Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986 Kostnaður og fjármögnun Heildarkostnaður við smíði aðalbyggingarinnar er áætlaður um 230 milljónir króna á verðlagi 1. apríl 1986. Úr borgarsjóði hafa komið 205 milljónir króna, en úr framkvæmdasjóði aldraðra um 25 milljónir á þessu ári og því síðasta. Hver íbúð parhúsanna kostar 3,2 milljónir króna og er þvi heild- arkostnaður parhúsanna átta 57,6 milljónir á verðlagi 1. apríl sl. Húsnæðismálastjóm samþykkti á fundi sínum 20. desember síðast- liðinn að veita borgarsjóði tæplega 16,5 milljón króna framkvæmda- lán úr byggingarsjóði ríkisins til smíði íbúðanna. Starfsemi Seljahlíð er hönnuð sem dvalar- heimili, sem þýðir að það er ætlað fólki sem ekki getur sinnt daglegu heimilishaldi. Þvi er meðal annars boðið upp á fullt fæði, þrif og læknisþjónustu. í félags- og þjón- ustukjama hússins verður al- mennt félags- og tómstundastarf, Qölbreytt handavinna, föndur, leirkerasmíði, kvöldvökur, nám- skeið og fleira. Öldruðum íbúum í hverfinu gefst einnig kostur á að nýta sér þá félagslegu þjónustu sem í boði er. Starfslið hefur þegar verið ráðið og er það á sjöunda tug. í fjárhagsáætlun borgarinnar er gert ráð fyrir 35 milljón króna rekstrarfé tíl Selja- hlíðar fram að áramótum. Hönnun, byggingar- stjórn og verktakar Bygginguna teiknuðu arkitekt- amir Hróbjartur Hróbjartsson og Sigurður Björgúlfsson. Burðarþol annaðist Almenna verkfræðistof- an hf., Verkfræðistofan Önn sá um hita-, vatns- og skolplagnir og loftræstikerfi, rafmagn í húsið var lagt af Rafhönnun hf, en umsjón lóðar er í höndum Péturs Jónssonar. Umsjón með hönnun, gerð útboðsgagna og bygginga- sljóm hafði byggingadeild borg- arverkfræðings. Jóhannes Bene- diktsson tæknifræðingur sá um byggingastjóm en Kristinn Guð- mundsson húsasmíðameistari annaðist daglegt eftirlit. Allir verkþættir vom boðnir út og var lægsta tilboði ávallt tekið, að sögn Páls Gíslasonar. Jarf- vinnu annaðist Háfell hf., Ár- mannsfell hf. skilaði byggingunni tilbúinni undir tréverk, en fullnað- arfrágangur var f höndum bygg- ingafélagsins Höfða sf. BJ-verk- takar leggja lóðina og verður þvf verki lokið um næstu mánaðamót. Loftorka f Reykjavík tók að sér byggingu parhúsanna og skilaði af sér fyrir helgina. Er sala íbúð- anna hafin. Morgunbladið/J úlíus Eftir formlega afhendingu hússins og ræðuhöld steig Kristfinnur Jónsson, forstöðumaður félagstarfs Seljahlíðar, í púlt og fékk gesti til að taka þátt í samkvæmisleik. Skyldi talið upp að 20 og aftur til baka með tilheyrandi handahreyfingum, læri, lófi, vinstri, hægri og svo framvegis. Fremst á myndinni er borgarstjóri, Davíð Oddsson, og kona hans, Ástríður Thorarensen, en á milli þeirra má meðal annars þekkja Pál Gislason, formann byggingamefndar, og Ingu Jónu Þórðardóttur, aðstoðarmann heilbrigðisráðherra. Seljahlíð, dvalarheimili aldraðra við Hjallasel í Breiðholti, formlega afhent: Fyrstu íbúamir flylja inn um mánaðamótin SELJAHLÍÐ, nýtt dvalarheim- ili aldraðra við Hjallasel í Reykjavík, var formlega afhent Reykjavikurhorg og félags- málaráði i gærdag. I Seljahlið og parhúsum tengdum aðal- byggingunni eru samtals 88 íbúðir, sem koma til með að hýsa 110-120 manns. Bygging- arframkvæmdir hófust suma- rið 