Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 22

Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 22
o22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. AGUST 1986 Kaflar úr eríndi fóns G. Tómassonar Ingólfur kaus aðfylgja ráðstöftin guðanna — merkileg tilviljun, að fyrsti landsnámsmaðurinn skyldi festa sér bústaðþarsem síðar varð höfuðstaðurlandsins eykjavík, saga hennar og starfsemi borgarinnar er, eins og allir vita, efni í meira en stutt spjall. Vandamál er að takmarka umræðuefnið, ég hef valið að fara fáum orðum um aðdraganda að því, að Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi árið 1786 og rekja síðan í örstuttu máli, hvernig yfirstjórn bæjarins þróaðist fyrstu árin. Heimilda hef ég mest leitað í bækur úr safni til sögu Reykjavíkur, Hin fornu tún eftir Pál Líndal og Sögu Reykjavíkur eftir Klemenz Jónsson, landritara. Sagan segir, að þeim þrælum Ingólfs, Vífli og Karla, er fundu öndvegissúlurnar, hafi eigi litist alls kostar vel á landkosti hér og er eftir öðrum þeirra haft: „Til ilis fóru vér um góð héruð, er vér skulum byggja útnes þetta.“ Ingólfur kaus hins vegar að fylgja ráðstöfun guðanna — og er það merki- leg tilviljum, að fyrsti landnámsmaðurinn skyldi einmitt festa sér bústað þar sem síðar varð höfuðstaður landsins. Það er eflaust einnig elnsdæmi, að nokkur þjóð geti með slíkri vissu bent á elsta byggða ból í landi sínu, upphafsstað sinn, en næsta öruggt er talið, að bærinn Reykjavík hafi staðið við Aðalstræti syðst. Landnám Ingólfs var mjög víðlent, en snemma tók að saxast á það og af jörðinni Reykjavík í Seltjarnarneshreppi hinum forna fór litlum sögum fyrstu aldirnar í þjóðar- sögu okkar. Fljótlega eftir kristnitöku var þó reist kirkja í Reykjavík og frá 13. öld eru heimildir um, að Víkurbændur hafi ásamt fleirum átt veiði í Elliðaám. Heimildir um byggð á Seltjamarnesi fram á 14. öld benda til þess, að á utanverðu nesinu hafi í öndverðu aðeins verið byggt í Nesi, Vík og Laugarnesi, en hið efra, eins og það var nefnt, hafi bæir byggst þéttar í fyrstunni og eru þá nefnd nöfn, sem við þekkjum af bæjarhverfum í dag eins og Breiðholt, Vatnsendi, Digranes, Kleppur og Bústaðir. í upphafi byggðar hefur menn fýst meira inn til landsins en síðar varð, enda landið þá yfirleitt margfalt betur gróið en nú er, einkum inn til dala og heiða. Gróðurinn reyndist hins vegar viðkvæmur fyrir ágangi manna og búfjár og landið tók fljótlega að blása upp. Búsetu inn til landsins fylgdi, að öll megináhersla var lögð á jarðaafnot, en fiskveiðar til hafsins hafa hafa sennilega verið fremur lítið stundaðar í fyrstu. Á 13. öld er talið að farið hafi verið að stunda útgerð að gagni frá Nesi við Sel- tjöm og þar hafi síðan um langt skeið verið ein elsta verstöð og stórbýli á Suðumesjum. Með .vaxandi þýðingu sjávarútvegs og skreiðarútflutnings á 14. og 15. öld fjölgaði hjáleigum frá Nesi og Reykjavík, sem síðar voru gerðar að lögbýlisjörðum og fólki fjölg- aði smátt og smátt í ytri hluta hreppsins. Fyrstu aldimar eftir landnám höfðu hrepps- búar þannig nær eingöngu stundað land- búnað, en um 1700 var svo komið, að meiri hluti þeirra lifði að mestu á sjósókn. Á hinu slétta og tiltölulega víðlenda Seltjarnarnesi var kominn upp dálítill vísir að þéttbýli. Eins og nefnt hefur verið fer ekki sögum af stórbændum á bænum Reykjavík framan af, ef frá er talinn Ingólfur sjálfur, Þor- steinn sonur hans og Þorkell máni sonur Þorsteins, sem talið er sennilegt að þar hafi búið. Eftir það fer litlum sögum af afkomendum Ingólfs og jörðinni Reykjavík næstu aldirnar og í bók sinni „Hin fornu tún“ telur Páll Líndal, að Víkurbændur hafi ekki verið neinir höfðingjar eða auðmenn og allt fram ámiðja 18. öld séu helstu frétt- ir frá Reykjavík tengdar slysförum, afbrota- mönnum og óknyttum, sem rekja megi til verslunar í Örfirúsey, en þangað hafi verið miklar mannaferðir og oft sukksamt í þeim ferðum, enda þá gengin í garð brennivíns- öldin, sem svo var kölluð. Ekki er þess getið, hvenær brennivínsöldinni lauk í Reykjavík. Að fomu er getið um siglingar hafskipa í Elliðaár og Leituvog þótt talið sé, að Hvítá í Borgarfirði hafi verið helsti verslunarstað- ur fyrir Seltjamarnes á þjóðveldisöld og fram á miðja 14. öld, en þá er talið að skipa- komur og kaupstefnur hafi verið töluverðar við Þerney hér inni á Sundum. Síðan tekur Hólmurinn við sem verslunarstaður og eru elstu heimildir um verslun þar frá 1521. — Er talið að Hólmurinn hafi orðið verslunar- staður sem mótvægi við Hafnarfjörð í samkeppni kaupmanna um verslun við inn- anverðan Faxaflóa. Hólmskaupstaður var öldum saman einn helsti verslunarstaður Islands, en 1780 vom verslunarhúsin flutt úr örfírisey og fyrsta sölubúð reist þar sem Veiðarfæraverslunin Geysir er nú. Með einokun 1602 var verslunarstöðun- um fækkað og Hólmurinn var lengi eini verslunarstaðurinn frá Hafnarfirði og allt vestur til Búða á Snæfellsnesi. Kaupsvæði Hafnarfjarðar var hins vegar þröngt og á 17. og 18. öld dró úr verslun í firðinum á sama tíma og Hólmsverslun óx ásmegin. Þetta verður öðru fremur að hafa í huga, þegar skýrt er af hvetju Reykjavík var látin skipa æðri sess en Hafnarfjörður á 18. öld. Jón G. Tómasson borgarritari á skrif stofu sinni. Morgjinbludið/Bjami Hér fara á eftir kaflar úr erindi, sera Jón G. Tómasson borgarritari flutti á fundi Rotary-klúbbs Reykjavíkur í febrúar 1986. Erind- ið nefndi hann „Spjall um sögu Reykjavíkur“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.