Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986
27
Tveir listar
í Hruna-
mannahreppi
Syðra-Langholti, 3. júní.
TVEIR listar verða í kjöri til
hreppsnefndarkosninganna hér í
Hrunamannahreppi sem fram
fara 14. júní.
Það er listi óháðra kjósenda,
H-listi, en fímm efstu sætin skipa:
Helga G. Halldórsdóttir, Áslandi,
Jón Stefánsson, Götu, Öm Einars-
son, Silfurtúni, Vignir Jónsson,
Auðsholti og Sigríður Jónsdóttir,
Fossi. K-lista, lista fráfarandi
hreppsnefndar Fimm efstu sætin
skipa: Loftur Þorsteinsson, Hauk-
holtun I, Ágúst Sigurðsson, Birt-
ingaholti IV, Hróðný Sigurðardótt-
ir, Dalbæ I, Kjartan Helgason,
Hvammi I og Magnús Sigurðsson,
Miðfelli V.
Þar sem ekki bárust listar vegna
kosninga í sýslunefnd verður sýslu-
nefndarmaður kosinn óbundinni
kosningu. Ekki voru listakosningar
við síðustu sveitarstjómarkosningar
hér en það virðist háð því hvemig
vindar blása um menn og málefni
hvejju sinni hvort lagðir em fram
listar. Á kjörskrá em um 380 en
íbúatalan er 530.
Sig.Sigm.
1NNLENTV
5000 króna seðillinn í
notkun á þriðjudaginn
— Ný 50 aura mynt úr koparhúðuðu stáli í umferð síðar í mánuðinum.
ÞRIÐJUDAGINN 10. júní nk.
mun Seðlabankinn láta í um-
ferð nýjan 5000 króna seðil og
verður hann þá þegar fáanleg-
ur á flestum afgreiðslustöðum
banka og sparisjóða um land
allt. Jafnframt verður í þessum
mánuði látin í umferð 50 aura
mynt úr koparhúðuðu stáli, en
eldri 50 aurar úr bronsi verða
áfram í gildi og jafnhliða í
umferð. í kynningu frá Seðla-
bankanum segir svo um þessa
útgáfu:
5000 króna seðill
Að útliti tengist hinn nýi seðill
þeirri seðlaröð, sem verið hefur í
umferð frá gjaldmiðilsskiptum í
janúar 1981. Seðillinn er teiknað-
ur hjá Auglýsingastofu Kristínar
hf. og framleiddur hjá seðlaprent-
smiðju Bradbuiy, Wilkinson & Co
í Englandi, og er útlit hans í stór-
um dráttum eins og hér segir,
sbr. auglýsingu viðskiptaráðu-
neytisins frá 26. maí sl., sem
birtist f 71. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1986.
Stærð seðilsins er 155x70 mm
og aðallitur hans dökkblár. Eins
og aðrir fslenskir peningaseðlar,
sem nú eru í umferð, er hann með
öryggisþræði og vatnsmerki, sem
er mynd af Jóni Sigurðssyni for-
seta. Á framhlið er verðgildi
greint í bókstöfum og á hvítum
reit vinstra megin er tilvísun í lög
Seðlabankans, en þar undir er
undirskrift tveggja bankastjóra
bankans og neðst nafn hans.
Númer hvers seðils er skráð
vinstra megin ofan til og hægra
megin neðan til með bókstafnum
F fyrir framan. Vinstra megin
ofan til er blindramerki, sem er
þijú lóðrétt upphleypt strik. Verð-
gildi í tölustöfum er tvítekið á
báðum hliðum.
Myndefni 5000 króna seðilsins
er allt tengt Ragnheiði Jónsdóttur
(1646-1715) biskupsfrú á Hólum,
hannyrðum hennar og kennslu. Á
framhlið er andlitsmynd af Ragn-
heiði, svo og minni mynd af manni
hennar, Gísla Þorlákssyni Hóla-
biskupi, og tveimur fyrri eiginkon-
um hans. Myndimar eru gerðar
eftir málverki í Þjóðminjasafni.
Verðgildi er skráð með útsaums-
letri úr sjónabók Ragnheiðar og
mynstur í grunni er það sama og
hún notaði í altarisklæði fyrir
Laufáskirkju í Eyjafírði, sem nú
er í Þjóðminjasafni. Á bakhlið er
mynd af Ragnheiði ásamt tveimur
nemendum hennar að skoða altar-
isklæðið. Stóll Ragnheiðar og
sjónabók eru teiknuð eftir frum-
myndum í Þjóðminjasafni og
grunnmynstur er hið sama og á
framhlið. Útsaumað fangamark
Ragnheiar er á spássíu.
