Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986
Bangla Desh:
Jatiya-flokkurinn
hefur meirihluta
Dhaka, Bangla Desh. AP.
ÞEGAR talin höfðu verið
atkvæði í 264 kjördæmum af
300 í Bangla Desh, hafði
Jatiya-flokkur Hussain Mu-
Mannréttindanefnd SÞ:
Moynihan vill
ekki nasista í
formannssætið
New York. AP.
BANDARlSKI öldungadeildar-
maðurinn Daniel P. Moynihan
hefur hvatt til herferðar gegn
þvi að austur-þýzki lagaprófess-
orinn Hermann Klenner verði
formaður mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna.
Klenner er einn þriggja varafor-
manna nefndarinnar og reglur um
skiptingu formannsembættisins
gera ráð fyrir því að hann verði
formaður nefndarinnar á næsta ári.
Moynihan segir að Klenner hafi
verið nasisti, hafí gengið í flokkinn
árið 1944, þegar hann var 18 ára.
Hann segir það myndu stríða gegn
hugmyndum manna um starf
nefndarinnar að í forsvari fyrir
henni væri nasisti.
Hefur Moynihan hvatt Banda-
ríkjamenn til að skrifa George
Shultz, utanríkisráðherra, og hvetja
ráðherrann til að beita sér gegn
því að Klenner verði formaður
nefndarinnar.
hammed Ershads, forseta,
hlotið 132 þingsæti, en stjórn-
arandstöðu flokkurinn, Aw-
ami, hlotið 70, að því er yfir-
kjörstjóm tilkynnti á sunnu-
dag.
Minni flokkamir, sem eru í
kosningabandalagi við Awami,
höfðu hlotið 20 sæti, þannig að
samtals hafði bandalagið 90
þingsæti. Þá höfðu óháðir hlotið
27 sæti, hreintrúarflokkur Mú-
hameðstrúarmanna 10 og
Kommúnistaflokkurinn 5 sæti og
er þetta í fyrsta skipti sem hann
eignast fulltrúa á þingi.
Yfírkjörstjóm ógilti kosning-
amar í 36 kjördæmum vegna
kosningasvika og óstaðfestar
fregnir herma að kosið verði á
nýjan leik í þessum kjördæmum
19. maí. Úrslit ættu að liggja ljós
fyrir um viku síðar. Búist er við
að Jatyia-flokkurinn fái nauman
meirihluta í þinginu, en þar era
300 sæti, sem kosið er til. Auk
þeirra era sérstök 30 sæti ætluð
konum og velur sá flokkur sem
hefur meirihluta konur til þing-
setu.
Stjómarandstöðuflokkamir
hafa krafíst þess að kosningamar
verði ógiltar vegna kosninga-
svika. Þeir benda einnig á að
kosningabaráttan hafí ekki verið
sanngjöm, þar sem herlög vora
í gildi meðan hún stóð yfír.
Báðu Bandaríkja-
menn Sýrlendinga
að færa skriðdrekana?
Tel Aviv, ísrael. AP.
Bandaríkjamenn báðu Sýr-
lendinga að fjarlægja skrið-
drekavíglínu sína i Austur-
Libanon úr skotfæri fallbyssa
ísraela, að sögn ísraelska
dagblaðsins The Jerusalem
Post. Var þetta gert að beiðni
ísraelsmanna, segir blaðið.
Riehard Murphy, aðstoðaratan-
ríkisráðherra Bandaríkjamanna,
átti að hafa komið beiðninni á
framfæri, en ekki er frá því greint
hvenær það var. Bandarískir
embættismenn hafa ekkert vilja
láta hafa eftir_ sér um málið.
Blaðið segir að ísraelar hafí von-
ast til þess að með fregnum af
þessum nýja vígbúnaði Sýrlend-
inga, væri hægt að leysa málið
með milligöngu Bandaríkja-
ERLENT
AP/Símamynd
Hasina Wajed, leiðtogi Awamy-
bandalagsins, ásakaði stjómar-
flokkinn fyrir víðtæk kosninga-
svik á fundi með fréttamönnum.
