Morgunblaðið - 14.05.1986, Page 52
Fjármálaráðherra:
Ætlar að selja
Vallhólm hf.
FJARMÁLARAÐHERRA Þorsteinn Pálsson ákvað í gær að augiýsa
til sölu grasköggiaverksmiðjuna Vailhólm hf. í Skagafirði, en fjár-
hagur fyrirtaekisins hefur verið mjög bágur að undanfömu og hefur
verið samþykkt greiðslustöðvun á fyrirtækið.
„Við ákváðum í dag að selja
grasköggiaverksmiðjuna Valihólm
hf. í Skagafirði,“ sagði Þorsteinn
Pálsson Qármálaráðherra í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gær. Fjármálaráðherra sagði að
samþykkt hefði verið greiðslustöðv-
un á fyrirtækið, og ríkið myndi nú
auglýsa verksmiðjuna til sölu. Þor-
steinn sagði að leitað yrði eftir tii-
boðum í verksmiðjuna nú á næst-
unni.
Fj ármálaráðherra var spurður
hvað hann gerði sér vonir um að fá
fyrir Vallhólm: „Það verður bara að
koma í ijós,“ sagði Þorsteinn, „við
munum meta þau tilboð sem berast
þegar þar að kemur, en á þessu stigi
er ekkert hægt að segja til um það.“
Keflavíkurflugvöllur:
Islendingar hand-
teknir fyrir að tala
um sprengjur í gríni
TVEIR islenskir starfsmenn
vamarliðsins á Keflavíkurflug-
velli voru i gær teknir fastir
vegna orða sem annar þeirra
sagði í grini við hermenn við
gæsiustörf er þeir voru á leið á
hefði verið misskilningur á milli
manna sem hefði verið leystur og
bjóst hann ekki við neinum eftirmál-
um vegna þessa atburðar.
Morgunblaöið/Bára
Nokkur tré i Fógetagarðinum voru rifin upp með rótum í gær. í stað þeirra verður plantað nýjum
trjám af sömu stærð eða stærri.
FÓGETA GARÐ URINN END URBÆTTUR
VEGFARENDUR ráku margir hveijir upp stór
augu i gær er verið var að rifa stór tré upp
með rótum i Fógetagarðinum við Aðalstræti í
Reykjavík.
Að sögn Theódórs Halidórssonar verkstjóra hjá
Reykjavíkurborg standa nú yfir endurbætur á Fóg-
etagarðinum. Trén sem voru ijariægð voru mjög illa
farin og var því ákveðið að pianta nýjum tijám í
þeirra stað. Þau verða jafnstór þeim sem fyrir voru
eða jafnvel enn stærri. í garðinum verður einnig
komið fyrir minnisvarða og göngustfgum verður
breytt. Theódór sagði að þrátt fyrir endurbætumar
yrði garðurinn áfram með svipuðu sniði.
miiii vinnustaða á varaarsvæð-
inu. Menn frá embættí iögregiu-
stjórans á Keflavíkurflugvelli
voru kallaðir á vettvang og var
mönnunum sleppt eftir að tekin
hafði verið af þeim skýrsla á
lögreglustöðinni.
íslendingamir em starfsmenn
flutningadeildar vamarliðsins og
vinna meðai annars við að dæla upp
úr klósettum. Að sögn Ólafs I.
Hannessonar setts Iögreglustjóra á
Keflavíkurflugvelli vom þeir á leið-
inni inn á sérstakt afgirt svæði á
vellinum til að hreinsa eina af
AWACS-ratsjárflugvélum banda-
ríska hersins sem þar var geymd.
í hliðinu var bíllinn skoðaður eins
og venja er af varðmönnum. Þegar
verðimir höfðu gefið þeim leyfi til
að halda áfram lét annar ísiending-
urinn einhver orð falla um sprengju,
„no bomb“ eða eitthvað þessháttar,
og varð það til þess að Bandaríkja-
mennimir stöðvuðu bílinn tafar-
laust og tóku íslendingana fasta.
íslendingamir vom ekki með skil-
ríki á sér. Ólafur sagði að þetta
Tekur SIF að sér
alla skreiðarsölu?
Víðtækt fylgi við því að skreiðarsalan komist á eina hendi
NOKKRAR líkur eru nú á þvi að Sölusamband íslenzkra fískframleið-
enda taki að sér sölu á allri skreið í landinu. Fylgi er fyrir þvi hjá
tveimur af þremur stærstu skreiðarútflytjendunum, Samlagi skreiðar-
framleiðenda og Sjávarafurðadeild Sambandsins, en Sameinaðir
framleiðendur eru á mótí þessu. Bankarair eru fylgjandi þessari
breytingu og viðskiptaráðherra, Matthías Bjarnason, segist opinn
fyrir þessari tilraun.
