Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1986
43
*
Isafjörður:
Nuuk á ytri höfn-
inni vegna banns
ísafirði
TOGARINN Nuuk frá Græn-
landi, sem mikið hefur verið í
fréttunum undanfarið vegna
landgöngubanns skipveija að
skipstjóranum undanskildum,
frá 8 að kvöldi til 8 að morgni
kom hér á ytri höfnina síðdegis
í gær. Vegna landgöngubannsins
mun skipið ekki koma að bryggju
fyrr en í dag til löndunar.
í viðtali við færeyskan stýrimann
á togaranum Illimaasaq frá sama
útgerðarfyrirtæki og Nuuk sem
birtist í Vestfírska fréttablaðinu í
gær segir hann að sambærilegar
aðgerðir af hálfu stjómvalda og hér
áttu sér stað, þekki hann hveigi
að úr heiminum. Þótt árekstrar
milli sjómanna og heimamanna hafi
alls staðar þekkst frá örófi alda
eins og hann sagði. Hann segist
hafa komið reglulega til ísaflarðar
síðastliðin þrjú ár og alltaf átt góð
samskipti við íbúana. Hann segir
þó þá sögu, frá síðasta mánuði, að
skipsfélagar hans, sem eru inúítar,
hafi orðið fyrir aðkasti frá heima-
mönnum, sem sjómennimir létu þó
afskiptalaust. Hann sagði að ef
þannig hefði verið ráðist að sér, þá
hefði hann svarað í sömu mynt.
Hann segir að líklega hafi áiíka
atvik komið af stað ólátunum sem
skipveijamir á Nuuk taka nú út
dóm fyrir.
Að lokum skal þess getið að
þegar Nuuk heldur úr höfn héðan
næst er landgöngubanninu lokið en
þá er einmitt gert ráð fyrir, að
skipveijamir sem vom hér þegar
ólætin áttu sér stað verði komnir
aftur um borð. Þeir hafa verið í
fríi á Grænlandi. Úlfar.
Músiktilraunir Tóna-
bæjar og rásar 2:
Úrslit ráðast
annað kvöld
ÚRSLIT Músíktilrauna ’86 ráðast
annað kvöld, föstudagskvöld, í
Tónabæ. Allri tónlist verður út-
varpað beint á rás 2 um kvöldið,
en úrslitakvöldið hefst kl. 20.00.
Þá hyggst sjónvarpið gera sér-
stakan þátt um kvöldið.
Á úrslitakvöldinu verður sérstök
dómnefnd sem ásamt áhorfendum
mun velja sigurvegara með vægi
50% á móti 50%. Það em níu hljóm-
sveitir sem koma fram: Rocket,
Þema, Drykkir innbyrðis, Greif-
amir, Ofris og Voice auk þeirra
hljómsveita sem komast áfram f
kvöld.
Góð verðlaun em í boði fyrir
sigurvegara Músiktilrauna ’86 auk
þess sem möguleikar opnast fyrir
hljómsveitimar á að vinna með efni
sitt í hljóðveri. Þijú hljóðver, Stúdíó
Stemma, Hljóðriti og Mjöt, hafa
gefið 20 tíma hvert um sig til
þriggja efstu hljómsveitanna á
Músiktilraunum '86. Sjónvarpið
býður sigurveguranum í þáttinn
„Rokkamir geta ekki þagnað" og
Reykjavíkurborg býður sigurvegur-
um spilamennsku á þeim tónleikum
sem haldnir verða á árinu í hennar
nafni.
Aldrei fyrr hefur verið jafn mikill
áhugi en nú á Músíktilraunum, en
um 25 hljómsveitir víðsvegar af
landinu taka þátt í tilraununum að
þessu sinni. Annað kvöld verður
hljómsveitin „Rikshaw" heiðurs-
gestur kvöldsins.
(Úr fréttatilkynningu)
Ufsaklettur
Átthagamót
hjá Bráðræð-
isholtsbúum
f tilefni af 200 ára af-
mælishátíð Reykjavíkur-
borgar ætla þeir, sem áttu
heima á Bráðræðisholtinu í
Reykjavík á fyrri hluta ald-
arinnar, að halda átthaga-
mót í Frostaskjóli við
KR-heimilið kl. 15.00 nk.
sunnudag, 27. apríl.
Gamlar myndir af Bráðræð-
isholti verða þar til sýnis. Þeir
sem eiga gamlar myndir em
vinsamlega beðnir að hafa þær
með. Þátttaka tilkynnist í síma
41382 fyrir nk. laugardag.
Selfoss:
Handavinnusýning- í
gagnfræðaskólanum
Selfossi.
Handavinnusýning verður i
Gagnfræðaskólanum á Selfossi í
dag, sumardaginn fyrsta. Á sýn-
ingunni verða verk nemenda í
handmennt og myndlist. Sýning-
Hella:
Starfsfólki kjúklingaslát-
urhússins heilsast vel
Selfosri.
Starfsfólki kjúklingaslátur-
hússins Dímons á Hellu heilsast
vel miðað við aðstæður sem það
Kjarvalsstaðir:
Sýningu Daða,
Helga og Krist-
ins að ljúka
SÝNINGU Daða Guðbjörnsson-
ar, Helga Þ. Friðjónssonar og
Kristins G. Harðarsonar, sem nú
stendur yfir á Kjarvalsstöðum,
lýkur á sunnudagskvöld. Sýning-
in er opin daglega frá kl. 14.00
til 22.00.
