Morgunblaðið - 08.06.1986, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986
51
Líbería:
Doe forseti veit-
ir sakaruppgjöf
Monrovia. AP.
í GÆR gaf Samuel Doe, forseti
Líberíu, samsærismönnum hins
misheppnaða valdaráns i nóvem-
ber upp sakir.
Þessi óvænta ákvörðun kom í
kjölfar margra mánaða réttarhalda
um réttmæti handtöku þeirra
stjómmálamanna, herforingja og
athafnamanna, sem ákærðir voru
fyrir valdaránstilraun.
I tilkynningu, sem var útvarpað
um allt landið, sagði Doe að þetta
væri „erert af miskunn" af sinni
hálfu, til þess að sýna að „við berum
engan illvilja til neins borgara
landsins, þar á meðal þeirra, sem
vilja okkur illt". Samkvæmt frétta-
tilkynningu líberískra yfirvalda, er
sakaruppgjöfin algjör og skilyrðis-
laus, og nær til allra sem flæktir
vom í samsærið.
Ekki var sagt hversu margir vom
náðaðir, en heyrst hefur að meðal
þeirra, sem hlutu sakamppgjöf,
hafi verið fyrrum Qármálaráðherra
landsins, Ellen Johnson-Sirleaf,
einn helsti athafnamaður þess, Jim
Holder, og fyrmm yfirmaður hers-
ins; Morris Zaza hershöfðingi.
I síðasta mánuði ræddi Doe, í
fyrsta skipti síðan kosningamar
vom haldnar, við leiðtoga stjómar-
andstöðunnar. Hann hefur einnig
fyrirskipað rannsókn á meintri spill-
ingu meðal embættismanna og leyst
nær alla stjómarandstöðuleiðtoga
úr haldi. Þessar ráðstafanir koma
í kjölfar heimsóknar Chesters
Crocker, aðstoðamtanríkisráðherra
Bandaríkjanna, en hann krafðist
umbóta í mannréttindamálum, ef
af ætti að verða 42 milljóna dollara
efnahagsaðstoð Bandaríkjanna.
Doe ríður því á að sýna það og
sanna að hann sé fijálslyndur leið-
togi og þetta vafalaust liður í því.
I útvarpsræðu sinni lagði Doe
áherslu á að allir Líberíumenn,
heima og heiman, tækju höndum
saman við ríkisstjómina, „svo að
sartian tækist þeim að byggja sterka
og þróttmikla þjóð“.
Vináttu- og
menningar-
félag Ítalíu
og Islands
Stofnun _ menningar- og vin-
áttufélags Italíu og Islands hefur
verið ákveðin og eru eftirtaldir
í_ undirbúningsnefnd: Steinar V.
Arnason, Sigurður Vicenzo
Demetz, Pétur Björnsson, Frið-
rik Brekkan, Soffía Gísladóttir,
Júlíus Vífill Ingvarsson, Kolbrún
Sveinsdóttir og Ragnar Borg.
Félagið mun taka til starfa
með haustinu og er tekið við
stofnfélögum þangað til.
SUMARTILBOT) FLUGLEIÐA
FLUG, BILL OG WALCHSEE
Kr.17280-
Dæmi um verð og möguleika:
2 fullorðnir og 2 börn, 2—11 ára, í 2 vikur. Flug báðar leiðir
um Luxemborg, bílaleigubíll í B flokki allan timann og íbúð á
íbúðahótelinu llgerhof, aðeins 17.280 kr. Verð á aukaviku með
öllu; 4.579 kr. per mann. Verð miðað við verðtímabilið 3.—17.
júlí.
. . . Og það eru fleiri möguleikar
Við bjóðum einnig sumarhús í sumarleyfisparadís Biersdorf
og i Zell Am See.
Takmarkaður sætafjöldi og brottfarardagar.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
EIGA SÉR ENGIN LANDAMÆRI.
FLUGLEIÐIR
Upplýsingasími: 25100