Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1986 27 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Laugardalurinn Davíð Oddsson, borgarstjóri, hefur kynnt stórhuga áætlun um framkvæmdir í Laugardaln- um, sem miða að því, að á þessu gróðursæla svæði verði aðstaða fyrir alhliða samkomur og félags- líf borgarbúa. Er ekki að efa, að borgarbúar binda miklar vonir við þessar framkvæmdir. í samtali hér í blaðinu sagði borgarstjóri meðal annars: „Til þess að undir- strika að hér er ekki um loftbólu að ræða eða framtíðardraum þá hefur verið gerð kostnaðaráætlun um grundvallarstarfsemi miðað við að verkinu verði lokið á fjórum árum, en að sjálfsögðu tekur lengri tíma að græða upp eins og að er stefnt og ljúka þeim þætti.“ Nú eru tæp þijátíu ár liðin frá því að Laugardalsvöllurinn var tekinn í notkun. Fyrir fáeinum dögum var lokið við að bæta aðstöðu í sundlauginni í Laugar- dal. Mælist sú framkvæmd vel fyrir hjá þeim þúsundum, sem njóta þeirrar heilsulindar. A kjör- tímabilinu hefur gervigrasvöllur verið fullgerður í Laugardalnum. Vinstrisinnar í borgarstjórn börð- ust gegn þeirri framkvæmd og töldu hana ósæmilega sóun á §ár- munum. Eftir að gervigrasvöllur- inn var tekinn í notkun hefur sljákkað í gagnrýnendum, enda sýna viðtökur og nýting vallarins, að með honum er komið til móts við óskir borgarbúa. Urtölur vinstri manna og neikvæður áróð- ur áttu ekki við rök að styðjast í þessu máli frekar en öðrum. Gervigrasvöllurinn kostaði með vallarhúsi um það bil 40 milljónir króna á verðlagi 1983 til 1985. Slagar það hátt upp í 60 milljón- imar, sem greiddar voru fyrir orkusvæðið á Nesjavöllum og Þjóðviljinn kallar nú „stjómlausar fjárfestingar". Er líklegt, að Þjóð- viljamenn verði áiíka þegjandaleg- ir yfir nýtingu orkunnar á Nesja- völlum og gervigrasvellinum nú, þegar á reynir í framkvæmd. Á löngu árabili hefur verið unnið að því að breyta Laugar- dalnum og rækta hann upp en heildarskipulag hefur vantað til að unnt hafi verið að snyrta og snurfusa. Nú á að ganga mark- visst til þess verks auk þess sem ráðist verður í nýjar framkvæmd- ir. Um áformin í Laugardal sagði borgarstjóri meðal annars í Morg- unblaðinu: „Það er ljóst, að það er ekki hægt að koma upp slíkum görðum sem að er stefnt nema umhverfið hafi upp á eitthvað að bjóða. A bak við ræktun Laugar- dalsins er áratuga vinna og það mun taka tíma að byggja upp þau gróðurbelti sem að er stefnt, en að öðm leyti er hægt að ganga í verkin á hinum ýmsu svæðum Laugardalsins og strax næsta ár mun fólk fara að sjá breytingar, væntanlega fyrst á skemmti- garðssvæðinu." Ætlunin er, að í Laugardalnum verði vélfryst skautasvell á viður- kenndum veili. Þá á að koma upp skemmtigarði. Þar verður hús- dýrasafn. í gróðurskála verður gróðursafn og aðstaða til fræðslu í grasafræði. Þvottalaugamar, hinn forni miðpunktur í lífi Reyk- víkinga, verða endurlífgaðar, ef þannig mætti orða það. Grasa- garðurinn, sá mikli ævintýraheim- ur, fær að njóta sín og aðstaða verður sköpuð fyrir útiskemmtan- ir. Þetta sýnir, að Laugardalurinn verður alhliða íþrótta-, fræðslu- og tómstundasvæði borgarbúa. Fyrir kosningamar 1982 hétu sjálfstæðismenn undir forystu Davíðs Oddssonar því að vinna markvisst að úrlausn ákveðinna verkefna, sem kynnt vora kjós- endum í kosningabaráttunni. Við þau loforð var öll