Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 1
80SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
143. tbl. 72. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR1. JÚLÍ 1986_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðar um hvalveiðar Japana og fiskveiðiréttindi:
Slj órninni eigi skylt
að refsa Japönum
Washington, AP.
Ahmed Zaki Yamani, olíu-
ráðherra Saudi-Arabíu
(t.v.), og dr. Arturo Hern-
andez Grisanti, starfsbróð-
ir hans frá Venezuela,
skiptast á skoðunum á
fundi olíuráðherra OPEC-
ríkja, sem lauk í Brioni í
Júgóslavíu í gær án þess
að samkomulag tækist um
leiðir til að hækka olíu-
verð. Af þeim sökum er að
vænta frekari verðlækkun-
ar á olíu.
SEINT í gærkveldi úrskurðaði Hæstiréttur Bandaríkjanna að
Bandaríkjastjóm væri ekki skuldbundin til að takmarka fiskveiði-
heimildir Japana í bandarískri lögsögu vegna hvalveiða þeirra f
Kyrrahafi. Naumur meirihluti náðist um þetta sjónarmið og var
það samþykkt með fimm atkvæðum gegn fjórum.
Samkvæmt fyrri úrskurði áfrýj-
unardómstóls var stjóm Ronalds
Reagan skyldug til að helminga
fiskveiðikvóta. sérhvers ríkis sem
virti hvalveiðibann Alþjóða hval-
veiðiráðsins að vettugi. A síðasta
ári minnkaði stjóm Reagans fisk-
veiðiheimildir Sovétmanna um
helming af þessum sökum. Banda-
ríkjamenn og Japanir höfðu gert
með sér samning sem heimilaði
Japönum að veiða búrhvali fram til
1. apríl árið 1988.
Bandaríkjaþing hafði einnig
samþykkt tvenn viðbótarlög um
stjómun fiskveiða þar sem Banda-
ríkjastjóm var skylduð til að refsa
sérhverju ríki sem neitaði að fara
eftir ákvæðum alþjóðlegra sam-
þykkta.
Warren E. Burger, forseti
Hæstaréttar, og fjórir aðrir dómar-
ar mynduðu meirihlutann. Thur-
good Marshall dómari mælti fyrir
áliti minnihlutans. Sagðist hann
telja að rétturinn hefði komist að
rangri niðurstöðu í máli sem heims-
byggðin öll hefði áhyggjur af.
Umhverfisvemdarsinnar fögn-
uðu mjög niðustöðu áfrýjunardóm-
stólsins á síðasta ári og töldu að
með honum mætti takast að koma
í veg fyrir útrýmingu búrhvalsins í
Norður-Kyrrahafi.
Buthelezi, leiðtogi hófsamra blökumanna, ávarpar fund 13.000 stuðn-
ingsmanna sinna í Soweto.
AP/Símamynd
Ekkert samkomulag á OPEC-fundi:
Búist við olíu-
verðslækkun
Bríoni, AP.
BÚIST er við því að olíuverð
lækki lítillega á næstunni vegna
þess að ekki náðist samkomulag
um olíuframleiðslu á fundi olíu-
ráðherra OPEC-ríkja í Brioni í
Júgóslaviu.
Thatcher krefst
lausnar Mandela
London, Jóhannesarborg', Washington, AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur skorað
á stjómvöld í Suður-Afríku að láta
Nelson Mandela, leiðtoga svarta
meirihlutans, lausan. Þá hvatti
hún einnig stjóravöld tíl að heim-
ila starfsemi Afríska þjóðarráðs-
ins (ANC). 12 létu lífið í átökum
í Suður-Afríku um helgina. Einnig
bárust fréttir um að leiðtogi
stærsta verkalýðsfélags Suður-
Afríku hefði verið handtekinn en
vegna neyðarlaga var hann ekki
nafngreindur.
Thatcher sagði það vera skilyrði
fyrir friðarviðræðum í Suður-Afríku
að stjómvöld þar slepptu Nelson
Mandela og heimiluðu starfsemi
Afríska þjóðarráðsins.
Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi
hófsamra blökkumanna, lýsti sig
andvígan efnahagslegum refsiað-
gerðum á útifundi í Soweto og varaði
við innbyrðis átökum blökkumanna
sem hann sagði nálgast borgarastyij-
öld. Á fundinum kom til átaka milli
stuðningsmanna Buthelezis og her-
skárra ungra blökkumanna í Soweto.