50 aura mynt
Á næstunni verður látin í
umferð 50 aura mynt með breyttu
málminnihaldi. Til þessa hefur 50
aura mynt verið slegin úr bronsi,
en 50 aurar með ártalinu 1986
og þeir sem síðar kunna að verða
slegnir verða úr koparhúðuðu
stáli. Útlit og stærð nýju auranna
er að öllu leyti óbreytt frá því sem
verið hefur, en þeir eru aðeins
léttari eða 2,65 gr. í stað 3,00
gr. áður. Þeir eru hins vegar mun
ódýrari í framleiðslu og kosta kr.
0,47 hver peningur, en úr bronsi
væru þeir um 40% dýrari.
Islenska sjónvarpsfélagið í 1100
fermetra húsnæði á Krókhálsi 6
ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið hf.
hefur tekið á leigu 1100 fermetra
húsnæði á Krókhálsi 6, sem er
nýbygging í eigu Plastos hf. Um
er að ræða þriðju hæð í húsinu,
sem er nú fokheld, en forráða-
menn sjónvarpsfélagsins hyggj-
ast innrétta hæðina í sumar þar
sem áætlað er að útsendingar
þaðan hefjast í september. Val-
gerður Matthíasdóttir, arkitekt,
hefur verið ráðin hönnuður.
Jón Óttar Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri, sagði í samtali við
blaðamann, að annað leiguhúsnæði
hefði komið til greina sem aðsetur
sjónvarpstöðvarinnar; Hverfisgata
46 eða húsnæði Osta- og smjörsöl-
unnar, sem íslenska útvarpsfélagið
hefur nú þegar fengið til umráða.
Þá kom til greina að kaupa 800
fermetra bakhússkemmur við Ár-
múla6.
„Þetta húsnæði hér á Krókhálsi
er óskahúsnæði," sagði Jón Óttar.
„Það er stórt og hefur mikla loft-
hæð. Allt er á sömu hæðinni. Það
er sérinngangur auk þess sem hægt
er að keyra beint inn af götunni
bak við húsið í þann hluta sem
kemur til með að verða okkar aðal-
upptökustúdíó. Sá kostur er sér-
staklega góður nú þegar við förum
að fá allan tækjabúnaðinn og síðar
þegar við þurfum á öðrum hlutum
að halda í sambandi við innlenda
dagskrárgerð og slíkt."
Islenska sjónvarpsfélagið hóf
starfsemi sína formlega í janúar
1985 og sitja þrír menn í stjóm
þess; Jón Óttar, Hans Kristján
Ámason og Eyjólfur K. Sigurjóns-
son. Fyrirtækið byijar fyrstu út-
sendingar á Heimilissýningunni 28.
ágúst nk. Dagskráin verður að hluta
til ótmfluð með auglýsingum og
geta notendur á Faxaflóasvæðinu
náð þeim útsendingum með núver-
andi loftnetum. Síðari hluti kvölds
verður tmflaður án auglýsinga og
til þess að ná þeim útsendingum
þurfa notendur sérstakan af-
ruglara, sem þeir fá afhentan gegn
ákveðnu stofngjaldi um leið og þeir
gerast áskrifendur.
Fyrirtækið hefur þegar tryggt
sér réttindi á efni nokkurra gervi-
hnattastöðva. Auk þess hefur það
tryggt sér sýningarrétt á nýlegum
kvikmyndum frá Bandaríkjunum og
Bretlandi, að sögn Jóns Óttars.
Meðal efnis em framhaldsmynda-
þættirnir Dynasty og Dallas auk
ýmiss konar menningarefnis svo
sem frá BBC og öðmm sjónvarps-
stöðum utan hins enskumælandi
heim.
Jón Óttar sagðist fagna hvers
konar samkegpni. „Samkeppni er
af hinu góða. Útvarpsstjóri Islenska
útvarpsfélagsins var nú síðast í
vikunni að lýsa yfir áhuga sínum á
sjónvarpsrekstri og emm við hvergi
smeykir við það. Við höfum þegar
hrist af okkur þá aðila sem áhuga
höfðu í upphafi á sjónvarpsútsend-
ingum, m.a. ísfílm og Rolf Johansen
og munar okkur ekkert um einn í
viðbót,“ sagði Jón Óttar.
-Míele^
uppþvottavélar
Frá kr. 33.530 staðgreitt
Hefurðu heyrt hvað þær eru hljóðlátar?
Veistuhvaðuppþvotturí IVlÉolo
kostar?
æJÓHANN ÓLAFSS0N & C0
43 Sundaborg 104 Reykjavík. S: 688588.