Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 80
...MEÐA NOTUNUM.. © Iðnaðarbankínn -mrtwu tunki FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Bankar og spari- sjóðir fjármagna halla ríkissjóðs STEFNT er að því að viðskiptabankarnir kaupi skuldabréf af ríkis- sjóði fyrir 850 miHjónir króna á þeim þremur ársfjórðungum sem eftir eru af þessu ári. Með kaupunum, ásamt því að Landsbanki og Útvegsbanki lagi stöðu sína gagnvart Seðlabanka, er ætlunin að fjár- magna 1.500 miljjóna króna rekstrarhalla ríkissjóðs. í endurmati Þjóðhagsstofnunar á efnahagshorfum er því spáð að halli á ríkissjóði verði allt að 1.500 milljónir króna. Nú standa yfir viðræður milli Seðlabanka, annars vegar og viðskiptabanka og spari- sjóða hins vegar um það það þeir síðamefndu kaupi skuldabréf til fimm ára fyrir 850 milljónir króna, þar af sparisjóðir fyrir 235 milljónir króna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru stofnanimar Refsifangi í hungur- verkfalli í Hegning- arhúsinu FANGI f Hegningarhúsinu við Skólavörðustfg hefur verið f hungurverkfalli frá þvf f byrjun mánaðarins. Hann var þó um tíma fluttur f Landspft- alann til skoðunar. Þorsteinn Jónsson, deildar- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblað- ið, að fangi þessi hefði komið inn til afplánunar 8 mánaða fangavistar fyrrihluta aprflmán- aðar og hafið fangavistina með hungurverkfalli. Þann 17. mán- aðarins hefði hann verið fluttur í Landspítalann til rannsóknar að ráði lækna. Þaðan hefði hann komið í Hegningarhúsið 21. apríl og hefði þá enn haldið sig við sveltið. Þorsteinn sagðist ekki geta sagt hveijar ástæður fanginn gæfi fyrir hungurverkfallinu. tilbúnar til þessa, enda kjör bréf- anna hagstæð eða 2% hærri vextir en á útlánum. Þessi kaup em talin möguleg vegna bættrar lausaíjárstöðu inn- lánsstofnana, með tveimur undan- tekningum. Lausaflárstaða Lands- banka og Útvegsbanka er slæm og vegna þess kaupa þeir ekki skulda- bréfin, heldur er stefnt að því að þeir lagi stöðuna gagnvart Seðla- banka um 673 milljónir króna á þessu ári. Svigrúm Seðlabanka til þess að veita ríkissjóði eykst við það að þessir bankar lagfæri stöð- una. Sjá nánar frétt á B-I: „Ríkisfjármál.“ Askja á strandstað í gærkvöldi. Morgunblaðið/RAX Askja strand- ar við höfnina í Borgarnesi Borgarnesi. Á háflóði um kl. 18.00 í gær strand- aði ms. Askja við höfnina í Borgar- nesi. Var skipið að leggjast að og var komið samsíða höfninni þegar það tók niðri um 15 metra beint út frá henni. Ffjótlega eftir að skipið strandaði var reynt að ná því á flot með því að binda taugar frá því yfir í tvo vörubíla og einn vörulyftara sem voru á hafnar- planinu. Ekki tókst að ná skipinu á flot með þessum hætti og þegar var farið að falla út, var ákveðið að bíða morgunflóðs með frekari aðgerðir. Að sögn Gunnars Aðalsteinssonar, sláturhússtjóra, er skipið með 500 tonn af áburði til Kaupfélags Borgfirðinga. Kom þetta skip síðast til Borgamess 6. apríl sl. og var þá með 750 tonn af áburði. Aðspurður sagði Gunnar að vitað væri að innsiglingin væri að þrengjast þama og í dag væri aðeins eftir mjó renna við bryggjuna sem væri ömgglega nægjanlega djúp. TKÞ Öflugur lögregluvörður á Keflavíkurflugvelli í gær: Millj arða verðmæti í Picasso-málverkum „Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm og sex. Gott - allir