Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Kónari mir> i/ili ek.k.\ oð 'zq S& <zb vínna. á ókrifeiöfunni á kuöldin-" áster___ ... að skiptast á kossum. TM Reg. U.S. Pat. Otl.—all rights reserved c1985 Los Angeles Times Syndicate Ef þú átt svona erfitt með Merkjamálið hans pabba er að skilja konuna þína því einfaldaraenþitt. varstu að giftast útlendingi? HÖGNIHREKKVISI 1 ^ Bekkirnir í Lækjargötu of lágir Bekkimir í Lækjargötu eru alltof lágir. Það er erfítt fyrir eldra fólk að standa upp af þeim. Ef smíðaðir eru fleiri (þessir virðast raunar vera nýir), þá hafíð þá ögn hærri. Ennfremur eru sætin í nokkrum strætisvögnum svo lág, að fólk sem er lágvaxið, sér mjög illa út um gluggana. gp Um mjólkurkýr o g blikkbelj*ur Ýmislegt er það í nútímanum, sem gömlum smábónda þykir tíð- indum sæta, og raunar ærið um- hugsunarvert. Þar gnæfír hátt tískuskrúðið. Það hefur náð að ryðja sér til rúms í öllu þjóðlífínu og rnisþyrmir mörgu því, sem vill þró- ast í friði, hljóðlátt og einfalt, og í samræmi við það sannasta og djúp- stæðasta í eðli einstaklings. Því missir sumt æskufólkið áttimar og jafnvel hnígur fyrir sjálfs sín hendi. Djúpt í eðli Islendingsins vakir þráin til að klæða landið, láta tvö strá vaxa, þar sem áður óx eitt. En staðreynd er sögð sú, að enn beri uppblásturinn sigurorð af ný- græðunni, m.a. vegna ofbeitar á afréttarlöndum. En það skrýtna gerist, að bændur bregðast illa við aðgerðum, sem hefta eiga ofbeitina. Þó segir okkar ágæti Einar Ben. við þá: „Líttu út og lát þér segjast, góður — líttu út, en gleym ei vorri móður. — Níð ei landið, — bijót ei bandið, — boðorð hjarta þíns.“ Ein af tæknibrellum okkar hátt- lofuðu menningar er sú, að þjóðin hefur minnkað mjög neyslu á einni af okkar dýrmætustu framleiðslu- vöru, blessaðri mjólkinni. Hún gæti þó og ætti að vera kjaminn í dag- legu fæði okkar, enda fæst hún í fjölbreyttum afurðum, þó mér hafí hún alltaf verið gómsætust spen- volg úr júgrinu. Af slíkri fæðu á aldrei að verða of mikið, meðan einhvere staðar fínnst vannært bam. Öll umframmjólk á að notast til þurrmólkurgerðar, er sé fram- leidd sem alhliða og álqosanleg bamanæring, og sú þjóð, sem er svo rík að eiga ofnægtir af slíkri vöm, þyrfti líka að vera svo rík af siðferðiskennd að hún selji þurfanda hana, fyrir það verð, sem hann getur greitt, hve lítið sem það kann að vera. Er. það virkilega sannleikurínn um okkur, þessa ofmenningar- hrjáðu mannvesalinga að við kjós- um yfír okkur það, að slátra mjólk- urkúnum okkar, en kaupum rándýr- ar blikkbeljur í staðinn? Til þess virðist leikurinn gjörður, að borga þær niður, svo það sé nógu freist- andi, að nota sparíaurana í bíla- kaup. Þá er plúsinn gerður að mín- us, með einföldum hætti, og á ekki illa við hjá þjóð, sem er að sögn, búin að ná heimsmeti í notkun kreditkorta. Manni getur hug- kvæmst að senn verði bönnuð stað- greiðsluviðskipti, eða þau að minnsta kosti skattlögð rækilega í þágu greiðslukortanna. Stað- greiðsla virðist orðið of gamaldags lqamaspil. Það er engin hætta á því að blikk- beljumar mjólki í svanga maga. Þess í stað geta þær ríkulega aukið hallann á þjóðarbúinu, með auknum olíu- og varahlutakaupum, aukinni slysatíðni, og bætt vænum siurk af útblásturseitri í andrúmsloftið okkar. Jónas Hallgrímsson orti á sinni alltof stuttu hérvistartíð, þá hann skoðaði Skjaldbreið og um- hverfí: „ — Gat ei nema Guð og Eldur gjört svo dýrðlegt furðuverk." Guð og eldur, er þetta ekki orðinn óhæfílega gamall byggingarmáti? Ættum við ekki sjálfír nú fyrir aldamótin að byggja, í nafni menn- ingarinnar og henni til heiðurs, okkar Skjaldbreið, svo langtum nýtískulegri en þann gamla, bara úr nægtum af glansandi bílhræjum. — En máske rekur Reagan okkur í vörðumar og kveikir einhvem dag- inn á kjamorkusólunum sínum, sem hann er alltaf að leika sér að og bæta við og þarf endilega að fara að koma í gagnið, til að lýsa okkur út í geimdjúpim Páll H. Arnason frá Þórlaugargerði. Yíkverji skrifar Sumarið hefur gert boð á undan sér nú á sumarmálum, en það em síðustu fímm dagar vetrar kall- aðir. Það