Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 64

Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Námsráðgjöf í fullorðinsfræðslu eftir Guðrúnu Friðgeirsdóttur Námsráðgjöf í fuilorð- insfræðslu Nýlega var haldin hér í Reykja- vík ráðstefna um fjarkennslu. Þar kom fram að líklegt væri að þegar hafin yrði fjarkennsla með nýrri tækni hér á landi yrði hún fyrst fyrir fullorðna nemendur. Fullorð- insfræðsla er nú starfrækt hér af ýmsum aðilum og fjarkennsla er líka til, t.d. í Bréfaskólanum, þar sem 4.500 nemendur stunda nám. Með tilkomu nýrrar tækni hafa stóraukist möguleikar til fjar- kennslu til hægðarauka og spamað- ar bæði fyrir nemendur og atvinnu- vegina, ekki síst sem endurmenntun og símenntun. Þörfin fyrir fullorð- insfræðslu og símenntun er óum- deilanleg og birtist hún t.d. í gífur- legri aðsókn fullorðinna að svoköll- uðum öldungadeildum. Á fyrr- nefndri ráðstefnu kom fram í máli George Grandisons frá Skotlandi, sem miðlaði okkur ráðstefnugestum reynslu af fjarkennslu í heimalandi sínu, að námsráðgjöf er snar þáttur í kennslunni. Þessi umræða á ráðstefnunni vakti hjá mér áhuga á að kynna námsráðgjöf í fullorðinsfræðslu og kasta ljósi á þennan þátt skóla- starfs, sem er lítið þróaður hér á landi. Fáir hafa enn menntun á þessu sviði og kennski þess vegna gætir nokkurs skilningsleysis á mikilvægi námsráðgjafar. Senni- lega má af reynslu frá öldunga- deildunum draga ýmsar ályktanir og meta þarfír fyrir námsráðgjöf og leiðsögn í tengslum við fjar- kennslu. Þar munu auðvitað gilda sömu grundvallarlögmál og í öðrum skólum, þ.e.a.s. að stuðla sem best að velgengni og vellíðan nemenda og koma sem mest í veg fyrir að þeim mistakist. Námsráðgjöf í Öld- ungfadeild MH Menntaskólinn við Hamrahlíð reið á vaðið með starfrækslu Öld- ungadeildar frá haustinu 1972. Þar gefst fólki eldra en 21 árs tækifæri til að stunda nám í kvöldskóla, ráða námshraða sínum sjálft og safna námseiningum til stúdentsprófs. Meirihlutinn er konur, u.þ.b. 2A hlutar allra nemenda. Þetta skóla- fyrirkomulag var frá upphafi skil- greint sem aðstoð við sjálfsnám. Margt má eflaust setja út á þetta fyrirkomulag fullorðinsfræðslu, a.m.k. hefur mér alltaf fundist hæpið að fólk með margra ára reynslu á vinnumarkaði auk ýmis- konar annarrar uppbyggilegrar lífs- reynslu skuli þurfa að leggja á sig allt þetta erfiði til þess að fá stúd- entspróf og þar með loksins fá aðgang að ýmsum menntabrautum eða störfum. Ekki er ég þó með þessu að draga úr gildi almennrar menntunar. En hér er ekki ætlunin að ræða öldungadeildamám frá þessu sjónarhomi, enda ekki ger- legt nema í miklu víðara samhengi við íslenskt menntakerfi. Nýjar þarfir í fullorðinsfræðslu gera nú mjög vart við sig og ég fæ margar upphringingar frá fólki utan af landi sem er að reyna að lesa utan- skóla við erfiðar aðstæður. Þegar fjarkennslan kemst í gagnið má leysa vandamál þessa fólks. Smám saman hefur þó ýmis konar þjón- ustu verið komið á fyrimemendur í öldungadeild, t.d. stöðupróf, mat á fyrra námi á framhaldsskólastigi, Ieyfi til að