staðið, með þeim hætti og innan þess tíma, sem heitið var. Með þá reynslu í huga geta borgarbúar og landsmenn allir vænst þess, að á næstu miss- eram sjáist þess merki, að mark- visst er unnið að því breyta Laug- ardalnum í vinalegan almennings- og gróðurreit. Nesjavellir Hið helsta, sem andstæðingar Sjálfstæðisflokksins, hafa fest hugann við í neikvæðri kosn- ingabaráttu sinni era kaupin á jörðinni Ölfusvatni á Þingvöllum. Þar era á Nesjavöllum framtíðar- orkulindir Hitaveitu Reykjavíkur. Davíð Oddsson, borgarstjóri, benti á það á fundi með starfsfólki Granda hf., að ástæðan fyrir árás- um vinstrisinna vegna þessara kaupa væri sú, að eigendur jarðar- innar hefðu verið erfíngjar Sveins Benediktssonar bróður Bjama Benediktssonar, fyrram forsætis- ráðherra. Borgarstjóri minnti á, að kaup- verðið hefði verið 60 milljónir króna, sem svaraði til þess, að hver fermetri hefði kostað 3,67 kr. Jarðhiti væri metinn á 17,3 millj. kr., þannig að kaupverð jarðarinnar sjálfrar væri 43,1 milljón króna eða 2,60 kr. fer- metrinn. í Viðey hefði hver fer- metri verið keyptur á 40 kr. og sömu sögu væri að segja um Ulf- arsfell. Vegagerðin kaupir hvem fermetra lands í nágrenni Reykja- víkur samkvæmt eignamámsmati á 170 kr. Málefnafátækt þeirra manna er mikil, sem hafa ekki um annað að tala, þegar Reykvíkingar ganga til þess að velja sér stjóm- endur en þessi jarðarkaup. Þau eiga eftir að reynast Reykvíking- um heilladrjúg eins og aðrar fram- kvæmdir, sem vinstrisinnar hafa barist harkalega gegn. „íkorninn", nýja þyrla Gæslunnar TF-GRO. Flugdeild Landhelgisgæslunnar: „Ef þetta eru ekki fagleg, öguð og skipuleg vinnubrögð veit ég ekki hvað orðin þýða“ - segir Páll Halldórsson, flugrekstrarsljóri Landhelgisgæslunnar í viðtali við Morgunblaðið Landhelgisgæslan hefur sætt mikilli gagnrýni undanfamar vikur. Upphafið var grein sem Jón Sveinsson, ungur maður með sjóliðs- foringjamenntun frá Noregi, skrifaði í Morgunblaðið 24. apríl síðast- liðinn. Lagði hann þar til að annað hvort yrði Gæslan lögð niður í núverandi mynd, eða gildandi lög um hana endurskoðuð. Telur Jón að fagmennska, skipulag og agi eigi ekki upp á pallborðið hjá Landhelgisgæslunni. Byggði Jón skrif sín á 5 mánaða reynslu sem 3. stýrimaður á einu varðskipanna. Guðbrandur Jónsson flugmaður hefur síðan í tveimur greinum í Morgunblaðinu, 1. maí og 7. maí, gagnrýnt Landhelgisgæsluna og sérstaklega gert að umræðuefni slysið í Jökulfjörðum 1983, þegar TF-RÁN, Sikorsky-þyrla Landhelg- isgæslunnar fórst þar á björgunar- æfingu. Telur Guðbrandur að sú skýring á slysinu, að rennihurð þyrlunnar hafi losnað frá og farið í aðalblöð hennar, standist ekki og varpar fram eigin tilgátum um orsakir þess. Forstjóri Landhelgis- gæslunnar, Gunnar Bergsteinsson, hefur í blaðagreinum og viðtölum svarað gagnrýninni, svo og fulltrúar flugmálastjóra og flugslysanefndar. Fulltrúar flugmálastjóra og flug- slysanefndar kváðu svo að orði í svar við síðari grein Guðbrands að hún væri „slíkur heilaspuni, að ekki væru efni til að elta ólar við hana“. í greinum þeirra Jóns Sveinsson- ar og Guðbrands Jónssonar kennir margra grasa. í viðtalinu hér á eftir við Pál Halldórsson, flugrekstrar- stjóra Landhelgisgæslunnar, berst talið einkum að þeirri gagnrýni sem snýr beint að flugrekstri Gæslunn- ar. Páll hóf störf hjá