hefur verið vor í lofti að minnsta kosti á götum Reykjavíkur. Ágæt vísbending um það er, hve margir leggja leið sína í ísbúðir í miðborginni. Hér í næsta nágrenni ritstjómarskrifstofu Morgunblaðs- ins eru tvær slíkar verslanir og hafa umsvifín í þeim tekið vorkipp nú í vikunni. Tíðin hefur verið okkur svo góð, að margir efast um, að sama blíða haldist áfram. Ástæðu- laust er þó að láta svartsýni vegna þess skemma fyrir sér hina form- legu sumarkomu í dag. Okkar ágætu landsfeður á Al- þingi fagna sumri með því að taka sér frí frá störfum fram á næsta haust. Þeir vildu hespa lagasetning- una af til þess að hinir, sem sækjast eftir setu í sveitarstjómum, fái tækifæri til að njóta sín. Sumum þingmönnum fínnst vafalaust, að þeir eigi inni uppbót á sumarfríið sitt vegna þess, hve lengi þeir vom við störf í þinghúsinu á síðasta ári; þá var þingi ekki slitið fyrr en komið varfram íjúní. Eins og áður hefur verið tekist á um hin margvíslegustu málefni á Alþingi á þessum vetri. Raunar er það furðulegt bæði hér og erlendis, hvaða mál það em, sem valda hörð- ustum átökum á þjóðþingum. Öll þekkjum við deilumar um bjórinn, sem aldrei ætla að taka enda. XXX Breska þingið hefur nýlega afgreitt mál, sem á það skylt við bjórmálið hjá okkur, að það er auðskilið fyrir allan almenning, hvort sem hann hefur áhuga á stjómmálum eða ekki: Breskir þing- menn tókust á um það, hvort leyfa ætti verslunum að hafa opið á sunnudögum eða ekki. Við könn- umst við umræður af svipuðu tagi, en hér á landi hafa þær oftar en einu sinni farið fram í borgarstjóm Reykjavíkur. Embættisathafnir Margaretar Thatcher, forsætisráðherra Breta, hafa svo oft kallað á harkaleg við- brögð, að það eitt er sérkennilegt, að ríkisstjóm hennar varð fyrir mesta áfalli sínu í breska þinginu til þessa, þegar stjómarfrumvarpið um verslunarfrelsi á sunnudögum var fellt fyrir rúmri viku. Hefði mátt ætla, að mál af öðru tagi yllu frú Thatcher meiri vandræðum á þingi. I breska vikuritinu Economist segir, að frúin hafí sagt við einn af aðstoð- armönnum sínum, áður en gengið var til atkvæðagreiðslunnar um opnunartíma verslana: „Guð gefí, að við sigmm.“ Sú gjöf barst ekki. 68 flokksbræður forsætisráðherr- ans snerust gegn stjómarfrum- varpinu. „Þetta var mesti ósigur stjómarinnar í þinginu," segir Ec- onomist. Blaðið segir, að það hafi ekki verið átök í þinghúsinu sjálfu, sem réðu úrslitum að lokum heldur baráttan í kirkjum og á verslunar- götum landsins. Neytendasamtök hættu að beijast fyrir framgangi lengri opnunartíma, þegar ríkis- stjómin tók málið upp á sína arma. Skoðanakannanir sýndu, að meiri- hluti fólks vildi geta verslað á sunnudögum. En kirkjunnar menn sátu ekki auðum höndum. Þeir beittu sér fyrir þrýstingi á þing- menn í flokki Thatchers. XXX Prestar, afgreiðslufólk í verslun- um og eigendur smærri versl- ana tóku höndum saman undir kjörorðinu „Keep Sunday Special" sem mætti þýða á þennan veg: „Höldum sérkennum sunnudags- ins.“ Economist segir, að barátta þessa sundurleita hóps hafí sýnt, hve miklum árangri sé unnt að ná með því að beita kröftunum að sér- greindu viðfangsefni. Vopnin, sem beitt var, eru sér- kennileg: bænaspjöld, sem lögð voru í kirkjubekki, orðsendingar til presta með tillögum um.efni á préd- ikanir, baráttugreinar í safnaðar- blöðum og kjördæmafundir með þingmönnum Ihaldsflokksins til að snúa þeim frá stuðningi við ríkis- stjómina. Sumir telja að allt að sextíu milljónum króna hafi verið varið til baráttunnar. Economist segir, að sigurinn yfir stjóminni í þessu máli verði öðrum hópum, sem beijast fyrir siðferðilegum málum, hvatning til að herða róðurinn. Það er síður en svo auðvelt að sitja á þingi og þar með undir stöð- ugum þrýstingi háttvirtra kjósenda. Víkverji vonar, að þeir, sem luku störfum við Austurvöll nú á sumar- málum - já og allir aðrir - megi njóta jafn góðs sumars og síðustu dagar boða. Eitt er víst, að þing- menn hafa ekki svipt okkur réttin- um til að kaupa okkur ís þegar vel viðrar og endranær, jafnvel á sunnudögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.