Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
7
Bræðurnir Guðjón, 5 ára, og Baldur, 4 ára.
„Ákveðin í að fara í skrúðgönguna“
— segja börnin á Smáralundi
Krakkamir á barnaheimilinu Smáralundi i Hafnarfirði vora í
sumarskapi í gær þegar blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti
þau. „Við hlökkum ofsalega til sumarsins og á morgun, sumardag-
inn fyrsta, erum við ákveðin í að fara í skrúðgönguna,“ sögðu þau.
Bömin voru að tygja sig út í
sólina eftir morgunverðinn í
Smáralundi - í rólumar, vegasölt-
in og sandkassana. Nokkrir fóru
í leik sem kallaður er „í grænni
lautu" og aðrir fóru í Þymirósu-
leik.
„Mér fínnst mest gaman að
blása sápukúlur í sólinni,“ sagði
Guðjón, 5 ára, sem reyndar var
að kenna Baldri bróður sínum, 4
ára, sömu list. „Sérðu bara þessa
stóm kúlu - ég get blásið þær
miklu stærri en þetta," hélt hann
áfram. Guðjón var ákveðinn í því
að í sumar ætlaði hann að kaupa
svona græjur til að búa til sápu-
kúlur og hjól því honum finnst líka
gaman að hjóla í góðu veðri.
Þórdís, 5 ára, sagðist hlakka
mikið til sumarsins. Hún væri
ákveðin í að fara í útilegu með
mömmu sinni og pabba og 12 ára
systur sinni eða í sumarbústað og
þegar berin kæmu í ágúst ætlaði
hún upp í Bláfjöll til að tína þau.
„Ég byrja í skólanum í haust - ég
á heima í gráu blokkinni í norður-
bænum svo það er stutt að fara.
Ég er lika dálítið heppin af því ég
get verið samferða vinkonu minni
sem býr rétt hjá.“ Þórdís sagðist
kunna að lesa sumar bækur, t.d.
Depil og Emmu-bækumar, og
væri hún nú þegar farin að safna
dóti í pennaveskið sitt. Mamma
hennar ætlaði hinsvegar að kaupa
skólatöskuna seinna. Þórdís sagð-
ist líklega fara í skrúðgönguna í
tilefni sumardagsins fyrsta. Síðan
nyndi hún fara í heimsókn til
vinkonu sinnar og ömmu sinnar
í t'reiðholtinu sem væri veik.
Þær systur Ráðhildur, Anna 5
árí og Heiðrún María, 4 ára,
voi >. ekki alveg búnar að skipu-
legjja sumarið en þær voru
ákveðnar í að nota þó nokkum
tíma í sólbað, að eigin sögn.
Nokkrir krakkanna sögðust þegar
hafa fengið sumarföt og skó og
enn aðrir fá pakka í dag í tilefni
sumarkomunnar. Ein hnátan
sagðist vera næstum viss um að
hún fengi Barbie-dúkku - hún
hafði nefnilega hrist pakkann og
þuklað til að kanna innihaldið.
Þjóðleikhúsið:
I deiglunni frum-
sýnt á afmælinu
Á SUMARDAGINN fyrsta er
afmæli Þjóðleikhússins og í
kvöld er frumsýnt þar eitt fræg-
asta leikrit Arthurs Miller, í
deiglunni. Þýðandinn er dr.
Jakob Benediktsson en leikstjóri
er Gísli Alfreðsson Þjóðleik-
hússtjóri.
Þjóðleikhúsið sýndi í deiglunni
fyrst síðla árs 1955. Leikstjóri var
þá Lárus Pálsson, en leikarar í
aðalhlutverkum: Rúrik Haralds-
son, Regína Þórðardóttir og Valur
Gíslason. Nú — rúmum þremur
áratugum síðar — fer Valur Gísla-
son líka með stórt hlutverk. Aðal-
hlutverkið leikur Hákon Waage.
Önnur helztu hlutverk leika Edda
Þórarinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson
og Elfa Gísladóttir sem nú leikur
í fyrsta sinn á sviði Þjóðleikhúss-
ins. Ennfremur Sigurður Skúlason,
Guðrún Gísladóttir, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Sólveig Pálsdóttir og
Sólveig Arnardóttir, og loks Stein-
unn Jóhannesdóttir sem er á fömm
til Svíþjóðar og birtist því ekki
aftur á sviði Þjóðleikhússins í bili.
Undirmenn á far-
AÐALFUNDUR VINNU-
VEITENDASAMBANDS
ÍSLANDS 1986
verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl í Súlnasal Hótel Sögu.
Dagskrá:
Kl. 11:00
Kl. 11:40
Kl. 12:15
Kl. 13:30
Kl. 14:00
Kl. 16:00
Kl. 17:00
Fundarsetning. Ræða formanns, Gunnars J. Frið-
rikssonar.
Að ná árangri. Erindi: Magnús Gústafsson, for-
stjóri.
Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta.
Skýrsla framkvæmdastjóra.
Framleiðni og lífskjör. Erindi: Brynjólfur Bjarna-
son, framkv.stj. Hörður Sigurgestsson, forstjóri
og Valur Valsson, bankastjóri.
Almennar umræður.
Framhald aðalfundarstarfa.
Fundarslit.
skipum boða verkfall
UNDIRMENN á farskipum hafa
boðað verkfall frá kl. 15 mið-
vikudaginn 30. apríl nk. ef ekki
semst í deilu þeirra. Þá hafa
sáttasemjaraembættinu borist
tilkynningar um tvær tíma-
bundnar vinnustöðvanir.
Sleipnir, félag bílstjóra á sérleyf-
isbílum, boðaði í gær verkfall 2.
pg 3. maí nk. og Skipstjórafélag
íslands boðaði í fyrradag vinnu-
stöðvun 29. og 30. apríl nk.
Fundur hefur verið boðaður hjá
sáttasemjara ríkisins í deilu undir-
manna á farskipum og viðsemj-
enda þeirra á morgun, föstudag,
kl. 13.30.