sækja kennslustundir í dagskóla og síðastliðið haust var sett á laggimar námsráðgjöf fyrir nemendur í Öldungadeild MH. Starfsemin fór hægt af stað vegna ýmissa erfiðleika, sérstak- lega húsnæðisvandræða, og mun uppbygging þessarar þjónustu, þó að hún sé nú vel á veg komin, taka nokkum tíma. Það hefur sýnt sig að brýn þörf er fyrir námsráðgjöf fyrir nemendur í Öldungadeild. Áðsókn nemenda hefur aukist jafnt og þétt í allan vetur. Einnig hafa stofnanir, sérstaklega aðrir skólar, bæði úti á landi og á höfuðborgar- svæðinu, leitað í vaxandi mæli til okkar eftir upplýsingum um Öld- ungadeild MH, t.d. um námsfram- boð, námstilhögun og mat á námi frá sínum skólum. Hvaö er námsráðgjöf? Samkvæmt iögum um fram- haldsskóla er hlutverk námsráð- gjafa að liðsinna nemendum í náms- vali og námsvanda svo og um per- sónuleg vandamál. Einnig skal námsráðgjafi hafa samstarf við stjómendur og kennara eins og þurfa þykir. Námsráðgjafi hefur þagnar- skyldu gagnvart skjólstaeðingum sínum. Hér er vert að taka fram að með orðinu ráðgjöf í þessu samhengi er ekki átt við að gefa nemanda ráð, heldur að veita stuðning, t.d. með því að gefa upplýsingar og hjálpa nemandanum til að skilja sjálfan sig og aðstæður sínar, taka sjálf(ur) ákvarðanir og bera ábyrgð á þeim. Yfirleitt samfléttast náms- og starfsráðgjöf í þessari þjónustu við fullorðna nemendur og upplýsinga- miðlun af ýmsu tæi er mikilsverður þáttur. Helstu þættir þjónustunnar Námsval Nemendur leita mjög mikið til okkar í sambandi við námsval í upphafi annar. Þau velta þá fyrir sér hvaða nám eða starf þau gætu hugsað sér eftir stúdentspróf og þá fléttast auðvitað inn í þessar vangaveltur á hvaða greinum þau hafa mestan áhuga og hvaða hæfi- leika þau telja sig hafa eða ekki hafa. Sérstaklega eru nýnemar óör- uggir og leita eftir upplýsingum, bæði um námsbrautimar og hina ýmsu áfanga sem eru í boði. Nem- endur verða að skipuleggja nám sitt tímanlega því að ekki eru sömu áfangar í boði á hverri önn. Ekki er óalgengt að nemendur í Öldungadeild gjörbreyti sínum námsáætlunum þegar líða tekur á námið. Þau prófa sig oft áfram og finna síðan hvað á best við þau, fá áhuga á greinum sem þau óraði ekki fyrir í upphafi að myndu höfða til þeirra eða að þau hefðu getu til að takast mikið á við. Sérstaklega er áberandi hve margar konur breyta afstöðu sinni bæði til náms og til lífs síns yfirleitt. Oft lýsa þær sínum nýju við- horfum sem nýrri stöðu í lífínu, þar sem þær líta á lífið og tilveruna í allt öðm ljósi en áður. Ekkert er líkt og var. Sjálfsmyndin er breytt og þær koma til okkar til þess að ræða þessa breytingu til að átta sig betur á henni. Námstækni Á þessum vetri buðum við upp á nokkur stutt námskeið í námstækni Guðrún Friðgeirsdóttir „Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er hlut- verk námsráðgjafa að liðsinna nemendum í námsvali og námsvanda svo og um persónuleg vandamál. Einnig skal námsráðgjafi hafa samstarf við stjórnend- ur og kennara eins og þurfa þykir.