Morgunblaðið - 14.05.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR14. MAÍ 1986
19
Það er eins gott að hlutarnlr falli hver að Sðrum. Forsteyptri lofteiningu komið fyrir.
Steypulag ofan á einingamar styrkir húsið gegn jarðslgálfta.
inni á milii hæða verða rennistigar
og lyftur og sjá Bræðurnir Ormsson
og Héðinn hf. um að útvega það.
Vel verður séð fyrir næringarþörf
þeirra, sem leggja leið sína á stað-
inn, því þrjú veitingahús verða í
suðurenda hússins: skyndibitastað-
ur, kaf&hús og veitingastaður með
sérrétti.
Verður skyndibitastaðnum skipt
í deildir, sem hver verður með sína
tegund matar. í einni verða t.d.
kjúklingar, í annarri ftalskir réttir,
í enn einni hamborgarar o.s.frv.
Tómas Tómasson veitingamaður
á Sprengisandi mun reka veitinga-
hús, sem verður hlekkur í Qölþjóð-
Iegri keðju, Hard Rock Café.
Brauðgerðarfyrirtækið Myllan
mun svo sjá um rekstur kaffihúss-
ins.
Ekki eiga gestir verslunarmið-
stöðvarinnar að þurfa að óttast
andarteppu af loftleysi. í húsinu
verða tíu stórir klefar fullir með
margbrotinn útbúnað til loftræst-
ingar. Lætur nærri að hver klefi
sé á stærð við meðaleinbýlishús.
Og til þess að þessi heimur út
af fyrir sig verði sem allra vistleg-
astur, verður gróður um allt, eins
og áður er sagt, límtrésbitar í viðar-
litum verða i loftunum og litir allir
mildir. Er ekki að efa, að verslunar-
aðstaða þessi verður ýmsum kær-
komin- í rysjóttu tíðarfarinu hér
norður við Dumbshaf.
Bilastæði á þremur
hæðum
Og víst búast eigendur verslan-
anna við einhverjum gestagangi
því vestan hússins er gert ráð fyrir
stæðum fyrir 1.400 bíla. Við norð-
urendann verða stæðin á þremur
hæðum og lofthæðin þar 3,5 m.
Meðfram tveggja hæða Iengjunni
verða bílastæðin einnig á tveim
hæðum og lofthæðin þar 5 m. Snjó-
bræðslukerfi verða í öllum stæðun-
um.
Framkvæmdir við bílastæðin eru
ern ekki hafnar en tekið verður til
við þær í sumar og verða 1.000
stæði tilbúin þegar miðstöðin verður
opnuð næsta sumar. Aætlað er að
þau verði orðin 1.400 eftir þijú ár.
Umferð að stæðunum og frá á að
vera greið og munu þijár akreinar
liggja að þeim.
Samið hefur verið við Thomas
Enok Thomsen pípulagningameist-
ara um pípulagnir í húsið. Útboð
vegna loftræstilagna hefur farið
fram og verður gengið frá samning-
um um það á næstunni. Þá verða
raflagnir boðnar út næstu daga.
„Skemmtilegt verk“
„Þessi verslunarmiðstöð er eitt
allra skemmtilegasta verkefni, sem
Byggðaverk hefur fengist við,“
sagði Kristján Stefánsson. „Það er
svo óendanlega fjölbreytt; hér þarf
að glfma við flest það sem fyrir
getur komið í einni byggingu. Til
þess að gefa hugmynd um umfang
verksins, er kostnaðaráætlun svip-
uð þeirri, sem gerð hefur verið fyrir
kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði
án véla, og þetta hafa íslenskir
verktakar leyst af hendi og sannað
með því hæfni sína.“
Og þá verða menn bara að bíða
þolinmóðir eftir því, að herlegheitin
komist í gagnið.
Rannsóknarstofnun byggíngariðnaðarins
kannar endíngu einangrunarglers. Áríð 1977 var bírt
samantekt um bilanir f rúðum sem settar voru í árið 1969.
Engin rúða frá Thermopane hafði bilað á þeim tíma.
Aftur var bírt samantékt árið 1984.
Hun sýndi að í ölhim tílfellum er bilanatíðni .
Thermopaneglersins undt meðaltali.
Þurfir þá að endumÝja einangrunargler, hafðu þá þessar
staðreyndir í huga.
sjFie/iinofitinc
Glerverksmiðjan Esja hf.,Völuteig 3 *270 Mosfellssveit, Sími 666 160.