Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ 1986
51
Sannkallað stjörnulið írlands
— nokkrir f rægustu leikmenn
ensku knattspyrnunnar í landsliði
írlands, sem leikur hér 25.-29. maí
Fré Bob Hennessy, fróttamanni Morgunblaðsins á Englandi.
ÍRAR koma með sitt allra sterkasta lift til íslands til að taka þátt f
þriggja landa mótinu hér dagana 25. til 29. maí. Alls koma 20 leik-
menn, allir atvinnumenn f Englandi nema þrfr.
írska liðiö mun leika hér tvo
leiki, við íslendinga og Tékka, og
Jack Charlton ætlar sér sigur í
þeim báðum. Irska landsliðið hefur
löngum verið ein af ráðgátum
knattspyrnuheimsins — í því hafa
verið margir frammúrskarandr
knattspyrnumenn, en samt hefur
það ekki náö að komast í úrslit í
Evrópu- og Heimsmeistarakeppn-
um árum saman. Alltaf hefur eitt-
hvað vantað og er einkum rætt um
áhugaleysi og lítinn metnað leik-
mannanna. Með ráðningu Jack
Charlton í þjálfarastöðuna á að
bæta úr þessu, en Charlton er
þekktur fyrir að gera miklar kröfur.
Fyrir leikina gegn (slandi og Tékkó-
slóvakíu fékk hann t.d. írska knatt-
spyrnusambandiö til að kaupa leik-
menn Manchester United og Ox-
ford úr keppnisferðum sem liðin
eru á í Asíu og Bandaríkjunum.
Stapleton, Moran og McGrath
koma því beint til íslands frá Hong
Kong og þeir Aldridge og Hough-
ton frá Flórída. Ekkertertil sparað.
Lið írlands sem leikur hér verður
þannig skipað:
Markverðir:
Gerry Payton, Fulham
Pat Bonner, Celtic
Varnarmenn:
Chris Houghton, Tottenham
Jim Beglin, Liverpool
John Anderson, Newcastle
Mick McCarthy, Man. City
Mark Lawrenson, Liverpool
Kevin Moran, Man. United
Paul McGrath, Man. United
Miftvallarleikmenn:
Liam Brady, Inter Milano
Ronnie Whelan, Liverpool
Kevin Sheedy, Everton
Ray Houghton, Oxford
Gerry Daly, Shrewsbury
Gerry Murphy, Chelsea
Lian O'Brian, Shamrock Rovers
Framlínumenn:
John Aldridge, Oxford
Frank Stapleton, Man. United
Michael Robinson, QPR
Tony Galvin, Tottenham
Það er til marks um styrkleika
þessa hóps að David O'Leary,
Arsenal, Kervin O'Callaghan,
Portsmouth, og Tony Grealish,
WBA, komast ekki í hann. Síðasti
leikur írska liðsins var gegn Urugu-
ay í Dublin fyrir nokkrum vikum.
Honum lauk með jafntefli, einu
marki gegn einu, og skoraði Gerry
Daly, gamla kempan frá Man-
chester United, Coventry og fleiri
liðum, mark íranna úr vítaspyrnu.
Landslið írlands kemur til landsins
22. maí.
Tékkar koma
með svtt besta lið
TÉKKAR munu mæta til þriggja
landa keppninnar f lok mánaftar-
ins með sitt sterkasta lift. Lftift
er vitaft um þá hérlendis, leik-
menn liftsins eru flestir ungir aft
árum og hafa flestir 5—15 iands-
leiki að baki. Tveir þeirra sem
koma hingað eru þó þekkt nöfn
i knattspyrnuheiminum, Ladislav
Vizek, sem leikift hefur 55 lands-
leiki og hefur verift jafnbesti leik-
maftur Tékkóslóvakíu undanfarin
ár, og Jan Berger, frægur vand-
ræðagripur — leikmaftur á heims-
mælikvarfta á góðum degi, en
hefur oftar en einu sinni verið
settur f bann af félagslifti sfnu
og landsliðinu vegna óreglusemi.
Tékkarnir koma hingaft 26. maf.
Dalgiish ekki
með Skotum á
HM íMexíkó
Frá Bob Hennsuy, fréttamannl Morgunblaðaina á Englandl.
KENNY Dalglish hefur lýst þvf yfir aft hann muni ekki geta leikift með
skoska landsliftinu f Heimsmeistarakeppnini f Mexfkó. „Þetta er
hræftilegt áfall,u sagfti Alex Ferguson, framkvæmdastjóri skoska lifts-
ins, eftir að hafa fengið tfftindin. „Af öllum leikmönnunum vildi ég
sfst missa Dalglish," sagfti hann.
Það er samkvæmt læknisráði
að Dalglish gefur ekki kost á sér.
