Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 45 Einkaaðilar fá að framleiða áfengi FRUMVARP fjármálaráðherra er heimilar einkaðilum framleiðslu áfengis hér á landi varð að lögum í gær, er það var samþykkt í neðri deild með 21 atkvæði gegn 10 að viðhöfðu nafnakalli. Tveir þingdeild- armenn sátu hjá og sjö voru fjarstaddir. Þeir þingmenn, sem greiddu at- Guttormsson (Abl.-Al.), Ólafur Þ. kvæði gegn frumvarpinu, voru: Ingvar Gíslason (F.-Ne.), Geir Gunn- arsson (Abl.-Rn.), Guðmundur J. Guðmundsson (Abl.-Rvk.), Guðrún Helgadóttir (Abl.-Rvk.), Hjörleifur Þórðarson (F.-Vf.), Stefán Guð- mundsson (F.-Nv.), Stefán Valgeirs- son (F.-Ne.), Steingrímur J. Sig- fússon (Abl.-Ne.) og Svavar Gests- son (Abl.-Rvk.). Fékk ekkí útlánaheimild EKKERT verður úr því, að Póst- gíróstofan geti veitt viðskiptavin- um sinum lán. Efri deild Alþingis hafði fyrir nokkrum dögum sam- þykkt að breyta frumvarpi ríkis- stjómarinnar til póstlaga í það Lög Fjölmörg frumvörp urðu að lögum í gær, miðvikudag, rétt fyrir þinglausnir. Meðal frum- varpa, sem fengu lagagildi, vóru: Stjómarfumvarp um húsnæðis- mál (Húsnæðisstofnun rfkisins), byggt á samkomulagi ríkisstjómar og aðila vinnumarkaðar i síðustu kjarasamningum. Stjómarfrumvarp um færa Reykjavík Viðey aið gjöf, með til- teknum skilyrðum, í tilefni 200 ára kaupstaðarafmælis borgarinnar. Stjómarfrumvarp um ríkis- ábjrrgð vegna erlendrar lántöku Amarflugs hf. Fmmvarp um skiptaverðmæti og greiðslujöfnun innan sjávarútvegs- ins. Stjómarfrumvarp um póst (póst- lög)- Stjómarfrumvarp um Iðnlána- sjóð. Stjómarfrumvarp um fasteigna- og skipasölu. Stjómarfrumvarp um Seðla- banka íslands. Stjómarfrumvarp um rannsókn- amefnd fisksjúkdóma. Stjómarfrumvarp um verzlun ríkisins með áfengi; heimild til framleiðslu áfengis hér á landi til útflutnings og dreifingar í útsölum ÁTVR. Framvarp um útflutning hrossa. Framvarp um forgangsréttindi kandídata til embætta (um viður- kenningu norræna guðfræðiprófa hér á landi). horf, að Póstgíróstofan gæti bæði annast innlán og útlán, en hún hefur þegar með innlán að gera. Neðri deild þingsins féllst hins vegar ekki á þessa breytingu og náði hún þvi ekki fram að ganga. Við umræður um póstlagafram- varpið í efri deild í gær lýstu margir þingdeildarmenn vonbrigðum með afstöðu neðri deildar, en töldu hins vegar að í framvarpinu væra ýmis nauðsynjamál og vildu því ekki hindra samþykkt þess. Þinglausnir: Þinglausnir Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Alþingi var slitið á áttunda tímanum i gærkvöldi og var þessi mynd tekin er þeir streymdu úr þingsalnum. Það eru þingkonurnar Guðrún Agnarsdóttir (Kl.—Rvk.) og Guðrún Helgadóttir (Abl.-Rvk.) sem eru fremstar á myndinni og leynir feginleiki þeirra sér ekki. í baksýn er stallsystir þeirra, Kristín Halldórsdótt- ir(kvl.-Rn.), en við hlið Guðrúnanna eru þeir Eyjólfur Konráð Jónsson (S.-Nv.) og Jón Krist- jánsson (F.-Al.) 80 ný lög — 23 þingsályktanir -170 fyrirspurnir til ráðherra ALÞINGI, 108. löggjafarþing íslendinga, stóð frá 10. október til 21. desember 1985 og frá 27. janúar til 23. apríl 1986, samtals í 159 daga. Haldnir voru 275 fundir samtals í þingdeildum og sameinuðu þingi. Alls voru afgreidd 80 lög, 75 stjórnarfrumvöp og 5 þing- mannafrumvörp. Samþykktar voru 23 þingsályktanir, þ.e. vi(jayfir- lýsingar Alþingis í einstökum málum. Fyrirspurnir þingmanna til ráðherra urðu 171. Mál til meðferðar í þinginu voru 448; þar af afgreidd 275. Tala prentaðra þingskjala varð 1.121. Framangreint fram í ræðu