga á að kaupa hlutabréf í Arnarflugi og auka hlutafé þess, verði lagt fram á ný. Frumvarp til laga um að Amarflug fái ríkisábyrgð fyrir láni Var samþykkt á Alþingi í gær, en niumenningarnir hafa beðið um nánari skýringu á vissum ákvæð- um laganna. Enn er málið þó ekki i höfn, því eftir er að uppfylla eitt skilyrði sem hópurinn setti, en það er að samið verði við erlenda lánardrottna Amarflugs. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar, sem er einn níumenninganna, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þeir hefðu farið fram á að skýrt yrði fyrir sér hvemig ríkisstjómin túlkaði atriði 2 í 2. gr. Iaganna. Þar segir að réttindi skv. kaupleigu- samningi, sem Amarflug hf. hefur gert um flugvélina TF-VLT, skuli vera til tryggingar áhættu ríkis- sjóðs vegna ríkisábyrgðarinnar og að Qármálaráðherra ákveði nánar framvæmd þessa ákvæðis og setji þá skilmála sem nauðsynlegir þykja til að draga úr áhættu ríkissjóðs. „Samkvæmt þessum kaupleigu- samningi við Amarflug er ekki hægt að yfirfæra hann á annan aðila," sagði Helgi. „Ef sú yfírlýsing verður hins vegar gefin út að ríkið muni ekki nýta sér yfirtöku samn- ingsins og ennfremur að nokkur önnur mál verði leyst, þá held ég að allar forsendur séu komnar fyrir því að þessi hópur fari af stað aftur og ræði alvarlega við Amarflug um þátttöku. Skilyrði hópsins fyrir þátttöku í hlutafjáraukningu Amarflugs vom upphaflega þijú. í fyrsta lagi sala á hlutabréfum Flugleiða í Amar- Sjúklingur á Kleppi slasaði hjúkrunarkonu: Ríkið sýknað af skaðabótakr öfum DÓMUR hefur verið kveðinn upp í bæjarþingi Reykjavíkur í máli hjúkrunarkonu á Kleppsspítala gegn heilbrigðisráðherra og fjár- málaráðherra fyrir hönd ríkisspítalanna og ríkissjóðs. Voru hinir stefndu sýknaðir af kröfum stefnanda en málskostnaður látinn falla niður. Tildrög málsins voru þau, að 23. nóvember 1982 var hjúkrunarkona á Kleppsspítalanum að færa sjúkl- ingi, sem hafði verið sviptur sjálf- ræði og vistaður gegn vilja sínum, svefnlyf samkvæmt fyrirmælum læknis. Sjúklingurinn skellti hurð á hjúkrunarkonuna með þeim afleið- ingum, að hún missti framan af fingri og hefur hún verið frá vinnu vegna þess og hafa verið gerðar aðgerðir á fingrinum. Læknisvott- orð voru lögð fram til sönnunar því, að konan hefði liðið fyrir áverk- ann. Stefnandi byggði meginkröfu sína á því, að starfsmenn spítalans hafi ekki gert fullnægjandi varúðar- ráðstafanir vegna geðræns ástands viðkomandi sjúklings með fyrir- byggjandi lyfjagjöf og varúðarráð- stafanir ekki verið nægar þegar honum var fært lyfið og vinnuveit- andinn beri ábyrgð á því. Krafðist stefnandi 182.049,25 króna í skaðabætur frá 23. nóvem- ber 1982 auk vaxta frá þeim degi. Stefndu vísuðu þvf alfarið á bug, að tjón stefnanda yrði rakið til nokkurra þeirra atvika, sem þeir verði að lögum gerðir bótaábyrgir fyrir. Það sé Ijóst, að sjúklingurinn sé tjónvaldurinn og hann sé sak- hæfur. í niðurstöðu dómsins segir, að það tvennt, sem stefnandi leggi til grundvallar stefnu sinni, þ.e. að sjúklingurinn hafi ekki fengið fyrir- byggjandi lyflagjöf og ekki hafi verið gerðar nægilegar ráðstafanir þegar honum var fært lyfið, sé hvort tveggja á ábyrgð stefnanda. Þar sem slysið verði rakið til mistaka stefnanda sjálfrar beri að sýkna stefndu af kröfum hennar. Máls- kostnaður var látinn niður falla. Garðar Gíslason borgardómari kvað uppdóminn. Það var á sjöunda tímanum í gærkvöldi, nokkru áður en forseti Islands átti að slíta þinginu, að ljóst varð að frumvarpið næði ekki fram að ganga. Það voru þeir Egill Jóns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, og Skúli Alexandersson, þing- maður Alþýðubandalagsins, sem stöðvuðu frumvarpið með málþófi. Tilraun var gerð til að fá fram tafarlausa atkvæðagreiðslu um frumvarpið með tilvísun til sér- stakra ákvæða í þingsköpum, og greiddu 11 þingmenn því atkvæði en 4 voru