Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
25
Jafn mikilvægt að
berjast fyrir mann-
réttindum og friði
„Fólk er löngu búið að missa áhugann á Helsinki-sáttmála. Ráðstefn-
urnar um öryggi og samvinnu í Evrópu þykja svo leiðinlegar og
tilgangslausar að varla nokkur veitir þeim athygli. Þess vegna legg
ég til að sáttmálinn verði gerður ógildur. Það vekur fólk til um-
hugsunar, stuðlar að umræðu og knýr sérfræðinga til að finna leiðir
sem gætu leitt til þess að aðildarríki Helsinki-sáttmálans virði hann
og standi við samþykktir hans.“
Rússneska andófsmanninum og
rithöfundinum Vladimir Bukovsky
fórust svo orð á tveggja daga
gagnráðstefnu um mannréttinda-
mál og Helsinki-sáttmála sem Al-
þjóðlega andspymuhreyfingin, Int-
emationale de la Resistance, í
Frakklandi og Andrei Sakharov
stofnunin í Bandaríkjunum stóðu
fyrir í Bem í Sviss um miðjan
apríl. Ráðstefnan var haldin í tilefni
þess að sérfræðingar frá löndunum
35 sem skrifuðu undir Helsinki-
sáttmála fyrir rúmum 10 ámm
komu saman til sex vikna fundar í
Bem 15. apríl til að fjalla um átta
ákvæði sem kveða á um mannleg
tengsl í sáttmálanum. Svisslending-
ar buðu til sérfræðingafundarins
sem undirbúningsfundar fyrir ráð-
stefnu um öryggi og samvinnu í
Evrópu sem hefst í Vín í nóvember
en Helsinki-sáttmáli kveður á um
að þessar ráðstefnur séu haldnar.
Sáttmálinn skiptist í þijá megin
málafiokka: öryggismál og sam-
vinnu á sviði efnahagsmála og
mannúðarmála. Vestrænum þjóð-
um þykir austantjaldslönd ekki hafa
staðið við ákvæði um mannúðarmál
sem skyldi og því buðu Svisslend-
ingar til þessa fundar til að draga
athygli að þeim og ítreka að mann-
úðarmál eru jafn mikilvæg og aðrir
málaflokkar í sáttmálanum.
Þekktir menningarvitar og and-
ófsmenn sátu gagnráðstefnuna í
Bem. Franski leikarinn Yves Mont-
and, rithöfundurinn E. Ionesco og
Bukovsky vöktu athygli á henni
með nærveru sinni. Von var á heim-
spekingnum B.H. Levy en hann
forfallaðist og komst ekki. Sigurður
Pálsson, rithöfundur og leikstjóri,
sat ráðstefnuna á vegum alþjóðlega
PEN-klúbbsins fyrir hönd Islands.
Hann sagði að nærvera frönsku
menningarvitanna væri í anda
þeirrar grundvallarhugarfarsbreyt-
ingar og uppgjörs við gamlar hug-
myndir sem hefur átt sér stað í
Frakklandi á undanfömum árum.
Hann sagði að barátta sovéskra
andófsmanna, barátta Samstöðu í
Pólandi og innrás Sovétmanna í
Afganistan hefðu stuðlað að hugar-
farsbreytingunni og mörgum
Frökkum væri orðið ljóst að það
er jafn mikilvægt að berjast fyrir
mannréttindum og fyrir friði.
Sigurður sagði að fulltrúar frá
öllum aðildarríkjum Helsinki-sátt-
mála hefðu verið saman komnir á
gagnráðstefnunni auk fulltrúa frá
Eystrasaltslöndunum og Balkan-
þjóðum. „Þátttakendumir fluttu
stutt ávörp og kynntu afstöðu
sinnar þjóðar til mannréttindamála.
Þær reyndust mjög mismunandi og
aðstæður þátttakenda em afar ólík-
ar en þeir era allir búsettir á Vest-
urlöndum. Ég sagði frá tveimur
atvikum sem Islendingar áttu fram-
kvæði að, annað endaði vel en hitt
fór ver. Ég sagði frá baráttu ís-
lensku þjóðarinnar fyrir ferðafrelsi
Tarkovsky-fjölskyldunnar og boði
skákhreyfingarinnar til Boris Gulko
skákmeistara á Reykjavíkurmótið.
Tarkovsky-fjölskyldan er nú sam-
einuð en Gulko fékk ekki að koma
á mótið."
