Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 42
pfr 42 a»nr TAM FnOAriTTVIVnTM 01OA IWU05Í0M MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986 ■T- fclk f fréttum Tvíbuamir Daphne og Barbara með prófessor Bouchard. Þessi mynd var tekin af tvíburunum frægu frá Barvaux i Belgiu árið 1966 en þá voru þeir 24 ára gamlir. Með þeim á myndinni eru litlir tvíburar, innan við eins árs. FURÐUHEIMUR TVÍBURANNA Erfðavísar eða örlaganomir? Tvíburar sem aldir eru upp saman hafa oft áþekkan smekk og hegðun en það undarlega er að eineggja tvíburar sem aðskild- ir hafa verið við fæðingu eru oft mjög líkir í hegðun og lífsferill sumra þeirra ótrúlega svipaður. Eru það erfðavísamir sem alfarið stjóma mannlegu atferli eða kemur annað til? Stjömuspekingar segja - að hér sé talandi dæmi um áhrif stjamanna á persónuieika okkar og lífsferil, enda fæðist tvíburar oftast með nokkura mínútna millibili, en aðrir halda því fram að hér sé ein- ungis um einstakar tilviljanir að ræða. Af um það bil hundrað milljónum tvíbura hér á jörðinni er um einn þriðji eineggja. Slíkir tvíburar hafa sömu erfðavísa og em því nákvæm- lega eins að allri líkamsgerð og hafa jafnvel áþekk fingraför. Þeir tvíburar sem aldir hafa verið upp saman hafa að sjálfsögðu mót- andi áhrif á hegðun hvers annars þannig að ómögulegt er að skera úr um hvaða þátt erfðavísamir eiga í ■ atferli þeirra. En allmargar rann- sóknir hafa verið gerðar á eineggja tvíburum sem aðskildir vom í fmm- bemsku og ekki höfðu hugmynd um tilveru hvers annars framan af ævi. Með því að kanna slík tilfelli fæst merkileg vitneskja um áhrif upplags og uppeldis, erfða og umhveris. Lítum á nokkur dæmi. Eineggja tvíburar, Jacqueline og Sheila Lewis, vom ættleiddar af tveim fjölskyldum sem ekkert samband höfðu sín á milli. í júní 1976, 26 ámm síðar vom þær lagðar inn á Southmead spítalann í Bristol, sama dag, og höfðu báðar einkenni um sjaldgæfan húðsjúk- dóm. Svo einkennilega vildi til að þær lentu saman á stofú og komust fljótlega að því að þær vom tvíbur- ar. Báðar höfðu þjáðst af verkjum í vinstra fæti í nokkur ár og báðar fengið slæmsku í nýmn. Eigin- maður Sheilu hafði dáið sama dag og Jacquline skildi við mann sinn(!). James Springer ólst unp í þeirri trú að tvíburabróðir hans, James Lewis, hefði dáið skömmu eftir fæðingu. Hittust þeir 39 ára gamlir eftir að James Lewis tókst loks að hafa uppi á bróður sínum. Sér til undmnar komust þeir að því að lífs- ferlum þeirra svipaði mjög saman. Báðir ólust þeir upp með uppeldis- bræðmm sem hétu Larry. I skóla höfðu báðir haft áhuga á stærð- fræði en gengið illa í stafsetningu og báðir höfðu þeir átt hunda með nafninu Troy. Báðir höfðu gifst konum sem hétu Linda, skilið og gifst aftur konum sem hétu Betty. Elstu synir þeirra hétu Jemes Alan og Jemes Allan. Báðir höfðu þeir unnið sem afgreiðslumenn á bensín- stöðvum í eigu sama stórfyrirtækis- ins, og báðir verið lögregluþjónar í aukastarfi. Báðir höfðu þeir fengið sömu sjúkdóma og vom líkir í fram- komu og skaphöfn. Tvíburamir Daphne Margaret og Gerda Barbara fæddust á Hamm- ersmith spítalanum í London 27. júlí 1939. Báðar vom þær ættleidd- ar og stofnuðu heimili hvor í sínum landshluta á Englandi. Uppeldis- mæður þeirra féllu báðar frá þegar þær vom á bamsaldri. Báðar duttu stúlkumar í stigum fimmtán ára gamlar og em báðar stirðar í ökkl- um fyrir bragðið. Báðar hittu eigin- menn sína á dansleik 16 ára gamlar og giftust báðar að hausti með veglegum brúðkaupum þar sem kórar vom fengnir til að syngja. Báðar misstu þær fóstur í fyrsta sinn sem þær gengu með, en eign- uðust svo hvor um sig tvo drengi og svo stúlku, en Daphne eignaðist reyndar tvö böm síðar. Krúttmagakvöldin í Sjallanum gerðu stormandi lukku Tvö krúttmagakvöld vora hald- in í Sjallanum á Akureyri. Þetta er fjórða árið í röð sem konur taka sig saman og halda slíka há- tíðen nú var aðsóknin svo mikil að ekki dugði minna en tvö kvöld. Konumar höfðu húsið út af fyrir sigtil miðnættis og skemmtu sér við söng og skemmtiatriði, sem þær sáu um sjálfar. Dátt var hlegið enda ýmis skondin atriði sett á svið. Heiðursgestir að þessu sinni vom Birgir Marinósson, sem samið hefur söngtexta fyrir krúttmagakvöldin öll árin og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sjallans, sem veitt hefur aðstandendum kvöld- anna ómetanlegan stuðning að sögn þeirra sjálfra. Krúttmagakvöld var haldið á Broadway á fímmtudags- kvöldið, og sáu konumar að norðan um öll skemmtiatriði þar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Heiðursgestir kvöldsins, Birgir Marinósson (til vinstri) og Sigurður Sigurðsson fengu afhenta blómvendi frá Krúttmögunum. „When a man loves a woman" — atriði frá Dansstúdiói Alice vakti verðskuldaða athygli viðstaddra. Krúttmagasöngurinn kyrjaður á dansgólfinu. Um 300 „tvíburapör“ hittust í tengslum við tvíburarannsóknir i London árið 1968 og þá var þessi mynd tekin. Athyglisvert er að tviburarn- ir eru ekki einungis likir i útliti heldur eru stellingar þeirra mjög svipaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.