Morgunblaðið - 08.06.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1986
LEIKARINN BRÁÐL YNDI
mm
Sean Penn í nýjustu mynd sinni,
„At Close Range", sem tekin var
til sýninga fyrir nokkrum vikum.
Sean Penn í frægri stellingu; hann skyrpir á ljósmyndara.
Órvænting-arfull leit
aðhandriti
Sean Penn metur ekkert
meira en einkalíf sitt. Þess
vegna er hann eitt eftirsótt-
asta skotmark ljósmyndara
og blaðasnápa sem ekkert
er heilagt. Frægt er orðið brúðkaup
Seans og söngkonunnar Madonnu síð-
asta sumar, þegar blaðamenn leigðu
þyrlu og sveimuðu yfír heimili unga
parsins, sem var rammlega girt og
umkringt lögreglumönnum.
Madonna og George
Harrison á blaða-
mannafundi
Fyrir nokkrum vikum var haldinn
blaðamannafundur í Lundúnum. Á
fundinn mættu Madonna og bítillinn
gamli George Harrison, sem fram-
leiðir kvikmyndina Shanghai Sur-
prise, en aðalhlutverkin í þeirri
mynd leika einmitt Madonna og
Sean Penn. Blaðamenn fjölmenntu
á fundinn, þeir voru grimmir sem
ljón og litu greinilega á Madonnu
sem auðvelda bráð, spurðu óvið-
felldinna spuminga (fékkstu hlut-
verkið vegna þess að þú ert gift
Sean Penn? Hvemig er að vera gift
þessari skepnu? Af hveiju eruð þið
svo merkileg með ykkur? Eru
nokkrar nektarsenur með þér og
Sean í Shanghai Surprise?) og
hættu ekki fyrr en Harrison tók í
lurginn á þeim af sinni alkunnu
hógværð.
Harrison kallaði blaðamennina á
sinn fund til að bæta samskipti
þeirra og Sean Penn. Mikil leynd
hvílir yfir gerð myndarinnar og er
það gert að beiðni Penn, sem virðist
vera einstaklega viðkvæmur. Mikið
hafði verið skrifað um gerð myndar-
innar, sem má heita skrýtið því
fyrir fundinn var ekkert um hana
vitað annað en titillinn og nöfn
aðalleikaranna.
Madonna reyndi hvað hún gat til
að halda ró sinni, henni leið greini-
lega illa en svaraði spumingunum
samviskusamlega nema þeim sem
henni fannst út í Hróa hött. Georgc
Harrison kom til bjargar þegar
honum fannst of hart að henni
gengið. Hann sagðist líta á Ma-
donnu sem snjallan og metnaðar-
fullan listamann og það sama hefði
hann um Sean Penn að segja, hann
gæti ekki fyrirlitið þau og lítilsvirt
eins og blaðamenn virtust leggja
metnað sinn í að gera. Hann sagðist
vilja hafa gott samband við fjöl-
miðlafólk, því það væri beggja
hagur.
Síðan gaf hann upplýsingar um
nýju myndina, Shanghai Surprise.
Sean Penn og Madonna, sem
heitir fullu nafni Madonna Louise
Veronica Ciccione, hafa lengi leitað
handrits að mynd sem þau bæði
gætu leikið í. Þau hafa þekkst í
þijú ár, kynntust áður en Madonna
hlaut heimsfrægð. Sean hefur á
örfáum árum skapað sér nafn sem
einn eftirtektarverðasti leikarinn af
yngri kynslóðinni (margir bera
hann saman við Robert DeNiro),
en það var ekki fyrr en á síðasta
ári að Madonna fékk tækifæri til
að sýna Ieikhæfíleika sína. Það var
í gamanmyndinni „Örvæntingarfull
leit að Súsönnu". Áður hafði hún
að vísu leikið í myndinni „Crazy
For You“, en það hlutverk var smá-
vægilegt og tengdist meir söng en
leiklist.
Sean var uptekinn við gerð „At
Close Range" fram í desember síð-
astliðinn, en gat þá farið að undir-
búa sig fyrir George Harrison og
fyrirtæki hans Hand Made Films,
sem framleiðir Shanghai Surprise.
Leikstjóri er Jim Goddard, hann
gerði sjónvarpsþættina um Reilly.
Myndin er tekin í kvikmyndaveri í
Englandi, en einnig að hluta í Hong
Kong. Sagan gerist á Qórða ára-
tugnum, Madonna leikur njósnara
á vegum CIA, dulbúin sem trúboði,
sem reynir að hafa upp á ópíum-
smyglurum. Hún fær til liðs við sig
vafasaman náunga, sem Sean leik-
ur. Sá er vel að sér í kínverskum
mállýskum og að launum á hann
að fá flugfar til Bandaríkjanna!
Sagan lætur að sönnu ekki mikið
yfir sér, sagði George Harrison á
fundinum, en við fengum Sean Penn
til liðs við okkur af þeirri einföldu
ástæðu að hann er magnaður per-
sónuleiki og stóigóður Ieikari.
Þar með var fundinum lokið og
lífið í Shanghai gat haldið áfram
ótruflað.