Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 198& 25 Lúxemborg hafnaði hlutleysi og gekk í Atlants- hafshandalagið Saga lands og þjóðar einkenndist af sífelldum innrásum og styrjöldum. Á svæði því sem I dag nefnist Lúxemborg bjuggn fyrir daga Rómveija Keltar og Gallar. Eftir fólksflutningana miklu og innrás Rómverja í Evrópu varð þetta svæði mjög mikilvægt fyrir rómverska heimsveldið. Ástæðan var sú að um það lágu þrír aðalvegir rómverska keisaradæmisins; vegirnir frá Lyon og Rheims til Trier og vegurinn frá Metz til Kölnar. Þess má geta að enn þann dag í dag stendur norðurhlið rómarveldis „Porta negja“ í Trier og er eitt best varðveitta mannvirki þessa tima í Mið-Evrópu. Berg-kastali opinber bústadur hertogahjónanna IÞessu héraði var stundaður landbúnaður frá örófí alda. Atvinnuhættir breyttust iít- ið þrátt fyrir innrás Róm- vetja. Framleiðslan jókst þó að miklum mun vegna þeirrar tækni, sem þeir fluttu með sér og var sú aukning mest í vínyrkjunni, sem stunduð var í hlíðum Mósel- dalsins. Einnig var talsvert um handiðnað, sem arfleifð úr keltn- eskri menningu, s.s. myntsláttu, járnvinnslu, steinsmíði, glerblástur og leirkerasmíði. Á þessum tíma hefst einnig þróun þess tungumáls, sem í dag er lúx- emborgíska. Vegna áhrifa frá Róm- veijum og Frökkum varð gallíska útdauð, en „lang’d’oil" festi endan- lega rætur og hefur fylgt landinu æ síðan. Rómverskra áhrifa gætir enn í lúxemborgísku og sést það best á gnægð orða og máltækja sem aldrei hafa horfið algerlega úr mál- inu. Hin raunverulega saga Lúxem- borgar sem slíkrar hefst árið 963. Þá eignaðist Sigfroid jarl af Ard- enna klett þann er Bock (Hafur- klettur) nefnist. Hóf hann þegar byggingu kastaia sem varð miðja þess bæjarkjama, sem Sigfroid nefndi Lúxemborg. Niðjar hans byggðu rammbyggt virki á næstu tveimur öldum, sem þeir vom við völd, og má enn sjá leifar af þeim mannvirkjum. Eftir að blómlegri stjómartíð Sigfroid-ættarinnar lauk tók við margra alda ánauð erlendra ráða- manna, þrotlausar styijaldir og hörmungar. Virkið Lúxemborg, eða Gíbraltar norðursins, varð að bit- beini í endalausum blóðugum bar- dögum milli Búrgund-konungs, Spánveija, Frakka, Austurríkis- manna og Prússa, sem allir vildu ná yfirráðum. Virkið var umsetið og lagt í rúst oftar en tuttugu sinn- um á fjórum öldum. Þessu róstusama tímabili lauk ekki fyrr en 1815 í Vínarborg. Þar vom örlög Lúxemborgar ráðin 1 samningi sem stórveldi Evrópu gerðu með sér. Þar var ákveðið að minnka Hertogadæmið Lúxemborg um 75%, en jafnframt var nafni þess á kaldhæðnislegan hátt breytt í Stórhertogadæmið Lúxemborg. Tilgangurinn með þessum harka- legu aðgerðum var að skapa valda- jafnvægi í Evrópu eftir það rask, sem Napólenonstríðin höfðu valdið. Þessar aðgerðir vom framkvæmdar án nokkurs samráðs við Lúxem- borgara sjálfa og í þokkabót var landið afhent Wilhelm I. prinsi af Orange-Nassau í Hollandi, til per- sónulegrar eignar. Með þessum samningi skapast hin nánu tengsl sem héldust milli Lúxemborgar og Hollands allt fram til 1890. Til marks um þessi tengsl má nefna að enn þann dag í dag eiga þessi tvö ríki sama þjóðfána. Önnur mikilvæg tímamót f sögu Lúxemborgar urðu 11. maí 1867. Þá var á alþjóðafundi í London ákveðið að Lúxemborg skyldi viður- kennd sem landfræðileg heild, er hefði sjálfstæða stjómmálalega þýðingu, en þessu hafði áður verið lofað á fundi í London 1839. Þessi ákvörðun var mjög mikilvæg fyrir framtíð landsins þar sem nú var ekki lengur hægt að færa landa- mærin fram og aftur eftir hentug- leikum. Á þessum fundi var enn- fremur ákveðið að lýsa Lúxemborg hlutlaust land, og stórveldin lofuðu að tryggja og veija það hlutleysi. En friðurinn var skammvinnur, því hlutleysið var að sjálfsögðu rofið með innrásum Þjóðveija í heims- styrjöldunum tveimur. Seinni her- setu Þjóðveija lauk þegar banda- menn frelsuðu Lúxemborg árið 1944. Sú frelsun átti stóran