Morgunblaðið - 15.06.1986, Blaðsíða 6
6 B
MÖRGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1986
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
84670
DODGE ST. REGIS
Þessi sérstæði glæsivagn er til söiu ef viðunandi tilboð fæst.
Til sýnis í dag og á morgun að Sigtúni 7.
Upplýsingar í síma 73301 og 83880.
Afganistan:
Hvatt til
hertrar
baráttu
Islamabad, Pakistan, AP.
NAJIBULLAH, hinn nýi aðalrit-
ari afg-anska kommúnistaflokks-
ins, hefur hvatt landsmenn til að
herða enn frekar baráttuna gegn
skæruliðum múslima. Hann sagði
ríkisstjórnina vinna að frekari
eflingu hersins og kvaðst sann-
færður um að sigur myndi vinn-
ast innan tveggja ára.
Najibullah hvatti menn til að
ganga til liðs við afganska stjórn-
arherinn. Mikið hefur verið um
liðhlaup hermanna og telja vest-
rænir leyniþjónustumenn að
stjórnarherinn fái litlu áorkað
gegn sveitum skæruliða.
Barátta skæruliða beinist gegn
hinni kommúnísku stjórn lands-
ins, sem nýtur stuðnings Sovét-
ríkjanna. Talið er að 115.000
sovéskir hermenn séu undir
vopnum í Afganistan. Skæruliðar
njóta stuðnings Bandaríkjanna,
Kína, Saudí- Arabíu og fleiri
ríkja og eru bækistöðvar þeirra
í Pakistan.
...ljúffengt og bragömihiö
KEXVERKSMIÐJAN HOLT