Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Dómurinn yfir Ferðaskrifstofu ríkisins:
I takt við dóma
neytendadómstóls
— segir Ingólfur Guðbrandsson formað-
ur Félags íslenskra ferðaskrifstofa
„MÉR sýnist niðurstaða þessa dóms vera í takt við þá umfjöUun og
niðurstöður, sem hafa fengist úr dómum fyrir neytendadómstóli í
ferðamálum," sagði Ingólfur Guðbrandsson formaður Félags ís-
lenskra ferðaskrifstofa í samtali við Morgunblaðið vegna fréttar
blaðsins í gaer, að Ferðaskrifstofa ríkisins hafi verið dæmd til þess
fyrir bæjarþingi Reykjavikur að greiða óánægðum viðskiptavini
bætur.
„Hins vegar er ég dálítið hissa á
því, að sú leið var farin að höfða
málið fyrir opinberum dómstóli,"
sagði Ingólfur. „Það er til eins
konar neytendadómstóll með aðild
Neytendasamtakanna, samgöngu-
ráðuneytisins og Félags íslenskra
ferðaskrifstofa. Eg tel að neytenda-
dómstóllinn sé rétti aðilinn til þess
að skera á hlutlausan hátt úr
ágreiningi, sem rís vegna einhvers
sem úrskeiðis hefur farið á ferða-
lögum, þar sem hann er skipaður
sérfróðum mönnum á þessu sviði.
Venjulega er farin sú leið, að
ferðaskrifstofumar reyna hver fyrir
sig að leysa úr svona málum með
samkomulagi við viðkomandi við-
skiptavin, en takist það ekki kemur
Bandarísk flug-
sveit á Kefla-
víkurvelli
SVEIT tólf F-4 D Phantom-
orrustuflugvéla úr varaliði
bandaríska flughersins er nú á
Keflavíkurflugvelli til æfinga
með þeim átján F-15-þotum sem
þar eru fyrir. Slíkar sveitir voru
hér einnig til æfinga 1981, 1982,
1983 og 1984.
Að sögn Sverris Hauks Gunn-
laugssonar, skrifstofustjóra vamar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, hefur sveit þessi bækistöðvar á
Andrews-herflugvellinum í Wash-
ington. Flugmennimir eru ekki her-
menn, heldur atvinnuflugmenn og
eru í varaliðinu. Eiga þeir að æfa
við þær aðstæður sem eru við ísland,
þar sem sveitin yrði send til liðs við
vamarliðið á íslandi ef til átaka
kæmi.
Sveitin kom til landsins 19. aprfl
sl. en heldur aftur til bækistöðva
sinna 3. maí nk.
til kasta dómstóla. Þessi neytenda-
dómstóll er settur upp sérstaklega
til að leysa svona ágreining og hann
á að vera færastur um að draga
réttar ályktanir vegna sérþekkingar
þeirra, sem dóminn skipa, á málefn-
inu.
En af því, sem ég veit um endur-
greiðslur og bætur, sem neytenda-
dómstóllinn hefur ákvarðað, sýnist
mér, að þessi niðurstaða sé í sam-
ræmi við það,“ sagði Ingólfur
Guðbrandsson að lokum.
Þess má geta, að Ferðaskrifstofa
ríkisins er ekki í Félagi íslenskra
ferðaskrifstofa.
Háskólamenn:
Þyrla sækir sovéskan sjómann
Morgunblaðið/Joseph Haag
ÞYRLA frá björgunarsveit varnarliðsins sótti sovéskan sjómann um borð í verksmiðjutogarann
Luga á síðastliðinn sunnudag. Eins og greint var frá í frétt Morgunblaðsjns á þriðjudag hafði
sjómaðurinn fengið heilablóðfall og var hann fiuttur á Borgarspítalann. Á meðfylgjandi mynd
má sjá þyrluna koma að togaranum, þar sem hann var staddur um 130 sjómílur suðvestur af
Reykjanesi.
Laun hjá ríkinu 10
lægri en hjá einkaaðilum
HEILDARLAUN háskólamenntaðra manna f þjónustu hins opinbera
voru 10-25% lægri í maí 1984, en þeirra er starfa hjá einkafyrirtækj-
um. Munurinn er hins vegar enginn og allt upp f 16% þegar tekið
hefur verið tillit til lífeyrisréttinda ríkisstarfsmanna.