á móti. 2A atkvæða þing- manna í deildinni þurfti til að tillag- an næði fram að ganga og féll hún því. Hún hefði þurft 13 atkvæði. Þegar það varð ljóst tilkynnti deild- arforseti, að málið væri tekið af dagskrá. Mikil spenna ríkti í þinghúsinu er deilt var um selveiðifrumvarpið í efri deild og um tíma var allur þorri þingmanna, þ. á m. flestir ráðherrar ríkisstjómarinnar, stadd- ur í þingdeildinni til að fylgjast með framvindu málsins. flugi, sem þegar hefur farið fram, í öðru lagi að ríkisábyrgð fengist fyrir láni til handa Amarflugi sem nú er orðið að lögum og í þriðja lagi að samið yrði við erlenda lánar- drottna Amarflugs. Að sögn Helga hafa Amarflugsmenn lýst því yfir að erlendir lánardrottnar séu reiðu- búnir til viðræðna. Hann sagði að væri raunin sú, benti fátt til annars en að úr þessu yrði. „Málið leystist ekki endanlega við það að frumvarpið var sam- þykkt, en það er komið á góðan rekspöl," sagði Helgi að lokum. „Okkar mál hafa verið að þróast áfram eftir þeirri stefnu sem mótuð var og hefur verið unnið markvisst að,“ sagði Agnar Friðriksson, for- stjóri Amarflugs, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að frum- varpið um málefni Amarflugs hf. hafði verið samþykkt. „Með því að áhugasamir aðilar vilja kaupa hlutafé í Amarflugi geta þeir sem eru í stjóm fyrirtækisins og stjóma því séð að málin eru að ganga upp. Staðan í haust og í vetur er búin að vera mjög þröng og það var ekkert verið að fela það. Nú eru hins vegar góðar horfur á að fyrir- tækið geti haldið áfram rekstri og verði eftir þá endurfjármögnum sem verið er að vinna að núna með sterka stöðu á íslenskum markaði og sterka ljárhagslega stöðu. Að þessu hefur jú verið stefnt," sagði Agnar Friðriksson. Akureyri: Gígja valin fegnrðar- drottning Akureyri GÍGJA Birgisdóttir, sem á 18 ára afmæli á morgun var á miðnætti sl. kjörin Fegurðardrottning Akureyrar að viðstöddu miklu fjölmenni í Sjallanum. Sex stúlkur tóku þátt í keppninni og var Helga Björk Jónsdóttir kjörin Ljósmyndafyrirsæta ársins. Hún var einnig kjörin vinsælasta stúlkan í hópnum. Tvær af stúlkunum sex munu taka þátt í keppninni Fegurðar- Gígja Birgisdóttir drottning íslands, sem fram fer í veitingahúsinu Broadway í Reykja- vík í lok maí. Sjóbirtingsveiði víða með besta móti VÍÐA hefur nokkur sjóbirt- ingsveiði verið, sums staðar með besta móti, t.d. I Vatnamót- unum svokölluðu þar sem sumir hópamir hafa farið upp í 40—50 físka á tveimur dögum. Hafa þar verið stærstir 10—12 punda fiskar og meðalþunginn góður. Á Rangársvæðinu hefur verið reytingsveiði og hægt að tala um „skot“. Fiskur þar er oft vænn, þannig veiddist fyrir skömmu 12 punda sjóbirtingur í Hólsánni, en svo heitir vatnsfallið eftir að stóru ámar hafa sameinast og orðið að einu fljóti. Tölur liggja sjaldnast fyrir í fréttum af sjóbirtingsveiði á vorin, einungis hvort líf er eða ekki. Það ku vera nokkuð líf í Laxá í Kjós, en veiði hófst þar 15. apríl. Hafa veiðst nokkrir góðir fiskar og fá- einir hoplaxar í bland eins og venjulega. Sömu sögu er að segja um Laxá í Leirársveit, þar hafa veiðst nokkrir vænir fiskar og eitthvað af niðurgöngulöxum, björtum eins og um nýrunna laxa væri að ræða, en grindhoraðir. menn nota mikið rækju i Laxánum og helstu veiðistaðimir í Leirár- sveitinni eru Laxfoss og Miðfells- fljót. Hefur verið staðið stíft við þá staði síðustu vikur. Ef við höldum aftur austur, þá frést af góðri veiði á köflum í Grenlæk, einnig afar vænum fisk- um þar í bland. Lækur þessi er með betri sjóbirtingsverstöðvum og sama er að segja um læk þeirra Hvergerðinga, Varmána. Þar er góð veiði, heldur slöpp að undan- fömu að vísu, en jafnan talsvert af fiski sem virðist ekki setja fyrir sig hvimleiða mengunina í lækn- um. Veiðst hafa upp í 4,5 punda fiskar í Varmá í vor. Einnig fáein- ir regnbogasilungar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.