Landhelgis- gæslunni haustið 1967. Hann fór í byijun árs 1968 til Noregs í þyrlu- þjálfun og hefur flogið flugvélum og þyrlum Landhelgisgæslunnar síðan. Flugrekstrarstjóri varð hann vorið 1984. í fyrstu rekur Páll stuttlega sögu Fluggæslunnar og gerirgrein fyrir hlutverki hennar. Hlutverk og tækjakost- ur „Fyrsta júlí í sumar era 60 ár liðin frá því að Landhelgisgæslan tók yfir gamla Þór af Björguarfé- lagi Vestmannaeyja, en við það er stofnun hennar miðuð. Fluggæslan hefur á hinn bóginn ekki starfað nema í 30 ár, en upphaf hennar markast af því er hún eignaðist sína fyrstu flugvél, Katalíu-flugbát, 10. desember 1955. Frá upphafí til vorsins 1984 hefur Guðjón Jónsson flugstjóri gegnt starfí flugrekstrar- stjóra. Guðjón hefur alla tíð verið ákaflega farsæll flugstjóri, en eftir slysið í JökulQörðum var ákveðið að gera vissar skipulagsbreytingar og óskaði þá Guðjón eftir því að annar maður tæki við. Ég vil á þessum stað leiðrétta það sem kom fram í fyrri blaðagrein Guðbrands Jónssonar, þar sem hann heldur því fram að yfírmaður flugdeildar sé skipstjóri og annist daglegan rekstur, en flugrekstrar- stjóri og tæknisljóri séu undirmenn skipstjórans. Þetta era rangfærslur. Samkvæmt mínu ráðningarbréfí heyri ég beint undir forstjóra Land- helgisgæslunnar og er ábyrgur gagnvart flugmálastjórn fyrir flug- rekstri Gæslunnar. Almennt má segja að hlutverk flugdeildarinnar sé að hafa eftirlit með hafínu umhverfís ísland og jafnframt að stunda þar leitar- og björgunarflug. Ennfremur að fljúga sjúkraflug ef svo ber undir. Til fróð- leiks má geta þess að efnahagslög- sagan spannar 750 þúsund ferkfló- metra, en björgunarsvæðið er nokkru stærra, eða 980 þúsund ferkflómetrar. Til að vinna þetta verk höfum við yfír að ráða einni Fokker-27 vél og tveimur frönskum þyrlum, „Höfrungnum" og „íkom- anurn", sem við köllum stundum svo, eða Aerospatiale Dauphin, tveggja hreyfla, og Ecureuil, sem er minni eins hreyfíls þyrla og verður einkum notuð í vitaþjón- ustunni. Hún getur þó einnig að nokkru leyti komið í stað Höfrungs- ins þegar um styttri björgunarleið- angra er að ræða.“ Val á þyrlu „Báðar eru þessar þyrlur nýjar, og flestum er enn í fersku minni æsingurinn sem varð út af kaupum þeirrar stærri. Mig langar til að riQa það upp að hluta. Eftir slysið þegar Sikorsky-þyrlan TF-RÁN fórst var skipaður vinnuhópur til að fínna nýja þyrlu sem hentaði Gæslunni, og þá sérstaklega með tilliti til eiginleika hennar við björg- unar- og leitarstörf. Ég tók þátt í þessu verkefni og veit því af eigin raun að mikil vinna og rannsóknir lágu að baki valinu á Dauphin- þyrlunni. Eftir að hafa skoðað rekstur þyrlanna hjá ýmsum aðil- um, heimsótt framleiðendur og leit- að víða umsagna komumst við ein- faldlega að því að Dauphin-þyrlan hentaði okkur best miðað við mann- afla, aðstæður og fjárveitingu. Umboðsmaður Sikorsky hérlendis sá þó ástæðu til að rita dómsmála- ráðherra bréf, þar sem við sem að valinu stóðum, vorum vændir um ótrúverðug vinnubrögð. Þar var staðhæft að þyrlan væri vanhæf og gæti til dæmis ekki flogið í snjó. Þetta voru fráleitar ásakanir, en skýrast kannski af því að hér vora miklir hagsmúnir í húfí. Ég átti þátt í að velja þessa þyrlu, og ég vissi að ég kæmi sjálfur til með að fljúga henni ásamt öðram. Varla halda menn að ég færi að gera mér sér- staklega far um að beijast fyrir kaupum á þyrlu sem ég treysti ekki. Ég nefni þetta hér til að minna á að ósanngjörn gagnrýni á Gæsluna er ekki ný bóla.