Fyrir nokkrum vikum meiddist
hann á hné og gat m.a. af þeim
sökum ekki leikið með Skotum
gegn Englendingum fyrir fjórum
vikum. Hann hefur síðan lítið fund-
ið fyrir meiðslunum, en þegar hann
fór í læknisskoðun nú eftir helgina
sagði læknirinn honum að ef hann
hvfldi ekki hnéö í að minnsta kosti
þrjár vikur nú strax, þá gæti það
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
hann og knattspyrnuferil hans. „Ég
á ekki annarra kosta völ," sagði
Dalglish. „En þetta er afskaplega
leiðinlegt. Mér finnst ég hafa
brugðist Alex Ferguson á örlaga-
stundu."
Kenny Dalglish hefur leikið 100
landsleiki fyrir Skotland og var í
þann mund að taka þátt í sinni
fjórðu heimsmeistarakeppni, fyrst-
ur breskra leikmanna. En hann
hefur nú líklega lokið landsliðsferli
sínum.
Alex Ferguson hefur valið Steve
Archibald, frá Barcelona, í lands-
liðshópinn fyrir Dalglish.
• Þeir verfta f eldlfnunni f landsleikjunum hér á landi f lok þessa mánaðar: Pétur Pétursson, Mark
Lawrenson og Amór Guðjohnsen. Myndin var tekin þegar íslendingar og írar áttust vift fyrir nokkrum árum.
Sjö atvinnumenn
í íslenska liðinu
AÐ MINNSTA kosti 7 atvinnu-
menn verfta f íslonska landsliðinu
sem lelkur vift íra og Tékka nú í
lok maf á Laugardalsvellinum.
Þeir sem hafa gefið kost á sér í
leikina eru Amór Guðjohnsen,
Pétur Pétursson, Sigurður Jóns-
son, Ragnar Margeirsson, Guft-
mundur Þorbjömsson, Sigurður
Grétarsson og Ómar Torfason.
Janus Guftlaugsson mun einnig
koma til leikjanna tveggja, svo
fremi sem lið hans, Lugano, verft-
ur ekki aft leika þýftingarmikla
leiki á sama tíma.
Enn hefur enginn formlegur ís-
lenskur landsliðshópur verið val-
inn, en KSÍ hefur haft samband
við atvinnumennina og kannað
hverjir þeirra gætu komið í leikinn,
óg Ijóst er að þeir sem nefndir
voru að framan verða í hópnum.
Sigi Held, landsliðsþjálfarinn nýi,
er væntanlegur til landsins á
fimmtudaginn og fljótlega eftir að
hann kemur verður landsliðshóp-
urinn tilkynntur.
Norðmenn seigir
— unnu Dani ígærkvöldi
Frá Jónl Óttari Kariwyni, fráttamanni
Morgunbiaóaina á Englandi.
NORÐMENN, sem leika landsleik
á íslandi f sumar, sýndu styrk sinn
í gærkvöldi meft þvf aft sigra Dani,
sem þó gátu f fyrsta sinn f langan
tfma stillt upp sfnu allra besta liði.
Hallvar Thoresen, fyrirlifti Norft-
manna, gerfti eina markið f leikn-
um úr vrtaspyrnu. Lokatölur 1:0.
Leikurinn var annars heldur lítil
skemmtun fyrir 11.700 áhorfendur
hér í Osló. Danir voru mun meira
með knöttinn, léku vel á milli sín
og sýndu annað slagið hvaö þeir
eru með geysilega heilsteypt og
léttleikandi lið. En þeir virtust
þreyttir, sérstaklega framlínu-
mennimir Laudrup og Elkjær, sem
yfirleitt eru þó með fádæmum
grimmir í leikjum danska landsliðs-
ins. Sóknir Dananna voru því bit-
lausar.
Norðmenn leika allt öðruvísi
knattspyrnu — knattspyrnu sem
minnir óneitanlega á íslenska
landsliðið. Liðið byggir á miklum
dugnaði og krafti, og kemst áfram
á baráttunni. Hallvar Thoresen er
hinsvegar klassaleikmaður, og þaö
var hann sem fiskaði vítið — lék
inn í vítateiginn og var kominn í
skotfæri þegar Morten Olsen, fyr-
irliði Dana, brá honum. Hann skor-
aöi síðan örugglega úr vítinu þegar
51 mínúta var liðin af leiknum.
í danska liðinu léku í gærkvöldi
þeir Troels Rasmussen í markinu,
Sören Busk, Ivan Nielsen, Morten
Olsen og Hendrik Andersen í vöm-
inni, Frank Arnesen, Klaus Berg-
• Jan Mölby áttl stóran þátt f bikarsigri Uverpool á laugardaginn,
en honum tókst ekkl aft brjóta vöm Norftmanna á bak aftur f gærkvöldi.
gren, Jan Mölby og Sören Lerby á
miðjunni og Preben Elkjær og
Michael Laudrup í framlínunni.
Danska liðið hefur æft stíft upp á
síökastið og kann það aö hafa
komið niöur á leik þess, en ekki
er þó rétt að taka neitt frá Norö-
mönnum, sem eru langt í frá auð-
unnir um þessar mundir. Þeir báru
t.d. sigurorð af Argentínumönnum,
með Diego Maradona innaborðs,
í landsleik hér fyrir tveimur vikum.