Þor- síðasta ári og komu til framkvæmda valdar Garðars Kristjánssonar, for- seta Sameinaðs Alþingis, við þing- lausnir. Þingforseti sagði orðrétt: Á þessu þingi hafa mörg mikil- væg mál verið til meðferðar og hlotið afgreiðsiu. Þótt menn hafí greint á um ýmislegt sem gert hefir verið sameinast þingmenn í þeirri ósk, að störf þessa þings megi verða til heilla landi og lýð. Þetta þing er með skemmstu þingum á síðari áram og tveim mánuðum styttra en síðasta þing. Samt sem áður hafa verið til með- ferðar og afgreiðslu fleiri mál en oftast áður. Ekki er vafi á að svo hefír unnist meðal annars vegna nýrra þingskapa, sem sett vora á á þessu þingi. Þá hefír önnur nýjung sannað gildi sitt á þessu þingi. Er þar átt við tölvuvæðinguna, sem nú hefír verið tekin upp í þjónustu þingsins. Ávinningurinn af tölvuvæðingunni hefír sýnt sig í auknum afköstum við vélritun og leiðréttingar og meiri sveigjanleika í útgáfu þing- skjala, þingtíðinda og spjaldskrár- vinnslu. Við þinglausnir á síðasta ári var gerð grein fyrir aðgerðum til úrbóta á húsakosti Alþingis. Unnið hefír verið áfram að samkeppni um gerð og skipulag nýbyggingar fyrir starfsemi þingsins. Gert er nú ráð fyrir að tillögum að teikningum Bjórfrumvarpið var fellt í efri deild 10 þingmeim á móti, 9 með ÞAÐ VAR rafmagnað andrúmsloft í efri deild Alþingis og á þingpöllum síðdegis í gær, er Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, þingmaður Kvennalistans, kom í ræðustól og gerði grein fyrir atkvæði sinu við nafnakall um „bjórfrumvarpið" svonefnda. Þá höfðu 9 þingmenn stutt frumvarpið, 9 verið á móti og 1 setið hjá, en þingdeildarmenn eru 20. Sigríður greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og það var þvi fellt með eins atkvæðis mun. Frum- varpið fór því ekki til neðri deildar Alþingis og leyfi til að brugga og selja áfengan bjór á íslandi er ekki í sjónmáli. Sem fyrr segir var nafnakall (Bj.-Ne.), Ragnar Arralds (Abl.-Nv.) og Stefán Benedikts- son (Bj.-Rvk.). Þessir þingmenn greiddu at- kvæði gegn frumvarpinu: Albert Guðmundsson (S.-Rvk.), Davíð Aðalsteinsson (F.-Vl.), Haraldur Ólafsson (F.-Rvk.), Helgi Seljan (Abl.-Al.), Jón Helgason (F.-Sl.), Karl Steinar Guðnason (Á.-Rn.), Sigríður Dúna Kristmundsdóttir (Kl.-Rvk.), Skúli Alexandersson (Abl.-Vl.), Sturla Böðvarsson (S.-Vl.) og Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S.-Vf.). Egill Jónsson (S.-Al.) sat hjá haft um frumvarpið, sem felur í sér stuðning Alþingis við sölu og braggun bjórs, en jafnframt ákvæði um þjóðaratkvæða- greiðslu á þessu ári til að skera úr um hvort lög þar að lútandi skuli taka gildi. Þessir þingmenn greiddu at- kvæði með framvarpinu: Salome Þorkelsdóttir (S.-Rn.), Ámi John- sen (S.-Sl.), Bjöm Dagbjartsson (S.-Ne.), Magnús H. Magnússon (A.-Sl.), Eyjólfur Konráð Jónsson (S.-Nv.), Jón Kristjánsson (F.-Al.), Kolbrún Jónsdóttir við afgreiðslu málsins og gerði þá grein fyrir atkvæði sínu, að í rauninni væri aðeins um skoðana- könnun að ræða með atkvæða- greiðslunni, þar eð sýnt væri að málið færi ekki fyrir neðri deild. Þingmennimir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Þorvaldur Garðar Kristjánsson gerðu grein fyrir atkvæðum sínum og vísuðu bæði til þess, að stjómskipuð nefnd væri að gera úttekt á áfeng- ismálum og ekki væri rétt að taka einn þátt þeirra sérstaklega fyrir meðan niðurstaða nefndarinnar væri ókomin. Þá lýsti Sigríður Dúna yfír sérstakri andúð á hug- myndinni um þjóðaratkvæði og kvað allt eins eðlilegt að bera þá hin stærri mál þingsins undir