“ Nýtt hlutverk „í júní 1984 var endanlega geng- ið frá samningum við Aerospatiale- verksmiðjumar um kaup á þyrlunni, eftir miklar og strangar göngur milli ráðamanna. Afgreiðslufrestur var rúmt ár, svo í millitíðinni feng- um við leigða þyrlu frá verksmiðj- unni til að brúa bilið. Áður en þessi ákvörðuu var tekin var akýrt af- markað hvert verkefni þyrlunnar yrði. Hún ætti fyrst og fremst að vera notuð við leitar- og björgunar- störf, og við það skyldi þjálfun áhafnanna einkum miðuð. Enn- fremur ákveðið að gera ekki kaupin nema vissum viðhaldsskilyrðum yrði fullnægt, til dæmis að tryggt yrði að varahlutir yrðu alltaf fyrir hendi, skýlis- eða viðhaldsaðstaðan bætt og þar fram eftir götunum. í einu orði sagt, það vora tekin upp mjög markviss vinnubrögð að öllu leyti og mörkuð skýr stefna. Hvað Sikorsky-þyrluna varðaði var verk- svið hennar ekki skilgreint með þessum hætti. Nú sitja æfingar fyrir björgun og leit í fyrirrúmi, og mikil áhersla er lögð á að menn séu ávallt í toppformi til að takast á við þann vanda sem kann að koma upp við margvlsleg björgunarstörf." Æfingar þyrluáhafna „Guðbrandur Jónsson gagnrýnir það að TF-RÁN skyldi fara í æfíng- arflugið örlagaríka, þar sem skilyrði vora slæm, 7 stiga vindur og myrk- ur. En menn verða að hafa það í huga að þeir sem vinna við erfiðar aðstæður hljóta að þurfa að æfa við erfíðar aðstæður. Svo einfalt er það. Og aðstæður í Jökulfirðinum voru langt frá því að vera slæmar miðað við þau verk sem við höfum þurft að vinna. Við þjálfun flugáhafnar Gæsl- unnar er fyrst og fremst leitast við að fullnægja öllum þeim kröfum sem Flugmálastjóm Islands setur. En hins vegar er starf okkar þess eðlis að reglur Flugmálastjómar koma ekkert inn á sumar hliðar þess. Við þurfum að flytja vörur í krók undir þyrlunum, til dæmis gashylki úr og í vita frá varðskipi. Það er mikið nákvæmnisverk sem þarf að æfa vel, og í því efni höfum við sett okkur vissar lágmarkskröf- ur. Um skipalendingaf gilda þær sérkröfur að menn þurfa að halda sér í stöðugri þjálfun til að halda réttindum. Og loks vil ég nefna hifíngaræfíngar, sem við verðum að æfa undir öllum mögulegum kringumstæðum." Páll Halldórsson f stjórnklefa Daufin-þyrlunnar. Hálfkák o g óskipulögð vinnubrögð? „Jón Sveinsson sér einnig ástæðu til að gagnrýna þyrluæfingar Gæsl- unnar, og gefur í skyn að þar sé um hálfkák og óskipulögð vinnu- brögð að ræða. Og hann spyr hvort ekki væri rétt að „læra rekstur björgunarþyrlu af þeim sem slík tæki hafa starfrækt um árabil og gera það þannig að þyrla og áhöfn séu hvenær sem er sólarhringsins viðbúin kalli og alls ekki notuð í annað.“ Við þetta hef ég tvennt að at- huga: I fyrsta lagi erum við sífellt að læra einmitt af þeim sem mesta reynslu hafa. Við höfum sent menn utan til að vera á skipum annarra þjóða sem hafa þyrlur um borð. Síðastliðið haust sendum við flug- mann í rúmlega mánaðar túr með bandarísku strandgæsluskipi, sem hafði tvær þyrlur um borð, gagn- gert til að kynna sér rekstur á þyrlum í skipum. Annan mann sendum við í fyrra til að kynna sér þyrlurekstur um borð í dönsku eftir- litsskipi. Fjölmargt fleira get ég nefnt. Við föram iðulega um borð í dönsku skipin