Líbýumenn saklausir
af flugvallaárásunum
— segir Bruno Kreisky, fyrrum kanslari Austurríkis
Palma De Mallorca, Spáni. AP.
BRUNO Kreisky, fyrrum kanslari Austurríkis, segir að Bandaríkja-
menn viti fullvel að Líbýumenn hafi ekki borið ábyrgð á sprengjuár-
ásunum á flugvöllunum í Róm og Vín, 27. desember á síðasta ári,
og þar af leiðandi sé ekki fyrir hendi réttlæting fyrir loftárás
Bandaríkjamanna á Líbýu.
Þetta kom fram í samtali sem
blaðamaður átti við Kreisky í sum-
arhúsi hans á eyjunni Mallorca.
Sagði hann að Bandaríkjastjóm
hefði beinar sannanir fyrir því að
Khadafy hefði ekki komið nálægt
fyrrgreindum hryðjuverkum. Jafn-
framt sagði Kreisky að Khadafy
hefði tjáð sér að Líbýustjóm hefði
ekki átt neina aðild að samsærum
hægri manna á Spáni, en tíu menn
voru handteknir á Spáni á laugar-
daginn var, vegna meintra fyrirætl-
ana um að ráðast á bandaríska
hagsmuni á Spáni. Því hefur verið
haldið fram að Líbýumenn hafí stutt
þessar fyrirætlanir, en tímaritið
Cambio 16 á Spáni, segir í gær að
franska leyniþjónustan hafi haft
tengsl við hópinn, sem nefnir sig
„Hróp Jesú Krists" og hafí ætiað
sér að notfæra sér hann. Hafí leyni-
þjónusta komist í samband við hóp-
inn eftir árás á bænahús gyðinga
í París fyrir átta mánuðum.
Mikilvægt að
róa almenning
á Vesturlöndum
— sagði Hans Blix, forstöðumaður Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar, á fundi í Vín
Vínarborg. Frá fréttaritara Morgunblaðsins.
HANS BLIX, forstöðumaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinn-
ar hér í borg, lagði mikla áherzlu á það í ræðu á fundi alþjóðasam-
taka ritstjóra i gær, að róa almenning á Vesturlöndum vegna
kjarnorkuslyssins í Sovétríkjunum. Blix kom frá Moskvu um sfð-
ustu helgi eftir viðræður við ráðamenn og sérfræðinga þar og
fór m.a. til Kiev og flaug yfir hættusvæðið.
Blix.sagði í ræðu sinni, að hann
hefði haft meiri áhyggjur af því,
hvað björgunaraðgerðir hefðu
hafízt seint en því, að upplýsingar
um slysið hefðu borizt seint til
Vesturlanda. Hann kvaðst setja
spumingarmerki við ýmsar harð-
ar aðgerðir Vesturlandaþjóða um
bann við innflutningi frá A-Evr-
ópuríkjum. Hann kvaðst einnig
setja spumingarmerki við frétta-
flutning Qölmiðla á Vesturlönd-
um, sem hefðu birt fréttir byggðar
á getsökum í stað þess að bíða
eftir staðrejmdum. Blix lýsti einn-
ig þeirri skoðun sinni, að hefði
vestræn fréttamennska verið
ástunduð, þegar slysið varð, hefði
hún getað Ieitt til örvæntingar og
öngþveitis.
Ræðumaður sagði, að sovézkir
sérfræðingar hefðu sagt sér og
sínum mönnum, að þeir hefðu náð
upplýsingum úr stjómstöð kjam-
orkuversins, sem bentu til þess,
að engin vandamál hefðu komið
upp í verinu áður en sprengingin
varð. Þeim hefði verið sagt í
Sovétríkjunum, að sérfræðingar
þar væru nú vissir um að vita
hvað hefði gerzt en þeir vildu
kanna það betur áður en þeir
gæfu upplýsingar um það.
Sovézkir sérfræðingar mundu
koma til Vínarborgar og sitja þar
sérstaka ráðstefnu um slysið og
þar mundu þessar upplýsingar
koma fram.
