Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
39
Óskhyggja Marcosar
að herinn sé ótryggur
- segir varnarmálaráðherra Filippseyja
Washington, Manila. AP.
JUAN Ponce Enrile, varnarmála-
ráðherra Filippseyja, sagði á
þriðjudag að herinn ætlaði að
tryggja hinni nýju stjóm stöðug-
leika og jafnvægi. Hann sagði
einnig að fáa dreymdi um það
innan hersins að Marcos tæki
aftur við valdataumunum. Ron-
ald Reagan, Bandaríkjaforseti,
ætlar að ræða við Salvador
Laurel, varaforseta, er hann fer
til Bali í næstu viku.
Laurel, sem einnig er utanríkis-
ráðherra, ætlar að sitja fund utan-
ríkisráðherra Asíuríkja og verður
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Bandarílq'aforseti einnig viðstaddur
fundinn.
Tilkynning barst úr Hvíta húsinu
í Washington á þriðjudag um að
Laurel og Reagan myndu ræðast
við um málefni Bandaríkjamanna
og Filippseyinga 1. maí.
Enrile sagði að Ferdinand Marc-
os, fyrrum forseti, hefði gert sig
beran að óskhyggju þegar hann
sagði í viðtali nýlega að 34 prósent
hermanna á Filippseyjum hefðu
misst móðinn og gerst liðhlaupar
undir stjóm Corazon Aquino.
„Það er nafnakall hjá okkur á
hveijum morgni og við vitum ná-
kvæmlega hveijir eru til staðar,"
sagði Enrile: „Þetta þýðir að Marcos
hefur fengið rangar upplýsingar."
Enrile starfaði undir stjóm Marc-
osar í tuttugu ár, en var í broddi
fylkingar þegar honum var steypt
af stóli. Hann sagði að Marcos og
ýmsir fyrrum embættismenn hefðu
spáð Aquino falli innan árs til þess
eins að grafa undan stjóm hennar.
Presthus kjörinn einróma
„ Hægriflokkurinn er reiðubúinn og ég er reiðubúinn tilað
mæta höfuðandstæðingi okkar, Verkamannaflokknum, “ sagði
Rolf Presthus, þegarhann hafði verið einróma kjörinn formaður
á landsfundi Hægriflokksins í Osló á sunnudag. Presthus kveðst
ráðinn íaðhleypa nýju lífi í flokksstarfið og leggja mesta
áherslu á „gæði“ aðþvíer varðar heilbrigðiskerfið, menntakerf-
ið og rannsóknir.
f f J
wE M
Brigitte Bardot
Frakkland:
Dýravinurinn
Bardot þrýstin
við ráðherrana
Paris. AP.
BRIGITTE Bardot, fyrrum kvik-
myndastjarna, átti fund með
innanríkisráðherra frönsku
stjórnarinnar, Charles Pasqua, á
þriðjudag, og var fundur þessi
þáttur í baráttu hennar fyrir
réttindum dýra.
Bardot, sem nú er 51 árs að
aldri, hefur varið mestu af tíma
sínum síðustu tíu árin til að beijast
fyrir réttindum dýra. Hún hefur
einstöku sinnum komið fram í sjón-
varpi og þá oftast til að knýja á
um þetta hjartans mál sitt. Hún
hefur ekki leikið í kvikmyndum um
nokkurra ára skeið.
Ráðuneyti Pasquas sagði frétta-
mönnum, að ráðherrann hefði full-
vissað Bardot um, að væntanleg lög
um vemdun turtildúfna og bann við
veiði á þeim í Medoc-héraði kæmu
til framkvæmda í maímánuði, eins
og staðið hefði til.
Bardot sagðist hafa spurt Pas-
qua, hvort treysta mætti því, að
gildandi lögum gegn illri meðferð á
dýmm yrði framfylgt án undan-
bragða. Kvað hún ráðherrann hafa
staðfest, að svo yrði gert.
„Við sjáum til, hvemig efndirnar
verða,“ sagði hún við fréttamenn
eftir fundinn með Pasqua. Bardot
hefur einnig hitt að máli aðra
franska ráðherra, m.a. umhverfís-
málaráðherrann og menningar-
málaráðherrann, og innan skamms
mun hún ræða við landbúnaðarráð-
herrann, alla í sama augnamiði: að
knýja á um aukin réttindi dýra.
Drekkum mjólk
m
f
' Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna
Til þess að bein Ifkamans vaxi eðliiega í œsku og haldi styrk
sínum á efri árum þurfa þau daglegan skammt af kalki.
Mjólkin er ríkasti kalkgjafi sem völ er á. Líkaminn framleiðir ™
ekki kalk sjálfur en verður að treysta á að daglega berist yj
honum nœgilegt magn til að halda eðllegri líkamsstarfsemi **
gangandi. m<,
99% af kalkinu fertil beina og tanna; hjá bömum og unglingum
til að byggja upp eðlilegan vöxt; hjá fullorðnu fólki til að viðhalda
styrknum og hjá ófrískum konum og brjóstmœðrum til viðhalds
eigin líkama auk vaxtar fóstursins og mjólkurframleiðslu í
brjóstum.
Kalkið gegnir þvf veigamiklu hlutverki og skortur á því getur haft
slœmar afleiðingar. Algengasta einkennið er þeinþynning,
hrömunarsjúkdómur sem veldur stökkum og brothœttum
beinum auk breytinga á líkamsvexfi.
Með daglegri mjólkumeyslu má vinna gegn kalkskorti og
afieiðingum hans, byggja upp sterk bein hjá bömum og
unglingum og viðhalda styrknum hjá fullorðnu fólki.
Helstu heimildin Bæktngurinn Kalk og beinþynning eftir dr. Jón
Óttar Ragnarsson og Nutrition and PhysicaJ Fitness, 11. útg.,
eftir Briggs og Caibway, Holt Reinhardt and
Winston, 1984.
Afleiðingar
beinþynningar
30 50 70 ALDUR
Hvernig beinþynning leikur útlitið
A. Eðlileg lögun og eðllleg hœð
B. Bogiðbakogminnihœð
C. Herðakistill og enn minni hœð
MJÓLKURDAGSNEFND