Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 24
-24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
tíl
Víð samfögnum borgarbúum
og landsmönnum öllum
á 200 ára afmælí
höfuðborgarínnar
og lokum frá hádegi
á afmælisdegínum 18. ágúst
svo að við getum tekíð þátt
í hátíðahöldunum
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFELAGA
Fjárhagsdeild
Fræðsludeild
Búnaðardeild
Búvörudeild
Sjávarafurðadeil
Skipadeild
Verslunardeild
Byggingavörusalan
Suðurlandsbraut 32
og Krókhálsi 7
Herraríki
Snorrabraut 56
og Glæsibæ
Austurstræti 10
ambandsins og
arahlutaverslun
Ðúnaðardeildar
Ármúla 3
VINNUM SAMAN!
VERUMMEÐ!
Eimskip kaupir
Skaftá af Út-
vegsbankanum
á 21 millj. kr.
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur keypt vöruflutningaskipið ms.
Skaftá af Útvegsbanka íslands á rúmlega 21 milljón króna, sem er
svipað verð og bankinn bauð í skipið á uppboði í Antwerpen fyrir
hálfum mánuði. Skipið hefur verið skýrt Múlafoss og verður notað
til alhliða vöruflutninga. Skipstjóri hefur verið ráðinn Guðmundur
Kr. Kristjánsson.
Útvegsbankinn bauð sem kunn-
ugt er hæst í Skaftá á uppboði í
Antwerpen 29. júlí sl. Samkvæmt
belgískum lögum má gera nýtt til-
boð innan hálfs mánaðar frá því
uppboð fer fram og skal þá efnt til
annars uppboðs. Til þess kom ekki
og eignaðist Útvegsbankinn því
skipið í fyrradag. Tilboð Útvegs-
bankans var af mörgum talið
nokkuð yfir markaðsverði, og óvíst
væri hvort bankanum tækist að fá
sama verð fyrir það í endursölu.
Lárus Jónsson bankastjóri í Útvegs-
bankanum hafði þó gefið í skyn að
bankinn hefði í takinu innlendan
kaupanda, sem vildi greiða þetta
verð fyrir skipið. Það kom á daginn
í gær, þegar gengið var frá kaupum
Eimskipafélagsins á skipinu.
Þorkell Sigurlaugsson hjá Eim-
skip sagðist telja kaupverðið
sanngjamt. „Þegar samið var um
kaup á eignum Hafskips á sínum
tíma var alltaf inni í myndinni að
Skaftá fylgdi með í pakkanum og
þá var skipið metið á þessu verði.
Vegna þeirrar óvissu sem fylgdi
kyrrsetningu skipsins í Antwerpen
var hætt við kaupin í bili. Því töld-
um við eðlilegt að kaupa skipið
nú,“ sagði Þorkell.
Eimskip hefur tvö skip á sölulista
um þessar mundir, Skeiðsfoss og
írafoss. Þorkell sagði að ekkert
væri óeðlilegt við það þótt félagið
keypti nýtt skip á sama tíma og
það væri að selja önnur: „Múlafoss
er hentugri en hin skipin. Það er
yngra en Skeiðsfoss og hefur mið-
skipskrana sem gerir það hentugra
en írafoss," sagði hann. Að sögn
Þorkels hafa staðið yfir viðræður
við erlendan aðila um kaup á íra-
fossi og eru verðhugmyndir nálægt
20 milljónum króna.
Hið nýja skip Eimskips verður
yfirfarið í Antwerpen á næstu dög-
um, en síðan sett í rekstur við
fyrsta tækifæri.
Siglufjörður:
Búið að bræða um
2.500 tonn af loðnu
Siglufirði.
BRÆÐSLA á Siglufirði hefur gengið vel það sem af er vertíð-
inni og á hádegi í gær var búið að bræða 2.500—2.600 tonn af
loðnu. Búist var við þremur loðnubátum inn til löndunar á Siglu-
firði i gær, Hörpu RE með 630 tonn, Albert GK með 600 tonn
og Ljósfara RE með 580 tonn. Við loðnubræðsluna vinna 32
menn á tviskiptum vöktum.
Sveinborg kom inn til löndunar þær sem gerðar voru á honum
með 125 tonn af físki og hér landa og má búast við að hann verði
einn til tveir rækjubátar svo til að minnsta kosti mánaðartíma í
daglega. Siglfírðingur fór í sína túmum.
fyrstu veiðiferð eftir breytingar Matthías
K.E.W. HOBBY
Háþrýstihreinsitækið, nauðsynlegt hjálpartæki fyrir
nútímaheimili og smærri fyrirtæki
Með K.E.W. H0BBY ganga öll þrif fyrir sig á mettima og erfið verk veröa leikur
einn. Þú getur sand-vatnsblásið - t.d. gamla málningu og ryð, hreinsað klóök og
losað stíflur, þvegið bílinn, bátinn, rúðurnar, já sjálft húsið og girðingarnai
og hvað eina sem þarf að þrífa
Þú getur blandað
hreinsiefnum í vatnuL JKH
með sérstökum innbyggöum jektor og þú getur ráðið bæði þrýstingi og dreifingu
vatnsins. Með K.E.W. getur þú gert hlutina betur, jafnframt því sem þú sparar
tíma og minnkar allt erfiði.
Nokkrar tæknilegar upplysmgar:
Þyngd: 17.5 kg, straumnotkun: 9.1 A
orkunotkun: 2.0 kW,
þrýstingur: 66 kg (bOr).
REKSTRARVÖRUR
Pósthotf 4184, 124 Reykjavlk
Símar: 31956 & 685554
Allt á sama stað: Hreinsíefni • Pappír • Vélar • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Raðgiof • 0 fl o fi