dóm kjósenda með slíkum hætti. Albert Guðmundsson var einnig andsnú- inn þjóðaratkvæði og kvað það „ræfíldóm“ af þingmönnum að taka ekki skýra afstöðu í málinu. „Menn hafa ekki þorað að segja annaðhvort já eða nei. — Ég segi nei,“ sagði þingmaðurinn. Þorvaldur Garðar Kristjánsson. verði skilað í júní nk. og dómnefnd hafi lokið störfum í júlímánuði. Kemur þá til kasta Alþingis um hvert framhald verður á fram- kvæmdum til að leysa þann hús- næðisvanda, sem þingið býr nú við og búa svo um, að Alþingishúsið sjálft megi nota til nokkurrar frambúar. Þá var og við þinglausnir á síð- asta þingi vikið að þúsund ára afmæli kristnitökunnar og viðbúnað Alþingis í því sambandi. Fyrir nokkram dögum samþykkti Alþingi þingsályktun um þúsund ára afmæli kristnitökunnar. Er sú samþykkt vottur þess, að hlutur Alþingis verði ekki látinn eftir liggja, þegar minnst verður merkustu lagagerðar þess. Enn er eitt málefni sem kom til meðferðar á því þingi sem nú er að ljúka og varðar sérstaklega stöðu og hlutverk Alþingis. Er þar átt við lög um ríkisendurskoðun, sem samþykkt vora á þessu þingi. í lögum þessum felst sú grandvallar- breyting, að ríkisendurskoðunin lýt- ur ekki lengur framkvæmdavaldinu heldur löggjafarvaldinu. Stjómar- skráin fær Alþingi í hendur vald til að ákveða flárveitingar. Það er því eðlilegt að ríkisendurskoðun sé á vegum Alþingis og þannig fari fram á vegum löggjafarvaldsins endur- skoðun á því hvemig framkvæmda- valdið, sem annast framkvæmd fjárlaga, hafí nýtt fjárlagaheimildir Alþingis og hvort farið hafí verið út fyrirþær. Nú við þinglausnir þakka ég öll- um alþingismönnum fyrir ágætt og ánægjulegt samstarf á þessu þingi. Sérstakar þakkir færi ég varafor- setum fyrir ágæta aðstoð og skrif- uram fyrir kostgæfni í störfum. Skrifstofustjóra og öllu starfsfólki Alþingis þakka ég mikið og gott starf og ánægjulega samvinnu í hvívetna. Ég óska utanbæjarmönn- um góðrar heimferðar og ánægju- legrar heimkomu og vænti þess að við hittumst öll heil á komandi hausti þegar Alþingi kemur saman á ný. Heill og hamingja fylgi öllum háttvirtum alþingismönnum og starfsliði Alþingis. Fyrir hönd Alþingis bið ég öllum íslendingum árs og friðar og óska gleðilegs sumars. Alþingi fordæmi kjarnorkutilraunir HJÖRLEIFUR Guttormsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, er óánægður með að Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utan- rikismálanefndar Alþingis, vildi ekki boða fund i nefndinni í gær til að ræða tillögu sína um að fordæma tilraunir með kjarn- orkuvopn neðaiyarðar. Hann óskaði einnig eftir því, að fá að ræða tillögu sina og síðustu kjarnorkuvopnatilraun Banda- ríkjainanna utan dagskrár í sameinuðu þingi i gær, en forseti varð ekki við því og bar að sögn Hjörleifs við hinum mildu önnum á síðasta degi þingsins. Þetta kom fram á stuttum fundi, sem Hjörleifur boðaði þingfréttarit- ara dagblaðanna og ríkisfjölmiðl- anna á í þingflokksherbergi Al- þýðubandalagsins í gær. Fram kom, að Haraldur Ólafsson, varaformað- ur utanríkismálanefndar, er hlynnt- ur því að utanríkismálanefnd taki afstöðu til tillögu Hjörleifs og er hann sjálfur samþykkur henni. Einnig hefur Guðrún Agnarsdóttir, fulltrúi Kvennalistans í nefndinni, lýst stuðningi við tillöguna. Tillaga Hjörleifs hljóðar svo: „Alþingi fordæmir að hafnar era á ný tilraunir með kjamorkuvopn og telur brýnt að hið fyrsta verði gerð- ur samningur um allsheijarbann við slíkum tilraunum undir traustu eftirliti."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.