Þeir þremenningar sýna málverk,
skúlptúra og teikningar og er þetta
sölusýning.
lenti í þegar óhapp varð við klór-
blöndun í sláturhúsinu og klór-
gas barst um húsið og fólkið
andaði að sér. Flestir hafa mætt
til vinnu aftur en nokkrir hafa
ekki náð sér að fullu.
Að sögn Amórs Egilssonar, hér-
aðslæknis á Hellu, verður fylgst vel
með heilsufari fólksins sem mun
fara í rannsókn í næstu viku á
Borgarspítalann í Reykjavík og svo
aftur síðar. Hann sagði að það
væri spuming um það hvort fólkið
fengi einhver eftirköst til langs
tíma. Það lægju engar rannsóknir
fyrir um slík tilfelli og þess vegna
yrði fylgst vel með fólkinu og
heilsufar þess rannsakað..
Að loknum rannsóknum á heilsu-
fari fólksins verður birt skýrsla um
slysið, sem varð í kjúklingaslátur-
húsinu og afleiðingar þess.
•!o aniéTiatmmng iin i.iflteiflilt
in verður opin frá kl. 14.00 tll
22.00.
Auk sjálfrar handavinnusýning-
arinnar verður boðið upp á
skemmtiatriði, kór Fjölbrautaskóla
Suðurlands mun syngja kl. 16.00
og boðið verður upp á kaffi og kökur
sem nemendur hafa sjálfir bakað.
Myndband verður í gangi á meðan
á sýningunni stendur og sýnd upp-
taka frá afmælisári skólanna á
Selfossi árið 1984.
Handavinnusýningin hefur verið
fastur liður í starfi skólans og haldin
annað hvert ár. Óhætt er að segja
að það sé vel þess virði fyrir fólk
að líta inn á sýninguna. Sig.Jóns.
Garðabær:
Vífill með
hátíðahöld
SKÁTAFÉLAGIÐ VífíU í
Garðabæ mun eins og undanfarin
ár halda sumardaginn fyrsta
hátíðlegan.
Skátamessa verður í Garðakirkju
klukkan 11. Skrúðganga hefst frá
gatnamótum Hofstaðabrautar og
Karlabrautar klukkan 14 og verður
gengið að skátaheimilinu. Þar verð-
ur tjaldsýning, leiktæki, þrautir og
kaffisala. ___
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, vinumog
vandamönnum, sem meÖ heimsóknum,
heillaskeytum, blómum og gjöfum geröu mér
ógleymanlegan sjötugasta afmœlisdag minn
13. aprílsl. ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur.
Jóhanna Ingvarsdóttir.
f ^
Terylenebuxur nýkomnar. Mittismál 80-120 cm
kr. 1.195,-. Einnig margar aðrar gerðir af buxum
fyrirliggjandi. Bíljakkar kr. 1.150,-. Skyrtur, nærföt
ofl' Ód^rt Andrés, Skólavörðustíg 22 a,
sími 18250. j
Kaffisala
1 dag, sumardaginn fyrsta,
verður kaffisala til ágóða fyrir sumarbúðirnar í Vatna-
skógi, í húsi KFUM og KFUK að Amtmannsstíg 2b.
Kaffisalan hefst um kl. 14 og stendur til kl. 18. Um kvöldið
verður almenn sumarkvöldvaka í húsi KFUM og KFUK að Amt-
mannsstíg 2b, þar sem verður fjölbreytt dagskrá í tilefni dagsins.
Hefst samkoman kl. 20.30.
Við vonum að sem flestir fagni sumri með Vatnaskógarkaffi og
komi á samkomuna um kvöldið.
Þá viljum við geta þess að innritun er hafin í dvalarflokkana í
Vatnaskógi. Gleðilegt sumar.
Skógarmenn KFUM.
efé/ag
bókagerðar-
manna
AÐALFUNDUR
félags bókagerðarmanna verður haldinn laugar-
daginn 26. apríl nk. að Hótel Sögu, Átthagasal,
oghefstkl. 10.00.
Dagskrá:
Samkvæmt grein 9.3. í lögum FBM.
Stjórn félags bókagerðarmanna
Tónlistarunnendur
Á næstunni mun íslenska hljómsveitin og Kór Langholtskirkju
flytja tónverkið Messías eftir George F. Handel, ásamt einsöngv-
urunum Ólöfu K. Harðardóttur, Sólveigu Björling, Garðari Cortes
og Halldóri Vilhelmssyni. Stjórnandi verður Jón Stefánsson. Verkið
verður flutt sem hér segir: í Reykjavík í Langholtskirkju fimmtudag-
inn 24. apríl kl. 20.30.
Aðgangseyrir er kr. 600. Forsala aðgöngumiða er hafin: Á Akra-
nesi i Tónlistarskólanum, á Selfossi í versluninni Höfn og Vöm-
húsi KÁ, í Keflavík í Tónlistarskólanum, í Reykjavík í Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar, Bókabúð Lárusar Blöndals og (stóni.
íslenska Hljómsveitin
MMiWMWWnLEt MW
Smiðjuvegi 14c, s. 91-78966.
ENGININNSIGLI
Handhægir og fljótvirkir
STÁLBANDASTREKKJARAR