Þessar upplýsingar eru niður-
stöður nefndar, sem fjármálaráð-
herra skipaði í júní 1985, til að
gera samanburð á launakjörum
háskólamenntaðra manna hjá rík-
inu og kjörum hliðstæðra starfs-
stétta hjá öðrum vinnuveitendum.
í frétt frá nefndinni segir að henni
hafí ekki verið falið að gera tillögur
til breytinga, heldur meta og skýra
mun á kjörum háskólamanna.
Laun almennra starfsmanna hjá
ríkinu eru 22-30% lægri en á al-
mennum markaði, en þegar tekið
er tillit til lífeyrisréttinda er munur-
inn 12-22%, að mati nefndarinnar.
Nefndin bendir á í niðurstöðum
sinum að erfítt sé að bera saman
dagvinnulaun, en munurinn er
miklu meiri en á heildartekjum, allt
upp í 50-60%. Starfsmenn ríkisins
bæta sér upp launamuninn með
yfirvinnulaunum og/eða auka-
greiðslum. Yfírvinnulaun námu í
maí 1984 um 46% af dagvinnu.
Hjá starfsmönnum á almennum
markaði er hlutfall yfírvinnu 23%.
Aukagreiðslur ríkisstarfsmanna
voru 66% á móti 37%.
Lífeyrisréttindi starfsmanna rík-
isins eru verðmætari og traustari
en hliðstæð réttindi starfsmanna
einkaaðila. Mismunur þessara rétt-
inda er metin sem 9% álag á laun
og er þá gert ráð fyrir 3% raunvexti
oggildandi tekjutryggingu.
Nefndarmenn gera nokkra fyrir-
vara á niðurstöðum, en um tveir
þriðju háskólamanna í þjónustu hins
opinbera eru í störfum er eiga sér
litla eða enga hliðstæðu hjá einka-
aðilum. Sem dæmi má nefna
mennta- og heilbrigðisstéttir, kirkj-
unnar menn og starfsmenn ýmissa
fræðastofnana. Samanburður á
kjörum þessara hópa við almennan
markað er því óbeinn og því koma
í ljós fleiri álitamál, en við saman-
burð annarra starfsstétta.
300 athugasemdir til
V erðlagsstofnunar
Sumar hafa leitt til leiðréttinga á verði vöru og þjónustu
EINN mánuður er liðinn frá því settur var upp sérstakur kvörtun-
arsími í Verðlagsstofnun. Hafa yfir 300 athugasemdir borist til
stofnunarinnar i þessum mánuði, flestar í sima. Að sögn Guðmund-
ar Sigurðssonar yfirviðskiptafræðings á Verðlagsstofnun hefur
verið lögð áhersla á að kanna málin strax og láta fólkið síðan
vita um niðurstöðu. Hefði það mælst vel fyrir og væri búið að
svara nánast öilum þeim fyrirspurnum sem borist hefðu.
Guðmundur sagði að flest málin Allnokkur dæmi eru um að
snerust um mikinn verðmun á leiðrétta hafi þurft verð á græn-
einstökum vörum milli verslana
eða um mikla verðhækkun að
mati þeirra sem hafa hringt. í
allflestum tilvikum hafí verið eðli-
legar skýringar á þeim atriðum
,sem gerðar voru athugasemdir
við. Sagði Guðmundur að í nokkr-
um tilvikum hefði Verðlagsstofn-
un þó séð ástæðu til að gera
athugasemdir og seljendur þá
leiðrétt óeðlilega verðlagningu.
Flest hafi dæmin verið minnihátt-
ar, en þau væru vísbending um
að fólk væri betur á verði en áður.
Guðmundur nefndi nokkur at-
riði:
meti og ávöxtum. Meðal annars
hafa komið fram gróf dæmi um
að tollalækkanir á grænmeti hafi
ekki skilað sér í lækkun á endan-
legu útsöluverði.