1983, og er þeim að mestu lokið. Fyrstu íbúarair flytja inn upp úr næstu mánaðamótum. María Gísladóttir hjúkrunar- fræðingur hefur verið ráðin forstöðumaður dvalarheimilis- ins. Páll Gíslason borgarfulltrúi og formaður byggingamefndar af- henti Davíð Oddssyni borgarstjóra og Ingibjörgu Rafnar formanni félagsmálaráðs dvalarheimilið á táknrænan hátt, með því að færa þeim stóran trélykil. Davíð lagði út af þessu „lykilatriði", sem hann nefndi svo, og vakti athygli á því að á þessu ári hefðu á þriðja Seljahlíð. hundrað fbúðir fyrir aldraða verið teknar í notkun. íbúðir og þjónusta Aðalbyggingin er 5.638 fer- metrar og 18.149 rúmmetrar. Hún skiptist í kjallara og þijár hæðir, en er samsett úr átta burstabyggingum með tengihús- um á milli. íbúðimar eru alls 70, þar af 60 einstaklingsíbúðir og 10 hjónaíbúðir. Einstaklingsfbúð- imar em 28 fermetrar, en hjóna- fbúðimar 56 fermetrar. íbúðimar em á hæðunum þremur, en í kjallaranum er sameiginlegt rými fyrir vistmenn og starfslið. Þar verða meðal annars eldhús, veit- ingasalur, setustofa, læknis- og skoðunarherbergi og aðstaða til persónulegrar þjónustu við vist- fólk. Úr sjúkraþjálfun er hægt að ganga út í kerhús með heitum potti. Á lóð dvalarheimilisins em 9 parhús með 18 söluíbúðum. Hver íbúð er 70 fermetrar, tveggja herbergja með eldhúsi, rúmgóðu baðherbergi, geymslu og anddyri. Allar fbúðimar em tengdar vakt f aðalbyggingu með sérstöku sjúkrakallkerfi. Páll Gíslason sagði að Reykjavíkurborg hefði ekki áður hannað húsnæði með þessu sniði. Hér væri um að ræða tilraun til að sameina og samnýta þjónustu við íbúa hússins og aðra aldraða íbúa í nágrenninu sem hafa þörf fyrir félagslega þjón- ustu og vilja taka þátt í félags- ogtómstundastarfi aldraðra. Aðalfundi Þróunarfélagsins frestað: Djúpstæður ágreiningur um hver skuli fara með atkvæði ríkisins AÐALFUNDI Þróunarfélags íslands, sem haidinn var fjrir luktum dyrum í gær, var frestað um einn mánuð, og stjórnarkjöri þar með. Lögð var fram á fundinum dagskrártillaga fjölmargra hlut- hafa um frestun fundarins og það var dr. Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri sem bar tillöguna upp. Ágreiningur um stjómarkjör er höfuðástæða þess að fundinum var frestað og verður leitað leiða til að ná samkomulagi á þeim mánuði sem til stefnu er. Meðal þeirra sem skrifuðu undir frestunartillöguna voru auk Seðlabanka- stjóra Helgi Bergs, Davfð Ólafsson, Davið Scheving Thorsteinsson, Stefán Pálsson og Guðmundur H. Garðarsson. „Það voru fjölmargir hluthafar sem lögðu til að stjómarkjöri yrði frestað, m.a. ýmsir fulltrúar iðnaðar- ins, Fiskveiðasjóðs og fleiri. Ég taldi ekki ástæðu til að vera andvígur þessari tillögu, þar sem hún var borin upp af það mörgum, og féllst þar af leiðandi á hana,“ sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra, sem sat fundinn sem handhafi hlutabréfa ríkisins í Þróunarfélag- inu, að andvirði 100 milljónir króna. Forsætisráðherra sagðist hafa lýst því yfir á fundinum að hann teldi eðlilegast að stjómin yrði end- urkjörin, hún hefði starfað stutt, og þyrfti lengri starfstíma til þess að reynsla kæmist á störf hennar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er mikil andstaða við það innan raða sjálfstæðismanna