Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 17
f
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ 1986
17
Laxeldi
Eigandi jarðnæðis með góðri aðstöðu til seiðaeldis óskar eftir
sambandi við fjársterkan aðila sem áhuga hefur á samstarfi.
Lysthafendur leggi nafn sitt og upplýsingar inn á augld. Mbl. fyrir
17. maí nk. merktar: „Laxeldi — 5812“.
sem ekki hafa náð 20 ára aldri og hannesson.
taka þátt í henni u.þ.b. 40 þjóðir
íslensku keppendurnir hafa þeg-
ar hafíð þjálfun op- munu halda
henni áfram allt frai.i að þeim tíma
sem keppnin hefst. Þjálfunin felst
í því að þátttakendunum eru kjmnt-
ar þær stærðfræðiaðferðir sem
helst má búast við að muni koma
fram í Ólympíukeppninni og þeir
þjálfaðir í lausn dæma. Þjálfuninni
stjómar Reynir Axelsson en auk
hans sjá ýmsir félagar í Stærð-
fræðafélaginu um kennslu. Reynir
er einnig fulltrúi íslands í dómnefnd
S veitarstj órnar-
kosningamar:
Listi sjálf-
stæðismanna
í Bessa-
staðahreppi
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
félags Bessastaðahrepps er skip-
aður eftirfarandi frambjóðend-
um:
1. Sigurður G. Thoroddsen, lög-
fræðingur, Steinum. 2. Erla Sigur-
jónsdóttir, oddviti, Smiðshúsi. 3.
Guðmundur G. Gunnarsson, verk-
taki, Norðurtúni 3. 4. Birgir Thom-
sen, rafeindavirki, Heimatúni L 5.
Birgir Guðmundsson, tæknifræð-
ingur, Lambhaga 16. 6. Guðrún
Eggertsdóttir, viðskiptafr., Seli. 7.
Jóhann Jóhannsson, bókari, Norð-
urtúni L 8. Sigurður E. Siguijóns-
son, byggingam., Norðurtúni 26.
9. Sigfríður Elsa Ingvarsdóttir, hús-
móðir, Litlu-Brekku. 10. Sigurður
Vaiur Ásbjamarson, tæknifr., Svið-
holtsvör 2.
Til sýsluneftidan
Doron Eliasen, framkvæmdastj.,
Túngötu 3 og Jytte Frímannson,
húsmóðir, Sólheimum.
Sú breyting hefur orðið á fram-
boðslistanum að Guðrún G. Berg-
mann, húsmóðir Norðurtúni 6, ósk-
aði eftir því, að draga framboð sitt
til baka og tók Sigfríður Elsa Ing-
varsdóttir, húsmóðir, Litlu-Brekku
sæti á listanum í hennar stað.
Almenna g’agnanetið:
Póstur og sími
opnar samband
við Danmörku og
Stóra-Bretland
PÓST- og símamálastofnunin
hefur opnað sambönd til Dan-
merkur og Bretlands fyrir not-
endur almenna gagnanetsins,
segir í frétt frá Pósti og síma.
Einkennisnúmer danska netsins
er 2382 en í Bretlandi er um tvö
númer að ræða, 2341 fyrir IPSS-
netið og 2342 fyrir PSS-netið.
Gjaldtöku verður þannig háttað,
að fyrir hvert uppkall verður tekið
kr. 0,27, hver byijuð mínúta til
Danmerkur kostar kr. 1,00 en kr.
1,60 til Bretlands og magngjald
verður kr. 1,00 fyrir hveijar byrjað-
ar 10 gagnasneiðar til beggja land-
anna. Söluskattur er innifalinn í
framangreindum upphæðum.
Gert er ráð fyrir að almenna
gagnanetið muni tengjast fleiri
löndum á næstunni.
Með vænni sneið af SS-áleggi
breytir þú venjulegu
brauði f ósvikið sælgæti
Spægipylsan
okkar var
upphaflega gerð
eftir danskri uppskrift
fyrir meira en hálfri öld.
Hún heftir síðan stöðugt verið
þróuð og aðlöguð smekk
neytenda hveiju sinni.
Aleggið írá Sláturfélaginu er ótrúlega
fjölbreytt. Við framleiðum 17 tegundir
af bragðgóðu, fítulitlu brauðáleggi úr
besta fáanlegu hráefni.
Allar matvörur Sláturfélagsins eru
framleiddar með nýtísku tækjabúnaði
undir ströngu gæðaeftirliti fagmanna.
Umbúðimar eru líka eins vandaðar og
kostur er — það cryggir hámarks
geymsiuþol.
Við kynnum hér nokkrar vinsælustu
tegundimar:
Reykt beikonskinka
er nýjung frá SS sem vakið hefur
verðskuldaða athygli.
Hún er löguð úr fituhreinsuðum svínasíöum.
Sérlega bragðgóð.
Rúllupylsan
er framleidd
samkvæmt ævagamalli
felenskri hefð og hefur verið
óbreytt í áraraðir. Sívinsæl
í ferðanestið.
Malakoff
er ódýr og fítulítil
pylsa sem við höfum framleitt
lengi við miklar vinsældir. Tilvalin í
skólanestið.
Hangiáleggið
frá SS er unnið úr sérvöldum, fituhreinsuðum
vöðvum. í það fara engin fyllingar-
eða þyngingarefhi.
Sígilt álegg sem alltaf er jafn vinsælt
Lamba- og svínciskinkumar
okkar eru einnig unnar úr völdum fitulausum
vöðvum. Þær eru bæði frábærar sem
brauðálegg og til steikingar
a pönnu.
SLÁTURFÉLAG
4?
Dallaspylsa
heitir nýjasta áleggið okkar.
Hún hefur fengið mjög góðar undirtektir
enda löguð eftir geysivinsælli
þýskri uppskrift
Frísklegt kryddbragðið kitlar vandlátustu
bragðlaukana.
SUÐURLANDS
Ólympíuleikarnir í stærðfræði:
Islenska keppnis-
sveitin skipuð
VALIN hefur veríð sveit íslendinga til þess að keppa á Ólympíuleik-
unum í stærðfræði í Varsjá dagana 8.—15. júlí í sumar. í sveitinni
eru: Arí Krístinn Jónsson MR, Fjóla Rún Björnsdóttir MH, Geir
Agnarsson MR og Sverrir Þorvaldsson MR.
Ólympíukeppnin er keppni nem- Ólympíuleikanna. Fararstjóri fyrir
enda á framhaidsskólastigi, þeirra íslenska liðinu verður Benedikt Jó-