Blix var spurður, hvort hann
teldi, að Sovétmenn hefðu legið á
upplýsingum eða hvort þeir hefðu
ekíci vittó meir. Hann kvaðst hafa
komið til Moskvu viku eftir slysið.
Við höfðum það á tilfinningu'nni
sagði Blix, að þeir segðu okkur
allt sem þeir vissu, en þeir vora
með kenningar um það sem
gerðizt, sem þeir vildu ekki gefa
upp að svo stöddu. Blix kvaðst
ekki hafa ástæðu til að draga í
efa þær tölur sem Sovétmenn
hefðu gefíð upp um látna
Þá sagði Hans Blix, að alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefði efnt til
fundar í Kaupmannahöfn 8. maí
og komizt að þeirri niðurstöðu,
að ekki væri ástæða til að setja
ferðabann á önnur svæði en slysa-
svæðið sjálft. Samtökin hefðu
einnig talið, að ekki væri ástæða
til að takmarka innflutning á
matvælum af heilsufarsástæðum
nema frá slysasvæðinu og hugs-
anlega einhverjum svæðum, þar
sem geislavirkt regn hefði fallið.
Hins vegar gæti hafa verið ástæða
til þessa banns af sálfræðilegum
ástæðum.
Þá kom það fram hjá Blix, að
hefði bráðnun orðið hefði hún
ekki farið í gegnum grunn kjam-
orkuversins, en um slíkan atburð
var fjallað í kvikmjmdinni „China
Syndrome". Blix og sérfræðingur,
sem með honum var, kváðust
hafa verið í Kiev í tvær klukku-
stundir og í 3 mínútur á flugi
yfír hættusvæðinu. Þeir hefðu
verið með geislamæla á sér og
geislunin hefði ekki mælzt meiri
en sú, sem er til staðar við rönt-
genmjmdatöku á tannlæknastofu.
Aðspurður sagði Blix, að Sovét-
menn hefðu ekki lokað öðrum
kjamorkuverum, eins og t.d. veri
við Leningrad, sem væra svipuð
því, sem slysið hefði orðið í. Hins
vegar hefðu farið fram rannsóknir
á rekstri þeirra og aðstæðum og
ekkert benti til þess, að eitthvað
óeðlilegt væri á ferðinni.
Nokkru eftir þessa ræðu Blix
sagði japanskur blaðamaður, að
Sovétmenn hefðu verið staðnir að
lygum við japönsk stjómvöld
vegna slyssins. Þeir hefðu sagt
opinberum jrfírvöldum í Japan 48
Natasha og Madya una hér glaðar i leik i búðum, sem settar
voru upp við Tripolskaya-kjamorkuverið í Úkraínu. Þær voru
meðal þeirra, sem varð að flytja af öryggisástæðum frá svæðinu
i kringum Chemobyl-kjaraorkuverið.
klukkustundum eftir slysið, að
ekkert slflct hefði borið við.
Kanadískur blaðamaður sagði að
lesendur Isvestíu, viku eftir slysið,
hefðu fengið þá hugmynd af að
lesa blaðið, að þama hefði verið
smáslys á ferðinni. Háttsettur
sovézkur blaðamaður frá FVövdu,
sem var einn þeirra fjögurra
sovézkra blaðamanna sem áttu
viðtal við Reagan, Bandaríkjafor-
seta, í tengslum við toppfundinn
sl. haust, sagði, að kjamorkusly-
sið væri alvarlegt en staðbundið
slys, sem Sovétmenn hefðu náð
fullri stjóm á og viðbrögð fjöl-
miðla á Vesturlöndum einkennd-
ust af andsovézkri móðursýki,
sem mundi hitta vestræna fjöl-
miðla eins og ástralska vopnið
„boomerang". Bandarískur blaða-
maður sagðist alls ekki skilja
gagnrýni Blix á vestræna fjöl-
miðla, þar sem þeir hefðu engar
upplýsingar haft undir höndum
til þess að vinna úr.