sem að Þróunarfélaginu standa að endur- kjósa stjómina, og vilja þeir ekki endurkjósa þá Bjöm Þórhallsson, sem er núverandi formaður, Jón Ingvarsson og Gunnar Ragnars, heldur að tveir þeir síðamefndu taki sæti í varastjóm félagsins en nýir forystumenn úr röðum sjávarútvegs, iðnaðar og þjónustu verði kjömir í aðalstjóm. Davíð Scheving Thorsteinsson sem fyrr í vetur sagði af sér for- mennsku í stjóm Þróunarfélagsins vegna þess sem hann sagði pólitíska íhlutun forsætisráðherra sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær: „Þessum fundi var einfaldlega frestað til þess að reyna að leitast við að fá frið um þetta félag. Ef þetta félag á að gera eitthvert gagn í þessu þjóðfélagi, þá verður að nást friður um félagið. Það varð þvf að forða því á fundinum að erfiðar kosningar, sem hefðu ófyrirsjáanleg- an eftirmála í för með sér, færu þama fram. Ég bendi sérstaklega á að þama fer ekki fram hlutfallskosn- >ng, og þvl þarf að breyta. Meðal annars verður reynt að ná samkomu- lagi um breytt kosningafyrirkomu- lag í þessum mánuði." Davíð sagði að höfuðforsenda þess að friður fengist um Þróunarfé- lagið væri að munnlegt loforð for- sætisráðherra frá því í haust yrði haldið. Þar sagðist Davíð eiga við loforð forsætisráðherra þess efnis að þótt hlutabréf ríkisins heyrðu stjómskipulega undir forsætisráð- herra, þá féllist hann á það að Sjálf- stæðisflokkurinn tilnefndi sinn full- trúa í stjóm félagsins sem færi með atkvæðisrétt 50% hlutabréfa ríkis- ins, eða sem svarar 50 milljónum. Davíð sagði að þetta munnlega lof- orð forsætisráðherra frá því sl. haust, þegar verið var að safna hlutafé, en það nemur nú um 350 milljónum króna, hefði verið aðal- ástæða þess hversu margir fulltrúar atvinnulífsins, iðnaðar, þjónustu, bankakerfis og sjávarútvegs, feng- ust til þess að leggja fram hlutafé. „Þegar ég var að beita mér fyrir því að menn og fyrirtæki legðu fram hlutafé í þetta félag, þá var mér lofað því að atkvæðum ríkissjóðs yrði skipt jafnt á milli stjómarflokk- anna,“ sagði Davíð og benti á það máli sínu til stuðnings að fjármála- ráðherra, Þorsteinn Pálsson, hefði tilnefnt hann sem handhafa atkvæða 50% hlutafjár ríkisins á stofnfundi Þróunarfélagsins og það hefði hann verið með fullu samþykki forsætis- ráðherra. Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra og formaður Sjálfstæðis- flokksins var í gær spurður hvort hann teldi að forsætisráðherra hefði ekki staðið við munnlegt samkomu- lag um skiptingu hlutafjár ríkisins: „Eg tel að það samkomulag sem stjómarflokkamir gerðu um skipt- ingu hlutafjárins sl. haust hafi verið eðlilegt, það er að Framsóknarflokk- urinn færi með 50% og Sjálfstæðis- flokkurinn 50%. Það hefði verið rétt af Framsóknarflokknum og forsæt- isráðherra að standa við það sam- komulag áfram, en það hefur hann ekki gert.“ Þorsteinn sagði jafnframt: „Égtel mjög mikilvægt að það skapist friður um félagið, því ég tel að það hafi mikilvægu hlutverki að gegna. Það var stofnað til þess að bijóta upp á nýjungum varðandi flármagnsmark- aðinn. Ég tel að það hefði verið vænlegra til þess að friður næðist að staðið hefði verið við það sam- komulag sem upphaflega var gert.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.