kassarair komnir í leitiraar - þeir áttu að vera sex alls,“ sagði Salvör Nordal, framkvæmdastjóri Listahátíðar, þegar hún tók á móti 55 verkum hins fræga málara Picasso á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Mál- verkin eru hingað komin á vegum Listahátíðar, sem hefst 31. maí nk. Vel var frá málverkunum gengið á leiðinni, en óhætt er að fullyrða að listaverkafarmur þessi er sá verðmætasti sem hingað til lands hefur komið. „Verðmætið - ég get ekkert sagt um það - það skiptir milljörðum," sagði Salvör í samtali við blaðamann. Listaverkin komu hingað til lands með áætlunarvél Flugleiða frá London í gærkvöldi, en höfðu þá ferðast frá frönsku borginni Nice, þar sem Jacqulene Picasso ekkja listamannsins býr, til Parísar og þaðan til London. Salvör sagði að verkin væru aðeins lítið brot úr einkaeign ekkj- unnar og hefði hún lánað þau öll endurgjaldslaust. Þetta væri eins- konar vinargjöf til Listahátíðar og Morgunblaðid/Bjami Verðmætasti listaverkafarmur, sem hingað til lands hefur komið, kom með áætlunarvél Flugleiða frá London í gær. Öflugur lögregluvörður var á vellinum. þar með til íslands. Frú Picasso er stðan væntanleg til landsins í enda maí en hún ætlar sjálf að setja sýn- inguna upp að Kjarvalsstöðum. Sýningin stendur í tæpa tvo mán- uði, eðatil 27. júlí. Málverkin verða vöktuð allan þann tíma sem þau verða hér á landi og mun Lögreglan í Reykjavík sjá um þá hlið málsins. Salvör sagði að Listahátíð þyrfti ekki að greiða nein tryggingagjöld heldur hefðu samningar tekist um ríkisábyrgð varðandi tryggingar. „Við hefðum örugglega aldrei getað fengið þessi listaverk annars - ég er viss um að tryggingar hefðu hlaupið á millj- ónum króna ef við hefðum þurft að greiða þær.“ Bændur á Suður- landi langt komn- ir með kvótann Sdfossí. NÚ ERU tíu bændur á svæði Mjólkurbús Flóamanna búnir að framleiða mjólk upp i fullvirðis- rétt sinn og i mai og júni má reikna með að margir bændur bætist í þennan hóp. Þegar kemur fram í júli og ágúst verða vel flestir bændur á Suðurlandi búnir að framleiða nýólk upp i fullvirðisréttinn. Það sem getur bætt þessa stöðu eitthvað er að ekki hefur verið út- hlutað þeim 5% af framleiðslunni sem Búnaðarsamband Suðurlands úthlutar. í nýrri skýrslu Mjólkursamsöl- unnar kemur fram að framleiðslan á svæði hennar það sem af er þessu ári nemur 54,7 milljónum lítra og að eftir er að framleiða 20,9 milljón- ir lítra. Á sama tíma í fyrra var framíeiðslan í apríl til ágúst 28,9 milljónir lftra. Áf þvf sést að ef framleiðslan verður jafnmikil og í fyrra þarf samdráttur að verða 8 miHjónir lftra á þessum tfma ef framleiðslan á að vera innan full- virðismarks. Síðustu tvær vikur hefur innlegg í Mjólkurbú Flóamanna verið heldur minna en á sama tfma í fyrra. Aðalfundur Mjólkurbús Flóa- manna verður haldinn 25. apríl í Aratungu og þar verða málefni mjólkurframleiðslunnar m.a. rædd. Sig. Jóns. Kona stungin Rannsóknarlögregla ríkisins krafðist í gær gæzluvarðhaldsúr- skurðar yfir manni, sem í fyrri- nótt stakk sambýliskonu sína með hnífi. Missætti kom upp á heimili þeirra í Reykjavík og lauk því með fyrr- greindum hætti. Konan hlaut minniháttar ineiðsii og var gert að sárum hennar og henni síðan leyft að fara heim. Sakadómur Reykjavíkur hefúr kröfu RLR til meðferðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.