Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1986 Svefnbekkir m/dýnum, og 3 púðum og hillum Öil húsgögnin eru spónlögð með eikarfólíu sem er mjög slitsterk og auðvelt að þrífa. Svo koma þau einnig hvít. 30% útborgun og afgangurinn á 6 mánuðum. 5% stað- greiðsluafsláttur og svo eru kreditkortin að sjálfsögðu tekin sem staðgreiðsla og útborgun á samningi. ^húsgagnahöllin gaasaa BÍLDSHÖFÐA 20-H2 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410 Hljómræn íliugiin Sveinbjöm I. Baldvinsson Herbie Hancock á Broadway á f immtudagskvöld Herbie Hancock, einn frægasti og virtasti djasspíanisti okkar daga, hélt einleikstónieika á veg- um Listahátíðar sl. fímmtudag. Hann var ekkert að flýta sér. Það var ekki fyrr en upp úr tíu sem hann birtist loks á diskósviðinu í Broadway og bðrunum í húsinu var lokað. Honum var að vonum vel fagnað af fullu húsi áheyr- enda. Píanóleikur Hancocks er im- pressíónískur og iðulega líkt og draumkenndur, að minnsta kosti réð sá andi ríkjum þessa kvöld- stund hans við flygilinn. En eins og flestum er kunnugt er Hancock ekki síður þungavigtarmaður í fönktónlist og blökku rokki þegar hann vill það við hafa. En sem sagt, svona einn og sér leikur hann sér meira með raddsetningar og hlóma en exótískar synkópur. Eins og fram hefur komið er það næsta sjaldgæft að Hancock haldi hljómleika af þessu tagi og því urðu tónleikagestir vitni að vissum djasssögulegum viðburði þetta kvöld. Þeir sáu og heyrðu Hancock sjálfan spila það sem hugsanlega stendur hjarta hans næst. Og það er nú alltaf nokkuð mikiis virði að kynnast stórmenn- um á listasviðinu þannig. Og stundum gaman líka. Það var gaman að kynnast Herbie Hancock. Hann lék lög af ýmsum gerðum þetta kvöld og ég held að óhætt muni að fullyrða að þrátt fyrir misjafnan smekk manna hafí áheyrendur allir farið heim á leið þetta kvöld heldur sælli í sinninu en áður. Hancock hóf tónieikana með laginu Footprints og hélt sig við impressíónismann með Dolphin Dance. Síðan brá hann á leik og lék stutt trommusóló á innviði flygilsins. Atriði af þessu tagi þóttu verulega framsækin fyrir nokkrum árum og menn voru fjarskalega alvarlegir á sviðinn yfír þeim, bæði ffemjendur og neytendur. Núna er þetta löngu komið úr móð sem framúrstefna Herbie Hancock í Broadway. en orðin hin besta skemmtun og tilbreyting í staðinn. Hancock gerði sér fuila grein fyrir þessu þegar hann flutti hina riþmísku húmoresku sína. Síðasta verk fyrir hlé var svo My Funny Valtentine en það ágæta lag þeirra Rodgers og Hart er mjög ofarlega á baugi meðal djassista um þessar mundir. Túlkun Hancocks var engu lík sem ég hef heyrt. Ég held jafnvel að þetta hafí verið hápunktur kvölds- ins. Enda lagið vel til þess fallið að vera vettvangur tónadrauma og hljómrænnar íhugunar. Eftir hlé ávarpaði Hancock áhorfendur á íslensku við mikinn fögnuð og eftir ánægjulega við- komu í Maiden Voyage skellti hann sér í R&B verkefni og tóku þá fætur að bifast og höfuð að vagga í salnum. Lokalagið var Autumn Leaves og gekk nú mikið á í vinstri hendi. Hið síðara tveggja aukalaga var valsinn Somdeday My Price Will Come og að því loknu hvarf þessi frægi djassprins af sviðinu og áheyrendur risu brosleitir úr sætum sínum og héldu heim, ánægðir með viðkynninguna. Happdrætti hjálparsveita skáta: Haft samband við vinningshafa LANDSSAMBAND hjálparsveita skáta efnir þessa dagana til stór- happdrættis til eflingar starf- semisinni. Happdrætti þetta er þáttur í því markmiði hjálparsveitanna, að vera ávallt vel tækjum búnar og mannað- ar vel þjálfuðum mönnum. Verðmæti vinninga er 11,6 millj- ónir og Qöldi vinninga 3.135. Vinn- ingur kemur á 62. hvem miða og verður haft samband við vinnings- hafa persónulega. Meðal vinninga em 15 Ford Escort-bifreiðir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.