þátt í að Lúxemborgarar fómuðu hlut- leysi sínu árið 1948, er þeir ákváðu að ganga inn í ýmis alþjóðleg bandalög s.s. NATO og Efnahags- bandalag Evrópu, EBE. Sú ákvörð- un er forsenda þeirrar stefnu, sem Lúxemborg hefur mótað sér í utan- ríkismálum. Ootvmynd Crá Lúxemborg. var færður í nútímalegra form. Þáttur í því var að hefja margskon- ar nýjan og hagnýtan iðnað í landinu. Jafnframt þessu voru gerð- ar ráðstafanir til að auka og betr- umbæta efnahagslegt sjálfstæði sveitanna og auka rafmagnsfram- leiðslu. Stórar stíflur hafa verið byggðar víðsvegar um landið og hin mikla raforkuvirkjun í Vianden er stærsta mannvirki sinnar tegundar í Evrópu. Frá félagslegu sjónarhomi hefur Lúxemborg notið mikillar farsæld- ar. Engin verkföll hafa átt sér stað frá því fyrir stríð og atvinnuleysi var í lágmarki þar til í olíukreppunni árið 1975. Þrátt fyrir þá örðugleika sem fylgdu þá í kjölfarið hefur atvinnuleysi lítið aukist. Má það að miklu leyti þakka ráðstöfunum sem ríkisstjómin gerði undir nafninu „Luxembourg Model". Þessar ráð- stafanir fela í sér að ríkið greiðir á móti atvinnurekendum hluta launa þeirra launþega, sem annars væri ekki hægt að halda í fullu starfi. Með þessu móti er mestu hægt að koma í veg fyrir tímabundið at- vinnuleysi og uppsagnir vegna ónógrar vinnu. Við íslendingar, sem eigum heimili okkar hér í Lúxemborg, Hertogahöllin, byggð 1573. erum sannarlega ekki einu útlend- ingamir í landinu. Samkvæmt síð- ustu tölum em um 30% íbúa lands- ins útlendingar, flestir frá Portúgal, Ítalíu og Júgóslavíu. Þessi stað- reynd skiptir Lúxemborgara litlu máli og þeim hefur tekist að halda í heiðri hinum ýmsu þjóðlegu hefð- um. Kirkjan á ekki síst stóran þátt í því, því Lúxemborg er kaþólskt land og gætir áhrifa þess hvarvetna í landinu. Lúxemborgíska er hið talaða mál í landinu, en opinber rituð mál hafa fram til þessa verið franska og þýska. Árið 1983 vom samþykkt á þingi lög um að gera lúxemborgísku eitt af þremur opinberum málum ásamt frönsku og þýsku. Fram til þessa em litlar sem engar heimildir til fyrir lúxemborgísku sem rituðu máli. Það stendur þó til bóta þar sem nýverið kom út fyrstu lúxem- borgíska orðabókin og unnið er að málfræðibók. Skólakerfið var upphaflega byggt upp af kirkjunni og alfarið í hennar höndum framan af öldinni. Kirkjan hefur enn sterk ítök, sér- staklega í barnaskólum, þrátt fyrir að kirkja og ríkisvald séu nú aðskil- in með lögum. Skólaskylda hefst við fimm ára aldur, en flest böm byija þó í leikskóla strax fjögurra ára. Fram að því er dagvistun því sem næst engin þar sem ríkisrekin bamaheimili em í algeru lágmarki. í leikskólanum fer öll kennsla fram á lúxemborgísku. Við sex ára aldur hefst námið fyrir alvöru og læra bömin fyrst að lesa á þýsku. Næsta vetur þar á eftir hefst frönskunám- ið, þannig að strax á unglingsaldri eiga allir að vera jafnvígir á þessi þijú opinbem mál. Um þrettán ára aldur byija öll börn þar að auki að læra ensku, svo þegar upp er staðið eiga til dæmis íslensku bömin að hafa fimm tungumál á valdi sínu. Höfuðborgin Lúxemborg stendur á einu fegursta bæjarstæði í Evr- ópu. Það einkennist af háum höm- mm og djúpum skógivöxnum gilj- um. Vegna þessa hefur Lúxemborg stundum verið nefnd borg hinna 95 brúa. Setja þær einkar fallegan blæ á borgina. En Lúxemborg í dag er samt fyrst og fremst borg banka. Um hundrað og þijátíu innlend og erlend bankafyrirtæki em rekin í landinu, og að auki hafa u.þ.b. sex þúsund hluthafafyrirtæki aðsetur sitt þar. Flestir bankamir hafa byggt yfir starfsemi sína með þeim afleiðingum að nýi tíminn og sá gamli haldast í hendur á óvenjuleg- an hátt. Hvarvetna er að finna menjar liðinna alda, svo sem fögur torg, kastala og byggingar frá hinum ýmsu tímum. Gönguferðir um borg- ina færa mann aftur í fomöld um leið og við augum blasa stál- og glerhallir nútímans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.