þegar þau koma hingað til að viðræðna um nýjung- ar, og ekki má gleyma ágætri samvinnu við björgunarsveit vam- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þá notum við að sjálfsögðu handbækur frá hinum ýmsu þyrlurekendum, auk þess sem handbók um þyrlu- rekstur á varðskipum var gefín út á íslensku í fyrravor, samkvæmt ábendingu flugslysanefndar. Þar er getið um þann búnað sem þarf að vera bæði í skipi og þyrlu til að þyrla megi fara um borð, lágmarks- þjálfun flugmanna og skipsáhafnar skilgreind og hvernig skuli standa að þessum rekstri í hvívetna. I framhaldi af þessu vil ég líka nefna að um miðjan þennan mánuð kemur kennari frá British Airways Helecopter hingað til lands til að halda tveggja vikna námskeið, bæði bóklegt og verklegt. Námskeiðið kemur fyrst og fremst til með að snúast um meðferð á björgunarspil- inu. Og annað til: við höfum þegar sent 6 menn á námskeið í Bretlandi hjá einni virtustu þjálfunarstofnun í heiminum, RGIT í Aberdeen, til að æfa björgun ef þyrla nauðlendir á sjó. Ég reikna með að við komum til með að gera sömu kröfur og Bretar í þessu efni, að skylda þyrlu- flugmenn að sækja slík námskeið á tveggja ára fresti. Ef þetta eru ekki fagleg, öguð og skipulögð vinnubrögð þá veit ég ekki hvað þau orð þýða.“ 12 eða 24 tíma vakt „Seinni athugasemdin við þessa klausu Jóns Sveinssonar er annars eðlis. Hann talar um að rétt væri að þyrla og áhöfn væru tilbúin allan sólarhringinn og ekki notuð í annað. Því er ég hjartanlega sammála; þetta er það sem okkur dreymir um. En til þess að svo megi verða þarf að minnsta kosti að bæta við tveim- ur flugáhöfnum. Eins og málin standa í dag eru starfandi 7 flug- menn hjá Gæslunni. Með þessu liði getum við núna vaktað 12 tíma sólarhringsins, og það með mikilli skipulagningu og fómfýsi flugá- hafna. Á flugvellinum tekur það okkur um 15 mínútur að komast í loftið eftir að beiðni kemur um flug. Á bakvakt höfum við gefíð okkur eina klukkustund, en í reynd er það þannig að við eram komnir i loftið 25-35 mínútum eftir útkall. Auðvit- að skipta viðbrögðin stundum meginmáli, og þess era dæmi að læknir hafí bjargað mannslífum vegna skjótra viðbragða þyrlunnar. Það var stór áfangi þegar við feng- um lækna Borgarspítalans til sam- starfs við flugdeildina. Sex læknar spítalans hafa tekið að sér starfið, og er ávallt að minnsta kosti einn þeirra á vakt allan sólarhringinn." Dýrar rollur „Jón Sveinsson gerir gys að því að þyrlan hafi verið að smala sauð- um á Vestfjörðum, þegar F-15 þota vamarliðsins fórst við Reykjanes. Sannleikurinn í því máli er sá að vamarliðið fór aldrei fram á aðstoð okkar. En það er rétt, að við voram beðnir um að líta yfír svæði á Vestíjörðum eftir kindum, sem átti að skera niður vegna riðuveiki. Þetta hentaði okkur í sjálfú sér ágætlega. Við voram nýlega byijað- ir að æfa notkun hitamyndsjárinn- ar, sem reyndist lykiltæki við björg- unina í Ljósufjöllum. Það var upp- lagt að nota myndsjána til að stað- setja kindumar, og þvi var hér um góða æfingu fyrir okkur að ræða. Þannig vinnum við: Ef við getum sameinað æfíngar hjá okkur og orðið einhverjum að liði í leiðinni, fínnst okkur ekkert athugavert við það, nema síður sé.