“ og vom þau mjög vel sótt þrátt fyrir að þau vom haldin ýmist á laugardögum eða seint á kvöldin eftir að annarri kennslu lauk. Nemendur fengu smábæklinga um námsaðferðir og námsvenjur og vakin var athygli á ýmsu sem rann- sóknir sýna að reynist heilladrjúgt að tileinka sér, t.d. að skrifa tíma- glósur, spoma við gleymni, skerpa einbeitni. Lestraraðferðir, undir- búningur undir próf, skipulagning tímans o.fl. var einnig tekið fyrir. í móðurmálskennslunni er ræki- lega kennd ritgerðasmíð, notkun heimilda o.fl. Skipulögð kennsla í námstækni hefur verið tekin upp í mörgum íslenskum framhaldsskól- um, en því miður hefur þó ekki verið lög eins mikil rækt við þennan þátt skólastarfs hérlendis í skólum og í grannlöndum okkar svo að ekki sé nú minnst á Norður-Amer- íku. Leiðsögn í námstækni er snar þáttur í fjarkennslunni í Skotlandi. Það sást á þeim bæklingum sem lágu frammi á sýningunni sem haldin var í sambandi við ráðstefn- una á dögunum um Qarkennslu. Starfsráðgjöf — starfsfræðsla Eins og áður er getið samfléttast náms- og starfsráðgjöf nokkuð í okkar ráðgjafarþjónustu, en þó er talsvert algengt að nemendur komi sérstaklega og biðji um upplýsingar um ýmis störf, menntunarkröfur, laun, vinnuaðstæður o.s.frv. Hjá okkur liggja frammi ýmsar upp- sláttarbækur um nám og námsað- stoð bæði innanlands og utan og auk þess ýmsir bæklingar frá stéttafélögum og félagasamtökum m.a. um störf. Við aðstoðum nem- endur oft við að skrifa umsóknir um skólavist, sérstaklega til ann- arra landa. í vetur er í gangi, bæði í Öld- ungadeild MH og í dagskólanum, áfangi, sem ber heitið Námsleiðir og starfsval, og er það vel sótt nám, þó að það sé alveg nýtt og dálítið tilraunakennt ennþá. Við göngumst fyrir námskynn- ingu fyrir nemendur Öldungadeild- ar, einkum ætluð þeim sem eru að ljúka námi. Þar eru kynntir sérskól- ar ýmsir á íslandi, Háskóli ísland og einnig háskólar í Evrópu og Norður-Amenku. Persónuleg ráðgjöf Nemendur leita til okkar með ýmis persónuleg vandamál, oftast eru þau tengd miklu vinnuálagi og kröfum sem fjölskyldan gerir til þeirra. Þó nokkrum sinnum hafa komið til okkar konur sem líða fyrir það að eiginmenn þeirra eru and- snúnir því að þær eru við nám. Stundum koma konur líka og tala um bamauppeldi, skólagöngu barna sinna eða fjárhagsörðugleika fjöl- skyldunnar. Næsta vetur höfum við í hyggju að setja á iaggimar stuðningshópa fyrir konur í Öldungadeild, nokk- urskonar hópráðgjöf vegna þessar- ar þarfar sem við höfum orðið varar við í vetur. Bæði karlar og konur leita til okkar vegna taugaspennu í prófum og jafnvel í sambandi við að koma upp í kennslustund. Einnig hefur komið til tals að bjóða nemendum upp á smánámskeið í slökun, því að margir virðast hafa áhuga á slíkri aðstoð. Það kemur fyrir að vandamál sem nemendur leita til okkar með em svo alvarlegs eðlis að við verðum að leita aðstoðar hjá stofnunum úti í bæ og vísa nemendum þangað sem þeir geta fengið aðstoð sérfræðinga. Enginn vafi er á að námsráðgjaf- ar í skólum gegna mikilvægu geð- verndarhlutverki. Fyrirbyggjandi starf af þessu tæi gæti þó náð til miklu fleiri nemenda bæði í