Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR L JÚNÍ 1986
Ch 28r
Nýja stofan
stendur við
Ráðhústorg
30 í Osló.
Islendingur tekur eitt hæsta próf
í hárskurði sem um getur í Noregi
mar Diðriksson tók nú í vor
eitt af hæstu sveinsprófum í hár-
skurði, sem tekið hefur verið í
Noregi til þessa og hlaut hann af
því tilefni viðurkenningu, sem að-
eins hefur verið veitt tvisvar sinnum
áður á sl. 70 árum. Síðast voru
þessi verðlaun veitt árið 1965. Við
útskrift Iðnskólans í Osló í Ráð-
húsinu 6. maí sl. flutti m.a. þáver-
andi forsætisráðherra Noregs, Káre
Willoch, ræðu. Auk verðlaunanna
fékk Ómar sem svarar 30.000 ís-
lenskum krónum frá Iðnaðarbanka
Noregs sem viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur.
Ómar er 24 ára gamall og rekur
nú eigin stofu í Osló sem hann
opnaði f febrúar sl. Ómar nefndi
hana „Tin Tin“ eftir aðalpersónu
Tinnabókanna. „Ég flutti til Noregs
í júlí 1983 eftir að hafa lokið bók-
lega náminu í Iðnskóla Reykjavíkur
og var ég þá á samningi á Rakara-
stofunni á Klapparstíg. Mér var
boðin vinna á stofu í Osló og tók ég
því en átti þá eftir sex mánuði af
samningnum til að ég gæti tekið
sveinsprófíð. Mér var neitað um að
taka sveinsprófið heima þar sem
mig vantaði þetta upp á samninginn
svo ég sótti um að fá að taka prófið
utanskóla í Osló - að vísu gerði ég
mikið til þess að fá að taka prófið
heima þar sem ég hélt að það yrði
léttara," sagði Ómar í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Á „Tin Tin“ starfa auk Ómars
tvær norskar stúlkur og ein íslensk.
„Reksturinn gengur ágætlega - ég
var reyndar búin að fá smá reynslu
þar sem ég rak stofuna sem ég
vann á áður í Osló í eitt ár fyrir
eigandann. Mig langar oft til ís-
lands en maður hefur það miklu
betra hér í Noregi íjárhagslega séð
og eins líkar mér vel hér. Það er
auðveldara að koma sér áfram,“
sagði Ómar.
Hann hyggur á meistaragráðuna
í hárskurði næsta vetur og sagði
hann að það nám kæmi sér að góðu
gagni þar sem farið yrði inn á
fyrirtækjarekstur, bókhald og ann-
að slíkt. Þá er Ömar að fara að
vinna fyrir franska fyrirtækið Lore-
al, sem bauð honum starf fyrir
stuttu er menn frá fyrirtækinu
héldu námskeið á „Tin Tin“ fyrir
hárgreiðslufólk. „Ég mun fara um
Noreg og jafnvel til annarra landa
til þess að kynna hárgreiðslufólki
nýjustu tískulínumar í hárskurði.
Tveir og tveir starfa saman að
þessum námskeiðum og kem ég til
með að sjá um verklega þáttinn og
sá er verður með mér um fræðilega
hlutann varðandi vörumar. Þetta
er spennandi verkefni sem gefur
mér færi á að kynnast ýmsum nýj-
ungum. Fyrsta námskeiðið mitt
verður haldið 25.-27. ágúst nk., sem
verður jafnframt einskonar reynslu-
tími,“ sagði Ómar.
COSPER
©PIB
iom____________________________ COSPER
— Það er allt i hönk. Þeir hafa byggt stórmarkað þar sem við
grófum peningana.
Meðan heimsmeistarakeppnin ífótbolta
stendur yfir í Mejdco býður Sjanghæ
kínverskar kræsingar með æsispennandi
afslætti:
1. Tvær vorrúllur með súrsætri- eða
karrýsósu, hrísgrjónum og salati kr. 195
2. Steikt hrísgrjón Sjanghæ kr. 350
3. Lambakarrý með hrísgrjónum kr. 425
4. Kjúklinga chop-suey með hrísgrjónum kr. 525
5. Nautakjöt m/lauk með hrísgrjónum kr. 525
Barnaskamm tar á hátfvirði.
Að öðru leyti er matseðillinn að sjálfsögðu í
fullu gildi.
Við seljum út og sendum heim.
Kínverska veitingahúsið, Laugavegi 28
sími 16513
Þeir velja rétt er
VCombi Camp
tjaldvagnar
Benco
Bolholti 4
Allt í bílinn _
8K£3USt
Siðumúla 7-9, * 82722
á Monroe Radial Matic
Monroe Gas Matic
Monroe Magnium
Monroe Super Strut
Oruggt grip með Monroe
¥MONROEF
saasaa—aasssaaawcaasa——cssssSmm——ígassssaausja