Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Gabriel HÖGGDEYFAR í MIKLU ÚRVALI Minning: Gu ðbjörgM. Jóns- dóttir — Saurbæ SKEIFUNNI 5A. SIMI: 91-8 47 88 9. mars 1902 14. apríl 1986 Föstudaginn 25. apríl verður jarðsett frá Barðskirkju í Fljótum, Guðbjörg Margrét Jónsdóttir frá Saurbæ í Austur-Fljótum. Hún lést í sjúkrahúsinu á Siglufírði að kvöldi 14. apríl. Guðbjörg fæddist á Reykjarhóli í Austur-Fljótum 9. mars 1902. Hún var dóttir hjónanna Jóns Her- minni fjarvistir... fc>akvorkurinn horfinn . öllum líöur vel... ekki kvartaö síöan ... tpart^öðui v*M|6ra Spart^öðui B«yk)ov0aj> og n Ut Aðatvartðakar AJnwnar trygginoar VmnuhotmD R«yk)alundl (i STUÐNINGUR I STARFI „Mlnni fjarvistlr.... bakverkurlnn horflnn.... öilum Ifður vel..., ekkl kvartað síðan.. Þannig eru ummœli ánœgðra viðskiptavlna okkar. Þelr elga það allir samelginlegt að vera f hópl þelrra sjö þúsund sem keypt hafa DRABERT stóla á undanfömum árum. Það er llðin sú tfð, þegar œtlast var til að skrlfstofustólamlr vœru notaðlr þangað tll menn sœtu hellsulausir á gólflnu. Stjórnendur fyrirtœkja gera sér nú greln fyrlr mlkllvcegl þess að sltja f góðum stól. Þelr bera nú melrl umhyggju fyrir starfsfólkinu og velja þvf DRABERT, sem er vandaðastl skrifstofustóll sem völ er á. í húsgagnadeild okkar f Hallarmúla 2 er ávallt mlklð úrval DRABERT stóla. Lftið vlð og setjist f DRABERT eða fálð hann lánaðan tll reynslu. Vlð sendum elnnlg myndalista og verðllsta sé þess óskað. Sérfrœðlngur Pennans kemur og stilllr DRABERT stóla hjá öllum sem þess óska, f samrœmi vlð þarflr hvers og elns. Vlð viljum standa vlð kjðrorðln: BETRI HEILSA, AUKIN VELLÍÐAN, MEIRI AFKÖST ALLT í EINNI FERÐ cm Hallarmúla 2 Sfml 83211 mannssonar og Viktoríu Lilju Sveinsdóttur. Bróðir Guðbjargar, Sveinn, tók við búinu á Reykjarhóli árið 1920, er faðir Jjeirra lést. Guðbjörg gerðist ráðskona hjá honum árið eftir. Árið 1924 hóf Sveinn búskap á jörðinni Bjamargili í sömu sveit og var Guðbjörg ráðskona hjá honum þar árin 1924-1927. 14. júlí 1928 gekk hún að eiga Jón Guðbrandsson í Saurbæ, en jörðin Saurbær er næsta jörð við Bjamargil. Jón Guðbrandsson fæddist 11. september 1903, sonur hjónanna Guðbrandar Ámasonar og Þuríðar Jónsdóttur. Árið 1928 leigðu þau Saurbæ af foreldmm Jóns, er þau fluttu til Siglufjarðar. Jón Guð- brandsson lést 11. nóvember 1979 og var jarðsettur frá Siglufjarðar- kirkju 16. nóvember. Guðbjörgu og Jóni varð tveggja bam'a auðið. Guðbrandur Þór Jónsson, bóndi á Saurbæ, fæddur 12.12. 1930. Guðbrandur Þór hefur alla tíð reynst foreldmm sínum sérstaklega vel. Er faðir hans lést, aðstoðaði hann móður sína við að halda búið. Guðbjörg stóð fyrir búinu í Saurbæ frá því að Jón lést, þar til hún veiktist og var flutt á sjúkrahúsið á Siglufírði 4. apríl, 1984. Þess má geta hér að Guðbrandur Þór reynd- ist móður sinni sem besti sonur í veikindum hennar. Reyndi hann að heimsækja hana á hveijum degi ef hægt var. Jónína Lilja, fædd 25.12. 1933. Hún bjó um margra ára skeið ásamt manni sínum, Andrési Kristinssyni, á Kvíabekk í Ólafsfirði. Lilja fluttist til bróður síns á síðasta ári er hún og maður hennar slitu samvistum. Eiga þau fímm böm. Fimm vom sumrin sem ég var í sveit hjá Guðbjörgu og Jóni. Var það vegna gamals og gróins vin- skapar þeirra við afa minn og ömmu, Magnús Gamalíelsson út- gerðarmann á Óiafsfírði og konu hans Guðfínnu Pálsdóttur að ég komst í vist hjá þeim hjónum Guð- björgu og Jóni. Gott var að vera í sveit hjá þeim hjónum og hafði sú vera mikil áhrif á uppvaxtarár mín. Guðbjörg var mér sem önnur amma, ef svo má að orði komast. Mörg vom verkin sem vinna þufti eins og nærri má geta. Búskapar- hættir vom öðmvísi þá en nú er. Mikið var unnið í höndunum og m.a. öll mjólk nýtt til heimilisins. Minnist ég þess oft að þegar mjólkin var skilin, gaf Gubjörg mér óbland- aðan ijórnann að drekka og oft var það að rúsínur fylgdu með. Reyndar var ijóminn hennar Guðbjargar þekktur í sveitinni vegna þess hve góður