Skákmeistararnir Lev Alburt og
Maxim Dlugi vora ( Bem. Þeir
ætluðu að tefla við Gulko í gegnum
síma annað ráðstefnukvöldið og
sendu til hans skilaboð um að vera
á aðalsímstöðinni í Moskvu klukkan
19. Vitað er að Gulko fór að heiman
á leið á símstöðina klukkan 18:30
þetta kvöld en hann gaf sig ekki
fram þegar hann var kallaður upp
á símstöðinni hálftíma seinna. Yms-
ar kenningar vora uppi um hvað
hefði komið fyrir hann, sumir töldu
að hann hefði verið handtekinn en
aðrir sögðu að símadaman hefði
alls ekki kallað hann upp.
Sérfræðingafundurinn fjallar um
fjölskyldutengsl, sameiningu §öl-
skyldna, hjónabönd fólks frá sitt
hvorú landinu, ferðalög einstakl-
inga og hópa, ungmennamót,
íþróttir og aukin tengsl. Aðildarlönd
Helsinki-sáttmála sættust á að
tryggja rétt þjóðar sinnar varðandi
þessi mál, auðvelda tengsl milli
þjóða og greiða götu þeirra sem
lenda í erfiðleikum. Ymis dæmi sem
sýndu fram á að Sovétmenn hafa
brotið þessi ákvæði sáttmálans vora
rakin á gagnráðastefnunni og van-
trú á viija og þori embættismann-
anna á sérfræðingafundinum til að
gagnrýna Sovétmenn harðlega kom
í ljós. „Það er ekki eðli diplómata
samkvæmt að hefja máls á svo
viðkvæmum hlutum, þeir vilja ekki
styggja starfsbræður sína með því
að gagnrýna „innanríkismál“
hinna," sagði breskur þingmaður
sem var mættur í Bem til að hvetja
fulltrúa Bretlands á sérfræðinga-
fundinum til að sýna Sovétmönnum
í tvo heimana.
Gunnar Pálsson, sendiráðsritari
í íslenska utanríkisráðuneytinu, er
fulltrúi íslands á sérfræðingafund-
inum til 24. apríl. Hjálmar W.
Hannesson sendifulltrúi mun síðan
sitja hann tvær síðustu vikumar.
Gunnar sagði í stuttu ávarpi sem
hann flutti í upphafi fundarins að
afstaða íslands væri sú að jöfn
áhersla ætti að vera lögð á alla
þrjá málaflokka Helsinki-sáttmál-
ans. Hann sagði að mannréttinda-
mál vörðuðu samskipti þjóða og
væra því ekki innanríkismáj ein-
stakra þjóða. 0g hann kvað ísland
vilja leggja meiri áherzlu á fram-
kvæmd þegar gerðra samþykkta
um mannúðarmál a sérfræðinga-
fundinum en að bæta við fleiri
mannréttindaatriðum.
Michael Novak, leiðtogi sendi-
nefndar Bandaríkjamanna á sér-
fræðingafundinum, lýsti yfir
ánægju með gagnráðstefnuna þeg-
ar fulltrúar af henni afhentu honum
yfirlýsingu um ósk þátttakenda
hennar um að sérfræðingafundur-
inn myndi þjarma að fulltrúm aust-
antjaldslandanna og fá þá til að
standa við gerða samninga. Hann
sagði að gagnráðstefnan hefði sýnt
að aivara lægi að baki orðum hinna
vestrænu embættismanna á sér-
fræðingafundinum og hann vonað-
ist til að fundurinn gæti fundið
leiðir til að knýja aðildarríki Hels-
inki-sáttmálans til að standa við
ákvæðin um mannleg tengsl í sátt-
málanum.
ÁL
MÁIMVEKNÍ
Fyrirliggjandi á lager
ÁL-plötur
1 mm—20 mm
ÁL-profílar
ÁL-rör
Flatt-ÁL
ÁL-gólfplötur
ÁL-skjólborðaefni
ÁL-flutningahús
Vörulyftur
ÁL-vörubílapallar
Gataplötur
fyrir laxeldisstöðvar
Læsingar—lamir
Rústfrítt stál
Plötur 1 mm—6 mm
Niðurefnun eftir máli
MÁIMVEKNI
Sími
91-83045 83705
Vagnhöfða 29,
Reykjavík.
Varahlutir
í litla bíla og stóra
Ef HÁBERG á hlutinn
þá er veröið hagstœtt!
G ”
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
SVUNTUR
°g
BLÚSSUR
fyrir matstofur og veitingahús
ISLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR,
sími 11785.
Nýtt og gómsætt paté unnið
úr raftaskinku — hreinasta
sælgæti jaf nt heitt sem kalt!
• ••,
Áskriftarsíminn er 83033
Þorskalýsi eóa ufsalysi frá Lýsi hf.
...heilsunnar vegna
ARGUS<€>