Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR1. JÚLÍ1986 Sjálfsbjörg, landsamband fatlaðra: Lækkunin á bílunum var kjaraskerðing fyrir fatlaða 23. ÞING Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, var haldið í Stóru-Tjarnaskóla í Suður- Þingeyjarsýslu dagana 31. maí til 2. júni sl. Aðalmál þingsins voru í þetta sinn húsnæðismál, og staða félagsdeilda og sam- starfið við svæðisstjómir. Fjöl- margar ályktanir vom gerðar um heilbrigðis- og tryggingar- mál, húsnæðismál, atvinnumál, menntamál og farartækjamál. Krafðist þingið þess að fötluðum yrði bætt sú kjaraskerðing sem þeir urðu fyrir þegar aðflutn- ingsgjöldum af bifreiðum var breytt í vor. Mun minna hefur því verið keypt af eftirgjafar- bílum í ár en áður. Sjálfsbjörg, landsamband fatl- aðra, var stofnuð 1959, og geta fatlaðir orðið aðalfélagar en ófatl- aðir styrktarfélagar. Félagsmenn eru nú, að styrktarfélögum með- töldum, u.þ.b. 3.000 í 15 aðildarfé- lögum víðs vegar um landið. Síðast bættist við sjálfbjargarfélag á Höfn í Homafirði 8. desember 1984. Tveim félagsmönnum var veitt gullmerki Sjálfsbjargar fyrir vel unnin störf: Heiðrúnu Steingríms- dóttur fv. formanni Sjálfsbjargar á Akureyri og Jóni Þ. Buch fv. for- manni Sjálfsbjargar á Húsavík. Sérstök áhersla var Iögð á félags- mál á starfstíma síðustu fram- kvæmdastjómar. 7 námskeið vora haldin fyrir aðstandendur fatlaðra bama í samráði við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Styrktarfélag vangefinna, Þroskahjálp og grein- ingar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Einnig hafa verið haldin önnur námskeið s.s. kynfræðslunámskeið, táknmálsnámskeið og félagsmála- námskeið. Að framkvæði Sjálfsbjargar var haldin fyrsta hjálpartækjasýningin hérlendis í apríl 1985. Fyrirhuguð er önnur hjálpartækjasýning í apríl 1987. Þá hafa verið gefiiir út tveir bæklingar, annar um þverlömun, eða mænuskaða, en hinn um Sjálfs- bjargarhúsið að Hátúni 12. Bygg- ingu þess var haldið áfram, lokið við lóð og aðstöðu fyrir starfsfólk og 3 ný gestaherbergi tekin í notk- un, en fjárskortur hamlaði frekari framkvæmdum. í húsinu er marg- vísleg þjónusta veitt fötluðum. M.a. er rekin þar endurhæfingarstöð. Þar vinna nú 8 sjúkraþjálfarar. A síðasta ári vora veittar 12.371 ein- staklingsmeðferðir og 2.203 hóp- meðferðir. Einnig er rekin í sama húsnæði, eftir kl. 16.30, heilsurækt undir nafninu Stjá. í umræðum um húsnæðismál á þinginu kom fram að meiri blöndun fatlaðra og ófatlaðra sé grandvall- aratriði. Því þurfi að leggja áherslu á fjölbreytni í húsnæðismálum og sambýlisformum, þannig að allir fatlaðir ráði því sjálfir hvar þeir búa. Samstarf Sjálfsbjargar við Hús- næðisstofnun ríkisins hefur verið gott í þessum málum. í umræðum um stöðu félags- deilda og samstarf við svæðisstjóm- ir um málefni fatlaðra kom fram að þörf sé á opnara félagsstarfi í deildunum og betra upplýsinga- streymi milli Sjálfsbjargar og svæð- isstjómanna. Þingið ályktaði um mörg mál. Það taldi ósanngimi og ósamræmi koma fram í núverandi úthiutunar- reglum bensínstyrks, og hvatti til þess að allir sem væra háðir bifreið til að komast um, fengju bensín- styrk greiddan, án tillits til tekna. Þá ályktaði þingið að örorkulífeyrir og óskert tekjutrygging eigi aldrei að vera lægrí en umsaminn lág- markslaun. Ororkulífeyrir