hann var. Gerðist það oft að fólk falaði af henni ijóma fyrir sér- stök tækifæri. Þegar svo fólk ætlaði að bjóða borgun fyrir tók Guðbjörg það aldrei í mál. Hún var nefnilega ein af þeim sem lifði eftir því að „sælla er að gefa en þiggja". Margir minnast sjálfsagt af þakklæti gjaf- anna sem Guðbjörg og Jón í Saurbæ gaukuðu að þeim í gegnum árin. Hvort heldur sem það var ijómi í flösku, rabarbari úr garðinum þeirra, smákökur, smjör-damla, sokkar eða vettlingar. Sjaldan féll Guðbjörgu verk úr hendi og ef einhver frístund gafst frá hinum daglegu störfum var hún nýtt til hannyrða. Enda urðu þau mörg sokkapörín og vettlingamir sem hún pijónaði á bamabömin eða til að gefa vinum og kunningjum. Guðbjörg var fordómalaus gagnvart ýmsum nýjungum er vörðuðu heim- ilisstörfín. Hún var alltaf tilbúin til þess að prófa eitthvað nýtt. Guðbjörg var mjög trúuð kona og kunni hún mörg sálmavers og bænir. Hélt hún ávallt þeim góða sið að fara með bænir kvölds og morgna. Eitt fyrsta sálmavers sem ég lærði kenndi Guðbjörg mér. Var það það sálmavers sem hún fór oftast með. Þetta vers er úr Passíu- sálmum Hallgríms Péturssonar. Bænin má aldrei brezta þig, búin er freisting ýmislig. Þá líf og sál er lúð ogþjáð, lykill er hún að Drottins náð. (H. Pétursson Ps.4) Bömunum hennar og bamaböm- um sendum við hjónin okkar inni- leg^ustu samúðarkveðjur. Einnig fylgja kveðjur frá foreldrum mínum og systkinum. Sérstakar kveðjur frá ömmu Guðfinnu á Ólafsfirði sem kveður góða vinkonu með þökk fyrir allt. Guð blessi minningu Guðbjargar M. Jónsdóttur. Farþúífriði, friðiir Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Magnús Gamalíel Gunnarsson Hinn 14. apríl sl. lézt í Sjúkrahúsi Siglufjarðar Guðbjörg Margrét Jónsdóttir, húsfreyja í Saurbæ, Austur-Fljótum, á 85. aldursári, eftir tveggja ára erfíða sjúkdóms- legu. Fædd var hún 9. mars 1902, yngsta bam hjónanna, þá á Reykj- arhóli í Austur-Fljótum, Jóns Her- mannssonar bónda og konu hans Lilju Sveinsdóttur. Hugljúfar voru Guðbjörgu minningar frá uppvaxt- arárunum, um foreldra og systkini. Baráttu aldamótabamanna þekkja flestir, og hveiju þeir skiluðu okkur hinum sem tókum við, það átak verður ekki metið til fjár, heldur í manngildi eftirkomendanna, skyldu hvers einstaklings að skila arfí sín- um áleiðis. Þannig fannst henni, og þann veg Iíta mannvinir tilgang baráttu og starfs. Árið 1928 giftist Guðbjörg Jóni Guðbrandssyni, bónda í Saurbæ, og eignuðust þau tvö böm, Guðbrand Þór og Lilju. Jón lést árið 1979. Það er sjónarsviptir að konu sem Guðbjörgu, hún minnti á sólar- geisla, mitt í skýjaþykkni hvers- dagsleikans. Brosið hennar, kátfnan, breiddist út frá munni og augum yfír andlitið og endaði í dillandi hlátri. Þannig breytti hún amstri og áhyggjum vina sinna í glaðværð, með gamni sínu. Annar ríkur þáttur í fari Guðbjargar var gestrisni hennar og góðvild mönnum og málleysingjum. Enginn mátti svo inn líta, að ekki væru gerð skil góðum mat og drykk, þar í Saurbæ. Hún var á allan hátt mikill veitandi og lagði þar í metnað sinn. Þannig var allur hennar fram- gangsmáti í samskiptum við náung- ann, kærleikur, glaðværð, þjónusta og gætni í návist hverrar sálar. Nú er Guðbjörg gengin á vit fegurðar og friðar, þar kannar hún djúp vitundarinnar og þætti veg- ferðar sinnar. Hún sáði viturlega og uppsker vegsemd, ekki þá veg- semd sem heimurinn sækist eftir og mennimir mæla hver öðmm, heldur þá sem skaparinn veitir verðugum. Skaphöfn Guðbjargar var and- lega bætandi og lítum við vinir hennar nú til baka með gleði og þakklæti fyrir samvemstundimar, sem vom alltof fáar. Nú er vík milli vina, þá er gott að eiga vissuna um endurfundi og sú stund rennur upp í fyllingu tím- ans. Við sendum vinum okkar, Þór og Lilju, innilegustu kveðjur svo og dótturbömunum og biðjum Guð að gæta kærleiksríkrar móður og ömmu. Okkur, sem enn dveljum héma megin, ber að hlúa að minn- ingunni í hugskoti okkar. Vinir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.