,Ég tel að flestir vilji fá skreiðar-
söluna undir einn hatt Menn em
orðnir langþrejdtir á þessum erfið-
leikum með söluna. Það hefur ekk-
ert gengið og þá dettur flestum SÍF
í hug, en SIF er ekki að sækjast
eftir þessu. Við munum hins vegar
taka við skreiðarsöiunni, verðum
beðnir um það, en aðeins með því
skilyrði að salan verði eingöngu á
okkar vegum,“ sagði Dagbjartur
Einarsson, stjómarformaður Sölu-
Stjómarkjörí Þróunarfélags frestað vegna ágreinings:
„Ekki staðið við upp-
haflegt samkomulag“
— segir Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra
EKKI HORFIR vænlega í samkomulagsátt hvað varðar sijórnarkjör
{ Þróunarfélagi íslands. Aðaifundi félagsins var frestað í gær um
einn mánuð að tillögu dr. Jóhannesar Nordal seðlabankastjóra og
fleiri, því ekki þótti sýnt að friðsamleg kosning í stjóra félagsins
gæti farið fram. Höfuðágreiningurinn stendur um það hvort Steingrim-
ur Hermannsson forsætisráðherra skuli einn fara með atkvæði rikis-
sjóðs, en ríkissjóður á 100 milijónir af Iiðlega 350 milljón króna hluta-
fé félagsins. Eru margir sjálfstæðismenn, þar á meðal formaður Sjálf-
gtæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, þeirrar skoðunar að forsætisráð-
herra haf! brotíð munnlegt samkomuiag frá sl. hausti, þess efnis að
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins skuli fara með 50% atkvæða ríkissjóðs.
Eftir því sem Morgunbiaðið kemst
næst verður það nú reynt til þrautar
á næsta mánuði að ná samkomulagi
stjómarflokkanna um þetta mál, svo
friður fáist um störf félagsins, sem
báðir stjómarflokkar, svo og fulltrú-
ar atvinnulffsins, telja að geti reynst
íslensku atvinnulffí mjög dýrmætt,
takist vel til um störf félagsins. Auk
þess munu sjálfstæðismenn leita
eftir því á næsta mánuði að reglum
um stjómarkjör félagsins verði
breytt, þannig að um hlutfallskosn-
ingu verði að ræða. Er talið að fram-
sóknarmenn muni reynast andvígir
slfkum breytingum.
„Það hefði verið vænlegra til þess
að friður haldist, að forsætisráðherra
hefði staðið við það samkomulag
sem upphaflega var gert,“ sagði
Þorsteinn Pálsson Qármálaráðherra
m.a. í viðtali við Morgunblaðið í gær.
Sjá nánar bls. 4.
sambands íslenzkra fiskframleið-
enda.
„Sala skreiðar er nú fijáls og
viðskiptaráðuneytið gefur með
ánægju útflutningsleyfi hveijum
þeim, sem getur selt skreiðina. Ef
framleiðendur vilja söluna á eina
hendi, verður það tekið til athugunar
hér og ég er opinn fyrir þeirri til-
raun,“ sagði Matthías Bjamason,
viðskiptaráðherra.
„Okkur dreymir um að skreiðar-
salan komist á eina hendi og emm
því hlynntir að SÍF taki söluna yfír.
Til þessa höfum við ekkert haft
nema skaðann af því að vera of
margir í útflutningnum,“ sagði Ólaf-
ur Bjömsson, stjómarformaður
Samlags skreiðarframleiðenda.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar
Sambandsins, sagði, að þessi hug-
mynd hefði verið til umræðu meðal
framleiðenda á vegum deildarinnar.
Tilfinning hans væri sú, að þeir
hefðu áhuga á því að beina sölu
skreiðarinnar í einn farveg. Formleg
afstaða hefði hins vegar enn ekki
verið tekin, en áríðandi væri, að
algjör samstaða yrði um þessa
breytingu, ætti hún að verða að
veruleika.
„Stjómendur Seðlabankans em
fylgjandi því að einn aðili annist
sölu skreiðarinnar og stjómendur
viðskiptabankanna munu á sömu
skoðun. Það hefur verið lítill árang-
ur af tilraunum manna til sölu
skreiðarinnar til Nígerfu um langt
skeið og því ástæða til að reyna
þetta, þó ekki sé vist að vandinn
leysist á þennan hátt. 3ankamir
eiga mikið fé bundið í skreiðar-
birgðum, sem til mikilla bóta væri
að iosa. Auk þess veldur langur
geymslutími framleiðendum veru-
legum búsifjum og við viljum því
stuðla að því að lausn náist,“ sagði
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri.
Afurðalán, sem á skreiðarbirgð-
um í landinu hvíla, nema hundruðum
milljóna, en talið er að verðmæti
birgðanna sé eitthvað á annan millj-
arðkróna.
Flugleiðir:
Beint flug
til Orlando
FLUGLEIÐIR hefja beint
áætlunarflug milli Islands og
Orlando á Flórída í desember
næstkomandi. Félagið er með
áætlunarflug tvisvar i viku á
milli Lúxemborgar ' og Or-
iando, án viðkomu á íslandi,
og verður beina flugið frá
íslandi þríðja flug Flugleiða
til Orlando i viku.
Sæmundur Guðvinsson frétta-
fulltrúi Flugleiða segir að flugið
frá Evrópu til Orlando hafi
gengið mjög vel og mikið bókað
fram eftir ári. Flugleiðir hefðu
því sótt um að bæta þriðju ferð-
inni við og nýlega fengið heimild
til þess þrátt fyrir mikla and-
stöðu bandarísku flugfélaganna.
Félagið hefði hins vegar fengið
góðan stuðning ferðamálayflr-
valda í Orlando og fleiri aðila.