Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1986 55 Stjómunarfélag íslands: Farmenn menntast í viðskipta- o g verslunarfræðum FYRSTA endurmenntunamám- skeiðið fyrir félagsmenn Far- manna- og Fiskimannasam- bandsins stendur nú yfir. Það er stjóraunarfélag íslands sem skipuleggur og sér um námskeið þetta sem er sérstaklega ætlað þeim far- og fiskimönnum sem hyggja á störf í landi „Að hnýta öngultauma er það eina sem skipstjóri getur snúið sér að þegar hann vill fara í land“, — „kominn tími til að litið sé á sjómenn sem mannlegar verur“, — „ Stýri- mannaskólinn er blindgata", — ; setningar sem þessar dundu á blaðamanni Morgunblaðsins þegar hann settist niður að sötra kaffí með átta málhressum sjómönnum í húsakynnum Stjómunarfélagsins við Ánanaust. Tilefnið var endur- menntunamámskeið það sem þar fer nú fram og þeir sitja allir. Nám- skeiðið er sniðið að starfsháttum í viðskiptum og verslun. Námsefnið dregur dám af þessu og skiptist í Qóra meginflokka: Sölu- og mark- aðssvið, stjómunarsvið, tölvusvið og tungumálasvið Aðspurðir kváðu sjómennimir undanfamar fímm vikur hafa verið ærið strembnar en að sama skapi skemmtilegar. Kennt hefur verið frá þvi kl. átta á morgnana til kl. þrjú og stundum fjögur síðdegis. Þá hafa oftar en ekki tekið við fíjálsir tölvutímar til kl. fímm en þá er húsinu lokað. Frumkvæðið að þessu endur- menntunamámskeiði er komið frá sjómönnum sjálfum, hugmyndin er gömul, en það var fyrst við gjald- þrot Hafskips að einhver hrejrfíng komst á málið. Þá urðu fjöldamargir atvinnulausir, en að sögn áttmenn- inganna, urðu yfirmenn á skipum fyrirtækisins einna verst fyrir barð- inu á atvinnuleysinu. Sérstaklega gekk þeim skipstjómarmönnum illa að fá vinnu sem eitthvað vom komnir til ára sinna og ekki bætir úr skák að erlendir sjómenn em í vaxandi mæli ráðnir í þjónustu ís- lenskra skipafélaga. Töldu viðmælendur blaðamanns fyllilega tímabært að nám við Stýri- mannaskólann hætti að vera svo einskorðað við vinnu á sjó sem verið hefur. Auka mætti Qölbreytni námsins svo þeir sem útskrifuðust frá skólanum ættu sér einhveija atvinnumöguleika í landi þegar og ef að því kæmi að þeir óskuðu eftir umhverfisbreytingu. Að sögn Lám M. Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra Stjómunarfé- lags íslands, er í bígerð að halda fleiri samskonar námskeið á hausti komanda fyrir far- og fískimenn og einnig aðrar starfsstéttir. Hreðavatns- og Botnsskáli í Borgarfirði: Selja benzín- lítrann á 26,95 Borgarfírði. ÞEIR FEÐGAR, Pétur Geirsson og Jón Pétursson, sem reka Hreðavatnsskála í Norðurárdal og Botnsskála í Hvalfirði hafa síðan um hvítasunnu selt benzínlítrann á 26,95. Hafa undirtektir verið góðar hjá ferðamönnum og öðmm þeim, sem þurfa á orku að halda. Umboðslaun frá olíufélögunum em 1 króna og 11 aurar, þannig að þeir gefa eftir 1 krónu og 5 aura, fá þannig f sinn hlut 6 aura fyrir hvem seldan lítra. En eins og kunnugt er, þá kostar hver lítri af benzíni í dag 28 krónur. Jón Pétursson í Botnsskála sagði, að þeir feðgar vonuðust til þess að þetta ylli samkeppni á milli olíufélaganna. Þau hafí verið að keppa um smurolíur sín á milli, en látið vera að hafa sam- keppni varðandi benzín og hrá- olíur. Olíufélögin hafa látið þetta óátalið, og sagðist Jón búast við því, að þeir selji benzínið ódýrar út sumarið að öllu óbreyttu. Um það hvort þeir töpuðu ekki á þessum afslætti á benzínsölunni, þá sagði Jón, að umboðslaunin hefðu aldrei skipt neinu höfuðmáli í benzínsölu. Þetta væri gert til þess að hvetja til samkeppni á milli olíufélaganna, og eitthvað verði menn að leggja á sig. Annars hafíst ekkert í gegn. —Pþ Löng bið eftir hraðsendingu „BÁTURINN er alveg stopp út af þessu“, sagði Óðinn Geirsson sjómaður á Siglufirði í samtali við Morgunblaðið en vélarhlutir sem hann pantaði frá London hafa verið töluvert lengur á leið- inni en honum finnst góðu hófi gegna. Hér er um að ræða vélarhluti sem eiga að fara í nýjan bát sem er í smíðum og þessir hlutir em það eina sem til þarf svo að báturinn komist í gagnið. Hlutimir vom pantaðir tíman- lega af umboðinu að sögn Óðins og bókaðir í flug frá London með Flug- leiðum 22. júní sl. Þeir komu þó ekki til landsins fyrr en síðasta föstudag og vom þvf skildir eftir f London í fíórgang. Þegar hlutimir komu til íslands fór pakkinn beint í afgreiðslu Amarflugs. Pakkinn, sem merktur var sem áríð- andi hraðsending, var þó ekki tekinn með í næsta flugi til Sigluflarðar heldur var hann skilinn eftir, þar sem ákveðið var að millilenda á Blönduósi og farþegum bætt við vegna þess. „Mér skilst að þetta geti varðað við brot á sérleyfíslögunum", sagði Óðinn. „Þetta er 85 kflóa pakki og kostar nánast jafn mikið að senda hann í flugfrakt og farþegasæti. Maður legg- ur þennan kostnað á sig þar sem mikið liggur á, en með þessu áframhaldi væri fljótlegra að láta senda þetta með skipi", sagði Óðinn að lokum. Nokkrir þátttakenda í námskeiðinu þungt hugsi en allir hafa áttmenningarnir annaðhvort vélstjóra- eða skipstjóramenntun. Firestone S-211 radial hjólbaröarnir tryggja öryggi þitt og annarra FIRESTONE S-211 radial hjólbarðarnir eru framleiddir undir ströngu gæöaeftirliti sem tryggir öryggi þitt og fjölskyldu þinnar. Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan. FIRESTONE S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki. Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og endist og endist... Þóra Dal, auglýsingaatofa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.