Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 15
ingum og ýmsir hnökrar séu á „tæknilegu hliðinni". Colin Dunne _ þekkir greinilega ágætlega vel til íslands og er ágæt- lega að sér um Reykjavík. Hann hefur aflað sér töluverðrar þekking- ar á staðháttum og allt kemur það sögunni til góða. Hér segir frá blaðamanninum Sam sem er sendur til íslands í næsta óljósum erinda- gjörðum: hann á að hafa upp á Sólrúnu, vinkonu sinni frá því hann var á Islandi tveimur árum fyrr. Hún er í vondum félagsskap. Aftur á móti liggur ekki alveg ljóst fyrir hvers lags félagsskapur það er, sennilega tengist það eitthvað Rússum eða andstöðu þeirra vegna bækistöðva Atlantshafsbandalags- ins á íslandi. Gæti hugsast að Sól- rún hefði gengið í lið óvinarins. Sam kemst í samband við Sólrúnu — fundur þeirra á barmi Almannagjár — þar sem sál íslands er. Minna mátti ekki gagn gera. Þau halda heim til hennar — að því er Sam telur, en hún býr við þá ágætu götu Vesturbrún. En eftir ástafund- inn hverfur Sólrún — rétt eins og Ua hvarf Umba — og milli þess sem Sam reynir að hafa upp á henni er hann að reyna að komast á snoðir um grunsamlega iðju rússneskra á íslandi. Verkefni hans er þó opin- berlega að gera úttekt á kynlífi eskimóa (!) að skipun ritstjóra þess sem brezka utanríkisráðuneytið lét senda hann til íslands. Úr þessu öllu verður mikil njósna- og ástar- flækja. Móðir Sólrúnar sem býr í bárujámshúsi í Gijótaþorpi er myrt á hroðalegasta hátt og lengi vel spyrzt ekkert til Sólrúnar. Endir sögunnar verður hinn æðislegasti og ekki alveg sannfærandi. Kannski vegna þess hvað okkur gengur erfiðlega að taka alvarlega svona t:: hryllingsatburði og verða í sögunni. Colin Dunne hefur skrifað nokkr- ar aðrar bækur, sem hafa fengið ágæta dóma, fyrst var Retrieval og síðan Ratcatcher. Hann kom til ís- % lands í fyrsta sinn árið 1972 til að fylgjast með skákeinvígi Fischers og Spasskys og skrifa um það. Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Michael Landau á gítar og Neil Stubenhaus á bassa. Lögin á Medals eru mjög jöfn að gæðum og þótt tónlist hans sé kannski ekki beint mitt uppáhald fer ekki leynt að þama fer góður söngvari með plötu sem ætti að höfða sterklega til allra sem unna vel fiuttu dægurpoppi. Hörkusöng- kona Sheila Walsh Don’t Hide Your Heart Það er ótrúlegt hve mikið leynist af frábæru tónlistarfólki innan þess ramma, sem kallaður hefur verið kristileg tónlist. Sheila Walsh er ein úr þessum hópi og virt innan hans en iítið hefur borið á henni þar fyrir utan. Sheila Walsh er hörkugóð söng- kona og ekkert meira um það. Þótt hún semji ekki lögin sjálf em þau valin af smekkvísi og velflest láta þau einkar vel í eyrum. Nyti hún sambærilegrar kynningar og drottningar á borð við Madonnu er ég sannfærður um að hún færi létt með að skáka þeim. Syngur ein- faldlega mun betur en ijóminn af þeim glanspíum sem einoka vin- sældalistana. Don’t hide your heart er góð plata hverrar styrkur felst í af- bragðsgóðum söng og finum lögum samfara ömggum flutningi. Þama koma að auki við sögu menn á borð við Cliff Richard, Mel Collins og Phil Manzanera og gera það gott. h r 15 rrrr r (ttth * n7Tjny<*'1 jrj a rfT^rmfrrv^ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1986 Hetjur og meinleg örlög Leiklist Jóhann Hjálmarsson Áhugaleikfélagið í Hangon, Finnlandi: Járnöldin eftir Paavo Haavikko. Leikgerð: Kaj Puumalainen. Leikstjóri: Marie Saure. Leikmynd: Kaj Puumalainen o.fl. Búningar: Kaj Puumalainen o.fl. Tónlist: Simo Silvonen o.fl. Bardagaatriði: Bror Österlund. Leikið í Öskjuhlíð