Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ1986
19
í vinnslusal íshússfélags Bolungarvíkur.
Ishúsfélagi Bolungar-
víkur veitt viðurkenning
Á ári hverju veitir Coldwater Seafood Corporation frystihúsum
hér á landi viðurkenningu fyrir góða framleiðslu. Meðal frystihúsa
nú var Ishúsfélag Bolungarvikur. Viðurkenning þessi var afhent
stjórnendum þess nú fyrir stuttu. Það var Páll Pétursson matvæla-
verkfræðingur Coldwater sem afhenti viðurkenninguna en á hana
er letrað: „Okkur er ljúft og skylt að veita íshúsfélagi Bolungarvíkur
hf. sérstaka viðurkenningu fyrir góðan árangur í vöruvöndun frá
maí 1985 til maí 1986.“
í tilefni af þessari viðurkenning-
arveitingu var starfsfólki íshús-
félagsins boðið til kaffisamsætis þar
sem viðurkenningin var afhent
Guðmundi P. Einarssyni yfírverk-
stjóra. Við það tækifæri flutti
Guðfínnur Einarsson forstjóri ræðu
þar sem hann þakkaði sérstaklega
starfsfólki fyrirtækisins þennan
góða árangur.
Guðfínnur gat þess að svokallað-
ur gæðabónus sem tekinn var upp
í fyrirtækinu fyrir allnokkru ætti
vafalaust nokkum þátt í þeim
auknu gæðum sem náðst hefðu í
framleiðslu fyrirtækisins og ekki
síst vildi hann þakka starfsfólki það
góða samstarf sem tókst milli
starfsfólks og stjómenda þegar
verið var að koma gæðabónusnum
á. ,
Á ári hveiju er þessi viðurkenn-
ing veitt þremur stórum frystihús-
um og þremur smáum og er íshús-
félag Bolungarvíkur meðal þeirra
stærri.
Verkstjórar íshússfélags Bolungarvikur.
Dýrasýning:
„Otrúlegur áhugi“
DÝRASÝNING sem áhugahópur um byggingu náttúrufræðihúss
stóð fyrir í Hljómskálagarðinum á sunnudaginn var, féll í mjög
góðan jarðveg. Milli þrjú og fjögur þúsund manns komu að skoða
svínin, refina, minkana, rottumar,
þar vom til sýnis.
„Það kom okkur gersamlega á
óvart hvað var mikill áhugi á þessu.
Það var stöðugur straumur í gegn-
um tjaldið hjá okkur allan tímann,"
sagði Einar Egilsson, oddviti
áhugahópsins, í samtali við Morg-
unblaðið. „Þetta sýnir best þörfína
á að koma upp náttúrufræðihúsi.
Það sem var sorglegast var að
margir foreldrar virtust vita jafn
lítið um dýrin og bömin. Það virðist
vera vaxin upp kynslóð sem ekki
hefur þekkingu og reynslu af dýr-
um. Þetta er þáttur í menningunni
sem hefur verið vanræktur."
Að sögn Einars gerðu grísimir
einna mesta lukku hjá bömunum,
en einnig vom þau mjög hrifín af
hvítum músamngum og rottu-
ungum sem vom fengin frá Keld-
um. Sérfróðir menn vom á staðnum
og fræddu fólk um dýrin, Ámi
Hersteinsson veiðimálastjóri um
refí, Dr. Karl Skímisson um minka,
Sigurður Richter um rottur og mýs,
Kristinn Sveinsson svínabóndi um
svín og Bjöm Bjömsson fískifræð-
ingur um Qömlífvemr. Einnig
fræddu þeir Sigurður Sigurðarson
mýsnar og fjörulífverumar sem
dýralæknir, Þorvaldur Öm Ámason
líffræðingur og Einar Egilsson fólk
um dýrin, en þeir þrír undirbjuggu
sýninguna, en hún var sett upp í
tilefni náttúmfræðidagsins sem
áhugahópurinn um byggingu nátt-
úmfræðihúss gengst fyrir síðasta
sunnudag hvers mánaðar.Á 17. júní
vom flest húsdýrin sýnd í Hljóm-
skálagarðinum, en nú var áherslan
á önnur spendýr. Samhliða þessu
var „opið fjós“ á bænum Skraut-
hólum á Kjalamesi hjá hjónunum
Stefáni Tryggvasyni og Ingu
Ámadóttur, og var aðsókn þar góð
að sögn Einars.
Opinber nefnd var skipuð fyrir
ári til að vinna að því að gera tillög-
ur um byggingu náttúmfræðisafns,
en Einar hvað áhugamenn vera
orðna langeyga eftir einhveijum
árangri af því starfí. Á meðan hafi
náttúmgripasafnið einungis lítinn
sýningarsal á Hverfísgötu 116 til
umráða, en þar séu engin lifandi
dýr til sýnis. Það hafí komið glöggt
fram á sunnudaginn hve mikii þörf
væri fyrir snertingu við lifandi dýr.
LOKAÖ
til kl. 15.00 ; dag,
1. júlí
v/egna vörutalningar.
HAGKAUP
REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1985-1. fl.C 10. júlí 1986 kr. 156,57
'lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggjaþarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 26. júní 1986
SEÐLABANKIÍSLANDS
ViCKers
Furmture
H. OLAFSSON & BERNHOFT
VATNAGARÐAR 18 104 REYKJAVÍK S: 82499
Skjqlaskápar |
Skjalqskápar
I Skjalaskápar