dag- skóla og kvöldskóla ef stjómendur, kennarar og námsráðgjafar ynnu meira saman. T.il þess að svo mætti verða þyrfti að breyta bæði við- horfum og ýmsu fyrirkomulagi í skólunum. Það er þakklátt verk að kenna og aðstoða nemendur í Öldunga- deild. Umbunin skilar sér ekki síst þegar áhuginn og eftirtektin skín úr hveiju andliti og spumingum og athugasemdum rignir yfir í kennslustundum. Það leynir sér ekki að mest af þessu fólki er áhugasamt og leggur hart að sér til að afla sér menntunar. Engan þarf að undra að skipu- lögð og fagleg ráðgjöf auk upplýs- ingamiðlunar er brýn í allri fullorð- insfræðslu, sérstaklega vegna þess að það er mikið átak að snúa aftur til náms eftir margra ára, jafnvel áratuga, fjarveru frá skólakerfinu. Flestir koma í skólann að loknum löngum vinnudegi. Þar við bætist að margir þurfa að gegna föður- eða móðurhlutverki. Ef vel á að fara kallar það á aðlögunarhæfni, kjark og úthald nemandans. Stuðn- ingur og uppörvun skiptir því miklu máli fyrir nemendur, ekki síst ef eitthvað bjátar á eða eitthvað fer úrskeiðis í náminu eða heima. Námsráðgjöf í fjarkennslu í fjarkennslu verður ekki síður bráðnauðsynlegt að flétta inn námsráðgjöf og leiðsögn, ekki síst Skagaströnd: Námskeið haldið á vegnm Rækjuvinnslunnar hf. RÆKJUVINNSLAN hf. á Skaga- strönd stóð fyrir rækjunámskeiði dagana 17. og 18. apríl. Öllu starfsfólki Rækjuvinnslunnar og Marska hf. var boðið að taka þátt i námskeiðinu. Var það sótt af rúmlega 30 starfsmönnum ofan- greindra fyrirtækja. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Hallsteinn Guðmundsson yfír- matsmaður og Pétur Geir Helgason fulltrúi, báðir starfandi hjá Ríkis- mati sjávarafurða, ásamt Vilhjálmi H. Gíslasyni matvælatæknifræð- ingi, sem veitti námskeiðinu for- stöðu. Á námskeiðinu var rakinn vinnsluferill rækjunnar allt frá því er hún veiðist og í gegnum vinnsl- una þar til hun er komin á borð neytandans. I því sambandi var töluvert rætt um skynmat á rækju, mikilvægi hreinlætis og góðrar umgengni. Þá var einnig reynt að gera sér grein fyrir framtíðinni í sambandi við rækjuvinnsluna. Hliðstæð námskeið hafa verið haldin áður á vegum Ríkismatsins Starfsfólkið í kennslustund. og Fiskvinnsluskólans en eingöngu fyrir stjórnendur fyrirtækja. Að sögn Péturs Geirs Helgasonar mun Rækjuvinnslan hf. verða fyrsta fyrirtækið á landinu sem heldur slíkt námskeið fyrir alla starfsmenn sína. Telur Pétur Geir að starfs- fólkið verði meðvitaðra um hráefni og vinnslu og geti því betur varast þær hættur sem leynast í meðferð á svo viðkvæmu hráefni sem rækjan er. Einnig gerir fólk sér betur grein fyrir mikilvægi matsmanna og hvaða þýðingu það hefur að ekki berist slæm vara á markað. Almenn ánægja var meðal starfs- fólksins með námskeiðið og taldi það sig hafa mjög gott af því, eða eins og einn starfsmaðurinn sagði: „Auðvitað veit maður margt af því sem hér er verið að tala um, en það er þó fleira sem maður vissi ekki. Maður fer líka að hugsa svolítið öðruvísi um þessi mál á eftir." ÓB.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.