“ Orsök slyssins á Jök- ulfjörðum „Hvað varðar kenningu Guð- brands Jónssonar um orsakir slyss- ins á Jökulfjörðum og smekklausar dylgjur hans um að þyrlan hafí verið í ómerkilegri sendiferð ætla ég ekki að hafa mörg orð. Guðbrandur opinberar þar vanþekkingu sína fyrir öllum þeim sem eitthvað þekkja til þyrluflugs, og því er mér skapi næst að taka undir það með flugslysanefnd og flugmálastjóm að ekki sé hægt að svara svona heilaspuna. Þó ætla ég að nefna tvö atriði. Það er að skilja á grein Guðbrands að orsök slyssins hafí verið mannleg mistök frá upphafí til enda. Hann nefnir tvær hugsan- legar skýringar á því að drepist hafí á vélinni. I fyrsta lagi vatns- mengað eldsneyti, og í öðru lagi að gleymst hafí að taka varnarpúð- ana úr loftinntakinu. Hvað elds- neytið varðar er því aldrei dælt á okkar vélar hvar á landinu sem þær eru staddar án þess að sýni sé tekið fyrst. Það var gert í þetta sinn og ennfremur strax eftir slysið, og það Viðhaldsaðstaða Fluggæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. reyndist ekki vatnsmengað. Um púðana er það eitt að segja að það er útilokað að gleymst hafí að taka þá úr loftinntakinu, því ef það gerist fer þyrlan ekki i gang! Þessar getgátur, byggðar eingöngu á lestri rannsóknagagna, eru því fáránlegri þegar haft er í huga að flugslysa- nefndir Breta og Bandaríkjamanna hafa staðfest þá niðurstöðu íslensku flugslysanefndarinnar að líkleg orsök slysins sé sú að rennihurðin hafí losnað frá þyrlunni og komist í aðalþyrilinn. Ég veit ekki hvað liggur að baki skrifum Guðbrands; ekki hafa þau gildi út frá flugöryggissjónarmið- um, því hann leggur þar ekkert af mörkum. Eini tilgangurinn virðist vera sá að eyðileggja mannorð lát- inna manna.“ Viðhaldi ábótavant í lokin var Páll spurður um við- haldsmál loftfara Gæslunnar, en í síðustu ársskýrslu Flugslysanefíid- ar er staðhæft að í þeim efnum sé ýmsu ábótavant. „í skýrslu flugslysanefndar um slysið i Jökulfj'örðum era talin upp 14 atriði sem nefndin bendir á að betur mættu fara. Níu þessara atriða sneru að Landhelgisgæsl- unni, tveimur var beint til flug- málastjómar og þremur til Sikor- sky-verksmiðjanna. Ég lít svo á að í dag séum við búnir að uppfylla 7 af þessum 9 ábendingum, ásamt báðum atriðunum sem beint var til flugmalastjómar, án þess að hún hafi krafíst þess af Gæslunni. Önnur þeirra ábendinga flugslysa- nefndar sem við höfum ekki getað orðið við ennþá snýr að aðstöðunni í viðhaldsdeildinni. Það var byijað á því að taka skýlið í gegn í fyrra- sumar, það er búið að klæða það og einangra, en það vantar samt mikið á að það sé komið í viðunandi horf. Þetta er mál sem þarf að vinna að. Þyrlur þurfa nákvæmara eftirlit en venjulegar flugvélar. Þetta eru flókin tæki, sem menn verða að vera á tánum í kringum til að fyllsta öryggis sé gætt. Og þá skiptir aðstaðan miklu. En auðvitað mann- aflinn líka. Hjá okkur starfa sjö flugvirkjar og einn radíóvirki. Auk þess að sjá um að viðhalda vélum Gæslunnar, hafa þeir á sinni könnu viðhald tveggja flugvéla Land- græðslunnar. Það sjá það allir sem vilja, að það er ekki auðvelt starf fyrir 7 flugvirkja að þurfa að halda við 5-6 mismunandi tegundum flug- véla.“ Lokaorð „Landhelgisgæslan er stoftiun sem ekki er hafín yfír gagnrýni. Þar má vafalaust margt betur fara. En það hlýtur að vera eðlileg kr^fa að gagnrýni sé sanngjöm og byggð á staðreyndum, en ekki getgátum," sagði Páll Halldórsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.