Gerðar hafa verið athugasemd-
ir vegna verðs á einstaka vörum
og þjónustuliðum. Sem dæmi má
nefna að kaupandi fékk endur-
greiddar 1.300 krónur vegna
rangrar verðlagningar á hljóðkút
á bifreið. í því tilviki var um hrein
mistök í verðlagningu að ræða og
viðkomandi seljandi var ánægður
með ábendinguna.
Utan Reykjavíkur eru nokkur
dæmi um ofreiknað flutnings-
gjald. Þessi mál hafa gjaman
borið á góma á námskeiðum um
verðlagsmál sem Verðlagsstofnun
og MFA hafa verið að halda úti
á landi. Þegar neytendur kvara
undan háu vöruverði nefna versl-
unarmenn oftast flutningskostn-
aðinn sem ástæðu fyrir því. Guð-
mundur sagði að ástæða væri
fyrir fólk úti á landi að taka slík-
um svörum ekki gagnrýnislaust
því ekki stæðust þessi svör alltaf.
Eitt dæmi nefndi hann þar sem
lagður var 2.500 króna flutnings-
kostnaður á verð hrærivélar úti á
landi. Það gæti ekki staðist nema
keypt hefði verið sæti fyrir hræri-
vélina í flugvél.
Eftir að kvörtunarsíminn var
tekinn í notkun var mikið kvartað
vegna verðs á ýsuflökum og var
kaupmönnum veitt áminning þess
vegna. Nýleg könnun bendir til
þess að verð á ýsuflökum sé nú
í samræmi við ákvæði um há-
marksverð.
Dæmi eru um ofreiknað flutn-
ingsgjald á ýmsum innfluttum
vörum. Grófasta dæmið sem
Vérðlagsstofnun hefur komist á
snoðir um er um flutningskostnað
sem reiknaður var 5.596 krónur
á sendingu með tveimur dýrum
perum. Við könnun Verðlags-
stofnunar kom í ljós að réttur
flutningskostnaður var 2.402
krónur, en mistökin voru hjá
farmflytjandanum. Varan er með
75% tolli og vörugjaldi. Þessi gjöld
leggjast ofan á flutningsgjaldið
og varð það til þess að smásölu-
verð vörunnar var um 70 þúsund
krónur, en átti að vera 56 þúsund
kónur. Þama munaði því 14 þús-
und krónum á sendingunni, eða 7
þúsund krónum á hvorri pem.
Skólastjóri í Hafnarfírði kærði
afgreiðslugjald á mjólk til skóla-
bama. Þetta gjald hefur verið
afnumið.
Lárus Jónsson banka-
stjóri Útvegsbankans
Bankínn tók á
sig skuldbind-
ingar vegna
íslenska skipa-
félagsins
SAMKVÆMT skýrslu bankaeft-
irlitsins frá 21. aprO nemur áætl-
að útlánatap Útvegsbankans
vegna íslenska skipafélagsins hf.
um 12 milþ'ónum króna. Morgun-
blaðið leitaði til Lárusar Jónsson-
ar, bankastjóra Útvegsbankans,
og var hann spurður að þvi
hvernig á þessu stæði.
„Ég get í rauninni ósköp lítið um
það sagt. Málið er til umfjöllunar í
skiptarétti og þetta em nú nánast
ágiskanir," sagði Láms Jónsson.
„Það á eftir að koma í ljós hvort
upphæðin sem nefnd er í skýrslunni,
um 12 milljónir króna, er rétt eða
röng. Það er hins vegar óhjákvæmi-
legt að um eitthvað tap sé að ræða
vegna íslenska skipafélagsins hf.
Það hefúr alltaf verið ljóst."
Láms sagði að íslenska skipafé-
lagið hefði verið stofnað til þess að
reyna að halda rekstri Hafskips hf.
áfram. Hann sagði að Útvegs-
bankinn hefði tekið á sig ákveðnar
skuldbindingar f sambandi við ís-
lenska skipafélagið. Ástæðan fyrir
því væri sú að menn gerðu sér vonir
um að bankinn fengi mun meira út
úr því að eignir fyrirtækisins væm
seldar meðan það væri í gangi,
heldur en t.d. á uppboði.
Láms Jónsson sagði að sér fynd-
ist þessi umræða ótímabær. Menn
ættu að hafa þolinmæði til að bfða
eftir dómsniðurstöðum.