Morgunblaðið - 01.07.1986, Síða 3

Morgunblaðið - 01.07.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR1. JÚLÍ 1986 3 Aldarafmæli Landsbanka íslands: „Á von á 5-6 þús. manns í kaffi í aðalbankann“ - segir Jóhann Ágústsson framkvæmda- sljóri afgreiðslusviðs í aðalbanka Landsbanki íslands á aldarafmæli i dag, 1. júlí, og verður í öllum útibúum landsins, 42 talsins, haldið upp á tímamótin. Jóhann niðri í afgreiðslusalnum og blandi geði við kúnnana meira en venju- lega, en að öðru leyti verður dagurinn hefðbundinn," sagði Jóhann. 8ankial|ra'anUsmarmaiK)0ar Morgunblaðið/Börkur Ágústsson, framkvæmda- stjóri afgreiðslusviðs aðal- bankans, sagði í samtali við Morgunblaðið að úti- bússtjórum hefði verið í sjálfsvald sett hvernig þeir höguðu afmælishöld- unum, en búast mætti a.m.k. við veitingum alls- staðar og gerði hann ráð fyrir að flest útibúin úti á landi héldu móttökur fyrir viðskiptavini sína milli kl. 17.00 og 19.00. Jóhann sagði að í útibúum á höfuðborgarsvæðinu yrði opið á venjulegum afgreiðslutíma, 9.15 til 16.00, og þá yrði viðskiptavin- um boðið upp á kaffí og meðlæti og krökkum gefnar litlar gjafir og góðgæti. „Hjá okkur hér í aðalbanka mun starfsfólk bank- ans sjá alfarið um veitingamar, sem verða í afgreiðslusalnum sjálfum. Salurinn verður sérstak- lega skreyttur í tilefni afmælisins og komið hefur verið fyrir hrað- banka til bráðabirgða svo fólk geti þá æft sig á honum og notið aðstoðar starfsfólksins. Tekin verður í notkun nýr búningur starfsfólks, konur verða klæddar rauðum drögtum og karlmenn gráum buxum, hvitri skyrtu og rauðu bindi. Búningi karlmann- anna fylgja einnig vesti, en þau eru enn ekki tilbúin." Skólahljómsveit Kópavogs undir stjóm Bjöms Guðjónssonar byijar að spila í tilefni afmælisins kl. 9.00 fyrir utan Langholts- útibú, síðan við Miklubrautar- útibú og um kl. 10.30 verður hljómsveitin við Vegamótaútibú Laugavegi 7. Um kl. 11.00 mun hljómsveitin marséra niður Bankastrætið með tvær blóma- rósir í broddi fylkingar að aðal- banka Landsbankans, þar sem einnig verður leikið. Áætlað er að hljómsveitin leiki í hálftíma fyrir framan hvert þessara útibúa. Hún mun síðan koma aftur að aðalbankanum um kl. 15.30 og leika fram að lokun bankans, til kl. 16.00. í dag koma út tvö frímerki í tilefni dagsins og enn fremur tvö rit, annars vegar „Landshagir" — safn 11 þátta úr íslenskri at- vinnusögu — og hins vegar „Landsbanki íslands 100 ára, svipmyndir úr aldarsögu". Þá hefur verið sleginn sérstakur minnispeningur úr bronsi í tilefni afmælis bankans og íslenskrar seðlaútgáfu og verður hann seld- ur á sögusýningunni, sem stendur til 20. júlí í nýja Seðlabankahús- inu. Jóhann sagðist gera ráð fyrir að milli 5.000 og 6.000 manns kæmu í dag í aðalbankann. „Venjulega koma milli 3.500 til 4.000 manns um mánaðarmót og á öðrum dögum fer tala við- skiptavina ekki niður fyrir 2.500. Meiningin er að bankastjórar og deildarstjórar verði sem mest « Landsbanki Islands hefur s Hann er bædi elsta og : bankastofnun þjóöarinnar. Med fjölþættri starfsemi sinni v um landid leggur hann grunn ad uppbyggingu atvinnulifsins, - mannlifsins alls. Þess vegna óskum vid þjódinni til hamingju 100 ára afmæli Landsbankans. I Banki allra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.