á Norrænni leiklistarhátíð áhugamanna í Reykjavík. Jámöldin er leikrit eftir hið kunna finnska ljóðskáld Paavo Haavikko og er fijálsleg túlkun hans á Kalevala. í Jámöldinni kynnumst við hetj- um, þrælum, fögmm konum og skelfilegum kerlingum. Þar er líka Dauðinn sjálfur á ferli lævfs og markviss. Mikið skap og meinleg örlög setja svip sinn á verkið; grimmd, losti og yndisleiki haldast í hendur. Áhugaleikfélagið í Hangon flutti Jámöldina í Öskjuhlíð og var sýn- ingin um margt áhrifarík þótt að- stæður gætu varla talist góðar. Erfítt var að fylgjast með leikend- um sem dreifðu sér um hlíðina, vom ýmist í felum eða beint fyrir framan áhorfendur og mitt á meðal þeirra á köflum. Hitt var verra að fáir skildu textann og er það eigin- lega út í bláinn að undirritaður Qalli um leikrit sem hann skildi ekki nema að litlu leyti. En þökk sé Hangon-fólki fyrir að dreifa leik- skrá á íslensku, þar sem dregið er saman á sænsku og ensku efni hvers þáttar og auk þess greint frá helstu persónum verksins: Vá- inö, Ilmari, Lemminki, Kullervo, Kyllikki, Aino, Jouko, Untamo, hús- móðurinni og húsbóndanum í Po- hjola og dóttur þeirra. Leikskráin kom að góðu gagni, en æskilegt hefði verið að hún bærist fyrr, að minnsta kosti þeim sem Qalla áttu um verkið. Annars er það að segja um fram- kvæmd Norrænu leiklistarhátiðar- innar í Reykjavík að hún tókst vel. Umræður að loknum sýningum voru til dæmis til bóta. í þeim upplýstist margt. Þátttakendur há- tíðarinnar fjölmenntu á sýningar félaga sinna, en lítið fór fyrir venju- legum íslenskum áhorfendum. Leikstjórinn Maire Saure leggur á það áherslu að andrúm hins illa sem Haavikko skapar eigi ekki síst við um vonsku og fláræði samtím- ans. Það má að sjálfsögðu til sanns vegar færa. Vont atlæti f bemsku (Kullervo) og heiftarhugur kvenna (dóttir Pohjola-hjóna) stýra ekki góðri lukku. Sama er að segja um bardagafýsn Lemminkis og deilur bræðranna Untamo og Kalervo. Fyrir Haavikko vakir að færa goðsagnir liðins tíma í þann búning að samtímamenn geti séð sjálfa sig í þeim. Leikrit hans eiga sér sögu- legar rætur. Það yrði langur listi að birta nöfn leikenda og fjalla sérstaklega um hvem og einn. Það fólk sem leikur aðalhlutverkin gerði það af góðri innlifun áhugaleikarans, sama er að segja um aðra leikendur. Það voru miklar og einlægar tilfinningar sem birtust áhorfendum í Öskjuhlíð. Sum atriði vom beinlínis ógnvekj- andi og engu líkar en aftur væri kominjámöld. Ég vildi gjaman fá að kynnast betur starfsemi áhugaleikfélagsins Úr Jámöldinni, sýningu finnskra áhugaleikara. í Hangon, ekki síst sjá Jámöldina leikna í finnsku umhverfi. En sýn- ingin í Öskjuhlíð fullvissaði marga um að hér er um að ræða merkilega og öfiuga leiklistarstarfsemi. RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUDURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222 Rafmagn er svo snar þáttur í lífi okkar að við veitum því varla athygli. Flest heimilistæki og vélar á vinnustað ganga fyrir rafmagni og við erum svo háð þeim að óbeint göngum við sjálf fyrir rafmagni. Þessu ,,sjálfsagða“ raf- magni er dreift til okkar af rafmagnsveitu. Rafmagnsveita Reykjavíkur leggur metnað sinn í stöðuga og hnökralausa dreifingu til neytenda. Dreif- ingarkostnaður greiðist af orkugjaldi. Ógreiddir reikningar hlaða á sig háum vaxtakostnaði sem veldur því að rafmagnið er nær þriðjungi dýrara hjá þeim skuldseigustu — þar til þeir hætta að fá rafmagn. Láttu orkureikninginn hafa forgang! Þaðerdýrt rafmagnið sem þú dregur að borga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.