yrði þá aldrei lægri en 40% af þeirri upp- hæð. Þingið hvetur stjómvöld til að stórauka heimaþjónustu og heima- hjúkran, þar sem öflug þjónusta við fatlaða í heimahúsum auki mögu- leika þeirra til að búa sjálfstætt og sé því snar þáttur í réttindabaráttu þeirra. Þá fagnaði þingið sundlaug- inni við Grensásdeild Borgarspítal- ans og skorar á ríkisstjóm og sveit- arfélög að stuðla að byggingu fleiri sundlauga við endurhæfingarstöðv- ar. Ymsar ályktanir vora gerðar um húsnæðismál, einkum um aðgang fatlaðra að húsnæði. Þá var kosin fímm manna starfsnefnd til að vinna að menntunarmálum fatlaðra í Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12 fer margvísleg starfsemi fatlaðra fram. Auk íbúða og gestaíbúða eru í húsinu skrifstofur Sjálfsbjarg- ar, félagsheimili, endurhæfingarmiðstöð, dagvist fatlaðra, vinnu- og dvalarheimili, ofl. Það er ávallt eitt helsta vanda- mál fatlaðra að komast um, eink- um eru stigar þeim erfiðir. Einn- ig eru bílamálin þeim hugleikin þessa dagana. ókleift að kaupa bíla. Til þess yrði hið opinbera að styrkja fatlaða sem næmi 30% af kaupverði bfls í meðal- verðflokki og 50% hjá þeim sem hefðu fengið fulla eftirgjöf aðflutn- ingsgjalda. Þetta mætti gera bæði með beinum styrkjum og niðurfell- ingu söluskatts. Teodór A. Jónsson, formaður Sjálfsbjargar, tjáði Morgunblaðinu að mikið minna væri keypt af eftir- gjafarbílunum en áður. Þessu ylli almenn verðlækkun bifreiða í kjöl- far aðgerðanna í vor. Þetta kæmi mjög illa við fatlaða þar sem endur- söluverð bfla hefði lækkað líka, en það hefði verið mikilvægur þáttur í fjármögnun bifreiðakaupanna hjá fötluðum, sem gátu fengið bfl með niðurfelldum gjöldum á fjögurra ára fresti. og bættri aðstöðu á því sviði. Þá var þess krafist að fötluðum yrði bætt sú kjaraskerðing sem þeir urðu fyrir vegna lækkunar aðflutningsgjalda af bifreiðum, þar sem það gerði fötluðu fólki nær Auk Teódórs skipa fram- kvæmdastjóm Sjálfsbjargar næsta starfstímabil þau Jóhann Pétur Sveinsson varaformaður, Vikar Davíðsson gjaldkeri, Kristín Jóns- dóttir ritari og Valdimar Pétursson meðstjómandi. 100ÁR.A AFMÆLI LANDSBANKA ÍSLANDS OGÍSLENSKRAR SEÐLAÚTGÁFU LANDSBANKASÝNING 28.JUNI 20.JLILÍ í SEÐLABANKAHÚSINU rr Itilefni 100 ára afmælis Landsbankans og íslenskrar seðlaútgáfu hefur verið sett upp vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við Kalkofnsveg. Þar er m.a. rakin saga gjaldmiðils á íslandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgreiðsla bankans endurbyggð, skyggnst inn í framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar vélar og fylgst með hvernig peningaseðill verður til. rr sýningunni verða seldir sérstakir minnispeningar og frímerki, þar er vegleg verðlaunagetraun og léttur útibúaleikur og daglega eru sýndar kvikmyndir um Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og myntútgáfu. Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta sinn málverk í eigu bankans eftir marga bestu listmálara þjóðarinnar. Veitingasala er á sýningunni og leiksvæði fyrir börn. S1 ýningin er opin virka daga frá kl. 16.00-22.00 ogfrá 14.00-22.00 umhelgar. Við hvetjum alla til þess að sjá þessa stórskemmtilegu sýningu. Aðgangur er ókeypis. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna í 100 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.