Morgunblaðið - 14.05.1986, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 14.05.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1986 21 verið vel gert í þeim efnum en þó þyrfti að taka þau mál tökum og leggja mun meiri áherslu á þjálfun og þekkingu í sölutækni. „Dettur nokkrum í hug, “ sagði hann, að gera mann að skipstjóra á fiskiskipi, sem ekki hefði stundað sjómennsku um tíma og aflað sér skipstjórnar- menntunar og öðlast reynslu undir handatjaðri reyndra manna? Dettur nokkrum í hug að senda íþróttalið í alþjóðlega keppni á erlendri grund nema einstakir liðsmenn og liðið í heild hafi fengið nauðsynlega þjálf- un og herslu og sýnt fram á að það væri líklegt til þess að geta mætt erlendri samkeppni? Líklega ekki. En á nýjum sviðum hugsum við allt öðruvísi. Við sendum lið til söngvakeppni í fyrsta sinn og erum í þjóðarsorg vegna þess að okkur tekst ekki að komast nálægt toppn- um. Þar eigum við í samkeppni við margreynd og þjálfuð lið atvinnu- manna, sem kunna sitt fag af langri reynslu og þátttöku í slíkri keppni og öðrum svipuðum. Markaðsstarf- semi í þeirri mynd sem hún er að þróast í dag, er tiltölulega ný at- vinnugrein og námsgrein. Við ger- um svipuð mistök þar og í söngva- keppninni. Við ætlumst til þess að reynslulítið fólk skili hámarks- árangri með lítilli sem engri þjálfun. Hér kemur eðlilega til skortur á slíku fólki, þannig að fyrirtæki neyðast til þess að taka óreynt fólk til starfa, en það er þó ekki öll skýr- ingin. Stóru útflutningsfyrirtækin hafa ekki skipulagt þjálfunamám fyrir fólk til starfa að markaðsmál- um innan sinna samtaka." Þráinn sagði að á undanfömum ámm hefði afli landsmanna tvöfald- ast með 4—5% aukningu á ári, en ekki væri hægt að reikna með slíku áfram og því hlytu menn að beina augum sínum að því að fullvinna okkar afurðir, sem í dag em fluttar út til fullvinnslu hjá öðmm þjóðum. Jafnframnt því yrðum við að þróa öflugan tækniiðnað sem gmndvall- aðist á veiðum og vinnslu fisk- afurða. „Markmið okkar," sagði Þráinn, „á að vera að skapa okkur viðurkenningu í umheiminum á því að vera fremst í flokki í sölu fisk- afurða, ferskra, frosinna og í neyt- endapakkningum. Einnig þurfum við að afla okkur viðurkenningar á því að tæknin við að veiða og vinna fískafla er háþróuðust á íslandi. Inn í þessa ímynd myndu síðan fléttast ótal aðrir þættir eins og tölvutækni, ráðgjafarstörf, björgunartæki og vinnufatnaður svo eitthvað sé nefnt." Keppt að háu markaðsverði Að loknum framsöguerindum tóku umræðuhópar til starfa og urðu þar mjög líflegar umræður og menn skiptust á skoðunum. Um- ræðustjórar gerðu síðan grein fyrir helstu niðurstöðum umræðuhóp- anna áður en pallborðsumræður hófust. Þórhallur Jóhannsson gerði grein fyrir umræðuhópnum sem fjallaði um útgerð og fískvinnslu. Niðurstaða þar var sú, að tilkoma kvótakerfísins hefði leitt til þess að útgerðin legði nú meira kapp á að fá hátt markaðsverð fyrir afurðim- ar. Mönnum kom saman um að hæfílegur gámaútflutningur í sam- ræmi við aðra vinnslu væri til góðs og þriðja atriðið, sem lögð var áhersla á, var að olíuverðslækkunin hefði gjörbreytt rekstrargrundvelli útgerðarinnar til hins betra og það skilaði sér á ýmsan hátt til fisk- vinnslunnar. Varðandi fiskvinnsluna kom umræðuhópnum saman um að hún stæði höllum fæti fjárhagslega í dag og kæmi þar til lækkun dollarans samfara uppsöfnuðum fjármagns- kostnaði vegna taprekstrar fyrri ára svo helstu atriði séu nefnd, en einn- ig taldi hópurinn Ijóst að kostnaðar- liðirnir hefðu aukist mjög mikið. Þó væri grundvallaratriðið það að fiskvinnslan gæti greitt fyrir aflann það hátt verð að útgerðin gæti staðið undir sér. Þá kom það fram hjá heimamönnum að fiskvinnslan þyrfti af fremsta mesmi að tækni- Þráinn Þorvaldsson og Hallgrímur Guðmundsson ráðstefnustjóri. væðast og í mörgum tilvikum sér- hæfast, því fyrirsjáanleg væri fækkun mannafla í fískvinnslu. Þá taldi umræðuhópurinn ástæðu til þess að menn gerðu sér grein fyrir þvf í þessu sambandi að fískneysla í heiminum er að aukast og ef við berum gæfu til að leyfa fiskstofnun- um að vaxa svo við getum aukið afla og þar af leiðandi afurðamagn, þá mun atvinna í landinu aukast. Hins vegar varaði umræðuhópurinn við sívaxandi samkeppni físk- vinnsluaðila um hráefnið, því það væri ekki alltaf til góðs, en aftur á móti vildi hópurinn leggja á það áherslu að bæði útgerð og físk- vinnsla yrðu að geta skilað hagnaði, annað væri óskynsamlegt í alla staði. Sköpum skilyrði fyrir uppbygg'ingoi atvinnu- lífsins Sturlaugur Þorsteinsson var umræðustjóri í hópnum sem fjallaði um iðnað og markaðssetningu. Fyrsta atriðið, sem sá hópur lagði áherslu á, var mikilvægi þess að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu atvinnulífsins í framkvæmdamögu- leikum og íjármagni. Þá fjallaði hópurinn um aukna eftirspum eftir fískmeti og nauðsyn þess að fylgja slíku eftir. Hópurinn taldi að styrk- leiki Hafnar í Homafirði í þessum efnum væri matvælaframleiðsla, fiskurinn og eftirspumin eftir hon- um, möguleikar í ferðamálum og nálægð Evrópu gagnvart mörkuð- um. Hins vegar taldi hópurinn að fjarlægðin frá Reykjavík væri veik- leiki. Þá taldi hópurinn að það væri tiltölulega auðvelt að ná fjármagni saman á Höfn til arðbærs atvinnu- lífs, hópurinn benti á mikla mögu- leika til fískiræktar, nýtingu fjalla- grasa og fleira sem í náttúrunni byggi, en höfuðáherslu lagði hópur- inn á að tjalda ekki til einnar nætur, heldur hugsa til lengri tíma í öllu er lyti að ákvörðunum í upp- byggingu atvinnulífsins. Grein: Árni Johnsen Ari Jónsson Sturlaugur Þorsteinsson stjórn- Björn Grétar Sveinsson formað- aði skipulagningu og fram- ur Verkalýðsfélagsins Jökuls. kvæmd ráðstefnunnar. Sveinn Hjartarson og Albert Eymundsson ráðstefnustjóri. Víglundur Þorsteinsson Morgunblaðið/Haukur á Höfn. Þórhallur Jóhannsson 5.940 KAUPTU TVOÁ 11.000 DELTA-stóllinn með Ijósri furu- beygðri beykigrind og þykku Ijósu 100% bómullarefni. Phúsgagntiiöllin ÍBEBBS BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.