Þrír létu lífið og a.m.k. 48 slösuðust,-
Þar með hafa að minnsta kosti 93
látið lífið í Suður-Afríku frá því að
stjómvöld settu neyðarlög þar 12
júní.
Á laugardag kom mikill fjöldi
saman í Lundúnum til að mótmæla
kynþáttastefnu stjómar Suður-
Afríku.
Sauðþrár ökumaður
San Bemardino, Kalifomíu, AP.
MAÐUR nokkur hefur verið
dæmdur í 12 daga fangelsi
vegna þess hann neitaði að
segja nafn sitt er lögregiumað-
ur stöðvaði hann vegna ólög-
legrar vinstri beygju. Lög-
regluforingi nokkur sagðist
aldrei á sinum langa starfsferli
hafa kynnst öðrum eins þver-
haus!
Þegar lögreglan stöðvaði
manninn neitaði hann að segja
nafn sitt og var auk þess ófánleg-
ur til að skrifa undir skýrslu um
atburðinn. Ökuskírteini hafði
hann ekkert og því var hann
handtekinn. Þegar á lögreglustöð-
ina var komið neitaði maðurinn
að láta taka af sér myndir og
fingraför hans fengu lögreglu-
mennimir ekki heldur.
Ráðherranum mistókst að ná
samkomulagi um öll helstu mál
fundarins, sem stóð sex daga og
lauk í gær. Hins vegar ákváðu þeir
að hittast aftur 28. júlí nk. í Genf
til að taka upp þráðinn að nýju.
Eftir fundinn spáðu sérfræðingar
því að olíuverð mundi lækka eitt-
hvað á næstunni, þar sem olíumála-
ráðherramir gátu ekki komið sér
saman um leiðir til að draga úr
framleiðslunni.
Samt studdi meirihluti olíumála-
ráðherranna tillögu, þar sem gert
var ráð fyrir því að heildarolíufram-
leiðsla OPEC yrði minnkuð úr 19
milljónum tunna á dag í 17,9 millj-
ónir á þriggja mánaða tímabili, eða
frá október til desember á þessu ári.
Markmiðið með því að minnka
framleiðsluna var að freista þess
að hækka olíuverðið úr 11 dolluram
upp í 17-19 dollara á tunnu. Ekki
náðist þó samstaða um þetta. því
að olíumálaráðherrar Líbýu, fran,
Alsír, og Gabon vildu takmarka
framleiðsluna enn frekar í því skyni
að hækka verð á olíutunnu upp í
a.m.k. 28 dollara.
Þótt lítill árangur hafi orðið á
fundinum, þá sagði olíumálaráð-
herra Kuwait að ráðherramir hefðu
heitið því óformlega að reyna að
takmarka olíuframleiðsluna fyrir
næsta fund ríkjanna 28. júlí.
Enginn Kinna ráðherranna lýsti
þó yfir þvi opinberlega að í ráði
væri að minnka framleiðsluna á
næstu vikum. Fulltrúar Líbýu og
Venezuela sögðu meira að segja að
olíuframleiðslan í þessum löndum
yrði látin standa í stað.
Italía:
Stjórn
sömu
flokka?
Róm, AP.
COSSIGA, forseti Ítalíu, hef-
ur ráðfært sig við fymun
forseta landsins um tilhögun
stjóraarmyndunarviðræðna
þar.
I dag, þriðjudag, mun forset-
inn eiga fundi með leiðtogum
stjómmálaflokka á Ítalíu en
hann hefur farið þess á leit við
Bettino Craxi, fráfarandi for-
sætisráðherra, að hann gegni
því starfi þar til ný stjóm hefur
verið mynduð. De Mira, leiðtogi
Kristilegra demókrata, hefur
hvatt tii þess að sömu fimm
flokkamir myndi nýja ríkis-
stjóm.
De Mira nefndi ekki Craxi á
nafn en aðrir stjómmálaleið-
togar hafa sagt að þeir sætti
sig við Craxi sem forsætisráð-
herra í hinni nýju ríkisstjóm
með því skilyrði að hann segi
af sér við næstu áramót.